Alþýðublaðið - 16.07.1965, Side 9

Alþýðublaðið - 16.07.1965, Side 9
STÆRSTA miðstöð rafmagns-rannsókna hefur verið byggð í háskólabaenum Erlangen í Vestur- Þýzkalandi af Siemen-Schuckert-verksmiðjunum. Er þarna aðallega fjallað um rannsóknir á krafti. Stöð- in var fjögur ár í byggingu, þar starfa um 1500 manns við rannsóknir á sviði eðlisfræði, efnafræði og sérsviða innan þessara greina. Stöðin kostaði um 100 milljónir marka. Krag hafnar Larsen EKKERT ,,uppgjör“ varð á nýaf- stöðnu floltksþingi danskra jafn- aðarmanna eins og sum borgara- blöðin höfðu spáð. Fundarmenn voru einhuga og Jens Otto Krag forsætisráðherra hlaut stuðning alls flokksins við stefnu sína. Að- alatriði stjórnarstefnunnar hafa aldrei verið í hættu þótt sumar aðferðir þær, sem beita þarf, kunna að hafa mætt mótspyrnu. Dæmi um þetta er tilboð það, sem tveimur mönnum, er spgðu sig úr Vinstri flokknum var gert um að taka sæti í stjórninni í marz. Stjórn jafnaðarmanna er í minnihluta á þinginu og þarf á atkvæðum annarra flokka að halda til að fá meirihluta í mikilvægum atkvæðagreiðslum. Um fátt hefur verið meira rætt en afstöðu jafnaðarmanna til Sós- íalistíska þjóðarflokksins <EF). — Áður en þirígið hófst hvöttu ungir jafnaðarmenn og fleiri flokksmenn til þ'ess, að fylgt yrði ákveðnari jafnaðarstefnu og að stuðningi SF yrði ekki hafnað þegar koma þyrffi frumvörpum stjórnarinnar í gegnum þingið. Ummæli, sem Krag forsætisráð- herra viðhafði í kosningabarátt- unni í september'í fyrra hafa ver ið túlkuð á þá lund, að stjórnin mundi ekki bera fram frumvörp ef atkvæði SF réðu úrslitum um það hvort þau yrðu samþykkt. Krag forsætisráðherra átti ekki við það, að útiloka bæri SF, enda felur það hvorki í sér traust né van- traust á stjórnina ef eitthvert frumvarp er samþykkt með at- kvæðum SF. Hins vegar kannar stjórnin jarðveginn í málum, sem geta orðið henni að falli í því skynl að koma á samkomulagi með þeim flokkum, sem hún óskar að hafa samvinnu með. En í slíkum viðræðum vill stjórnin ekki að SF taki þátt. Hún dregur skýrari mörk milli jafnaðarmanna og SF Aksel Larsen en milli jafnaðarmanna og Vinstri flokksins. Þegar stjórnin stóð höllum fæti í marz gaf forsætisráðherrann í skyn, að samkomulag það sem tókst við Róttækaflokkinn og klofningsmennina úr Vinstri flokknum gæti orðið upphafið að varanlegri samvinríu. En hvorki róttækir né klofningsmennirnir vildu eiga aðild að stjórninni þá. í svipinn er hér aðeins um að ræða samkomulag um stuðning, og þingmenn þeir, sem hér um ræðir dæma út frá málefnum hvort þeir skuli styðja stjórnina, en greinilegt er, að Krag stefn- ir að myndun samsteypustjórnar. Ekki er vitað hvað verður um klofningsmennina tvo úr Vinstri flokknum. Þeir hafa enn ekki á- kveðið hvort þeir stofni eigin flokk og þeir geta fallið í næstu kosningum. Þeir bíða eftir því, að Vinstri flokkurinn haldi flokks- þing sitt í haust, og ekki er óhugs- andi að þeim verði boðið að ganga aftur í flokkinn, enda er nýr mað ur nú tekinn við formennskunni. Samkomulag með jafnaðarmönn um, róttækum og SF kemur ekki til greina í svipinn, þótt á þann möguleika hafi verið minnzt. For- maður þingflokks róttækra, Karl Skytte fv. landbúnaðarráðherra sagði nýlega í viðtali við óháða blaðið ,,Information“, að afstaða þingmanna flokksins væri óháð 1 Frh. á 10. síðu. Jens — Otto Krag. HAFNARFJÖRÐUR 2ja — 3ja herbergja íbúð óskast til leigu nú þegar eða síðar. Uppl. í síma 51134 milli kl. 12 — 1 og 7—8. Orðsending frá Myndlista- og Handíðaskóiðniim Væntanlegir nemendur í vefnaðarkennaradeild á kom- andi vetri skulu hafa sent umsóknir sínar til skrifstofu skólans. Skipholti 1.. ekki síðar en 1. september n.k. Þær stúlkur, sem stundað hafa undirbúningsnám í vefn. aði eða skyldum greinum, sitja fyrir. Skólastjóri. Viðskiptafræðingur Opinber skrifstofa óskar eftir að ráða í þjón- ustu sína viðskiptafræðing með nokkurra ára starfsreynslu Þeir sem áhuga hefðu á starfinu vinsamlega sendi nafn sitt til blaðsins, merkt „VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR“. Ferðafólk athugið Veitingahúsið Hlöðufell, er opið alla daga. Reynið viðskiptin. Pantið í síma 41-173. Veitingahúsið Hiöðufetl, H ú s a v í k . Kópavogur - nágrenni t Allt til húsamálunar úti sem ínni. Við lögum litina. — Við sendum heim. Qpið til kl. 10 og til kl. 6 á laugardögum, LITAVAL, Álfhólsvegi 9 Sími 4 15 85 LOKAÐ frá 17. júlí til 26. júlí vegna sumarleyfa Kr. Þorvaldsson & Co. Heildverzlun — Grettisgötu 6. ALÞÝÐUBLAÐiÐ - 16. júlí 1965 $

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.