Alþýðublaðið - 15.10.1965, Side 3
Fylgi Wilsons
aldrei meira
London 14. 10. (NTB-Reuter |
Stjórn Verkamannaflokksins í !
Bretlandi undir forsæti Harolds
Wilson hefur nú verið eitt ár við
völd og horfir björtum augum til
framtíðarinnar þrátt fyrir lang-
varandi efnahagsörðugleika, inn-
anflokkserjur og erfiðleika þá, sem
NÝRFORMAÐUR
VERZLUNARRÁÐS
HIN NÝKJÖRNA stjórn Verzlunar
ráðs íslands lcom saman í fyrsta
sinn í gær. Á fundinum var Magn
ús J. Brynjólfsson lcjörinn formað
ur ráðsins fyrir næsta starfsár.
stafa að því að flokkurinn hefur
mjög nauman meirihluta á þingi.
Vegna hagstæðra skoðanakann
ana er Wilson forsætisráðherra
bjartsýnn á að stjórn hans geti
hald'ð áfram starfi sínu um hríð
og efnt því næst til nýrra kosninga
ef til vill í vor eða næsta haust.
Áður en Wilson efnir til nýrra kosn
inga til þess að auka þingmeiri
hluta flokkskins vonar hann að
stjórn hans geti lagt fram glæsi
legan lista yfir það, sem stjórn
in hefur fengið áorkað.
í þ:ngkosningunum 15. október í
fyrra fékk Verkamannaflokkurinn
fimm a*kvæðá meirihluta í Neðri
málstofunni. Þessi meirihluti hef
ur síðan m:nnkað í þrú atkvæði
Framh. á 14. síðu
<><>ooooc><><>ooooooooooooooo ooooooo-c-ooooooooooooooo<>
Kunnur ballettdansari
gestur Þjóðleikhússins
Suharto yfirhers-
höfBingi Sukarnos
Singapore, 14. 10 (NTB - AFP.)
Sukarno Indónesíuforseti til-
kynnti í dag í stuttri útvarpsræðu
að Suharto hershöfðingi, sem tal
inn er hinn „sterki maður“ í for
ystu heraflans, hefði v| rið skip
aður yfirmaður hersins í stað Ach
mad Yani hershöfðingja, sem myrt
ur var í byltingartilrauninni 30.
september. Sukarno minntist ekki
oooooooooooooooo
íAbalfundur FUJ
íer í kvöld
AÐALFUNDUR Félags
ungra jafnaðarmanna í Hafn
Y arfirði verður haldinn í
X kvöld í Alþýðuhúsinu kl. 8,30.
ö Dagskrá: Venjuleg aðalfund
0 arstörf. Önnur mál. Félagar
Y eru hvattir til að mæta vel
q og stundvíslega.
ÞOOOOOOOOOOOOOOO
í ræðu sinni á stjórmnálaerjurnar
í Indónesíu.
Útvarpsræða Sukarnos ahfði ver
Ið boðuð fyrirfram og hennar var
beðið með mikilli eftirvæntingu
en hún stóð aðeins eina mínútu
Forsetinn minntist ekki á deilu
stjórnarinnar og kommúnista enda
þótt mótmæiaaðgreðir gegn komm
únistum hafi verið nær daglegur
viðburður í Djakarta undanfarnar
2 vikur vegna meintrar þátttöku
þeirra í byltingartilrauninni.
í London herma góðan heim
ildir, að formaður indónesíska
kommúnistaflokksins, D.N. Aidit,
hafi leitað hælis í kínverska sendi
ráðinu síðan byltingin misheppn
aðist. Kínverskir diplómatar hafa
ekkert samband haft við umheim
inn síðan 30. september, herma
heimildirnar, og munu hafa búizt
rammlega til varnar í sendiráðinu.
Aðrar fréttir, sem eru á kreiki
í Djakarta, herma að Aidit sé þeg
ar kominn til Canton í Kína, en
aðrar fréttir herma að kommúnista
leiðtoginn dveljist á Jövu, þar sem
t:l nokkurra átaka mun hafa kom
ið í dag.
Aðaldansari Konunglega ball
ettsins í Englandi Franklyn
White, er væntanlegur hingað
til lands innan skamms á veg
um Þjóðleikhússins og að
nokkru leyti á vegum British
Counsil. Hér mun hann flytja
fyrirlestra um ballett, með list
dansdæmum. Einnig mun hann
kenna í nokkrum kennslustund •
um við Listdansskóla Þjóðleik
hússins.
White hefur starfað með Kon
unglega ballettinum síðan árið
1942 og er nú aðaldansari hans.
Hann hefur gert listdanskenn
slu og fyrirlestra um ýmis atriði
listdansins að sérgrein sinni og
farið í fyrirlestra- og kennslu
ferðir um England og víða er
lendis. Hann er einnig reynd
ur leikdansstjóri og hefur sett
á svið bæði sígilda og nýtízku
leikdansa í heimalandi sínu.
Einnig hefur hann fjölmörgum
sinnum komið fram í brezka
sjónvarpinu svo og í Bandaríkj
unum.
White mun dvelja hér á landi
dagana 18,—26. þessa mán
aðar. Fyxsti fyrirlesturlnn hans
verður fluttur í Lindarbæ þann
19 okt. og nefnist hann Tón
listin í leikdansi. Annar fyrir
lestur verðpr á sama stað dag
inn eftir og nefn:st Látbragðs
leikur og skapgerðartúlkun í
listdansi. Föstudaginn 21 okt.
flytur White fyrirlestur í Tjarn
arbæ á vegum British Counsil.
