Alþýðublaðið - 24.11.1965, Blaðsíða 9
Ia veiffiferð.
í eldhús til Maríu Petrovnu, sem
svo matreiðir úr fiskinum Ijúf-
fengustu rétti. Og Sholokov býð-
ur gestunum til ekta kósakkamál-
tíðar. Á borðum eru heilsteiktir
aborrar, krydduð fiskisúpa, fugla
kjöt og saltaðar vatnsmelónur, og
með þessu er drukkið vodka og
rússneskt koníak. Rithöfundurinn,
sem er í mjög góðu Skapi,
skemmtir gestum sínum með ýms-
um sögum. Mikið er skálað fyrir
nóbelsverðlaunahafanum, konu
hans, vinum og gestum. Sænsku
blaðamennirnir eru gerðir að
heiðurskósökkum, en það felur í
sér meðal annars, að þeir verða
að drekka til botns í einum teyg
úr hverjum bikar.
Og þegar kvöldar yfirgefa
blaðamennirnir þennan gestrisna
kósakka, sem lofar því að koma
til Stokkhólms til þess að sækja
verðlaunin sín. Og þegar þeir yf-
irgefa Vesenskaja, tæma þeir
kveðjubikar fyrir hvatningarorð
kósakkahöfðingjans. Það er hvasst
á steppunni, himinninn er kol-
svartur, og dauft ijós við sjón-
deildarhring.
;ja :ihús nóbelsverfflaunahafans
Alyktanir frá
andðlagi kvenna
★ UPPELDIS- OG SKÓLA-
MÁL.
I. Fundurinn skorar á Al-
þingi það, sem nú situr, að taka
nú þegar til meðferðar frumvarp
það um vernd barna og ung-
menna, sem lagt var fyrir þing-
ið í fyrra, svo að það megi hljóta
afgreiðslu á þessi þingi.
II. Fundurinn leggur til:
a. að ályktanir þær og athuga-
semdir, sem gjörðar voru við frum
varp til laga um vernd barna og
ungmenna, og samþykktar voru
á síðasta aðalfundi Bandalags
kvenna, verði sendar öðru sinni-
til Alþingis.
b. að tillaga sú, sem skóla-
málanefnd samþykkti á fundi f
febrúar sl. um aðstoð ríkisins við
rekstur og byggingu almennra
barnaheimila og fóstruskóla, verði
einnig send aftur til Alþingis.
III. Fundurinn skorar á
menntamálaráðherra, að hafin
verði nú þegar endurskoðun á
fræðslulöggjöfinni frá 1946. —
Fundurinn krefst þess ennfrem-
ur, að konur eigi sæti í þeirri
nefnd, sem væntanlega verður
skipuð til að undirbúa þessa end-
urskoðun.
IV. Fundurinn skorar á alla
foreldra og uppalendur að beita
sér eindregið gegn því, að fram-
leidd séu og seld leikföng, sem
eru eftirlíkingar af stríðstækjum.
Sérstaklega vill fundurinn beina
þeim eindregnu tilmælum til for-
eidra, að gefa ekki börnum sín-
um slík leikföng eða leyfa þeim
að leika sér að þeim.
V. Fundurinn átelur, að barna
heimili þau við Dalbraut í
Reykjavík, sem taka áttu til
starfa í árslok 1964, skuli enn
vera í byggingu. Fundurinn skor-
ar einnig á borgarstjórn Reykja-
víkur að gera sitt ítrasta til að
standa við gerðar áætlanir um
byggingu slíkra heimila.
VI. Fundurinn beinir enn á
ný þeim tilmælum til skólayfir-
læknis, að hann hlutist til um, að
eftirlit með heilbrigðisástandi
skólabarna verði aukið þannig:
a. að berklapróf sé, ef unnt
er, gert strax og skólaár hefst.
b. að sjón og heyrn barna sé
áriega prófuð af sérfræðingum og
gengið sé eftir því, að fram-
kvæmdar séu aðgerðir, sem nauð-
synlegar kunna að reynast. Mætti
í þessu sambandi vekja athygli
á heyrnarprófunarstöðinni, sem
nú starfar í Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur. Nauðsynlegt er, að
komið sé á fót hliðstæðri sjón-
prófunarstöð í Heilsuverndarstöð-
inni.
c. að unnið verði að því, að
tannlæknaþjónusta verði á ný
tekin upp við barnaskóla borgar-
innar.
