Alþýðublaðið - 14.08.1965, Qupperneq 2
lieimsfréttir
siáastlfóna nótt
★ SAIGON: — Fjórar suður-vietnamiskar 'hersveitir veittu
«r;inni hersveit Vietcong eftirför í gær á ósasvæði Mekongárinnar
iSUður af Saigon. 256 Vietcongmenn féllu í snarpri orrustu, sem
•bandárískur formælandi kallar einhverja þá mestu sem háð hefur
verið á þessu slóðum. Allt var tiltölulega kyrrt við Duc Co í gær
úg bandarískum fallhlífaliðum barst skotfæri os matvæli með bíla
lestum.
★ WASHINGTON: — Johnson forseti kynnir sér nú síðasta
'boðskap Nkrumah. forseta Ghana, um Vietnamdeiluna, en þar
anun enga mikilvæga tillögu að finna um sáttaumleitanir. Efni boð
(skaparins hefur ekki verið birt.
L
★ LOS ANGELES: — Nýjar óeirðir brutust úr í gær
uneðal blökkumanna í Los Angeles eftir að lögreglan hafði
átt í átökum við 7.000 blökkumenn alla nóttina.
★ AÞENU: — Anna-María Grikklandsdrottning kom óvænt
itil Aþenu í gærkvöld frá Korfu og er það talið benda til þess að
Konstantin konungur verði í Aþenu um helgina vegna hinnar lang
varandi stjórnarki-eppu.
★ KARACHI: — Ayub Khan forseti Pakistan skoraði í gær
iá indversku stjórnina að fallast á lausn á Kasmírdeilunni meðan
•enn væri tími. íbúar Kasmír yrðu sjálfir að fá að ráða framtíð
íSinni.
★ SRINAGAR: — Fjórir indverskir löigreglumenn særðust í
iátökum við pakistanska árásarmenn í úthverfum Srinagar í
imorgun. Átökin stóðu í fjóra tíma. Um 50 árásarmenn gerðu skot
íiríð á indverska lögreglu aðeins 500 metra frá stjórnarráðinu
í Srinagar. Skjöl sem fundizt hafa á pakistönskum árásarmönnum
•Sýna, að þeir leggja mesta áherzlu á að ráðast á flugvöllinn við
Srinagar og útvarpsstöðina.
★ KUALA LUMPUR: — Malaysía mun leggjast gegn því að
nánara samband verði milli Singapore og Indónesíu, sagði forsætis
ráðherra Malaysíu, Tunku Abdul Rahman á blaðamannafundi í
igær. Hann sagði, að litið yrði á stjórnmálasamband eða verzlun
anilli Singapore og Indónesíu sem svik og fjandskap.
★ BRAZZAVILLE: — Bandariska utanríkisráðuneytið herm.
ir, að allir bandarískir diplómatar og embættismenn verði kallað
ir heim frá höfuðborg Kongólýðveidisins, Brazzaville, þar eð þeir
hafi. sætt illri meðferð. Hann kvaðst ekki igeta staðfest að bandá
írískir embættismenn í Brazzaville hefðu verið beittir ofbeldi en
tnefndi dæmi um að þeir hefðu verið handteknir eða reknir úr
iandi.
★ PARTS: — Andre Malraux, menningarmálaráðherra Frakka,
íkom til Parísar í dag eftir heimsókn sína til Kína þar sem hann
ræddi við nokkra istjórnmálaleiðtoga.
★ LONDON: — Búizt er við að Bandaríkin leggi nýjar til-
lögur um bann við dreifingu kjarnorkuvopna fyrh vestræna full
•trúa á afvonpunarráðstefnunni.
VIEICONG TAPAR
HARDRI ORRUSIU
Saigón, 13. ágúst. (ntb-afp).
Fjórir suður-vietnamiskar her-
sveitir veittu einni hersveit Viet-
cong eftirför á ósasvæði Mekong-
árinnar suður af Saigon í dag. —
256 Vietcongmenn féllu í liarðri
orrustu, sem bandarískur formæl-
andi kallar einhverja þá mestu,
sem háð hefur verið á þessum
slóðum. Vietcong hefur hert á bar
áttu sinni á þessu svæði að und-
anförnu.
Þrjár stjórnarhersveitir reyndu
fyrst að umkringja Vieteongsveit-
ina, og því næst var einni her-
sveit varpað til jarðar í fallhlífum
á bak við víglínu Vietcong. Bar-
izt var af mikilli heift í návígi
þegar skæruliðar, sem voru mun
fámennari, reyndu að brjótast úr
gildrunni. Stjórnarhermenn veittu
þeim eftirför yfir hrísgrjónaakur,
•sem var undir vatni, og beittu
stórskotaliði. Örfáum skæruliðum
tókst að brjótast í gegn um víg-
línu stjórnarhermannanna.
Áður en árásin var gerð gerðu
bandarískar og suðurvietnamiskar
flugvéla árásir á stöðvar Vietcong
156 skæruliðar féllu í bardögum
og 100 í loftárásunum, að sögn
bandarísks formælanda.
