Alþýðublaðið - 16.07.1965, Síða 5
NA UÐUNGARUPPBOÐ
það sem auglýst var í 31., 33. og 35. tölublaði Lögbirtinga
blaðsins 1965 á fasteigninni Hlíðarhvammi 9, þinglýstri
oign Sigurbjörns Eiríkssonar, fer fram á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 20. júlí 1965 kl. 16, samkvæmt kröfu Gjald
heimtunnar í Reykjavík, Sigurðar Péturssonar hrl.,
Veðdeildar Landsbanka íslands. dr. Hafþórs Guðmunds-
sonar hrl. og Iðnaðarbanka íslands h.f.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
TILKYNNING
í júlí- og ágústmánuði 1965 mun bankinn
annast kaup á erlendum gjaldeyri (ferða-
tékkum og bankaseðlum) í afgreiðslusal að-
albankans, Austurstræti 11, utan hins venju
lega afgreiðslutíma, sem hér segir:
Á laugardögum kl. 16,00 — 18,00
Á sunnudögum kl. 10,00 — 12,00
og mánudaginn 2. ágúst kl. 10,00 — 12,00
LANDSBANKI ÍSLANDS,
^ Danmörk - Swjb/oð - Rúmenía É
Á 2.9. - 27.9. 20 daga ferð Ú
W///Æ. '///////.
w//////*
ww//
§ Verð kr. 13.550.00
Ferðir, hótel, matur og leiðsögn innifalin í
verði. Aðeins morgunmatur í Kaupmannahöfn.
Ferðir til Istanbul, Odessa, og innan lands gegn
vægu aukagjaldi. Ferðamannagjaldeyrir. 300 sól
ardagar á ári. Þægilegt loftslag. Nýtízku hótel
og gott fæði. Tryggið ykkur far í tima. Ódýr-
ustu Rúmeníuferðir sem völ er á.
// Fararsfjóri: Gestur Þorgrímsson.
// Ferðaáætlun: 2. septem
*/* ber: Flogið til Kaupmannahafnar og dvalið þar
2 daga. 4. september: Farið með ferju til Malmö
og samdægurs flogið til Constanta og ekið til
Mamaia og dvalist þar á baðströndinni í hálfan
mánuð á hótel Doina. 18. september: Farið frá
Mamaia til Constanta og flogið til Malmö en
þaðan farið til Kaupmannahafnar með ferju og
dvalist þar í 3 daga.
L/\N P S a N T
FERÐASKRIFSTOFA
Skólavörðustíg 16, II. haað
f
1
I
1
Þetta tæki er af sumum kallað
lofthreinsunartæki, vegna þess að
við notkun þess finnst fólki loftið
verö'a hreinna, ólykt eins og t.d.
tóbakslykt og fúkkalykt hverfur,
en réttara er að kalla það jóna-
tæki (enskumælandi menn kalla
það einfaldlega „Jóner”) vegna
þess að andrúmsloftið jóniserast,
lausar og laustbundnar elektrón
ur bætast í andrúmsloftið. en það
eru einmitt þær, sem við notum
okkur við öndunina.
Það er t.d. gagnlítið að opna
glugga ef loftið úti er jákvætt,
eins og oftast er í fallandi loftvog
og eða rykstormur. Ýmis nútíma
þægindi hafa í för með sér já-
kvæða jóniseringu andrúmsiofts-
ins, t.d. lofthitunar- og geislahit-
unarkerfi móti þessu verðum við
að vinna með því að bæta elektrón
um í loftið, jónisera það neikvætt.
Ýmis tæki eru nú komin á markað
inn í nágrannalöndunum, sem
vinna þetta starf, með mismunandi árangri og á mismunandi hátt. Þetta íslenzka tæki hefur þá yf-
irburði að vera stöðugt, þ.e., afköstin breytast ekki meðan lamparnir endast, það er ekki hætta á að
tækið sendi frá sér annað en til er ætlazt og svo er tækið ódýrara en önnur og allt að því helmingi
ódýrara en sum, miðað við afköst. Til er fólk, sem setur metnað sinn í það að kaupa það ódýrasta
án þess að athuga það að hluturinn er verðlagður til þess að fullnægja hégómagirnd þess. Þetta
tæki er selt við sannvirði og því er ætlað að bæta líðan fólks með því að gera andrúmsloftið hollara.
Úr grein í Rótaríon
Sumardag einn heitan í Philadelfía árið 1961 sat maður í sjúkrahúsi við lítinn málmkassa sem stóð
á skjalaskáp. Hann var tengdur við venjulega ístungu í vegg. Læknir sneri rofa. Bak við málm-
grind kassans snerist loftþyrill, kassinn suðaði fjarlægt, eins og háspennustrengur og lét frá sér
veikan, sætkenndan ilm. Bráðlega varð maðurinn óvenju hress og vel vakandi, eins og liann hefð*
dregið andann djúpt í tæru haustlofti. Læknirinn slökkti á vélinni og setti aðra eins útlits af stað.
