Alþýðublaðið - 16.07.1965, Síða 8

Alþýðublaðið - 16.07.1965, Síða 8
■■ti.iiigwrfr Loftmynd af bænum og höfninni í Ólafsvík. í umkomuleysi mínu reika ég um mína heimabyggð í sól skini júlídagsins. Og það ber ýmislegt fyrir auga, sem ekki vekur daglega eftirtekt. Þótt margt hafi breytzt frá fyrri dögum, eru stallarnir í Enninu vorgrænir og kindur eru þar á beit upp við hamravegginn og Hjartað er ennþá kaldur klettur og bærist ekki. Hins vegar er kominn göngubrú yfir Gilið fyrir neð an og götur liggja nú þvers um Soffatún, sem mannsfótur mátti ekkj á stíga um gróand ann- En það gengur ekki sil ungsbranda í gilið, sem var veiðistöð okkar strákanna fyrr um. En á veitunni gömlu, er nú leikvöllur og sonarsonur minn sparkar þar nú fótpolta öllum stundum- Og á Hólavöllum rís kirkja af grunni og hinn 33 metra hái turn hennar teygir sig þessa dagana upp úr vinnu pöllum smiðanna. í turni á að koma fyrir klukkum kirkjunn ar og koma þær seinna frá Þýzkalandi og munu væntan legar innan tíðar og um langa framtíð kveðja Ólsara ti! helgra tíðá. Úti við Ennisbraut ina er barnaskólinn. Við hann er verið að byggja sundlaug eftir Ottó Árnason fréttaritara Alþýðublaðsins. og íþróttahús- Sundlaugin er yf irbyggð og á að nota húsið á vetrum fyrir íþróttahús með því að setja yfir laugina sér stakt leikfimisgólf. Þetta ku vera gert með góðum árangri : Englandi. Nú er búið að jafna lóðina í kring um skólann. Fyr ir framan hann hefur verið látið gjall, en vonandi verður sáð í lóðina fyrir sunnan skól ann og yrði það til mikillar prýði- Niður við höfnina standa fiskiðjuverin,. Þar er allt í fullum gangi; því að afli er góður, þegar ég geng : gegn um vinnusali húsanna verður mér það ljósara en ella, að margt fólk hefur flutzt hing- að undanfarið- Það er fjöldi fólks, sem ég þekki ekki og kann ekki nöfn á. En færibönd in snúa=t og flytja án afláts fullunna vöru ti! frystiklefanna og bíða útflutnings. Og við höfn ina er fullt af bátum. Á síld veiðum eru 7 bátar héðan, en sex dragnótabátar eru á veið um og einn humarbátur, og 12 trillur taldi ég við gömlu brvggiu.na. Aflabrögð mega heita ágæt og allir hafa mik , ið að gera. Á leið minni inn Ólafsbraut inta mætti ég húsmæðrunum :■ leið þeirra í búðirnar til innkaupa. Þar verður fyrir mér sáma fyrirbærið og í vinnu sölum frystihúsanna, og ég þekki ekki fólkið. Þetta eru yfirleitt ungar konur^ og ber þétta vott um, að hingað flyt ur fólk á bezta aldri og að byggðin er vaxandi- Og Sandeyjan rokkar milli húsið áður var. Höfn er hér í byggingu fyrir 30 til 40 fiski skip. Og það er verið að leggja skólplögn inn Ólafsbrautina og Vigfús Sigtryggsson teygir rauðan kollinn upp úr skurðin- um. Þetta á sér stað rétt fyrir framan tukthúsið, Ráðhúúð eða lögreglustöðina, hvað sem menn vilja kalla það, en húsið gegnir þessu þríþætta hlutverki og er auk þess íbúð fyrir toll arann. Þegar ég reika út Sandholt hafnargarðanna og sýgur sand inn úr víkinni og spýtír hon um upp í lónið fyrir framan þar sem fiskreitir og Kamp ið, dettur mér í hug, hvort ekki sé hentugt að taka neðri hlutann af túninu hans Árna Vikk undir barnaleikvöll, en byggð fer nú vaxandi á holtun um. Lægðin fyrir ofan Rás ina mun varla vera eftirsótt til bygginga fyrir það hvað hún stendur lágt, en einmitt fyrir það mundi vera skjólsamt og þess vegna hentugt leiksvæði. Og í kringum hin nýbyggðu hús, er nú verið að laga til lóð ir og breytir umhverfið mjög um svip. Á ELINÍUSARBLETTINUM er nú sjómannagarðurinn. Þar mátti fyrr meir ekki köttur stíga fæti. í garðinum miðjum er stytta gerð af Guðmundi frá Miðdal. Þetta er eina stytt an í þorpinu, því að, héðan er ekkert slíkt mikilmenni runnið, sem unnið hefur neitt sér til ágæti= í lífinu. Koma dagar koma menn- Hins vég ar er hér um styttu !af sjó manni að ræða í sjóklæðum með lúðu á bakinu. Er þetta verðugt, bar sem sjómennskan hefur ve'ið undir'taða byggðar innar. Garður bessi er : mót um, en skaðlaust væri nú að slá blettínn. Éa kom til ísa fjarðar fvrir skömmu og S morgungöngu minni þar, sá ég gamlan mann. sem nostraði í kirkjuaarðinum, og roskin kona kliDot.i kalvið af runn um oa hlúði að blómum í garði bæj°.rins, en hvað eina ber þess vott. sem mannshönd in fer höndum um. Og er hægt að bera saman siómannagarð inn og lóðina við hliðina hjá Haraldi Guðmund'syni. Og á leið minni upp að foss inum sé ég, að í Barðabrekk Framhald á 10. síðu. Ólafsvík séð norðan af bryggju. — Ljósm. Þ. Jósepsson. 3 16. ■ júlí 1965 .- ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.