Alþýðublaðið - 29.06.1965, Page 15
Ásgeir G.
Stefánsson
Framhald úr opnu.
öðru sem öllum er kunnugt, þó að
á þetta þrennt sé drepið mönnum
til athugunar og minnis. Bæjarút-
• gerðar Hafnarfjarðar er nú sjald
an minnzt nema helzt þegar talað
er um skuldir. Því er sjaldan flík-
að hvert innlegg hún á hjá borgur-
um Hafnarfjarðar, ungum og göml
um — og þess er sjaldan minnzt
hversu mikið hinir fjölmörgu eiga
hinum mörgu er þar störfuðu af
kostgæfni og árvekni til sjós og
iands að þakka, en þó síðast en
ekki sízt manninum sem gaf þeim
líf sitt allt á beztu árum æfinnar
Ásgeiri Stefánssyni forstjóra.
Eins og að líkum lætur gegndi
Ásgeir heitinn mörgum trúnaðar
störfum meðal samtaka útgerðar-
,manna.
í stjórn Félags ísl. botnvörpuskipa
eigenda um áratuga skeið.
í stjórn Landssambands útvegs-
manna. t
Samtryggingu ísl. botnvörpunga
o. fl. félögum.
Getur nærri að hann skipaði sess
sinn vel pg ávann sér ekki aðeins
traust heldur og vináttu samverka
.manna. Eru þau mörg dæmin og
minnisstæð um sérstaka góðvild
og vináttu sem vart á sinn líka um
þennan ágæta, stórbrotna en við
kvæma mann, sem nú er kvaddur
kærum vinar kveðjum.
Kæra Sólveig — ástríku börn
Asgeirs Stefánssonar, vandamenn
,og vinir — megi forsjónin vera
það, sem hann vildi að hún væri
ykkur og blessi ykkur minningu
lians.
Innilegar samúðarkveðjur.
Jón Axel Pétursson.
Guðmundur
HaHdérsscm
Framhald af 7. síðu.
lags, reyndist honum ávallt auð-
velt að vinna að félagsmálum iðn-
aðarmanna og vera í forystu
þeirra, enda hafa iðnaðarmenn
eins og reynslan sýnir, óspart not-
að' sér það á liðnum árum, með
því að fela honum sívaxandi störf
og ábyrgð.
Guðmundur kvæntist 16. nóv.
1931 eftirlifandi konu sinni Jó- 1
hönnu Lovísu Jónsdóttur frá Höfn '
í Fljótum, hefur sambúð þeirr-a |
verið með ágætum. Má nærri geta
að ekki ósjaldan hefur það skapað
. óþægindi og erfiði fyrir eigin-
konu og fjölskyldu, öll þau störf
sem Guðmundur hafði með hönd-
um og fáar hljóta að hafa verið
stundirnar sem hann gat verið
óskipt.ur með fjölskyldu sinni, en
óhætt má fullyrða að án góðrar
konu hefði honum ekki tekizt að
ijúka sínu dagsverki, enda var
hún honum sú stoð, sem þurfti og
stóð við hlið hans í öllum hans
störfum.
Þau hjón eignuðust þrjár dætur,
tvær þeirra eru búsettar í Reykja
vík, en ein í Danmörku.
Að Guðmundi Halldórssyni er
sár harmur kveðinn, ekki ein-
göngu að eftirlifandi konu hans og
f jölskyldu, heldur. og að samstarfs
mönnum og vinum um allt land,
cn bót er í harmi að minnast hans
góðu og miklu verka og sem fram
úrskarandi góðs félaga.
Ég flyt Guðmundi látnum þakk-
ir fyrir löng og góð kynni og góða
samvinnu okkar á mUli öll þau ár
sem við höfum starfað saman, ég
flyt honum einnig þakkir. iðnaðar
manna fyrir öll störfin, sem hann
vann i þeirra þágu.
Eftirlifandi konu hans og öðr-
um ástvinum færi ég hugheilar
samúðarkveðjur og bið þeim styrks
og blessunar- frá þeim sem öllu
ræður. Vigfús Sigurðsson.
