Alþýðublaðið - 25.08.1965, Qupperneq 14
7. ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Hafnarfjarðarkirkju
af séra Garðari Þorsteinssyni
ungfrú Edda Magnúsdóttir og
Stefán Jónsson, Brekkugötu 25,
Hafnarfirði. (Studio Guðmund-
ar, Garðastræti).
15. júlí voru gefin saman í hjóna-
band af séra Sigurði Hauki Guð-
jónssyni ungfrú Eyrún Þorsteins-
dóttir og Guðmundur Henning
Kristinsson. Heimili þeirra verð-
ur að Bugðulæk 17. (Ljósmynda-
stofa Þóris).
. Föstudaginn 4. júní voru gefin
saman í hjónaband í Langholts-
kirkju af séra Árelíusi Níelssyni
ungfrú Arndís Steinþórsdóttir og
Baldur Baldvinsson. Heimili þeirra
verður að Skeiðarvogi 125. (Ljós-
myndastofa Þóris).
Knattspyrna
Frh. af 11. síðu.
rólegheitum að leggja knöttinn
fyrir sig og skorar síðan með
þrumuskoti, óverjandi fyrir
Heimi. Síðustu mínútur leiksins
eru svo heldur þófkanndar og
eins og KR hafi þegar sætt sig
við tapið.
Eftir gangi leiksins var sigur
Rosenborg mjög sanngjam og
hefði jafnvel getað orðið stærri.
LIÐIN.
Þetta norska II. deildar lið
sýndi oft á tíðum góða knattspyrnu
en ofar öllu mikinn baráttuvilja,
sem á að einkenna hvert bikarlið.
Leikmenn voru allir mjög hreyf-
anlegir og það réð kannski mestu
um úrslitin. • Beztu menn liðsins
voru útherjarnir og h. bakvörð-
urinn. Útherjarnir voru báðir vel
með í leiknum og eldsnöggir sér-
staklega v. útherjinn Kleveland,
sem skoraði tvö markanna. Hægri
bakvörðurinn var leikinn og mjög
fastur fyrir. Markvörðurinn virtist
einnig nokkuð góður, en lítið
reyndi á hann. Annars var liðið
skipað jöfnum leikmönnum og vel
samæfðum.,
Lið KR brást gjörsamlega von-
um manna, þ.e.a.s. þeirra, sem
nokkurn tíma höfðu gert sér von-
ir með þessa uppstillingu, en hún
var nánast sagt furðuleg.
Gunnar Guðmannsson átti
sýnilega ekkert erindi í þennan
leik, enda sagður 'í lítilli æfingu,
sama má segja um Sæmund, sem
lék þarna sinn fyrsta stórleik og
er það illa gert af fyrirmönnum
KR-liðsins að láta svo óreyndan
leikmann byrja í hörkuleik sem
þessum. Þórður Jónsson er góður
leikmaðúr sé hann heill, en hann
meiddist í vor og hefur sýnilega
ekki náð sér ennþá, enda naut
hans ekki að .fullu meir en helm-
ing fvrri hálfleiks. Beztu menn K
R liðsins voru þeir Sveinn Jóns-
son og Ellert Schram, þeir voru
beir einu er börðust til fullnustu.
Heimir í markinu varði vel og
gekk furðuvel að hemja hálan
boltann.
Dómarinn, liinn skozkl Mullan,
dæmdi vel í samvinnu við línu-
verðina, en sérstaklega var gam-
an og athyglisvert að fylgjast
með hversu vel þeir fylgdust með.
I. V.
Utanríkismál
Framhald af 3- síðu
samkomulagi innan ramma þing-
ræðis og laga. Þeir neita að viður-
kenna vopnabeitingu sem lausn
mála á alþjóðlegum vettvangi. —
Þoir þrá varanlegan frið og frið-
samlega lausn allra deilumála. Á
alþjóðlegum vettvangi styður fs-
land ráðstafanir, sem líklegar eru
til að efla frið og bæta sambúð
þióða. Það er á slíkum grundvelli
sem ísland vill leggja sltt litla
lóð á vogarskálar betri heims með
þátttöku i Sameinuðu þjóðunum
og öðrum alþjóða samtökum, sem
landið er aðili að.”
6<k>
7.00
12.00
13.00
15.00
16.30
18.30
18.50
19.30
20.00
20.15
útvarpið
Miffvikudagur 25, ágúst
Morgunútvarp.
Hádegisútvarp.
Við vinnuna: Tónleikar.
Miðdegisútvarp.
Síðdegisútvarp.
Lög úr kvikmyndmn.
Tilkynningar — 19.20 Veðurfregnir.
Fréttir.
„Slæpingjabarinn", hljómsveitarverk eftir
Darius Milhaud. Concert Arts hljómsveitin
leikur.
Vladimir Golschmann stjórnar.
Sunnudagur í Konsó
Benedikt Arnkelsson cand. theol. flytur er-
indi.
20.40 íslenzk ljóð og lög
Kvæðin eftir Huldu.
21.00 „Það fer sem fer“, smásaga eftir Júrý Kaza-
koff.
Unnur Eiríksdóttir les eigin þýðingu.
21.30 Konsert í g-moll eftir Vivaldi-Bach.
Egida Glordani Sartori leikur á sembal.
21.40 Búnaðarþáttur
Hannes Pálsson frá Undirfelli skýrir frá
frá framkvæmdum bænda árið 1964.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Hve glöð er vor æska“ eftir
Hermann Hesse í þýðingu Áslaugar Árna-
dóttur. Hjörtur Pálsson flytur (2).
22.30 Lög unga fólksins
Bergur Guðnason kynnir.
23.30 Dagskrárlök.
Hyggnar húsmæöur nota
frá Sælgætisgerðinni Freyju h.f.
ÚTSALAN
2 DAGAR EFTIR.
Kápur, dragtii- og innkaupatöskur. —
Mikill afsláttur,
Kápu og dömubúðin
Laugavegi 46.
Þakka auðsýnda vinsemd og góðhug til mín á sjötugs-
afmælinu
Guðjón E. Sveinsson
Höfffaborg 6.
Auglýsingasími
ALÞÝDUBLAÐSINS
er 14906
Véltæknifræðingur
óskast til starfa við byggingu aflstöðva.
Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi opinbeiTa
starfsmanna.
Umsóknir sendist starfsmannadeildinni.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 116, Reykjavík.
Eiginmaður minn, faðir okkar og fósturfaðir,
Stefán Bachmann Hallgrímsson,
verður jarðsunginn fimmtudaginn 26. ágúst kl. 2 e.h. frá Hafnar-
fjarðarkirkju. Bióm afbeðin. Þeim, sem vildu minnast hlns látna,
er bent á Minningarsjóð Sveins Auðunssonar eða Slysavamafélag
íslands.
Vilborg Þorvaldsdóttir og börnln.
14 25. ágúst 1965
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Qi3Ái3U0Y4JA