Alþýðublaðið - 30.06.1965, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 30.06.1965, Blaðsíða 11
Glæsileg iÞróttahátíð að Laugarvatni um helgina EINS og skýrt hefur verið frá í Alþýðublaðinu fer 12. Landsmót UMFÍ fram að Laugarvatni dag- ana 3. og 4. júlí næstkomandi. Héraðsambandið Skarphéðinn sér um framkvæmd mótsins,'en undir búningun hefur staðið yfir í rúm tvö ár, og kostað marga svita- dropa. Fyrsta Landsmót UMFÍ fór fram á Akureyri 17. júní 1909, en tvö þau næstu í Reykjavík árin 1911 og 1914. Síðan varð nokkurt hlé á mótum þessum, en 4. Lands- mót UMFÍ var háð að Haukadal árið 1940 og var um einskonar endurvakningu að ræða. Síðan hafa mót þessi farið fram þriðja og fjórða hvert ár. Síðasta mót var háð að Laugum 1961. Forráðamenn mótsins ræddu við fréttamenn nú í vikunni og skýrði frá ýmsu í sambandi við undirbúninginn og mótið sjálft. Formaður framkvæmdanefndar, Stefán Jasonarson sagði, að fram Yfirlýsing frá IBV VEGNA greinar sem birtist á íþróttasíðu Morgunblaðsins 23. 6. 1965 sem bar yfirskriftina „Vest- mannaeyingar sátu heima“ vill stjórn í. B. V. koma á framfæri eftirfarandi. Stjórn í. B. V. sótti um írestum á umræddum leik til K. S. í. vegna: 1. Loka átti flugvellinum í Eyj- um sökum viðgerðar frá hádegi þriðjud. 22. júní til kl. 20.00 fimmtudaginn 24. júní. Hefðu pilt- arnir flogið til Reykjavíkur að morgni 22. júní áttu þeir enga ferð vísa til Eyja fyrr en fimmtudaginn 24. júní. 2. Af fyrrgreindum ástæðum hefði reynst ógerlegt að fá marga leikmenn lausa úr sinni vinnu. 3. Að ofangreindum ástæðum frestaði mótanefnd K. S. í. um- ræddum leik. Þá vill stjórn Í B.V. taka það fram að aldrei áður hef- ur þurft að fresta leik þeirra vegna, en t. d. á síðastliðnu sumri þurfti að fresta átta leikjum í landsmóti hér í Vestmannaeyjum vegna þess að liðin, sem keppa áttu komust ekki samdægurs með flugvél til Eyja. Stjórn í. B. V. harmar að rit- stjóri íþróttasíðu Morgunblaðsins skyldi ekki sjá sér fært að birta leiðréttingu, eftir samtal við for- mann ÍBV. Yfirlýsing þessi er send öllum dagblöðum Reykjavíkur. Stjórn íþróttasambands Vestmannaeyja. kvæmdanefndin hefði tekið til ! starfa 1963 og starfað látlaust síð- an, en mest hefði vinnan verið síðustu mánuði. Margir hefðu lagt hönd á plóginn og það hefði létt mjög störfin. Stefán sagði, að starf Skarphéð- ins og framkvæmdanefndar hefði verið þríþætt, í fyrsta lagi mann- virkjagerð, skipulagning keppninn ar og sýninga og undirbúningun íþróttafólks HSK. Skólastjóri íþróttakennaraskóla íslands, Árni Guðmundsson hefur haft yfirumsjón með vallargerð að Laugarvatni, en tekinn verðun í notkun nýr leikvangur í sambandi við mótið, þar sem frjálsíþrótta- keppnin fer fram en frjálsíþróttir eru aðalíþróttagreinar mótsins. Úrslitaleikurinn í knattspyrnu fer fram á leikvanginum og sérstakur völlur er fyrir handknattleik og körfuknattleik. Stefán sagði að að- stoð skólastjórans hefði verið ómetanleg í sambandi við leik- vanginn. Sundkeppnin fer fram í plast- iaug, en þar er um algera nýjung að ræða í sundlaugagerð, sem eng in reynsla