Skipting
Framhald af 4. síðu
ur vara. Þessu til sannprófunar
fór yfirnefnd yfir heimildir kaup-
enda um fitumælingar snemmsum
ars allt frá árinu 1955. Staðfestu
þær heimildir, að fituinnihaldið
fer yfirleitt ekki að komast í eðli
legt horf sumarvertíðar fyrr en eft-
ir miðjan júni.
Með aukinni tækni við síldar-
leit og síldveiðar hafa skapazt skil
yrði til veiða yfir lengri tíma árs
og á fleiri og fjarlægari veiði-
svæðum en áður hefur verið, án
þess að sú staðreynd breyti nokkru
um þau skilyrði, er ráða fituinni-
haldi síldarinnar á hinum ýmsu
árstíðum.
Verðákvörðun sumarsíldar bygg
ist á meðalútkomu afurða úr
hverju máli bræðslusíldar um
fimm undanfarin ár. Sú reynsla
er að yfirgnæfandi hluta fengin af
tímabilinu frá þvi um miðjan júní,
og veitir því ekki grundvöll til að
byggja á áætlun um afurðaútkomu
vorsíldar.
Gegn eindregnum mótmælum
fulltrúa kaupenda er því ekki fært
að gera kaupendum að skyldu að
greiða sama verð fyrir vorsíldina
og samsvarar áætlaðri afurðaút-
komu sumarsíldar. Ekki verður
talið fært að gera jöfnun á milli
vorsíldar og sumarsíldar. Veiðar
vorsíldarinnar falla mjög misjafnt
á bátaflotann í samanburði við
sumarveiðarnar, án þess að nokk-
ur ástæða sýnist til að valda verð-
jöfnun þeim bátum í hag, er hefja
veiðarnar snemma, en öðrum í
óhag. Sömuleiðis hefur skiptingin
á einstakar verksmiðjur reynzt
verulega misjöfn.
Niðurstaðan af hlutlægu mati
allra aðstæðna hlýtur því að verða
sú, að verðlagstímabilin verði tvö.
Eftir atvikum þykir rétt, að mörk
in séu sett á milli 14 og 15. júní.
Ákvörðun verðlagsins. Lög um
verðlagsráð sjávarútvegsins mæia
svo fyrir, að meiri hluti atkvæða
í yfirnefnd ráði úrslitum. Fordæmi
er fyrir því, að oddamaður skeri
sjálfstætt úr um ágreining deilu-
aðila, ef langt er á milli úrslita-
krafna þeirra og oddamaður getur
á hvoruga fallizt.
Oddamaður er bundinn þagnar-
skyldu um tilraunir sinar til að ná
samkomulagi og um afstöður full-
trúanna í nefndinni að öðru leyti
en fram kemur við endanlegan
úrskurð verðsins. Reynt var til
þrautar að ná samkomulagi allra
aðila í nefndinni. En fyrir atbeina
oddamanns gátu kaupendur fallizt
á tillögur hans um, að verðið yrði
kr. 190.00 á mál til og með 14.
júni, en kr. 220.00 á mál á tíma-
bilinu 15. júní til 30. september,
en við síðara verðið bætist gjald
skv sérstökum lögum, kr. 15.00 á
mál.
Hækkun sumarverðsins frá fyrra
ári nemur 21%, miðað við bæði
verðin án tillags í flutninga- og
jöfnunarsjóð, en 27% ef þau til-
lög eru meðtalin.
Við samningu þessara verðtil-
lagna hefur verið höfð hliðsjón af
þeim atriðum, er lögin mæla fyr-
ir, þ. e. markaðsverði afurðanna
á erlendum mörkuðum svo og
framleiðslukostnaði þeirra bæði
að því er tekur til veiða og
vinnslu, eftir því sem gögn vor.u
tiltækileg.
Raunhæfa áætlun um meðal-
verðmæti afurða úr hverju máli
sumarsíldarinnar telur oddamaður
vera kr. 385.00 f. o. b. að frádregn
um útflutningsgjöldum. Úrskurð-
uð skipting er kr. 150.00 í hlut
verksmiðja, eða 39%, en til bát-
anna og í flutnings- og jöfnunar
sjóð kr. 235.00 eða 61%. Til sam
anburðar má geta þess, að áætl-
aður vinnslukostnaður síldarverk-
smiðja ríkisins í fyrra, en þá náð-
ist samkomulag um verðið, var kr.