Loftið varð fljótlega þungt og maðurinn fékk höfuðverk, hann sveið í augun og átti erfitt um and-
ardrátt. Hann varð hálf þreyttur og mæddur eins og hann hefði ekki sofið nóg. Með þessari einföldu
tilraun sýndi vísindamaðurinn dr. Igho H. Kornblueh við amerísku læknisfræðilegu loftlagsfræði-
stofnunina fram á hvaða áhrif jónir í gufuhvolfinu geta haft á mannlegar verur. Fyrri vélin fram-
leiddi neikvæðar jónir, en hin síðari jákvæðar jónir.
Loftið umhverfis okkur inniheldur ógrynni þessara rafhlöðnu agna sem kallast jónir. Náttúr-
an framleiðir ósýnilega miljarða þeirra eftir ýmsum leiðum, með geimgeislum, geislavirkum frum-
efnum í jarðveginum, útfjólublárri geislun, í óveðrum, fossum og við núning rjúkandi sand- og ryk-
korna. Hægt er að framleiða þær með geislavirkum ísótópum, hátt hlöðnum rafskautum eða vefjum,
útfjólublárri eða annarri öflugri geislum. í hvert skipti sem við drögum andann, fyllast lungun af
lofti mettuðu elektronum, sem berast með blóðinu til líkamsfrumanna, sem hver um sig gefur frá sér
örlítið magn þeirra. Elektrónurnar virðast hafa m ikil áhrif á skap manna. Til dæmis virðast þær
valda því að giktin eykst þegar loftvoginn fellur og að maurar vita fyrirfram um rigningar svo að
þeir geta lokað göngum sínum í tæka tíð.
íslenzka jónatækið fæst í ístorg á Hallveigarstíg 10
og Ljós og Hita Garðastræti 2.
Leikfélagid
Framhald af 2. síðu
barnaleikrits var tekinn upp þráð
ur að nýju; barnaleikrit höíðu ekki
verið sýnd á vegum Leikfélagsins
síðan 1947. í haust létu borgar-
yfirvöld Reykjavíkur Leikfélaginu
í té afnot af Tjarnarbæ og við það
sköpuðust loks skilyrði til slíkrar
starfsemi, auk þess sem leiklistar
skóli félagsins fékk þarna ákjósan-
legan samastað. Almansor konungs
son var sýndur 25 sinnum.
Ný viðfangsefni á árinu voru
Vanja frændi eftir Tsjekov, 25
sýningar. Saga úr dýragarðinum
eftir Edward Albee, 18 sinnum,
þar af 10 sinnum sem síðdegis-
sýning. sem nýr liður í starfsemi
leikhússins, Þjófar, lík og falar
konur eftir Dario Fo, 27 sýningar
og sú gamla kemur í heimsókn
eftir Diirrenmatt, 10 sýningar. Þá
var tekið upp frá fyrra leikári
Sunnudagur í New York og sýnt 23
sinnum. Loks var svo Ævintýri á
gönguför sýnt 80 sinnum.
Aðalleikstjórar félagsins voru
sem fyrr Gísli Halldórsson og
Ilelgi Skúlason; einn erlendur
gestaleikstjóri starfaði fyrir félag-
ið á leikárinu, Svíinn Christian
Lund, og tveir nýir leikstjórar
bættust í hópinn, Erlingur Gísla-
son og Ragnhildur Steingríms-
dóttir.
Leikfélagið fastréð leikara í
fyrsta skipti í haust og störfuðu
7 leikarar með þeim hæti fyrir fé-
lagið, en alls störfuðu 35 leikarar
á sviðinu í Iðnó í vetur, auk nem-
enda og aukaleikara, en nálega 69
manns tók þátt í sýningunum.
Aðsókn að Leiklistarskóla félags
ins er miklu meiri en rúmast og
er inntaka nýrra nemenda mjög
takmörkuð. Sjö nemendur braut-
skráðust úr skólanum í vor.
Sýningar í Iðnó á leikárinu urðu
193 og í Tjarnarbæ 25, eða sam-
tals 218 og hafa aldrei verið fleiri
á einu leikári. Flestar hafa áður.
orðið 158, það var í fyrravetur.
Fjöldi sýningargesta var rúmlega
41 þúsund, en var í fyrra rúmlega
28 þúsund. Sætanýting var 50%,
eða svipuð og í fyrra.
Einn af aðalleikurum félagsins,
Gísli Halldórsson, fékk á árinu
silfurlampann, verðlaun Félags
islenzkra leikara, fyrir leik sinn í
Þjófar, lík og falar konur eítir
Dario Fo.
Leikfélag Reykjavíkur er nú á
leikför um landið og sýnir Ævin-
týri á gönguför við feikilega að-
sókn. Æfingar hófust svo í vor á
fyrsta nýja viðlangsefni hausts-
ins. Það er nýtt leikrit eftir Jökul
Jakobsson.
Samkvæmt félagslögum á einn
að ganga úr stjórn á tveggja ára
fresti og var það að þessu sinni
formaðurinn, Helgi Skúlason. 4
hans stað kom í stjórnina Steinþóv
Sigurðsson ritari, en Steindóv
Hjörleifsson var kjörinn formaður,
Guðmundur Pálsson er> meðstjórn-
andi, en Regína Þórðardóttir vara-
formaður.
SMURSTÖÐIN
Sætúni 4 — Sími 16-2-27
BilUnn er smurður fljótt og vcl.
Seljum allar teguadir af sinuroiíu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. júlí 1965 5