Allt var tiltölulega kyrrt í dag
við Duc Co, þar sem Vietcong
hefur umkringt herbúðir sér-
þjálfaðra suðurvietnamiskra her-
manna. Tvær bílalestir fluttu
bandarískum fallhlifaliðum skot-
færi og matvæli. Margt bendir til
þess að sveitir Vietcong, sem
sennilega eru sex talsins, vilji forð
ast nýja orrustu í líkingu við þá,
sem háð var á Mekongsvæðinu,
og sumar þeirra munu hafa hörf-
að yfir landamæri Kambódíu.j
sem eru 11 km. frá Duc Co.
í Washington kynnir Jolinson
Framh. á 14. síðu.
Bænakver upp-
tæk í Moskvu
MOSKVU, 13. ágúst NTB*
AFP). — Lögreglan í Moskvu hef
ur handtekið marga menn, sent
hafa prentað’ yfir „200 kíló af
bænakveruni og trúarritum,, f
prentvélum, sem eru í eigu land.
búnaðarstofnunarinnar í Moskvu
og lampaverksmiðju, að sögn
„Moskvaskaja „Pravada" í dag.
Hinir handteknu hófu prentun
ina í febrúar sl. Lögreglan hand-
tók mann nokkurn ,,án fastrar bú
setu“ á Vnukovo-fluigvelli er hann
ætlaði til Kiev. Hann hafði með
ferðis tösku fulla. af smámyndum
af heilagri guðsmóður. Myndirn
ar ætlaði hann af afhenda kaþólsk
um mönnum, segir „Moskovaskaja
Pravda“.
Norrænir spírit-
istar halda fund
Stokkhólmi (NTB).
ÓVENJULEG ráðstefna stendur
yfir þessa dagana í Mullsjö í S.-
Svíþjóð. Þar sitja og ráða ráðum
sínum rúmlega 100 spíritistar frá
Norðurlöndum. Þarna eru haldnir
fyrirlestrar og miðilsfundir. Ann-
| iHHmMMMtWMtUMMMMHMUMMMtMMMiMVRmimtW
L jósmæðraþing
Reykjavik.
UM hundraö norrænar Ijós-
mæður sækja þing það er hald
ið er í Reykjavík þessa dagana,
og var fyrsti umræðufundur
þeirra haldinn í dag. Þingið var
sett í morgun kl. 10, en kl. 3
var svo annar fundur, þar sem
haldnir voru fyrirlestrar og
frjálsar umræður.
Hann hófst með því að Gunn
ar Biering barnalæknir flutti
fyrirlestur um ungbarnaeftirlit
á Islandi. Þar næst flutti Hulda
Jensdóttir forstöðukona fæðing
arheimilis Reykjavíkur erindi
um afslöppun, og voru umræð
ur um það atriði aö erind
inu loknu. Þá var rætt um þjóð
félagslega stöðu mæðra Ljós-
mæðraþinginu verður slitið nk.
miðvikudag, en þangað til verð
ur reynt að sýna hinum er-
lendu gestum eitthvað af land
inu, milli þess sem þær þinga
um ýmis atriði starfs síns.
ars er það ekki oft sem norrænir
spíritistar fá tækifæri til að vera
viðstaddir miðilsfundi þar sem
mikill skortur er á miðlum á Norð-
urlöndum. Til dæmis eru ekkl
nema 10-12 miðlar í allri Svíþjóð.
Þrátt fyrir það á spíritismini mik
illi útbreiðslu að fagna þar og eru
nú 2200 meðlimir í sálarrannsókn-
arfélögunum þar í landi. Aukning-
in stafar fyrst og fremst af auk-
inni útgáfu bóka um þetta efni.
Norrænir spiritistar hafa með
sér samband sem heldur ráðstefn-
ur öðru hvoru.
Enginn fulltrúi frá Sálarrann-
sóknarfélagi íslands mun vera á
þessum fundi.
30 fulitrúar á ung-
templarafíingi
Þing íslenzkra ungtemplara
hófst að Jaðri í gærkvöldi. For-
maður þeirra, séra Árelíus Ní»
elsson setti þingið með ávarpi. —:
Stórtemplar, Ólafur Þ. Kristjáns-
son flutti kveðjur stórstúkunnar
og erindi flutti Árni Gunnlaugs
son, hæstaréttarlögmaður, Hafn-
arfirði. Gefin var skýrsla um starf
semi samtakanna og að henni lok-
inni gert þinghlé þar til í morg-
un, að þingstörf áttu að hefjast
að nýju. Þingfulltrúum og gestum
var boðið til kaffidrykkju.
FLUGDEGI
FRESTAÐ
Flugdeginum, sem halda átti &
sunnudaginn hefur verið frestað
vegna óhagstæðs veðurs. Mun flug
dagurinn því verða haldinn
um næstu helgi, 22. ágúst.
2 14. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