161,00 á mál eða 11 kr. hærra en
verksmiðjunum er nú skilið eftir
En hærri magnáætlun nú gerir
meiri dreifingu fasts kostnaðar
mögulega.
Tillagan um verð vorsíldarinn-
ar byggist á könnun allra tiltækra
heimilda um fituinnihald síldar-
innar skv. vinnsluútkomu og fitu-
mælingum. Á þeim grundvelli má
telja tryggt, að lýsisútkoman verði
innan við 13 kg. úr hverju máli. Er
verðtiliagan miðuð við það, að síld
arverksmiðjurnar haldi einungis
eftir af verðmætinu sem svarar
breytilegum kostnaði vinnslunnar
af þessu magni, en ekki reiknað
með, að af þessu magni sé staðið
undir fymingum né vöxtum af
stofnkostnaði. Er það gert með
fyrirvara af hálfu oddamanns, að
sú viðmiðun sé ekki sérlega til
fordæmis við tilsvarandi verð-
ákvörðun síðar.
Reykjavík, 28. júní 1965.
Bjarni B. Jón&son.
Átelja drátt
Framh. af bis 3
treyst í framtiðlnni að byrja veið-
ar fyrr en verðákvörðun liggur
fyrir hverju sinni.
Þá telja stjórnir sambandanna
að hin ákveðnu verð á síld til
bræðslu séu alltof lág, miðað við
óætlað veiðimagn, fyrirframsölu á
mjöli og lýsi og markaðsverð á
þeim afurðum eins oð það er nú.
Stjórnir. sambandanna mótmæla
ákveðið bráðabirgðalögum þeim,
er sett hafa verið um flutning á
síld, verðjöfnun síldar í bræðslu
og salt o. fl., og telja það sérstak-
lega mikið fljótræði að ákveða
uppbætur á síld til söltunar og
frystingar á kostnað bræðslusíld-
ar, meðan verð á síld til söltunar
eða annarrar nýtingar en í bræðslu
liggur ekki fyrir og það ekki enn-
þá verið tekið til umræðu í Verð-
lagsráði, enda engin gögn eða upp-
lýsingar borist frá Síldarútvegs-
nefnd um sölu o. fli, eða áætlanir
frá félagssamtökum síldarsaltenda
eða öðrum viðkomandi aðilum.
Þá mótmæla stjórnirnar þvi
einnig að ákveðið er að greiða
aðeins flutningsgjald á síld til
bræðslu af austursvæðinu til
norðurlandsins en ekki gagn-
.kvæmt til austurlandsverksmiðja
eins og ákveðið var af Verðlags-
ráði á sl. sumri, ef síldin skyldi
aðallega veiðast fyrir norðan um
lengri eða skeminri tima.
Stjórnir sambandanna víta einu
ig það ákvæði bráðabirgðalaganna,
að gera sérstaklega sjómönnum
og útvegsmönnum að greiða á-
kveðna fjárhæð vegna samnings-
ákvæðis ríkisstjórnarinnar við
verkalýðsfélögin á Norðurlandi,
um úrbætur í atvinnumálum i
þeim landshluta.
Að síðustu vilja stjórnir sam-
bandanna, um leið og þær mót-
mæla meðferð þessa máls sem
heild, vinnubrögðum Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins, ákvörðun
meirihluta yfirnefndar og bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar,
benda á, að óhæft er með öllu, að
ganga framhjá Farmanna- og fiski
mannasambandi íslands um til-
nefningu í nefndir sem fjalla ei^a
um hagsmunamál meðlima þess. i
FERÐIR
VIKULEGA
TIL
KAUPMANNAHAFNAR
Töfraheimurinn Tívolí, fornsöl-
urnar í Fiolstræde, hafmeyjan
á Lönguiínu og baðströndin
Bellevue ....
ALLT E R. AÐ FINNA I
KAUPMANNAHÖFN.
Á laugardögum kl. 4 e.h .er flogib beina
leib frá Reykjavík tii Kaupmannahafnar
y/t
'6
rS
j//r
V
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. júní 1965 15