Alþýðublaðið - 16.07.1965, Síða 3
Nkrymah boðið
tii N-Vietnam
London, 15. júlí
(NTB — Reuter)
HO CHI MINH, forseti Norður-
Vietnam, hefur boðið Kwame
Nkrumah, forseta Ghana, að koma
í einkaheimsókn til Hanoi eða
senda sérlegan fulltrúa, að því er
áreiðanlegar heimildir í London
herma. Nkrumah forseti á sæti í
friðarnefnd brezka samveldisins,
sem reynir að miðla málum í Viet
nam-deilunni og Harold Wilson
forsætisráðherra er formaður
fyrir.
En diplómatar í London benda á
að dr. Nkrumah hafi fengið per-
sónulegt heimboð sem forseti
Ghana en ekki sem meðlimur frið
arnefndarinnar.
Ekki er vitað hvernig dr.
Nkrumah tekur í heimboð Ho Chi
Minhs, sem var sent í bréfi til
Ghanaforseta nýlega. Norður-
' Vietnam, Kína og Sovétríkin hafa
' áður tekið fram, að ekki verði tek-
ið á móti friðarnefndinni því að
hún er undir forsæti Wilsons, og er
stuðningur hans við stefnu Banda-
ríkjanna sögð ástæðan.
Harold Wilson forsætisráðherra
sagði í dag, að Norður-Vietnam
stjórn væri þeirrar skoðunar, að
sigur í viðureigninni við Suður-
vietnamiskar og bandarískar her-
sveitir væri í nánd og þess vegna
væri tilgangslaust að yfirgefa víg-
völlinn og setjast að samninga
borffi.
Þetta var afstaða sú, sem Norð-
ur-Vietnammenn gerðu Harold
Davies, sérlegum fulltrúa Wilsons
grein fyrir þegar hann var í Hanoi
til að fá þá til að veita friðarnefnd
brezka samveldisins áheyrn.
Wilson sagði í Neðri málstof-
Framh. á 14 sííh’
Kæmu sér vel á tunglinu
segja geimfararnir um islensku hestana
Reykjavík, — ÓTJ.
BANDARÍSKU tunglfaraefnin
skemmtu sér í gær í útreiffatúr
um um Sandskeiðiff og einnig
brugffu þeir sér í svifflug-
Þeir voru þarna staddir í boði
Loftleiffa sem fara iffulega
svona smáferffir meff boffsgesti
Þó iað piltarnir séu ýmsu vanir
í loftinu, höfffu fæstir þeirra
stigiff upp í svifflugu áffur, og
fyrstu „fórnardýrinu“ fylgdu
ótal heilræffi frá hlæjandi fé-
lögum.
Og þegar svifflugan steig
hratt til himins undir stjórn
Leifs Jónssonar heyrðust frá
mörgum upphrópanir eins og:
„Look iat her go“ „Poor Roger“
og , Not as noi .y as an Atlas
is she?“
Ekki voru vindarnir mjög
hliðhollir þennan dag, svo að
erfitt var að ná mikilli hæð.
Var því aðeins flogið í tvo stóra
hringi með hvern, og síðan
lent-
Flestir hafa líklega búizt við
að slíkir kappar létu sér fátt
um finnast að hafa ekki kraft
meira tæki en svifflugu í hönd
unum, en það var öðru nær.
— Þetta var stórkostlega
gaman, sagði Roger Chaffe,sem
aldrei hefur áður stigið upp
í svifflugu. Maður fær alveg
undursamlega tilfinningu fyrir
fluginu sem alls ekki finnst í
öðrum vélum, sízt af öllu þot
um með mörg þúsund hesta
hreyflum. Ég held að ég verði
Framhald á 14.
Skálholtshátíð
á sunnudagmn
Skálholt' hátíð verður haldin
næstkomandi sunnudag, 18- þessa !
mánaðar. Hátíðahöldin munu
hefjast kl. 9 árdegis, en þá verð
ur klukkum hringt og haldin morg
55 skip með
38.850 mál
Reykjavík — KB.
NOKKUÐ heldur áfram að reit
ast af síld á miðunum fyrir Aust
urlandi. Síðast liðna nótt fengu
55 skip samtals 38.850 mál og
tunnur á svipgðum slóðum og áð
ur, 50 mílur suðaustur af Gerpi.
í dag hefur veiði verið mjög lítil,
aðeins eitt skip hafði tilkynnt um
afla, þegar blaðið átti tal við sild
arleitina á Dalatanga um kvöld-
verðarleytið. Ljómandi veður var
þá á miðunum, en að undanförnu
hefur veiði verið helzt á kvöldin
og nóttunni. Leitarskip halda stöð
ugt áfram að leita síldar, en enn
hefur lítið fundizt nema þarna sem
flotinn er nú að veiðum.
unbæn. Kl. 11 fer fram messa
í Skálholtskirkju og mun biskup
inn yfir íslandi, herra Sigurbjörn
Einarsson predika og þjóna fyrir
altari, en séra Guðmundur Óli
Ólaf son dómkirkjuprestur í Skál
holti aðstoða. Skálholtskó'inn
syngur við guðsþjónustuna, en org
anleikari verður Guðjón Guðjóns
son stud.tiieol. Trompetleikararnir
Stefán Stephensen, Sæbjörn Jóns
son og Eyjólfur Melsteð munu
einnig koma fram.