Síðasti fyrirlestur dansarang
verður í Þjóðlekhúsinu 25. okt.
og fjallar um förðun í listdansi
og leiklist.
Öllum er heimill aðgangur
að fyrirlestrum White og er
aðgangur ókeypis.
Auk fyrirlestra mun Wh’te
kenna nemendum Listdansskóla
Þ.ióðleikhússins nokkra tíma í
sígildum úsúlansi. skangerðar
túlkun, látbragðsleik og förð
un. Danskennunum er velkom
ið að vera viðstaddir þessar
kennslustund’r.
>oooooooooooooooc
Ferbum Eimskipafél-
ags Islands fjölgar
FRÁ NÆSTU mánaðamótum ferða að ræða þar sem áætlunar-
fjölgar áætlunarferðum skipa Eim- ferðir frá Hamborg, Rotterdam,
skipafélags íslands frá meginlands Antwerpen og Hull hafa að und-
höfnum og Englandi og verða þá
vikulegar ferðir frá Hamborg, Rot-
terdam, Antwerpen og Hull en
þrjár ferðir í mánuði frá London.
Er hér um mjög verulega fjölgun
Þrir Frakkar fá Nóbels-
verðlaun í læknisfræði
Stokkliólmi, 14. 10 (NTB).
Nóbelsverðlaunin í læknisfræði
voru í dagr veitt þremur frönsk
um vísindamönnum við Pasteaur-
stofnunina í París, Andre Lwoff,
63 ára, prófessor í gerlafræði, Jac
ques Monod, 55 ára, prófessor í
lífefnafræði, og Francois Jacob j
45 ára, prófessor í erfðafræði. Þeir
hafa haft með sér áralanga sam
vinnu og eru sérfræðingar í þrem
ur greinum líffræðinnar. Þeir hafa
einkum rannsakað genin, efna-
kljúfana og sellurnar og uppgötv
anir þeirra geta haft mikla þýð
ingu í baráttuinni gegn sjúkdóm
um, ekki sízt krabbameini.
Frakkarn:r hafa áður. hlotið al
þjóðlega viðurkenningu fyrir vís
indastörf sín og eru félagar í
mörgum erlendum vísindaakadem
íum og heiðursdoktorar við er
lenda háskóla. Ákvörðunin um að
veita þeim verðlaunin var tekin
á klukkustundarfundi í Karolinska
Institutet og í rökstuðningu segir
að prófessorarnir hafi aukið til
muna þekkingu manna á grund
vallaratriðum fyrirbæra eins og
aðlögun, æxlun og þróun. Ekki
er dregin dul á, að þeim séu veitt
verðlaunin vegna hinnar nánu
samvinnu, sem þeir höfðu með
sér, og sagt er að árangur þeirra
hefði tæplega verið hugsanlegur
Framh. á 14. sfðu
anförnu verið á 10—12 daga fresti,
en á 3ja vikna fresti frá London.
Svo sem kunnugt er hefur félag-
ið eignazt tvö ný skip á þessu ári,
ms. SKÓGAFOSS, er var afhentur
félaginu í maí og ms. REYKJA-
FOSS nú í byrjun þessa mánaðar.
Auk þess hefur félagið tekið ms
ÖSKJU á tímaleigu hjá Eimskipa-
félagi Reykjavíkur. Með þessari
aukningu skipastólsins verður
mögulegt að koma á tíðari ferðum
frá hinum þýðingarmestu viðskipta
löndum íslendinga.
Þá er um að ræða verulega fjölg-
un ferða frá New York þar sem
Fjallfoss verður framvegis stöð-
ugt í ferðum á milli New York og
íslands auk hinna þriggja skipa,
Brúarfoss, Selfoss og Dettifoss,
sem ferma á rösklega þriggja
vikna fresti í New York til Reykja
víkur eins og að undanförnu.
Fjallfoss mun fara u. þ. b. 10 ferð-
ir á ári frá New York, eða á 5
vikna fresti, og mun losa í Reykja
vík, á ísafirði, Akureyri og Reyðar
firði.
Þrjú skip verða í förum á milli
Belgíu, Englands og íslands í stað
tveggja áður. Fimm skip munu
anna flutningum fré Rotterdam og
Hamborg í stað fjögurra áður, en
þrjú þeirra, þ. e. a. s. Brúarfoss,
Selfoss og Dettifoss sigla jafn
framt til Ameríku í annarri hverri
ferð eins og að undanförnu. Askja
mun verða í ferðum frá Rotterdam
og Hamborg til Reykjavíkur, ísa-
fjarðar, Akureyrar og Reyðarfjarð
ar, en Mánafoss mun lesta í Ant-
werpen og Hull til sömu aðalhafna
á íslandi. Önnur skip munu fyrst
og fremst ferma vörur til Reykja-
víkur og nálægra staða.
Gullfoss verður í ferðum frá
Kaupmannaliöfn og Leith á þriggja
vikna fresti yfir vetrartímann eins
og áður og auk þess er gert ráð
fyrir að aukaskip fermi vörur í
Kaupmannahöfn eftir þörfum. Önn
ur skip félagsins munu lesta með
Framh. á 14. síðu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. október 1965 3