Alþýðublaðið - 29.06.1965, Blaðsíða 14
Kvenfélag Ásprestakalís fer í
skemmtiferð í Þjórsárdal á morg
iun, miðvikudag 30- júní. Lagt
af stað frá Sunnutorgi kl. 9 árd.
Þátttaka tilkynnist til Önnu Dan
íelsen sími 37227, eða Guðnýjar
Valbergs sími 33613.
Frá Ferðafé-
Iagi íslands
Ferðafélag íslands ráðgerir eft
irtaldar sumarleyfisferðir fyrri
hluta júlí-
3. júlí 9 daga ferð um Vopna
fjörð og Melrakkasléttu.
8. júlí 4 daga ferð um Suður
Iand, allt austur að Núpsstað.
10. júlí 9 daga ferð um Vestur
Iand og Vestfirði.
12- júlí 8 daga ferð um Öræfin og
Hornafjörð, m.a. gengið á Öræfa
jökul-
13. júlí '13 dag ferð um Norður
og Austurland.
14. júlí 12 daga ferð um Öskju
Ódáðahraun og Sprengisand.
Allar nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu félagsins Öldu
götu 3, símar 11798 — 19533. Vin
samlegast tilkynnið þátttöku í ferð
irnar með góðum fyrirvara.
Kvenfélag Háteigsprestakalls fer
skemmtiferð fimmtudaginn 1. júlí
næstkomandi kl. 8.30 árd. Far-
inn verður Kaldidalur um Húsa
fells kóg í Borgarfirði. Félagskon
ur fjölmennið. Upplýsingan í sím-
um 32203 16797, 34114- Vinsamleg
ast tilkynnið þátttöku sem allra
fyrst.
SBU sigraði
Einangrunargler
Framleitt einungis úr
úrvafsgleri — 5 ára ábyrgð.
Pantiff tímanlega.
Korkiðjan hf.
Skúlagötu 57 — Sími 23260.
Frh. af 11. slffu.
sýndu þó meiri baráttuhug en í
fyrri hálfleiknum. Þá átti Ellert
mjög vel framkvæmda aukaspyrnu
skaut fyrir utan vítateig, sem með
meiri árvekni framherjanna hefði
átt að geta kostað Dani mark.
Upp úr miðjum hálfleiknum
skeði það, að Jón miðframvörður
missti skyndilega af einum sókn-
arleikmanna Dananna, sem brun-
aði í gegn og fékk skorað. Mark-
vörðurinn, Sigurður Dagsson, sem
lék í stað Heimis, og átti ágætah
leik, var einn fyrlr til varnan,
reyndi með úthlaupi að loka mark
inu, en tókst ekki.
í liði úrvalsins voru beztir í
þessum leik þeir Árni Njálsson,
bakvörður, sem sýnilega er einn
okkar bezti maður í þeirri stöðu,
og Ellert Schram, sem yfirleitt
hefur átt jafnbeztu leiki okkar
manna, það sem af er keppnis-
tímabilinu.
í liði Dana voru Jörgensen og
Finn Viborg, hægri inn- og út-
herji beztir.
Eftir þessum leik að dæma
verða vorir menn að taka betur á
5. júlí n. k. en að þessu sinni, ef
saga Dana í Moskvu á ekki að
snúast upp á oss. — EB
Símaskráin 1965
wK Athygli símnotenda skal vakin á því, að símaskráin 1965
gengur í GILDI 1. JÚLÍ NK.
Númerabreytingar hjá þeim símnotendum, sem liafa fengið
tilkynningu þar um, verffa framkvæmdar afffaranótt 1. JÚLÍ 1965.
Símaskráin er afhent í Sigtúni (SjálfstæÖisliúsinu) Tlior-
valdsensstræti 2 til og meff fimmtudeginum 1. júlí. Eftir þann
tíma í innheimtu Landssímans.
Reykjavík, 28. júní 1965.
Bæjarsími Reykjavíkur,
Hafnarfjarðar og Kópavogs.
Nllsson
Framh af 1. síðu
um, en í dag eiga þau að fara
flueleiðis til Akureyrar og síð
an að Mývatni, en koma til
Reykjavíkur á ný á miðviku-
dagsmorgun.
Atvinnuörys:$;i
Framhald af 3. síffu.
un á þeirri saltsíld, sem líkur eru
til að framleidd verði á þessari
síldarvertíð. Af því leiddi hættu á
því, að síld fengist ekki til söltun-
ar, sökum þess hve hráefnisverð
hennar yrði lágt samanborið við
bræðslusíldarverð.