Kl- 2 síðdegis mun dr- Póll
ísólfsson leika einleik á orgel,
Jóhann S. Hannes,ron skólameist
a'i að Lsugarvatni flytja ræðu og
ávarp mun flytja Magnús Víg
lundarson ræðsmaður. Þá mun
dr. Páll ísólfsson aftur leika ein
leik á orgel.
Kl. 5 síðdegis verður aftur me-s
að, og mun séra Sigurður Pálsson
prófastur í Hraungerði þá predika
og þjóna fyrir altari. Skálholtskór
inn syngur og organisti verður
sem fyrr Guðjón Guðjónsson stud.
theol.
S-’mkomunni lýkur kl- 9 síðdeg
is með kvöldbæn, sem séra Guð
mundur Óli Ólafsson flytur.
Ferð til Skálholts frá Reykja
vík verður kl. 8.30, og verður
lagt af stað frá BSÍ.
Geimfararnir setjast upp í svifflugu á Sandskeiffi. Ljósm.: Jóhann Vilberg.
Hækkanimar ekki í neinum
tengslum við samningana
Reykjavík — EG.
ÞAÐ kom skýrt og greinilega
fram á fundi borgarstjórnar í
kvöld, aff væntanlegar hækkanir |
á fargjöldum Strætisvagna Reykja
víkur og gjaldskrá Hitaveitunnar j
Togari tekinn í landhelgi
Reykjavík — KB.
BREZKUR togari, Corina Fleed
vvood 173, var í gærmorgun tekinn
að ólöglegum veiðum út af Vest
fjörðum, og hélt varðskip með
•hann til hafnar og kom til ísa-
fjarðar síðdegis í gær, en þar verð
ur mál skipstjórans tekið fyrir.
Aðrar upplýsingar en þessar, svo
sem um nánari staðsetningu tog-
arans og hve langt innan við fisk
veiðitakmörkin hann var — en
það mun hafa verið ein sjómíla
að sögn Ríkisútvarpsins — fékkst
landhelgisgæzlan ekki til að veita
blaðinu, þegar hún tilkynnti um
þessa togaratöku. „Það kemur í
ljós við réttarhöldin", voru svör
talsmanns gæzlunnar, þegar um
þetta og annað í sambandi við tök
una var spurt.
Annað varðskip kom brezkum
togara til aðstoðar út af Suðaust
urlandi í fyrradag. Var sá með
sjúkan mann innanborðs oe flutti
varðskipið hann til hafnar, þar
sem hann var lagður á sjúkrahús.
standa ekki í neinu sambandi viff
nýgerffa kjarasamninga eins og
haldiff hefur verið fram í Þjóðvilj
anum undanfarna daga. Hækkanir
þessar eru tilkomnar vegna launa
og söluskattshækkana frá því í
desember áriff 1963 og fram á
þetta ár og hefffu orffiff aff koma
hvort sem kauphækkanir hefffu
orðiff nú í sumar effa ekki.
Þaff kom einnig fram á þessum
fundi, aff fulltrúum verkalýffsfé
laganna viff samningagerff í vor,
sem og fulltrúum atvinnurekenda,
var kunnugt um aff þessar hækk
anir væru væntanlegar.
Hækkanirnar, sem hér er um að
ræða eru þær, að fargjöld með
strætisvögnunum munu hækka í
fimm krónur fyrir fullorðna og
gjald fyrir hvert tonn af heitu
vatni hækkar úr kr. 5,34 í kr. 6,31
og mælaleiga hækkar tilsvarandi.
Borgarstjóri benti á, að gjald-
skrár fyrlr þessi borgarfyrir-
tæki hefðu ekki hækkað síðan í
desember árið 1963. Síðan hefðu
átt sér stað þrennskonar hækkan
ir, sem áhrif hefðu haft á útgjöld
þessara borgarfyrirtækja.
í fyrsta lagi kauphækkun, 15%,
undir lok desember 1963, svo 5%
hækkun og hækkun oríofs úr 6%
í 7% í júní 1964 og svo 6,6% kaup
hækkun fastra borgarstarfsmanna
frá og með í. okt. 1964.
í öðru lagi hefði söluskattur
verið 3% er fyrri gjaldskrár vorú
settar, en hann er nú 7.5%. !
í þriðja lagi hefðu fyrirtækjun
um bætzt útgjöld vegna laga um
1% launaskatt er samþykkt vorú
á síðasta þingi.
Framhald á 15. síðu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. júlí 1965 3