er fyrir hér á landi. Laugin er 25 m. á lengd. Þá verð- ur. einnig keppt í starfsíþróttum og glímu og fjölmennar hópsýning ar fara fram, nemendur íþrótta- kennaraskólans munu sýna svo og Skarphéðinsmenn. Keppendur og meðlimir sýningarflokka eru alls um 700, en starfsmenn mótsins rúmlega 300. Alls taka 17 héraðs- sambönd og félög þátt í mótinu. Ýmislegt verður til skemmtun- ar auk íþróttanna, á laugardags- kvöldið verður glæsileg kvöldvaka Framh. á 15. síðu Þetta er Ole Madsen, fyrirliði danska Iandsliðsins, sem leikur í Reykjavík á mánudaginn. ÓVÆNT ÚRSLIT í 2. DEILD: Breiðablik vann ÍBÍ 2-1 og IBI FH 4-2 ÞAÐ VAR frekar slæmt veður | í Hafnarfirði á sunnudag, þegar leikur FH, og ÍBÍ hófst, rigning var og allsterkur vindur. FH -1 ingar léku gegn vindi í fyrri hálf leik, en þrátt fyrir það sóttu þeir meir og þegar um 10 mín. voru af leik fá þeir vítaspyrnu og skor ar Bergþór örugglega úr henni, | skömmu síðar skorar Eiríkur I glæsilegt mark af nokkuð löngu færi^ skaut hann með vinstri fæti óverjandi fyrir hinn efnilega j markvörð ÍBÍ. Fleiri mörk skor ' uðu þeir ekki í hálfleiknum, en , iðulega var hætta við mark ÍBÍ en illa gekk að koma knettinum inn. Einu sinni komst mark FH í verulega hættu, en ÍBÍ fékk hornspyrnu og úr henni fékk Björn Helgason knöttinn en skaut í þverslá, þaðan hrökk knötturinn til ísfirðings, en hann skaut hátt yfir. í byrjun síðari hálfleiks var auðsýnilegt að ísfirðingarnir ætl uðu að jafna metin, en þegar þeir misstu einn manna sinna út af oooooooooooooooo- LEIKUR íslenzka úrvalsliffs- ins viff úrvalsliff Sjálands í fyrrakvöld var lélegur. Á þessari mynd hefur þó ís- lenzkur léikmaffur, Reynir, Jónsson, leikið á danskan varnarmann og gefiff boltann fyrir markiff. Mynd: JV. héldu flestir að búið væri meíí þeirra baráttu, en það var öðru nær. Rétt á eftir skorar v. útherji þeirra með frekar lausu skoti al veg út við stöng. Stóð nú svona nokkurn tíma og sóttu liðin á víxl en ísfirðingar voru þó miklu ákveðnari og þegar um 15. mín. voru til Ieiksloka var eins og FH- ingar hreinlega gæfust upp, vörn in opnaðist eins og flóðgáttir og þar löbbuðu ísfirðingar í gegn. Þeir skoruðu þrjú mörk á stytti um tíma- Öll komu þau úr þvögu fyrir framan markið og virtistl oft á tíðum ómögulegt að koma knettinum inn; en það gekk furðu vel hjá þeim. Þannig lauk lejkn- um með sigri ÍBÍ 4—2, úrslit sem enginn gat búist við í hálfleík en það skyldi enginn gera að 4 kveðá úrslit fyrr en að leik lokn um. Lið ÍBÍ sýndi oft í seinni hálf- leik góðan samleik enda var það hægur vandi þar sem mótstaðan var ekki mikil. Beztu menn liða ins voru Björn Helgason, sem fékk að leika lausum hala í síðari háií leik, einnig Kristmann, miðfram vörðurinn og markvörðurinn, sem bjargaði þeim vel í fyrri hálfleik. Lið FH sýndi oft mjög góðan leik í fyrri hálfleik og átti skilítt að fá meir út úr honum, ■ að rhinnsta kosti jafnmikið og ÍBÍ fékk út úr þeim síðari. en þei? Framh. á 15. sfðu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. júní 1965

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.