VII. Fundurinn skorar á fé-
lagsmálaráðherra að koma á fót
ströngu eftirliti með atvinnuleyf-
um til þeirra manna, er flytja
unglingum skemmtiefni. Nærtæk
dæmi sýna, að erlendir skemmti-
kraftar hafa valdið hér múgæs-
ingum og skrílslátum.
VIII. Fundurinn vill leyfa sér
að benda fræðsluyfirvöldum borg
arinnar á, hvað óheppilegt er,
að hlé verði á kennslu barna á
unglingastigi milli kl. 12—1 á
daginn.
Greirmrgerð:
Börnin eiga mörg það langt
heim, að þau komast ekki í mat
á þessum tíma. Hætt er því við,
að þau og reyndar fleiri, freistist
til að leita I „sjoppurnar” svo-
nefndu, sem eru í nágrenni hvers
skóla, neyti þar sælgætis og gos-
drykkja og eyði peningum á ó-
æskilegan hátt.
IX. Fundurinn tekur undir á-
lyktun frá 16. landsþingi Kven-
félagasambands íslands, sem
haldið var í ágúst sl. um að skora
á Alþingi og ríkisstjórn að veita
sem allra fyrst fé til þess að
byggja fullnægjandi húsnæði
fyrir starfsemi Húsmæðrakennara
skóla íslands.
Greinargerð:
Húsnæði Húsmæðrakennara-
skóla íslands er ófullnægjandi.
Þar rúmast ekki nema 12 nem-
endur í senn og því aðeins hægt
að útskrifa nemendur þriðja
hvert ár. — Fyrirsjáanlegt er,
að ekki. verður hægt að svara
eftirspurn eftir kennurum með
slíku fyrirkomulagi.
í lögum um Húsmæðrakennara
skóla íslands er heimild til að
stofna ráðskonudeild við skól-
ann. Mjög er orðið aðkallandi, að
það sé gert, þar sem mikil vönt-
un er á sérmenntuðum ráðskon-
um við sjúkrahúsin og mötu-
neyti skólanna í landinu.
★ BARNAGÆZLUMÁL.
I. Fundurinn fagnar því, að
nú skuli fyrsta systkinaheimili
Reykjavíkur vera tekið til starfa,
að Skála við Kaplaskjólsveg.
II. Fundurinn beinir því til
viðkomandi aðila (Stéttarfélags-
ins „Fóstru” og Barnavinafélags-
ins Sumargjafar), hvort ekki sé
tímabært að breyta fyrirkomulagi
á dagheimilum þannig, að það sé
scm líkast -venjulegu heimili í
sniðum.
Greinargerð:
Það er almennt talið eðlilegast
og þroskavænlegast fvrir börnin,
að þau séu saman í hóp á ýms-
um aldri líkt og systkini, en ekki
flokkuð eftir aldri, eins og nú er
gert.
III. Fundurinn fagnar því, að
skólaheimili fyrir ungar stúlkur
skuli vera tekið til staría og þar
Framhald á 10. síðu.
Fallegar gjafavörur
FRÁ HOLMENGAARDS
GLASVÆRK
Síðasta sending fyrir jól.
Pantanir óskast sóttar, sem fyrst.
G. B. Silfurbúðin
Laugavegi 55. — Sími 11066.
Nýkomið
Skozkar peysur og peysusett úr ull og ka'smir
Sérlega vönduð vara.
Eninfremur pils úr terylene og criplyn.
Hattabúð Reykjavíkur
Laugavegi 10.
Vikublaðið ALÞÝÐUMANNINN
á Akureyri vantar duglegan umboðsmann
í Reykjavík.
Símanúmer blaðsins er:
96 - I - 1399
Vikublaðið ALÞVÐUMAÐURiNN
Vikublaðið ALÞÝÐUMAÐURINN;
á Akureyri vill vinsamlega vekja athygli
auglýsenda í Reykjavík og nágrenni á því
að útbreiðsla blaðsins hefur stóraukist að
undanförnu t. d. hefur sala blaðsins á Ak-
ureyri 100 faldast.
Blaðið er í stöðugri sókn og því er gott að
auglýsa í ALÞÝÐUMANNINUM.
Vikublaðið ALÞVÐUMAÐURBNN
TEPPABÚTASALAN
STENDUR YFIR
Axminster
Grensásvegi 8.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. nóv. 1965 9