Alþýðublaðið - 15.10.1965, Síða 9

Alþýðublaðið - 15.10.1965, Síða 9
aö byggja nema 3-4 hús í þúsund ái\ þá verður að virða okkur það lil vorkunnar, að við höfum ehn ekki komið því í verk, Sigurður Benediktsson. SERKENNILEGASTI ÍSLENDINGURINN JÓHANNES SVEINSSON KJAR- VAL er einstæður maður. Hann er fremsti listmálari ísleftdinga fyrr og síðar, genial í list sinni og orginal. Það er alveg sama hvernig maður veltir honum fyr ir sér, hvort sem maður hefur list hans fyrir augunum, ljóð hans ritsmíðar, eða persónulega fram komu hans á götum og gatnamótum veitingasölum eða ferðalögum, alls staðar birtist hann þannig í mörgum myndum. ,Ég kynntist honum fyrir 40 árum, og enn í dag, þegar hann er áttræður að aldri, er hann al veg eins og þá. Þegar ég sé hann á götum úti gengur hann þráð beinn eins og þá, spengilegur og ber höfuðið eins og þá, dálítið fálkalegur eins og þá — og ég : er alveg handviss um það, að liann talar alveg eins og þá. Við áttum margar stundir saman og það fór vel á með okkur. „Sjáðu hendurnar á mér“ sagði hann við mig einu sinni á horninu á Pósthússtræti og Aust urstræti. „Sko hendurnar á mér Alþýðan er þarna í fingurgómun nm á mér, verkafólkið, baslara fólkið, ég er kontinn af því og iég er í því. Ég er> þess og það er mitt. Skilurðu þetta, ha? Skilurðu það? Og hann hélt báðum lófun um fast upp við andlit mitt og sýndi mér fingurgómana á sér. Síð an álpaðist hann burtu, en sneri sér svo við og kallaði „Það er ein mitt það“. Ingimundur bróðir hans kom einu sinni upp um stigagatið heima hjá mér. Hann var> með grænan flauelishatt og það var kaf ald úti og hörkufrost. Hann settist á rúmið hjá mér og talaði við mig og gaf mér smárit og eina mynd. Hann var mikill listamaður, ég skynjaði það þá og vissi það síð ar. En hann var líka orginal, fiðlan varð honum ekki það sem pensillinn varð bróður hans. Arfurinn úr ættinni hefur verið alveg sérstæður. Það er eins og þessir bræður hafi ekki verið nema að nokkru leyti af þessum heimi, heldur úr álfheim um, hulduheimum, enda voru fiðlutónar Ingimundar ekki af þessum heimi, eða tal hans sumt og búnaður hans. Ég gleymi aldrei græna flauelishattinum. Og mynd ir Kjarvals eru svo fullar af ann arlegu lífi, verum og vættum af öðrum heimi. Ég kom eitt sinn sem oftar í málarastofu hans. Það var í síð asta sinn, sem ég kom í stofu hans Þá sýndi hann mér myndir, sem hann var að vinna að og hann skýrði þær fyrir mér. Hann mál aði hlíðina eftir skýjafari himins ins. Hann málaði ekki skýin og ekki himininn heldur myndirnar sem skuggar og skin sköpuðu í sam spili sínu í fjallshlíðinni. Þessar myndir þóttu mér svo fagrar, að ég hef ekki séð aðrar fegurri. Ég veit ekki hvað orðið hefur af þessum myndum. Ég hef aldrei séð minnzt á þær. List Kjarvals er alltaf hrein- og tær. Magnanin sem frá þeim streymir á ekki upptök sín í mik illi hleðslu heldur einhverskonar barnahjali. Um leið og maður lít ur mynd eftir hann opnast hjartað og hugurinn — og þar með er leið in opnuð að listnautninni. Það er eins og hann sé samgróinn ís lenzkri náttúru. Það er ein hliðin enn á gerð hans.. Maður getur ekki skýrt þetta, en svona er það. Ef til vill er þetta svona af því að hann hefur „alþýðufólkið í fing urgómunum." Það eru alltaf hátíðahöld honum til heiðurs. Ég held að þau hafi staðið sleitulaust í þrjátíu ár því að enginn íslenzkur listamað ur nýtur annars eins trausts og ástar fólksins og hann. Það hafa alltaf verið hátíðahöld. Hann langar til að gera áttræð isafmælið sitt hátíðlegt á al- veg sérstakan máta. Hann vildi ekki neina sýningu sér til heiðurs hann vildi ekki nein læti. En úr- vals myndir hans, sem hægt var að ná í, eru í Listamannaskálanum og sýningin er til ágóða fyrir bygg ingu nýs Listsýningahúss. Hann hefur gefið eina af frægustu mynd um sínum og um hana verðun happ drætti. Við skulum hylla Kjarval á þessu afmæli hans með því að sækja sýninguna og kaupa happdrættismiða. Um leið leggj um við hvert og eitt ofurlítmn lárviðarsveig í lófa þpfasa fré- bæra listamanns, sénis og orginals. v.s.v. Stór sending af HOLLENZKUM VETRARKÁPUM og KULDAHUFUM tekin fram í gær. Bernharð Laxdal Kjörgarði. PFAFF - saumanámskeið í framhaldi af PFAFF-sniðanámskeiðum verða nú InJd- in saumanámskeið á vegum Pfaff. FYrstu i'.ámskeiðin hefjast þriðjudaginn 19. okt. Ininritun í PFAFF Skólavöiðustíg 1. — Simar 13725 og 15054. VINNA Óskað er eftir mönnum til starfa við mót- töku á kartöflum. j Upplýsingar gefnar í síma 24480, og h.já verkstjóra. Grænmetisverzlun Iandbúnaðarins. CBLLU' PLASTLAKK NYKOMIÐ: CELLU-pIastlakk — glært og matt. CELLU-patínalakk fyrir Teak og Palaisandar CHELLU-patina olía fyrir Teak. CELLU-sIípimassi. CELLU-slípiolía. ! ?■ ’ i ' Pattex-lím og herðir. Hannes Þorsteinssqn, Heildverzlun — Hallveigarstíg 10. Sími 2-44-55. íl MOLSKINNSBUXUR Höfum fyrirliggjandi allar síærðir af drengjabuxum úr molskinni, stærðir 4-1 ö. VERÐ FRÁ KR. 198 Komið og berið saman verðin. Miklatorgi — Lækjargötu 4. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. október 1965 $

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.