Alþýðublaðið - 15.08.1965, Síða 3

Alþýðublaðið - 15.08.1965, Síða 3
SVlAR MESTIR BLAÐALESENDUR Svíþjóö er það land í heiminum þar sem flest dagblöð koma á livern ibúa eða hálft eintak á í- búa (499 eintök á hverja 1000 íbúa). Bi'etland stendur ekki langt að baki með 490 eintök á hverja j 1000 ibúa. ísland hefur 443. Nor- egur 333, Finnland 359 og Dan- mörk 341 eintök á hverja 1000 ibúa. Þessar tölur eru frá 1963. Svíar höfðu einnig hlutfalls- lega mestu stálframleiðslu í heimi eða "545 kg. á hvern íbiia. Sovét- FRÚ HELGA JÓHANNS- DÓTTIR, Ásbraut 19, Kópa- vogi, annast dreifingu Al- þýðublaðsins í Kópavogs- kaupstað. Símanúmer henn- ar er 40319. Ásbrautin ligg- ur upp með Hafnarfjarðar- vegi til hægri af Reykjanes- braut, þegar komið er frá Reykjavík til Kópavogs. Frúin sækir Alþýðublaðið á afgreiðsluna við Hverfis- götu í Reykjavik á hverjum morgni klukkan hálfsex. Frú Helga er ættuð frá Þórshöfn á Langanesi en fluttist árið 1954 til Reykja- víkui' og þaðan til Kópavogs árið 1957. Þar er gott að vera með börn, segir hún, meira athafnasvæði heldur en í Reykjavík. Þau hjónin eiga þrjá stráka, 12 ára, 7 ára og 5 ára. Þeir eru oftast vaknaðir á morgnana þegar hún kemur með blaðið og taka þá til hendi um að koma því áleiðis til blaðburðar- barnanna. Þau eru tíu og skipta Kópavogi milli sin í hverfi. Auk Alþýðublaðsins annast Helga útburð Þjóð- viljans í Kópavogi. Úr Kópavogi er alltaf það sama að frétta. Sifelld fólks fjölgun. íbúarnir eru komn- ir nokkuð yfir átta þúsund og hafa tvöfaldazt á seinasta áratug. Meira en helming- un íbúanna mun vera undir 16 ára aldri og fjói'ðungur á skólaskyldualdri. ríkin gáfu út flestar bækur. Jap- an framleiddi flestar kvikmyndir. Kína státaði af flestum kvikmynda húsgestum. Þeir náðu fjórum milljörðum. í Japan og Sovétríkj- unum óku fleiri menn í járn- brautarlestum en í nokkru öðru landi. Þessar og aðrar áþekkar upplýs- ingar er að finna í nýútkominni hagfræðiárbók Sameinuðu þjóð- anna fyrir 1964 (flestar tölurnar eru þó frá árinu 1963). Árbókin er samin af hagstofu Sameinuðu þjóðanna í samvinnu við 160 lönd og landsvæði. Af árbókinni er Ijóst, að mis- munurinn á iðnþróuðum og van- þróuðum löndum verður meiri með hverju nýju ári. Vöruskipta- jöfnuðurinn milli iðnþróaðra og vanþróaðra landa á tímabilinu 1950 til 1962 varð með þeim hætti, að hlutdeild vanþróaðra landa minnkaði um 19 af hundraði. Á sama skeiði minnkaði hlutdeild vanþróaðra landa í alþjóðavið- skiptum um 10 af hundraði í út- flutningsverðmætum og 6 af hundr aði í innflutningi. Verðmæti út flutningsins hefur verið undir verðmæti innflutningsins á hverju ári síðan 1955. Hlutfall iðnvarn- ings í útflutningi vanþróuðu land anna hækkaði úr 11,7 af hundraði árið 1950 upp í 14,5 af hundraði árið 1962. í fyrsta sinn hefur árbókin að geyma yfirlit yfir samanlagða þró un allsherjarþjóðarframleiðslu. Það leiðir í ljós, að lönd með efna hagskerfi, sem byggjast á frjáls- um markaði, juku framleiðsluna um 64 af hundraði á skeiðinu 1950 —1962. í iðnþróuðum löndum nam aukningin 61 af hundraði, en í vanþróuðu löndunum nam hún 66 af hundraði. Jarðarbúar voru á miðju ári 1963 samtals 3.160 milljónir, en 2.990 milljónir 1960 og 2.895 milljónir 1958. Yfir helmingur jarðarbúa býr í Asíu (Sovétríkin ekki meðtalin). Evrópa er enn þétt býlasta álfan með 89 menn á hvern ferkílómetra, en sé heimurinn tek- inn í heild eru að jafnaði 23 menn á ferkílómetra. GLlMA SÝND VIÐ ÁRBÆ Reykjavík.. — OÓ. AÐSÓKN hefur verið góð að Árbæjarsafni í sumar og hafa kom ið þar fast að 10 þús. gestir, þótt ekki sé liðinn nema helmingur tímans sem opið er í sumar. — Undanfarin sumur hafa farið fram í Árbæ þjóðdansa- og glímusýn- ingar. í fyrrasumar féll þessi starf semi að mestu niður vegna óhag- stæðs tíðarfars. Nú er ákveðið að taka þessar sýningar