Alþýðublaðið - 15.08.1965, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 15.08.1965, Blaðsíða 15
Myndir Frh. af 1. síðu. hóf að senda myndirnar aftur til jarðar 29. júlí úr 2.2 milljón km. fjarlægð. ; „Zond 3.” heldur áfram ferð sinni um himingeiminn. Geimstöð- in heldur áfram að senda mynd- ir af bakhlið tunglsins unz hún kemst í mestu jarðfirð. Myndir þær, sem borizt hafa, eru nógu góðar til að sýna nokkur atriði, sem eru mjög forvitnileg fyrir vísindamenn. „Zond 3.” var í 5.3 milljón km. fjarlægð frá jörðu í morgun. Fékk milljónir fyrir 50 aura London. — FERTUG ensk húsmóðir varð í fyrradag 73.660 stpd. e.ða ca. 9 milljónum ísl. krónum ríkari eftir að hafa fórnað aðeins 1 pennyi eða um 50 aurum íslenzkum í jknattspyrnugetraunum um ' leiki, sem leika átti þúsund- um mílna í burtu, — sem sé í Ástralíu. Konan gizkaði því nær rétt á úrslit allra leikjanna. Frú Pamela Blake, sem á þrjú börn, fór með heim til sín stærsta vinninginn í knattspyrnugetraunum get- raunafélagsins Littlewoods, sem é sumrin er með ástr- alska leiki á getraunaseðl- um sínum. Englendingar þekkja lítt til ástandsins í áströlskum knattspyrnumálum, en frú Blake tókst að gizka rétt á úrslit sjö leikja af þeim 8 sem á seðlinum voru, og enginn ágizkenda náði líkt því eins góðum árangri en þar með hreppti frúin þenn- an einstæða vinning! ÉTJÖRN Minningarsjóðs dr. Rögn valds Péturssonar til eflingar íslenzkum fræðum hefur veitt styrk að fjárhæð þrjátíu og fimm þúsund krónur til Helga Guð- mundssonar, sem lokið hefur B.A- prófi í klassískum fræðum og cand. mag. prófi í íslenzku við Há- skóla íslands. Kandidatinn mun fást við rann- sóknir á tvítölu í íslenzku, en um það efni fjallaði ritgerð hans til lokaprófs í íslenzku. ÞRJÁR FLUGUR í EINU HÖGGl ... Vantar y&ur bíl fyrlr fjölskylduna, fyrlrtækið, fcrðalagiö? OPEL CARAVAN 1000 er 5 manna bíll, tekur tvo farþega í þægilcga framstóla, og tVO fullor&na e&a þrjá yngri farþega í aftursæti O.PEL CARAVAN ÍOOO tekur yfir 50 rúmfet af farangri eBa vörum ásamt bílstjóra og einum farþega, OPEL CARAVAN 1000 fæst einnig met barnasæti aft* ast, og flytur þannig þrjú börn, þrjá.fuilor&na — og yöur. ÁRMÚLA 3, 5ÍMI 38900. Auk þess er hann liöugur I akstri: A&elns 10, mrf>ey£ju- radíus, gó& yfirsýn til yztu horna bilsins, Stuttar skiptihreyfingar gírkassa. Ódýr í. rekstri: Eyðir a&eins um 6.5 Itr. á 100 km, smurfrír undirvagn; og verðið? - Spyrjist a&eins fyrirl OPEL CARAVAN 1000 - fyrir fjölskylduna, fyrirtækið og ferðalagið. Óeirðir Framh af bls. 1. — Þeir kasta steinum og tóm- um flöskum á alla hvíta menn og jafnvel blökkumenn, sem hafa ljósleita hús, sagði maður nokkur. Hinn kunni blökkumaður og leik- ari, Dick Gregory, sem fékk skot sár á læri er liann reyndi að hjálpa lögreglunni í uppþotunum sagði í gær: — Óeirðirnar geta versnað. í stað þess að ráðast á eignir ráðast þeir kannski á fólk. Einkennisbúningur lögreglunnar í Los Angeles hefur sömu áhrif á blökkumennina og einkennisbún- ingur brezkra hermanna hafði á Bandaríkjamenn á dögum nýlendu stjórnarinnar, sagði hann. Orsakir óeirðanna eru taldar mikil hitabylgja, sem verið hefur í Los Angeles síðustu daga, fá- tækt blökkumanna og þjóðfélags- legt ranglæti. 12% íbúa Los Ang- eles eru blökkumenn og yfirvöld in játa að þeir hafi takmörkuð tækifæri. Blökkumannahverfið í Los An- geles er eins og vigvöllur eftir orr ustu. Þetta eru mestu óeirðir í sögu Los Angeles. 80 manns hafa verið handteknir og minnst 120 hafa særzt. 100 verzlanir hafa ver- ið rændar eða brenndar til kaldra kola. Kveikt var í mörgum húsum. Sprenging Framhald af 1. síðu. ókleift sé að nálgast vopnageymsl- una strax. Nokkur hús í grenndinni hrundu til grunna vegna loftþrýstingsins. Allt nágrennið, í allt að 2 km. fjar lægð, er eins og eftir loftárás. Djúpir gígar hafa myndast, mörg tré hafa brotnað og stórgrýti hef- ur þeytzt í allar áttir. Sprengingin hefur að öllum líkindum orðið í þeim hluta geymslunnar, sem var sprengdur inn í klappirnar. Um 65 hermenn voru á vakt í vopnageymslunni þegar spreng- ingin varð. Nokkrum þeirra tókst að komast heilu og höldnu til skógar í grenndinni, en óvíst er um afdrif margra hermannanna. Til þessa hafa fundizt lík fimm ó- breyttra borgara og eins ber- manns. Rannsóknarnefnd hefur verið skipuð. Liðsforingi nokkur fann í morg- un lítinn dreng, sem hafði ráfað í skóginum í þrjá tíma, klæddur náttfötum. Björgunarliðið varð áð hörfa um nokkra km. frá slysstaðh- um í morgun þar'sem sprengikúlu geymsla sprakk í loft upp. Úfsvarsskrá INTREPID istangaveiðihjólin frá K. P. MORRITT Englandi eru ódýr, en þó ein allra vönduðustu stangaveiðihjól, sem til eru. Mikið úrval nýkomið. ’spmvSRiiBús mwjMm Rafha-húsinu við Óðinstorg. Elzta sportvöruverzlun landsins. fyrir Vatnsleysustrandarhrepp liggur frammi 16. ágúst til 30. ágúst að báð- um dögum meðtöldum hjá hreppsnefndar- oddvita, verzlununum í Vogum og 1 þinghúsi hreppsins. Kærufrestur er til loka dagsins 30. ágúst 1965. Kærur yfir útsvörum skulu sendar oddvita VatnsleysustrandaThrepps, en vegna að- stöðugjalds til skattstjóra Reykjanesum- dæmis í Hafnarfirði. Oddvitinn. ■ J ALÞÝDUBLAÐIÐ - 15. ágúst 1965 15

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.