Alþýðublaðið - 15.10.1965, Blaðsíða 4
Kitstjörai: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
trúl: Eiöur Guönason. — SímaK 14900 - 14903 — Auglýsingasími: 14900.
ASsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
XJtgefandi: Aiþýðuflokkurinn.
20 PUNKTAR
RÍKISSTJÓRNIN hefur birt þjóðinni nýja
stefnuskrá, sem hún mun starfa eftir síðari hluta líð-
andi kjörtímabils, væntanlega fram til kosninga vor
ið 1967. Að sjálfsögðu er þessi stefnuskrá talin beint
framhald af Viðreisninni frá 1960, en í raun réttri
sýnir hún breytt verkefni þjóðarinnar við allt aðrar
aðstæður en þá ríktu.
Nú þarf ekki — eins og 1960 — að fella gengið,
bjarga þjóðinni úr skuldafeni erlendis, létta af verzl
unarhöftum eða skera niður mörg hundruð milljóna
uppbótakerfi. Hins vegar þarf enn að glíma við al-
varlega verðbólgu, og viðurkennir ríkisstjórnin hlut-
verk sitt í samningum um kaupgjald og verðlag í
landinu. Stærsta skrefið, sem nú verður stigið gegn
verðbólgu, er verðtrygging sparifjár og lána, sem á
að draga úr hagsmunum einstaklmga af áframhald-
andi verðbólgu.
Alþýðuflokkurmn hefur undanfarna mánuði lagt
mikla áherzlu á, að stefnuskrá stjórnarinnar yrði end
urskoðuð. Er yfirlýsing sú, sem forsætisráðherra gaf
í fyrradag, árangur af því starfi og nytur stuðnings
beggja stjórnarflokka. Hlaut hin nýja stefna þegar
þá viðurkenningu frá formönnum andstöðuflokk-
anna á þingi, að hún sýndi góðan ásetning, og er það
mikið sagt úr þeirri átt.
Alþýðuflokksmem? munu sérstaklega fagna þrem
nýjum stefnumálum, sem ríkisstjórnin nú hefur op-
inherlega sett sér að hrinda í framkvæmd. Þau eru
þessi:
1) Ríkisstjórnin hefur lokið athugun sinni á lífeyris
sjóði fyrir alla landsmenn, og hrindir af stað bein-
um undirbúningi. Hún ætlar að koma þessu máli
fram, en það þarf mikinn og vandlegan aðdrag-
anda. Þetta er mesta baráttumál jafnaðarmanna
í nágrannalöndum og helzta áhugamál jafnaðar-
manna á íslandi. Það er voldugasta félagsleg um-
bót, sem hér hefur verið á dagskrá, síðan almanna
tryggingar fyrst komu til sögunnar.
2) Ríkisstjórnin lofar í hinni nýju stefnuskrá ekki
aðeins að stuðla að því, að stytting vinnutímans
verði raunhæf, heldur einnig að færa orlof hér á
landi til samræmis við orlof á hinum Norðurlönd-
■ unum.
3) Ríkisstjórnin ætlar nú að stíga enn einu skrefi
lengra á braut áætlana og skipulegs þjóðarhú-
skapar með stofnun svokallaðs Hagráðs, þar sem
stjórn og sveitafélög, atvinnuvegir og verkalýður
koma saman til að f jalla um áætlunargerð og önn
; ur efnahagsvandamál.
Ástæða væri til að nefna margt f leira úr 20 punkt
um ríkisstj órnarinnar, svo sem áframhaldandi um-
'bætur skólakeríisins, breytt iðnnám og meiri skóla-
byggingar. Hvert þessara atriða mun á næstunni
koma til frekari og nánari umræðu með þjóðinni.
4 15. október 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
/T \v-|
S:-$5 ' ■. Y-n?
Þcssi mynd er frá þeirri deild sýningar Æsbulýðsráðs, þar sem ljósmyndaiðja var kynnt. (Mynd: JV.j
Fjölbreytt félags- og tómstundðstarf
á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur
Reyíkjavík, — ÓR
ATHYGLISVERÐ sýning hefur
undanfarið staðið yfir í æskulýðs
heimilinu að Eríkirkjuvegi 11. Er
þar um að ræða kynningu á fé-
lags- og tómstundastarfsemi Æsku
lýðsráðs Reykjavíkur og sýn-
ingin aðallega ætluð nerrendum
gagnfræðastigsins, en öllum öðr-
■um að sjálfsögðu 'heimill aðgang-
ur. Fjöldi foreldra sótti sýninguna
og þótti llún takast mjög vel.
Voru þarna sýnd ýmis tómstunda
viðfangsefni æskufólks og kynntu
klúbbar þeir, sem starfa á vegum
Æskulýðsráðs, starfsemi sína. Alls
hafa 2300 unglingar tekið þátt í
félags og tómstundastarfi gagn-
fræðaskólanna síðastliðna tvo
vetur, en öll sú starfsemi hefur
verið fyrir tilstuðlan Æskulýðsráðs
Reykjavíkur. Tilgangurinn með
þessari starfsemi er rneðal ann-
ars sá, að nýta húsnæði skólanna,
um leið og ungu fóiki er leiðbeint
í ýmsum greinum tómstunda-
starfs, þannig, að þeim veitist auð
veldara að nota tómstundir sínar
til vinnu að hollum viðfangsefn-
um. Skólarnir hafa því orðið eins
konar ‘hverfisheimili, en eins og
strax kom í ijós, var erfift fyrir
unglinga víðs vegar úr borginni,
að sækja námskeið og aðra starf
semi, sem fram fór að Fríkirkju
vegi 11. í Golfskálanum á Öskju-
hlíð fer einnig fram stór hluti
istarfseminnar, og hafa nokkrir
klúbbar þar aðsetur sitt.
Við ræddum stuttlega við Jón
Pálsson á sýningunni um daginn
og taldi hann, að ljósmyndagerð
og ljósmyndaiðja væri einna vin
sælust af viðfangsefnum þeim,
sem unigt fólk getur unnið að á
vegum ráðsins. Sagði Jón, að ljós
myndaiðjan hefði verið það fyrsta,
sem byrjað hefði verið með á
Lindargötu 50, við góðar aðstæður
og margir fengið áhuga þá strax,
Framhald á 10. síðu.
lli
■
jOÚXxjl;:
: %
\-s >T- ' % \ s Tp
'v'"
s ? S. Tsý SS-Í.V-: s%
íV-X-.s
mmá
Bifreiðaklúbbur var stofnaður á vegum Æskulýffsráðs í fyrra og var starfsemi lians kynnt á sýningunni,