Alþýðublaðið - 14.08.1965, Blaðsíða 11
|=RStsfióri Örn Eidssor*
HSÞ sigraði UMSE í
frjálsíþróttum 113-77
KEPPNI Suður-Þingeyinga og
Eyfirðinga í frjálsum íþróttum fór
fram að Laugum um síðustu helgi.
HSÞ sigraði með 113 stigum gegn
77 og vann til eignar bikar, sem
KEA gaf.
í kvpnnakeppninni báru þær
Lilja Sigurðardóttir, HSÞ og Sig
rún Sæmundsdóttir, HSÞ af og
sigruðu í tveimur greinum hvor.
Árangur Lilju í langstökki, 4,98
m. er mjög góður. Tími HSÞ í
rtwvwwwmwwtwwvm
Rosenborg - KR
Samkomulag hefur orðið milli
KR og Rosenborg um breytt-
an leikdag í Þrándheimi. —
Verður leikurinn sunnudaginn
12. september.
KR hefur í hyggju að efna
til hópferða fyrir félagsmenn
til Þrándheims. Þeir sem á-
huga hafa á þátttöku í slíkri
ferð eru beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu Sameinaða.
4x100 m. boðhlaupi er og ágætur.
í karlakeppninni vöktu ýmsir at
hygli. Höskuldur Þráinsson, HSÞ
var öruggur sigurvegari í 100 m.
og 400 m. hlaupum og er efnileg-
ur. Gunnar Kristinsson, HSÞ er
nýr maður og lofar góðu, það sama
má segja um Jón Benónýsson, H-
SÞ, sem er kornungur. Sigurður
Friðriksson, HSÞ sigraði í þremur
stökkgreinum og stökk m. a. 6,75
m. í langstökki. Jóhann Jónsson,
UMSE sigraði í hástökki með 1,77
metra.
Þói'oddur Jóhannsson, UMSE
varpaði kúlu yíir 14 m. eða ná-
kvæmlega 14,05 m.
ÚRSLIT:
100 m. hlaup kvenna:
Lilja Sigurðard. HSÞ 13,4
Þorbjörg Aðalsteinsd. HSÞ 13,6
Ragna Pálsd. UMSE 13,6
Þorgerður Guðm. UMSE 13,9
Langstökk kvenna:
Lilja Sigurðardóttir, HSÞ 4,98
Þorgerður Guðm. UMSE 4,64
Sigrún Sæmundsd. HSÞ 4,56
Hafdís Helgad. UMSE
4,00
4x100 m. boðhlaup kvenna:
Framhald á 15. síðu
ÍSLAND - DANMÖRK LEIKA1967
OG ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ LEIKA 2
UNGLINGALANDSLEIKISAMA ÁR
ÞING norrænna knattspyrnuleiðtoga fór fram í Helsingfors í
vikunni. Þar voru ákveðnir nokkrir landsleikir og viS sjáum í sænska
íþróttablaSin’i, aS ísland á aS leika viS Dani 23. ágúst 1967 og
auk þess leika ísland og SvíþjóS tvo unglingalandsleiki á íslandi
1967 Þá var einnig ákveðiS, aS næsta Unglingamót NorSurlanda |
skuli fara fram í Noregi 1966.
Tillögur Dana
um undan-
keppni í HM í
handknattleik
Danir hafa nú gert ákveðn-
ar tillögur til íslands og Pól-
lands um niðurröðun leikja í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik
karla innan húss. Tillögurnar
líta þannig út:
Danmörk-Pólland
6. janúar í Danmörku.
Ísland-Pólland,
9. janúar í Reykjavík.
Pólland-Danmörk,
9. febrúar í Póllandi.
Pólland-ísland
12. marz í Póllandi.
Danmörk-ísland,
15. marz í Danmörku.
ísland-Danmöi-k,
7. apríl í Reykjavík.
Nú er eftir að vita, hvað
Pólverjar og íslendingar segja
unx þessar tillögur, segir dan-
ska blaðið Aktuelt.
í sömu grein er skýrt frá
því, að leikir íslands og Dan-
merkur í undankeppni í HM
í handknattleik kvenna fari
frarn í Danmörku 28. og 30.
október, þar sem íþróttahöll-
in í Reykjavík sé ekki tilbúin.
Þessi mynd er frá leik Vals og Akurnesinga í fyrrakvöld. Þé
að knötturinn sjáist ekki er greinilegt á Eyleifi, að Akurnesingai’
hafa skorað. Mynd JV. r
Yfirlýsing frá íþróttafor-
ystunni í Vestmannaeyjum
Vestm. 11. ágúst 1965.
Vegna rætinnar greinar, er birt-
ist á íþróttasíðu dagblaðsins Vísis
liinn 4. ágúst sl. þar sem fullyrt
er að djúpstæður ágreiningur og
allt að því skálnxöld ríki á milli í-
þróttafélaganna hér í Eyjum, vilj-
um við taka fram eftirfarandi:
Greinin er hreinn óliróður um
íþróttahreyfinguna og íþróttafor-
ystuna hér í Eyjum, svo og Vest-
iWVWWVMWWWMWWMW
Þróttur-lBV
kl. 4 í dao
í dag kl. 16 leika Þróttur og
Vestmannaeyingar til xii'slita í
2. deild. Það lið, sem sigrar
leikur í I. deild að ári. Ekki
er gott að spá neinu um úr-
slit, en leikurinn verður vafa
laust spennandi. Á myndinni
eru Vestmannaeyingar að
hlaupa til úrslitaleiks á móti
Akureyringum í 2. deild í fyrra.
iVWVVWVWWMVWVtVWWVWVW
mannaeyinga yfirleitt, þar sem ív-
hugi manna á knattspyrnuíþrótt*
inni er mjög almennur hér.
Við teljum greinina birta að lítt
athuguðu máli og virðist hún sízt
af öllu vera jákvætt framlag til
iþróttanna.
Grein, sem þessa, teljum við al-
gei'a óhæfu og óverjandi að birta
hana á opinberum vettvangi, án
þess að ieita fyrst upplýsinga frá
forráðamönnum íþróttamála hér S
Eyjum.
Greinarhöfundur telur sjúkleg-
an félagsríg einu ástæðuna fyrir
því, að Vestmannaeyingar séa
ekki þegar komnir í 1. deild. —-
Knattspyrnuráð ÍBV hefur frá upp-
hafi valið kapplið ÍBV og hefur
ávallt verið full samstaða milli fé-
laganna um störf ráðsins Telj
Framhald á 15. síðu.
Vestmannaeyjar og Kópa-
vogur í frjálsíþróttum
kl. 13,30 í dag.
í DAG kl. 13,30 hefst bæjakeppnl
Kópavogs og Vestmannaeyinga í
frjálsum íþróttum á Ármannsvell-
inum við Sigtún. Keppninni lýk
ur á moi'gun kl. 14. Keppt verður
alls í 12 greinum. í fyrra sigruðx*
Vestmannaeyingar Kópavog.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. ágúst 1965 lí,