Útflutningsverðmæti saltsíldar
er nær þrefalt miðað við magn
borið saman við afurðir úr bræðslu
síld og liggur mismunurinn að
verulegu leyti í meiri verðmæta-
sköpun innanlands. Það hefur
tekið áratuga starf að afla mark-
útvarpið
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
12.25 Fréttir.
15.00 Miðdegistónleikar. — Fréttir. íslenzk lög.
Borgfirðingakórinn syngur lag eftir Sigfús
Einarsson. Kristín Einarsdóttir syngur lög
eftir Sigvalda Kaldalóns.
16.30 Síðdegisútvarp. — Létt músik.
17.00 Fréttir.
181.30 Harmonikulö^.
19.30 Fréttir.
20.00 Daglegt mál. Svavar Sigmundsson stud.
mag. flytur þáttinn.
20.05 Nútímatónlist. Þrjú lög fyrir kór og hljóm
sveit eftir Lutoslavski, við ljóð eftir Henri
Michaux.
20.25 Dul og draumar. Gretar Fells rithöfundur
flytur erindi.
21.00 Þriðjudagsleikritið: „Herrans hjörð” eftir
Gunnar M. Magnúss. Leikstjóri: Ævar R.
Kvaran. Níundi þáttur: „Þá gat ég ekki
þagað.
Hlutverk:
Hjálmar skáld Róbert Arnfinnsson
Guðrún dóttir hans Kristín Anna Þórarinsd.
Séra Arnljótur Haraldur Björnsson
Séra Jón á Mælifelli Gestur Pálsson.
Steinimn dóttir hans Kristbjörg Kjeld
Jón á Gautlöndum Brynjólfur Jóhannes.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.30 Kvöldsagan „Bræðurnir” eftir Haggard.
Þýð.: Þorst. Finnbogason. Séra Emil Björns
son les. (26).
22.35 Syngdu meðan sólin skín. -- Guðmundur
Jónsson stjórnar þætti með misléttri músik.
23.20 Dagskrárlok.
aða fyrir íslenzka saltsíld. Mark-
aðir þessir eru í augljósri hættu,
ef verulega dregur úr síldarsöltun.
Gæti það valdið óbætanlegu tjóni
íslenzkum sjávarútvegi, þeim
landssvæðum, þar sem söltun aðal
lega fer fram og þjóðarbúinu í
heild.
Sú lækkun sem verður á bræðslu
síldarverðinu af þessum sökum
rennur óskipt til sjómanna og út-
gerðarmanna í hækkun hráefnis-
verðs um allt að þrjátíu krónur
miðað við uppsaltaða tunnu.
Á sl. ári náðist um það sam-
komulag í Verðlagsráði milli full-
trúa sjómanna og útvegsmanna |
annarsvegar og fulltrúa síldar \
kaupenda hinsvegar að leggja
hluta af andvirði bræðslusíldar í
sérstakan sjóð til að greiða fyrir
siglingu veiðiskipa með eigin
bræðslusíldarafla til hafna Norð-
anlands, þegar þrær verksmiðj-
anna eystra væru fullar og lönd-
unartöf á Raufarhöfn. Ríkisstjórn
inni var kunnugt um að samskon-
ar samkomulag mundi ckki takast
að þessu sinni í Verlagsráði siáv-
arútvegsins. þó að meirihluti full-
trúa væru því meðmæltir. Til
þess að koma í veg fyrir stórfelld
töp síldveiðiflotans sökum lönd-
unarbiða á Austf.iörðum, bar brýna
nauðsyh til að stuðla að því að
þetta flutningafyrirkomulag síld-
veiðiskipa héldi áfram og væri
styrkt þannig, að heildargreiðslur
til þeirra, þegar svo stæði á, hækk
aði úr 16 krnmim á árinu 1964 í
25 krónur á hvert mál.
Sérstaklega skal tekið fram, að
sióðurinn greiðir ekki neinn kostn
að af rekstri flutningaskipa, sem
síldarverksmiðjur hafa tekið á
leigu eða gera út til síldarflutn-
inga
Bráðabirgðalögin heimila að
verja allt að fjórum milljónum
króna til flutnings á kældri síld
sem hæf sé til söltunar og fryst-
ingar frá miðunum við Austur-
land til Norðurlandshafna. Er hér
um merkilega nýjung að ræða til
að leysa það vandamál. sem af
bví stafar, að síldargöngur hafa
leitað á nvjar slóðir, svo og að
helztu síldarverkunarstaðir Norð-
anlands hafa búið við langvarandi
skort á hráefni og þarafleiðandi
alvarlega atvinnuörðugleika.
