Alþýðublaðið - 12.08.1965, Blaðsíða 16
an hring á fingurinn, en
maðurinn hring í nasirnar.
Skolli væri gaman að
fara út í sumarfríinu, sagði
karlinn við múttu í gær. —
Út, sagði hún, ég veit ekki
betur en þú sért alltaf úti!
VEÐRIÐ er okkur alla daga
óþrjótandi umræðuefni. Venju-
lega höfum við getað gengið um
eins og grenjandi ljón öll sum-
ur og bölvað veðrinu, rigning-
unni og rokinu og öllu því. —
Þetta hefur ekki verið hægt í
sumar, því langt er síðan sólar-
dagar hafa verið jafnmargir og
rigning jafn fátíð og verið hefur
undanfarnar vikur.
Menn liér voru farnir að segja
í fúlustu alvöru, að sumarið væri
hætt að koma til íslands á þeirri
árstíð, sem venjulega er kölluð
'sumar, en þess í stað kæmi ör-
lítill sumarvottur vor og haust.
Aðrir gengu svo langt að full-
yrða, að öll árstíðabil væru að
hverfa og árið um kring væri
hér rigning og rok og allt væri
þetta atómsprengingum Rússa
norður í Síberíu að kenna. Hvað
um það, hvort þessir menn hafa
liaft rétt fyrir sér eða ekki, þá
eru Rússar víst hættir að sprengja
og sumarið komið aftur til ís-
lands, í bili að minnsta kosti.
Annars er ég alveg handviss
um, að það fer að rigna eftir
tíu daga og þá rignir linnulaust
í 21 virkan dag, og svo styttir
upp og þá kemur „logn og blíða
sumarsól” upp á hvern einasta
dag, enda verð ég þá búinn í
sumarfríi.
Veðurfar á sér að sjálfsögðu
vísindalegar orsakir, sem veður-
fræðingar einir skilja og sauð-
svartur almúginn botnar hvorki
upp né niður í. Ég ev sauð-
svartur almúgi, rétt eins og þú,
og skil því liarla lítið í lægðum
og hæðum. En eitt veit ég þó um
orsakir góðviðrisins í sumar og
það er að allar vondar rigningar-
lægðir hafa hreinlega villzt fram
hjá íslandi og ekki ratað hingað
sína venjulegu sumarleið. Þær
hafa sem sé annað hvort farið fyr-
ir sunnan okkur eða norðan og
komizt óhindrað til Evrópu og
gert þar alls kyns skarkala og ó-
skunda þar sem fínt fólk er í
sumarfríi.
Það væri kannski ekki svo vit-
laust, að Veðurstofan gerði út
mann með vegvísa út og suður,
sem : stæði: Lægðir til vinstri.
Hæðir til hægri. — Gjörið svo vel
og komið til íslands, þar verður
tekið vel á móti ykkur og þar
kann fólkið að meta ykkur, mlklu
betur en suður í Evrópu.
En þetta er nú annars svo ó-
vísindaleg tillaga, að ég er næst-
um því handviss um að Veður-
stofan tekur ekki minnsta mark
á henni. Veðurfræðingar eru
nefnilega afskaplega vísindalega
sinnaðir eins og nú skal nánar
frá greint.
í fréttahallærinu hérna um
daginn datt okkur það snjallræði
í hug, að fá veðurfræðinga til að
teikna inn á veðurkort fyrir okk-
ur hvernig lægðirnar sneyddu
hjá íslandi og helltu sér svo yfir
Dani og aðra góða granna vora.
Okkur datt svona í hug, að þeir
gætu teiknað eitthvert kort fyrir
okkur í likingu við það sem dag-
lega kemur í Mogganum.
En viti menn. Þetta var ekki
hægt. Blessaðir veðurfræðingarn-
ir töldu sig ekki geta teiknað
nema hávísindaleg kort, sem
flóknar útskýringar þyrftu að
fylgja, og það tæki talsverðan
tíma, og svo væri heldur ékki
víst, að menn botnuðu upp né
Frh. á 10. aiðu.
Jón Stefánsson fór þá yfir
í hægri baðvarðarstöðuna,
en Þorsteinn Friðþjófsson
Alþýðublaðið.
•• 98fo af uppslmrÖ*am mxntim
• haf Zl heppáazt’. 9 en,' ájk Jiéé'
ég' eklci ■Íengi.Ö, hprgað .fyr-
’.ir ennbác
'Stórfeostlegt■afmæli«
£g Yar sá einij'sem konn
if Inver ju' ertu svona
reiðileg kona ?