Alþýðublaðið - 11.11.1965, Síða 10
Leitarskip
Frh. af 1. sífla.
upphafi máls síns, að í febrúar
1953 hefði Alþingi samþykkt þings
ályktunarlillögu um fiskirannsókn
arskip frá Pétri Ottesen. Fjárhags
grundvöllur að smíði slíks skips
hefði fyrst verið lagður 1958 með
lögunum um útflutningssjóð, þar
sem ákveðið hefði verið að hluti
tekna af útflutningsgjaldi rynni
til smíði þessa skips. Þessum á-
kvæðum hefði síðan verið haldið
þótt lögin um útflutningssjóð
hefðu verið felld úr gildi.
Árið 1964 hefði verið skipuð
byggingarnefnd og í henni ættu
sæti Gunnlaugur E. Briem, ráðu
neytisstjóri, Davíð Ólafsson fiski
málastjóri, Jóhannes Nordal,
bankastjóri, Hjálmar Bárðarson,
skipaskoðunarstjóri og Jón Jóns
son , forstjóri Hafrannsóknarstofn
unarinnar. Agnar Norland skipa-
verkfræðingur og Ingvar Hall-
grímsson fiskifræð’ngur hefðu nú
um skeið unnið úr framkomnum
teikningum og gert ýmsar fyrir
komulagsteiknmgar. Kvaðst Egg
ert húazt við að nauðsynlegum und
irbúningsstörfum mundi lokið
saemma á næsta ári.
Ráðherra sagði, að í árslok 1964
hefðu verið fvrirl’gg.iandi 11,4
millj. kr.. til smíði skipsins, en
um næstu áramót vrðu væntanlega
fyrirliggiandi um 14 m'lli. kr. Með
öllum bunaði mundi slíkt skip
kosta um 50 rniUi. ísl. kr.
Þá skvrði siávarútvegsmálaráð-
herra frá bví. að Jakob Jakobsson
fiskifræð;nffur væri nú að fram
kvæma athusun á bví hvort borg
aði sig betu„ a« kauna sérstakt
skip til sUdarleitar eða brevta
einhveriu skifí sárstaklega með til
liti til bessa verkafnis. Er athugun
in gerð að heiðni .Takobs. Mundu
niðurstöður væntanleira liggia fyr
ir innan skamms og ákvörðunin þá
verða tekin.
Lúðvík Jósefsson (K) gagnrýndi
að jsmrði fiskirannsóknarskínS'
hefði vaf zt fvrir stiórnvnldunum
f heil átt.a ár. n" væri fiárskortur
alls engin afsökun fvrir fram-
kvæmdalevsi í bessum efnum.
Emil Jónsson utanríkisráðherra
sagði að ef töfin væri orðin átta
ár hlyti Lúðvík að taka eitthvað
af sökinni á sig, ef um sök væri
að ræða, því fyrir átta árum hefði
Lúðvík sjálfur verið sjávarútvegs
málaráðherra. Emil lagði áherzlu
á það að tekjur til smíði skips
ins hefðu árum saman ekki ver
ið meiri en svo, að ekki hefði ver
ið hægt að leggja út í smíði þess
með það fé eitt. Að auki hefði
svo verið nokkur ágreiningur um
gerð skipsins en 1964 hefði verið
byrjað að endurskoða fyrri áætl
anir og nú væri það eingöngu
spurning um vikur eða mánuði,
hvenær smíði skipsins yrði boðin
út.
3 nýjar bækur
Framhald úr Opnu
Þorsteinn M. Jónsson skóla-
stjóri: Spekin fellur þeim
óbornu í arf.,
Þar segir höfundur frá sam-
skiptum sínum sem útgefandi við
skáldið, upplagafjölda og sölu
einstakra bóka o. fl.
Þorsteinn Jósepsson blaffamað-
ur: Bókasafn Davíffs.
Þar segir frá bókasöfnun Da-
víðs. Bókasafni hans og saman-
burður gerður á safni hans og
Þorsteins Þorsteinssonar.
Einar Bjarnason ríkisendur-
skoffandi: Ættartala Davíffs
Stef ánssonar.
MYNDIR DAGANNA.
Endurminningar séra Sveins
Víkings, ritaffar af honum
sjálfum.