Ef tilraunin hepnnast evkur það
atvinnuöryggi, 'allra þeirra, sem
við síldarútveg fást á sjó og
landi.
Að öðru leyti vísast til greinar-
gerða oddamanns yfirnefndar
verðlagsráðs sjávarútvegsins og
stjórnarformanns og framkvæmda
stjóra Síldarverksmiðja ríkisins.
Reykjavík, 28. júní 1965.
Síldarafiinn
Framhald af 4. síffu
um hve mikið hver einstakur bát
ur hefur lagt upp til söltunar og
er það magn því ekki innifalið
í aflatölunum.
Hæstir á skýrslu Fiskifélags-
ins eru þessir bátar: Sigurður
Bjarna:on 12-964 mál, Þorsteinn
RE 11 572, Jón Kjartansson 11-
018, Reykiaborg 10 828 og Heim
ir SU 10030 mál.
VS WrVí/tHHt&t
TjTi-SJk Jttl,
s'ramh uic ■»
fyrra, að viðskiptamönnum Síldar
verksmiðja ríkisins sé heimilt að
velja um. hvort þeir selja síldina
föstu verði eða leggja hana inn til
vinnslu, enda segi þeir til um
hvorn kostinn þeir velji innan til-
tekis tíma.
Af framan rltuðu er ljóst, að
verðákvörðun h’’apðslns'ldarvRrfSs
ins í sumar hefur farið fram með
venjulegum hætti og í fullu sam-
ræmi við lögin um Verðlagsráð
sjávarútvegsins.
Reykjavík, 28. júní 1965.
Sveinn Benediktsson.
Sigu;rður Jónsson.
Síldveiðin stöðvuð
Framh. af 1. síðu.
um aðgerðum, og þaðan af síður
hvatt til þeirra.
Upptök máisins munu hafa ver
ið þau, að þegar ákvörðun yfir-
nefndar um bræðslusíldarverðið
var kunnugt „töluðu menn sig
saman um, að enga sild væri að
finna fyrir þetta verð og væri því
ekki um annað að gera en að
hætta” eins og einn síldarskip-
stióri orðaði það í viðtali við Al-
þýðublaðið í gær. Síðan tóku mál
in þá stefnu sem greind er hér
að framan.
Alþýðublaðið hafði samband
við nokkra af fréttariturum sín-
um fyrir norðan og austan í gær:
Gunnþór Björnsson á Seyðis-
firði sagði: Flestallir aðkomubátar
eru farnir héðan. Þrær bræðsl-
unnar eru tómar og ekkert brætt.
Síldarverkafólkið er farið að sýna
á sér fararsnið og yfirleitt má
segja, að óhugur sé í mönnum.
Hins vegar eru allir á sama máli
um að síldarverðið sé óviðunandi.
Garðar Árnason á Neskaupstað:
Allir eru sammála um ranglæti yf
irnefndarúrskurðarins, þar á með
al flestir útgerðarmenn hér í
plássi. Samstaða með sjómönnum
er alger.
Hér liggja rúm 20 skip inni,
þar af 8—9 Norðfirðingar.
Magnús Bjarnason á Eskifirði:
Eg held að menn geri sér almennt
ekki grein fyrir hvað ástandið er
alvarlegt. Áreiðanlega verður hér
um eitilharða deilu að ræða og
víst er það, að eigendur síldar-
mjölsverksmiðja verða ekki við-
ráðanlegri en sjómennirnir. Ný-
lokið er við að bræða upp hér á
Eskifirði og útkoman er sú, að
fengist hafa 14.6 kg. af lýsi úr
hverju máli síldar, en í verðút-
reikningi er yfirleitt miðað við
að 25 kg. fáist úr hverju máli.
Mér virðist að menn hafi ekki
gert sér nægilega grein fyrir efni
i bráðabirgðalaganna. Samkvæmt á-
kvæðum laganna er gert ráð fyrir
að mest allt það fé, sem innheimt
verður renni aftur til sjómann-
anna í hærra saltsíldarverði.
Heimabátar eru allir inni og
hreyfa sig áreiðanlega ekki um
sinn.
Jóhann G. Möller á Siglufirði:
Héðan er ekkert að frétta. Menn
bíða r-ólegir eftir framvindu mála.
Bræðslu lauk hér fyrir 4 dögum.
J4 29. júní 1965 - ALÞYÐUBLAÐIÐ