Alþýðublaðið - 25.08.1965, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 25.08.1965, Blaðsíða 16
Forfeður okar fóru í vík íng: og: rændu og' rupluðu. Nú látum við okkur nægja, að sitja heima og bíða — eftir túristunum. Sigga systir er í ástarsorg og kallinn huggaði hana þann ig: — Elskaðu bara sjálfa þig, Sigga mín. I*á er engin hætta á að þú verðir svikin. í Ameríku er allt af stóru sort inni, sagði Haukur Morthens er á- samt eiginkonu sinni er nýkom inn heim úr löngu ferðalagi um Bandarikin. — Þakkað sé góðri þjónustu Loftleiða og fyrirgreiðslu íslend ingafélagsins í Los Angeles hve vel þessi ferð okkar tókst, en lengst af ferðalaginu héldum við til í New York og Los Angeles. Alls staðar sem við komum hitt um við fyrir Vestur-íslendinga og allir tóku þeir okkur éins og gömlum vinum. Það er annars furðulegt hve víða við hittum fyr ir íslendinga og hve fljótir þeir voru að sjá hvaðan við vorum og kynnast okkur. Jafnvel í rútubíl um hittum við landa okkar. — Ég söng hvergi í Bandaríkj unum nema á 17, júni liátíð, sem íslendingafélagið í Los Angeles gekkst fyrir, enda var þejtta | skemmtiferðalag en ekki farið í atvinnuskyni. Fyrst og fremst fór um við til að skoða okkur um í þessum heimshluta og þá náttúru lega sérstaklega skemmtanalifið, og ég verð að segja að það er á hápunkti hjá þeim vestra, enda er þar allt af stóru sortinni. — Yfirleitt komu ekki fram nema þekktar stjörnur á þeim skemmtistöðum sem ég heimsótti. Ég var nokkra daga í Las Vegas og þar stendur skemmtanalífið yf ir bókstaflega allan sólarhringinn og spilavítin þar loka aldrei. Þar sá ég og heyrði Judy Garland, hún er alls ekki mjög feit núna, og hún söng alveg glimrandi. í rúm an klukkutíma hélt hún allri at Haukur Morthens: — Allt af stóru sortinni í Ameríku . . . hygli áheyrenda með söng og fleiri skemmtilegheitum, en líklega hef ur hún staðið sig of vel þetta kvöld, því daginn eftir las ég í blöðunum að hún væri komin á spítala. Á sama stað skemmti Luig Prima með hljómsveit. Hann söng sín gömlu góðu lög og sagði tvíræða brandara á milli, en þarna þýðir varla annað fyrir þá sem koma fram til að skemmta, með -Sýn&u mér irvar 1raö var nslr/mm- lega , sem ]?ú losaðir ið aftan úriTjílmm ' -Hann er van&virkaoti smaM-:ari, •sem hjá oldéur hefur unni o ' þessu ná þeir upp góðri stemmingu og komast í nánara samband við áheyrendur. Red Skelton söng ekki lét sér nægja að segja brandara og það var líka alveg nóg. Þá heyrði ég hinn fræga trompetleik ara Red Nicholas, sem var á sjöt ugs aldri og spilaði eins og eng ill með hljómsveit sinni Five Pennies. Ekki varð ég var við ann að en að gamli maðurinn væri í fullu fjöri, en tveim dögum síð ar dó hann, og það var ekki mér að kenna fremur en veikindi Judy Garland. Ég fór í nokkra jazz klúbba í og kringum Hollywood. Þar er Dixieland í góðu gengi, en einnig er mikið um nýtízku jazzklúbba. Annars fannst mér að öll tónlist sem leikin var á dans stöðum vera í jazzstíl. Það þekkist ekki að hljómsveitir á slíkum stöð um spili bítlamúsík. Auðvitað er hún leikin þarna en aðeing á krakkaböllum og svo eru haldnir konsertar. þar sem þessi tegund tónlistar er leikin. — Ég er enn með eigin hljóm- sveit og kemur hún til með að spila í Sigtúni í vetur. Ég hef á huga fyrir að reyna nýjar: leiðir til að skemmta gestum þar en ekki veit ég hvað úr verður. Eftir að hafa kynnzt skemmtanalífinu í Bandaríkjunum sé ég enn betur en áður hve langt við erum á eft ir tímanum í þessum efnuin. Því ekki að reyna að setja upp revíu eða kabarett. Það vantar tilbreyt ingu í fábreytt skemmtanalíf Reykjavíkur. Ég vil ekki trúa öðru en að til séu menn hér á landi sem geta ritað fyrir slík skemmti atriði og nóg er til af fólki til að flytja þau ef aðeins það fengi tækifæri til að reyna, og á ég þá einkum við yngra fólk. í Reykja vík eru til stór og falleg veitinga hús, Qg þau ekki fá, en þau bjóða öll upp á það sama, eða svo gott sem. Hljómsveit sem spilar næn eingöngu dægurlög og svo söngv ara. Auðvitað eru þessi skemmti atriði misjöfn að gæðum en óneit anlega keimlík. Ef eitthvert veit ingahúsanna byði gestum sínum upp á fjölbreyttari skemmtun mundi áreiðanlega ekki vanta á heyrendur og áhorfendur. Það þurfa ekki endilega að vera nein heimsnúmer sem boðið væri upp á, en öll tilbreyting yrði vel þeg in af gestum. Ég get til dæmis ómögulega skilið að fólk sem búið er að raða í sig margréttuðum máltíðum sé ýkja fíkið í að dansa strax á eftir, væri ekki betra að einhver annaðist erfiðið og hefði ofan af fyrir því meðan steikin er að sjatna og koníakið drukkið með kaffinu. — Hljómplötu? jú, það er von á nýrri hljómplötu frá mér á næst unni. Á henni verða eingöngu ný íslenzk lög. Meðal þeirra get ég nefnt Nótt í Nauthólsvík og Fitl að við stnengi. Þess vegna er það ekki ó- eðliieg spurning að spyrja hvort kolsýringur í austur þýzkum langferðabíl hafi orð ið banabiti KR á íslandsmót inu í ár. Vísir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.