í bókinni bregður höfundur upp
ógleymanlesum myndum af
bernsku sinni norður í Keldu-
hverfi. Bókin leiftrar af fjöri og
gamansemi. en er jafnframt heill-
andi sveitalífslýsing.
ÁGÚSTDAGAR.
Ljóðabók eftir Braga Sigurjóns
son, bankastjóra á Akureyri. —
Þetta er 7. bók höfundar. — í
henni eru 42 ljóð.
Svartbakurinn
Framhald af 3. síðu
um verðlaun fyrir skotinn svart-
bak, og standa þar í sveit Óskar
Levý, Sigurvin Einarsson og Guð
laugur Gíslason. Má búast við, að
til orrustu komi milli þessara fylk
inga í neðri deild þá og þegar,
ef til vill í dag.
Enda þótt reynsla annara sýni,
að ekki er unnt að stemma stigu
við fjölgun svartbaks með skotum
einum, telja fuglafræðingar ýms-
ar aðrar leiðir koma til greina í
þeirri haráttu. Má nefna eitur,
þar á meðal ýmsar nýjar tegundir
svæfilyfja, lyf til að gera fugla
ófrjóa, lyf til að úða egg svart-
baks. Sérstakloga telja þeir skyn
samlegt að verja einstök æðar-
vörp, og sé unnt að útrýma stað-
bundnum stofni sem sæki í hvert
varp. Hins vegar sé vitað, að 60%
ungmáfa farist á fyrsta ári, og sé
ástæðulaust að verðlauna menn
fyrir að granda þeim.
Mörg mál....
Framhald af 11. síflu-
fulltrúum í Evrópunefnd IAAF
falið að vinna að frekari tillög-
um og endurskoðun á lögunum.
Þá var fulltrúa Finnlands,
Danmerkur og Svíþjóðar falið að
útvega tilboð í leiguflugvél fyrir
sameiginlegt lið Norðurlanda til
keppni á Evrópumeistaramótið í
Budapest næstk. sumar. Þinginu
lauk á sunnudag.
Menntamálaráðuneytið hafði
boð inni fyrir þátttakendur þings-
ins og gesti á laugardagskvöldinu
í Þjóðleikhúskjallaranum. í þessu
hófi heiðraði Frjálsíþróttasam-
band íslands þá Jukka Lehtinen
frá Finnlandi og Per Sönderud
frá Noregi með gullmerki FRÍ.
íþróttaráð Reykjavíkur og íþrótta
samband íslands sýndi þingfull-
fulltrúum margvíslega vinsemd
og fyrirgreiðslu meðan á störfum
þingsins stóð.
Hinir erlendu fulltrúar fóru ut-
an með flugvél Flugfélags íslands
8. nóvember sl.
(Frá FRÍ).
Tónleikar
Framhald af 2. síðu
munu innan tíðar fara í liljóm
leikaferð um Noreg.
Bækkelund liefur verið tönlistar
gagnrýnandi við Morgenavisen og
Arbeiderbiadet í Osló og jafn
framt ritað um tónlist almennt.
í maí síðastliðnum vakti það
mikla ahygli að Bækkelund neit
aði að taka við verðlaunum, sem
samtök norskra tónlistargagnrýn
enda veittu honum. Á fundi með
blaðamönnum í gær, sagði hann
að ástæðan fyrir að hann tók ekki
við verðlaununum væri sú, að
hann hefði átt að fá þau fyrir
túlkun á nútímatónlist, en áður
höfðu gagnrýnendur sagt að þeir
skildu ekki tónlistina, — og hvern
ig áttu þeir þá að vita hvort ég
spilaði vel eða illa. Mér fannst
ég ekki getað tekið við viðurkenn
ingunni.
Á tónleikunum í kvöld verður
spilað í fyrsta sinn á nýjan Stain
weg flygil, sem Synfóníuhljóm-
sveitin hefur eignast. Þann átjánda
og nítjánda þessa mánaðar verða
haldnir fjórir skólatónleikar í Há
skólabíói. Stjórnandi verður Boh
dan Wodiczko, Hallurímur Helga
son mun flytja skýringar.
