Alþýðublaðið - 25.08.1965, Blaðsíða 6
ALLT FLÖSK-
Nl AÐ ÞAKKA
Rómantísk saga út Suchirlöndum
„ÞAÐ er flaskan, seni ég á allt
að þakka“.
r Það er dökkhærð, brosandi og
hamingjusöm víkingabrúður, sem
segir þctta við foreldra sína í
litlum bæ á strönd Sikileyjar, þar
sem „rómansinn” byrjaði fyrir tíu
árum, vegna þess að gamall fiski-
ntaður ákvað að fleygja ekki aftur
fyrir borð flösku með bréfi í, sem
hann fann á reki í Jóníska hafinu.
„Ég á mann, sem elskar mig og
tvö yndisleg börn, sem fylla líf
mitt hamingju og gleði”, sagði
Paolina Puzzo Viking við foreldra
sína, þegar hún fyrir skömmu korm
'í heimsókn aftur til heimabæjar
■síns, Rione Bonanno á Sikiley. „Og
allt á ég þetta flöskunni að
þakka”, bætti hún við.
Þessi siciliönsku-norrænu tengsl,
sem nánast minna á ævintýri,
urðu sem hér segir:
Fyrir tíu árum, haustið 1955 var
faðir Paolinu, fiskimaðurinn Se-
bastian Puzzo, úti á sjó að vita um
net sín. í þeim fann hann lika
flösku með svohljóðandi bréfi í:
„Ég heiti Áke Viking. Ég er
sænskur sjómaður um borð í skipi
mínu. Ég er tuttugu ára gamall.
Ég veit, að sikileyskar stúlkur
eru fríðar og góðar, og ég vil
gjarna giftast einni þeirra. Hún
má ekki vera meira en 18 ára-
gömul, með dökk augu og svart
hár”.
Fiskimaðurinn Sebastian fuss-
aði fyrirlitlega. Auðvitað eru sik-
ileyskar stúlkur fallegar, dökk-
eygar og dökkhærðar. Hann var
næstum búinn að ákveða að
fleygja flöskunni í hafið á ný, en
þá fékk forvitnin yfirhöndina og
hann fór með bréfið heim.
Þar las dóttir hans Paolina
bréfið upp aftur og aftur. Hún
svaraði til lýsingarinnar. Hún
hefur hrafnsvart hár og augu, sem
eru eins stór og svört og grískar
ólivur.
Hún skrífaði Áke og beið lengi
eftir svari, þar til pósturinn kom
dag einn með fyrsta bréf hans.
Þau skrifuðust á, hann kom til
Sikileyjar, þau giftust, og hann
tók hana með sér heim til Norð-
urlanda, þar sem hún nú hefur
fundið sitt nýja heimili.
Tengdamamma
kærði
Það gerðist nýlega í Danmörku,
að ökumaður „undir áhrifum á-
fengis” var handtekinn og dæmd-
ur til eins og hálfs árs ökuleyfis-
sviptingar og 20 daga varðhalds.
Það er í sjálfu sér vart í frásögur
færandi, en hitt er frásagnarverð-
ara, að það var tengdamóðir hans,
sem kærði.
En maðurinn var
alls ekki dauður
75 ÁRA GAMALL sjómaður, Ab-
daliah Abdal Rahman Zamrini,
varð óskaplega skelfdur, er hann
vaknaði morgun nokkurn í svölu
herbergi í líkhúsinu í Beirut. Ekki
varð hann minna hræddur, er
menn komu nokkru síðar til að búa
lík hans til greftrunar, en líkami
. hans hafði daginn áður verið
fluttur í líkhúsið frá sjúkrahúsi
einu í borginni, þar sem læknarnir
töldu hann látinn.
Fjölskyldunni hafði verið til-
kynnt um dauðsfallið og í morg
unblöðunum stóð dánartilkynning
hans um það leyti, sem hann var
að vakna við ágæta heilsu. Nú er
Abdallah kominn aftur í rúmið sitt
á sjúkrahúsinu, þar sem hann nýt-
ur betri hjúkrunar en nokkru
sinni fyrr.
Sagt er, að Brigitte Bardot hafi
gefið síðasta kögursvein sinn, stæl
gæjann Bob Zaguri, upp á bátinn,
en sé nú farin að gefa frönskum
lækni ótæpilega undir fótinn.
Við birtum mynd frá alþjóðlegri íþróttahátíð í London í gær,
Þar sem gat að líta tvær ávalar stúlkur, sem voru að fást við íþrótta
greunina „curling". Og hérna er önnur mynd frá sömu hátíð, þar
sem tveir brczkir sjóliðar eru að virða fyrir sér þýzkan þátttakanda
frá Darmstadt. — Við erum nú eiginlega farnir að velta því fyrir
okkur bvers konar hátíðahöld þetta muni eiginlega vera . . .
O'CONNERY FYRR OG NÚ
Þessi mjög svo sérkennilega mynd, sem er „tvöföld“ í þokka-
bót er hvorki meira né minna en af einu mesta unglingaátrúnaðar
goði nútímans, sjálfum Sean Connery, sem þekktastur er undir
nafninu James Bond. Vinstra megin á myndinni cr hann 9 ára en
hægra megin 35 ára. Ja, mikið geta menn nú breytzt á ekki lengri
tima.
$ 25. ágúst 19S5 - ALÞYÐUBLAÐIÐ