upp aftur, TOGARAR AFLA VEL Reykjavík - GO. AFLI togaranna hefur verið með bezta móti það sem af er sumr- inu. Einkum er þar um að næða karfa af heimamiðum. Bjarni Ól- afsson landaði í Reykjavík í fyrra dag, 250 tonnum af karfa af heima miðum og á mánudaginn landar Sigurður hér í Reykjavík og Egill Skallagrímsson í Hafnarfirði. Togarinn Marz ex> nýbúinn að selja í Þýzkalandi og fékk mjög gott verð. Hann var með sérlega góðan sölufisk. Annars fara tog- ararnir ekki að sigla fyrir alvöru fyrr en seinnipartinn í september að Þýzkalandsmarkaðurinn öpnar. enda nutu þær mikilla vinsælda. Klukkan hálf fimm í dag mun 16 manna glímuflokkur úr Ár- manni sýna á pallinum í Árbæ undir stjórn Harðar Gunnarsson- ar. Vonazt er til að hægt verði að halda þessum sýningum áfram þannig, að sýndir verði þjóðdans- ar og glíma til skiptis um hverja helgi. Eins og fyrr er sagt hafa sýningarnar í Árbæ notið mikilla vinsælda, ekki sízt meðal erlendra ferðamanna, sem ekki hafa tæki- færi til að sjá sýningar sem þess- ar annars staðar. Þá hafa sjón- varpsmenn, sem margir eru stadd- ir hér um þessar mundir, látið í ljós áhuga sinn á að kvikmynda þessar þjóðlegu skemnitanir. Á afmæli Reykjavíkur hinn 18. ágúst mun Lúðrasveitin Svanur leika í Árbæ. Skemmdarverk á Akureyri Akureyri ÓVENJUMIKIL ölvun var á Ak ureyri í fyrrinótt og hafðí lögregl an mikið að gera. Talsvert var um slagsmál og illindi og skemmdar verk voru unnin. Girðingar brotn ar niður og ráðist að trjágróðri, hríslur rifnar af trjám og tré jafn vel eyðilögð. Luci Baines Johnson, hin 18 ára gamla dóttir Lyndon B. Johnsons Bandaríkjaforseta er hér að prófa sjón fimm ára gamals drengs í skóla í Wash- ington. Luci vinnur að þessu starfi hluta úr degi, sem sjálf- boðaliði. Sjónprófanir miða að því að finna sjóngalla hjá ung- um börnum, sem kynnu að valda erfiðleikum, ef þeir ekki kæmu í ljós fyrr> en seint og síðar meir. Gagnrýna tilhögun kennaranámskeiða Alþýðublaðinu hefur borizt eft- irfarandi frá Menningarsamtökum háskólamanna: Fyrir skömmu birtist opinber- lega tilkynning frá fræðslumála- stjóra um námskeið fyrir ensku- kennara, sem fyrirhugað er að halda í Kennaraskóla íslands 6.— 22. september næst komandi. Er efnt til námskeiðsins að for- göngu upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna með ‘svipuðu sniði og þeirra námskeiða, sem haldin hafa verið áður að tilhlutan The Bri- tisk Council Af þessu tilefni hafa Menning- arsamtök háskólamanna gert svo- hljóðandi ályktun: Telja verður óviðeigandi, að op- inberar . erlendar stofnanir eigi fiumkvæði að slíkum námskeið- um, og er óhæft, að þeir aðilar veiti forstöðu námskeiðum við Kennaraskóla íslands, sem ætluð eru íslenzkum aðilum. Við álítum það hlutverk fræðslu málastjórnar eða annarra inn- lendra aðila að eiga frumkvæði að allri framhaldsmenntun hér- lendra kennara við íslenzkar menntastofnanir, hvort heldur um er að ræða erlendar tungur eða aðrar námsgreinar. Það er augljós þörf að fá er- lenda aðila til að bæta og auka tungumálakennslu við íslenzka skóla, en hinir erlendu aðilar eiga að vera leiðbeinendur og aðstoð- armenn, en ekki hvatamenn og stjómendur. í því efni er eðlilegt, að fræðslu málastjórn snúi sér til fræðslu- yfirvalda þeirra landa, sem óskað er aðstoðar frá, um framhalds- námskeið í erlendum málum og öðrum hagnýtum kennslugrein- um. Að því er tekur til námskeiðs þess, sem halda á 6.-22. seþt. n. k., viljum við beina þeim tTl- mælum til fræðslumálastjórnai', að hún hlutist til um, að yfií-- stjóm þess námskeiðs verði færð í hendur innlends aðila og sú tjl- högun viðhöfð framvegis. Væntum við þess, að fræðslu- málastjói'i taki þessa málaléitán til velviljaðrar athugunar. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. ágúst 1965 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.