Sænskur «ftvrkur
Framhald af 2, síffu.
blöðunum 25 milljónir króna
| styrk. Styrkurinn skyldi veittur
stjórnmálaflokkunum öllum en
renna í heild til blaðanna. Nefnd-
in vildi skipta upphæðinni í sam-
ræmi við hundraðshluta flokk-
anna af atkvæðamagni þeirra í
tveimur síðustu þingkosningum
og samkvæmt þessu hefðu komm-
únistar t.d. fengið rúmlega eina
milljón króna í styrk til tveggja
blaða fiokksins.
í>0000000<x>00000000000000'500000000000000000000000<
útvarpið
Fimmtudagur 11. nóvember
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Á frívaktinni
Eydís Eyþórsdóttir stjórnar óskalagaþætti
fyrir sjómenn.
14.40 Við, sem heima sitjum
Marigrét Bjarnason segir frá konum á Ind-
•landi.
15.00 Miðdegisútvarp
16.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Þingfréttir — Tónleikar.
18.00 Segðu mér sögu
Sigríður Gunnlaugsdóttir stjórnar þætti fyr-
ir yngstu hlustendurna. í tímanum les Stef-
án Sigurðsson framhaldssöguna „Litli bróð-
ir og Stúfur“.
18.20 Veðurfregnir..
18.30 Tónleikar — Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Daiglegt mál
Árni Böðvarsson cand. mag. flytur þáttinn.
20.05 Einsöngur: Gérard Souzay syngur frönsk
lög. Við píanóið: Dalton Baldwin.
20.30 Sagan um fyrsta hjartauppskurðinn
Jónas Sveinsson læknir flytur erindi.
21.00 Sinfóníuhljómsveit íslands leikur í Háskóla
ibíói
Stjórnandi: Bohdan Wodiczko.
Einleikari 'á píanó: Kjell Bækkelund frá
Noregi.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Minningar um Hendrik Ibsen
eftir Bergljótu Ibsen.
Gylfi Gröndal ritstjóri les eigin þýðingu (2).
22.(30 Djassþáttur
í umsjá Ólafs Stepsensens.
23.25 Dagskrárlok,
SX^OOOCKXXXKXXXXXXXXXXKW 000<X><X><XKXXXXXK><><>0<>C><>00'
New York
Framhal af 1. síðu
hafi verið sú, að bilaö hafi streng
ur frá orkuverinu við Niagarafossa
Allt lögreglulið New York borg
ar var kvatt út til að vernda
borgara geng misyndismönnum og
öðrum sem notuðu tækifærið til
rána. Um 200 lögreglumenn bún
ir táragasi voru sendir til Wal-
pole-fangelsisins skammt frá Bost
on þar sem fangar höfðu gert upp
reisn.
Niðamyrkur grúfði yfir borg-
inni og það sem venjulega eru
taldir mikilvægir þættir í þjóðlífi
lögðust niður: Enginn ís fékkst
með áfengum drykkjum, og sjón
varpssendingar og bíósýningar
lögðust niður. Rafmagnsbilunin-
hafði engin áhrif á fjarskiptakerfi
heraflans. í aðalstöðvum SÞ
sátu hundruð starfsmanna og full
trúa i niðamyrkri á skrifstofum
sínum. U Thant framkvæmdastjóri
fór fótgangandi lieim til sín í
myrkrinu.
Formælandi landvarnaráðuneyt
isins segir að rafmagnsbilunin hafi
verið góð æfing með tilliti til að
stæðna sem gætu skapast á stríðs
tíma. Þessi æfing hafi verið vel
heppnuð.
Þrátt fyrir umferðaröngþveitið
urðu ekk mörg slys. Er talið, að
milt og gott haustveður og glamp
andi tunglskin hafi átt nokkurn
þátt í því, að slys urðu ekki fleiri
en raun ber vitni. Veðrið var svo
milt, að upphitun var ekki nauðsyn
leg á heimilum.
„The New Yoirk Times" var
eina blaðið sem kom út í New
York í morgun.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málaflutnmgsskrifsíofa
Óðinsgötu 4 — Súnl 1104S.
sky-high
qualityv
KOMiÐ
SA!WltE¥NIÐ
SVEIl BjíÍRSi & CO.
LANGHOLTSVEGI 113
SÍMI 30530
Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Sigurðar Jónassonar,
forstjóra.
Fyrir mína hönd oig annarra ættingja
Ilelga Stefánsdóttir.
10 11- nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