Alþýðublaðið - 14.08.1965, Blaðsíða 6
„DJAKNARNIR" - SVAR
NEGRA VIÐ KU KLUX KLAN
— MeSal þeirra, sem toerjast
fyrir jafnrétti hvitra og svartra í
Bogalusa í Louisiana, er hópur,
sem kallar sig „djáknann”. Þetta
er vopnað, hálfleynilegt félag, —
svar negranna við hinum hvíta
Ku Klux Klan. — Blaðafrétt.
Charles R. Sims kallar sig
tryggingamann. Hann er með
geithafursskegg og ber á sér
heimatilbúna kylfu úr blýklump-
um, sem troðið er í sokk.
Hann er staðarins fyrirliði fyr-
ir „djáknum, til verndar og fram-
. fylkingar réttlæti,” vopnuðum sam
tökum negra, sem hafa að kjör-
orði: auga fyrir auga, tönn fyrir
tönn, í baráttunni milli þeirra,
sem berjast fyrir borgarréttind-
um, og hinna, sem vilja aðskiln-
að kynþáttanna.
— Aðalmarkmið okkar er að
berjast gegn Ku Klux Klan eða
hvítu herraþjóðarhópunum, segir
Sims við blaðameun, og það er
næstum það eina, sem hann vill
segja.
Við mótmælafund og göngu
negra í Bogalusa fyrir skömmu
aðstoðuðu djáknar Sims. Djákn-
arnir höfðu bæði sendistöðvar og
móttökutæki í bílum sínum. Ef
reiknaðir eru þeir, sem þátt tóku
í þessum aðgerðum, mun hópur
Sims vera 30 til 40 manns.
Sims, sem er 42 ára gamall,
hefur hvað eftir annað lent í kasti
við lögregluna: barsmíðar, ólög-
leg vopn í fórum hans, ölvun og
fjöldi brota á umferðarlögunum.
Næstæðsti maður hans, Sam
Barnes, hefur setið í fangelsi fyrir
nautgripaþjófnað.
Það leikur enginn efi á því hver
ræður.
Á kvöldfundi nokkrum voru
einhverjir svartir unglingar að
skammast við leiðtogana í rétt-
indabaráttunni.
Frh. á 10. síðu.
4WtWMMWWWWI>WmMWMMMMWWMWW»>*WWMMWWWIWmWMWIIWWWWMWWMM
MORD OG HJÚSKAPUR
- HJÓNASKILNAÐUR olli
hvorki tárum né sviða eins
og mannsins míns fyrrverandi
og flestir skilnaðir. Þvert á
móti dró ég andann léttar, og
skilnaðardagurinn var ánægju-
legasti dagurinn í lífi mínu.
A þessa leið mælti enska
stúlkan, hin þrítuga Cynthia
Taylor, í viðtali við bandaríska
blaðamanninn Comer Clarke
fyrir skömmu, og hún heldur
áfram:
— Síðast þegar ég sá mann-
inn minn tilvonandi var fyrir
sex árum. Hann var þá 37 ára.
Ilann myrti konu sína til að
kvænast annarri.
Nú hef ég sætt mig við að sjá
hann ekki aftur fyrr en eftir 29
ár. Þá verður hann 72 ára en
ég 59. En ég er ákveðin að bíða
hans.
— Það finnst mörgum ein-
kennilegt, að ég skuli elska
morðingja, segir Cynthia
Taylor enn fremur, en hann
myrti konu sína af ást til mín.
Og ég get ekki brugðizt hon-
um nú. Unnusti minn, Marcus
Marymont fyrrverandi yfirliðs-
foringi í Bandaríska flughern-
um verður í fyrsta lagi látinn
laus árið 1993 en þó getur ver-
ið. að honum verði sleppt
nokkru fyrr, ef hann hegðar
sér vel í fangelsinu — en þrátt
fyrir þennan langa tíma mun
ég bíða.
Á meðan á því stendur mun
ég halda því áfram, sem ég hef
verið að gera síðastliðin sex ár
en það er að spara saman aura,
svo að við getum stofnað heim-
ili, þegar hann kemur úr fang-
elsinu. Ég hef hald'ð ást okkar
vakandi frá því hún vaknaði
fyrst og mun gera það, þangað
til við hittumst aftur.
Ég veit, að Mark, eins og
ég kalla hann, verður þá orð-
inn gamall maður en ást er ann
að og meira en líkamslosti,
okkar ást er hrein og einlæg.
Það er þess vegna, sem ég
treysti mér til að bíða öll
þpc=i ;ir r>tr mmu sögu er að
segja um Mark.
í sk'Inaðarmáli sínu, sem
var dæmt í London ekki alls
Hún ætlar aff bíffa hans í þrjá
áratugi enn. .
fyrir löngu fékk frú Cynthia
Taylor skilnað frá fyrrverandi
manni sínum, Alan Taylor, bif-
reiðarstjóra, þar sem hann bað
um skilnað frá henni sakir
sannaðs hjúskaparbrots með
Marcus Marymont. Þau Mary-
mont kynntust 1956, þegar
hann dvaldist í handarísku
flugstöðinni Scunthorpe í Eng-
landi, en Marcus Marymount
afplánar nú fengelsisvist sína
heima í Bandaríkjunum, og
Cynthia bíður og safnar í bú-
ið ....
Já, það er margt skrítið í
kýrhausnum!
§ 14. ágúst 1965 - ALÞYÐUBLAÐIÐ
UM ÖLL HEIMSINS HÖF
TVEIR sænskir ævintýra- landabúi hafði nokkru sinni
menn frá Sundswall í Svíþjóð gert svo víðreist í svo lítilli
hafa nýlokið langri sjóferð, — kænu. Og núna, 3 árum síðar,
sem að dómi kunnugra er nán- sigldu þeir svo inn á höfnina
ast ótrúleg. Hér er um að ræða í Sundsvall að sjóferðinni lok-
tvímenningana Gunnar Dahl- inni. Það var tekið á móti
gren, 33 ára, og Dag Ekholm, þeim með kostum og kynjum,
27 ára, sem hittust fyrir nokkr en það eina, sem þeir sögðu
um árum og komu sér þá sam- var: Þetta var skemmtileg ferð.
an um að sigla umhverfis jörð-
ina á 8 metra löngum segl- Og svo snæddu þeir saman
báti. Ekki vantaði þó aðvaran- hádegisverð á hóteli staðarins,
imar, því að enginn Norður- áður en þeir skildu.
★
! Enn einn dægurlagasöngvarinn
er nú kominn í tölu kvikmyda
leikara. Sá heitir Billy Fury og
það þarf engum að koma á óvart
í að hann er fæddur í bítlaborginni
brezku, Liverpool. Kvikmyndin
I átti í byrjun að heita „Ég á hest“,
en nafni hennar var breytt af ein
hverjum ásiæðum og heitir hún
nú „Dásamlegur dagur“. Auk Bill
ys koma þarna fram ýmsar stjörn
ur, svo sem ,,The Bachelors', sem
er þekkt söngtríó.
Myndin hér að ofan er úr einu
atriði myndarinnar og sýnir tvo
I aðalleikarana. Það skal tekið fram
að Billy Fury er til hægri. . .