Alþýðublaðið - 24.11.1965, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 24.11.1965, Blaðsíða 11
Ni Chifc-chin nálgast óðum heimsmetið og er: Með sínum persónulegra stíl svífur Ni Chih-chin léttilega yfir 223 cm. á hinum volduga íþróttaleikvangi £ Peking. KÍNVEP.JAR eru ekki oft nefndir á nafn, þegar minnzt er á afreksmenii í íþróttum. Það er því ekki úr vegi, að seíg'j'a nokkuð frá álveg einstökum af- reksmaníii', sem kominn er fram á sjónarsviðið í Kína. Hann heitir Ni Chi-shin, og segja kuimugir, að hann stökkvi jafn léttilega yfir 2,10 og væru það 1,85. Hann er óvenju hávax Hér sjáum við hinn geðfellda kínverska hástökkvara í góðu skapi að loknu metstökki. inn af Kínverjum að vera eða 184 cm, en vegur aðeins 71 kíló. ★ HLÝÐDI SKIPUN. Hann hóf íþróttaferH sinn sem körfuknattleiksmaður, og í einum leik veitti íþróttafrömuður nokk- ur atihygU gífurlegu unpstökki ihans fyrir framan körfuna og isagði: —■ Þú átt að verða há'stökkv- ari! Kínverjar eru Mýðið fólk, sem trúir á leifftoga sína og Ni sagði aðeins: — Eg ska'l reytaa að vera verð ugur álits yðar! Sjálfur segir Ni Chi-chin svo írá ferli sínum og þjálfun: — Það, sem réði úrslitum um feril minn, var þátttaka mín í CANEFO — leikjunum í Djak arta 1963. Ég stckk aðeins 201 í minni fyrstu utanlandsferð og var niðunbrotinn maður. Ég sat Iheilt kvöld á hóteli mínu í Djak- arta og vfelti fyrir mér, hverju væri ábótavant. ★ FORDÆMI HERSINS. — En í desemher sá ég hvern ig fótgönguliðar Ihersins æfa og þá' gerði élg mér grein, fyrir því, hve langt ég stóð þeim að baki í þjálfun. Ég hafði alltaf æft í góðu veðri og á fulikomnum brautum. Ég vildi algjöra kyrrð og minnsta Mjóð truflaði milg í keppni og kom í veg fyrir. að ég gæti einbeitt mér. Hér varð því að verða breyting á. — Ég byrjaði að æfa í vond- um veðrum og á lélegum braut- um o»! valdi tíma, þegar ég gat átt von á mestri truflun og bein línis sóttist eftir henni, þegar ég þurfti að einbeita mér. — T. d. æfi ég oft utanhúss í snjókomu, þótt ég sjái varla brautina, enda nærsýnn, og þess ar æfingar eru utan venjulegs æfingatíma. ★ LYFTINGAR. — Nú igekk allt vel. Ég var isterkari en nokkru sinni fyrr og allt virtist ætla að ganga að ósk- um. En þá kom áfallið. Ég hafði alltaf kennt sársauka í ristinni, og nú fékk ég að vita, að ég æt'ti að ganga undir uppskurð. Mér líá við uppigjöf. En fyrir Ihvatningarorð félagalnna beit ég á jaxlinn, þótt nú liti svo út sem ailt erfiðið væri imnið fyr- ir gýg. Ég breytti um aðferð og hóf að æfa lyfitingar, og á einum mánuði lyfti ég 90.000 kíióum. En uppskurðinum var frestað og í gleði sinni stökk Ni 221 innainlhúss. í febrúar kom Ihins vegar í ijós, að um tvennt var að ræða: — hætta eða ganga undir uppskurð. — Ég kairs upp gkurðinn, en ég var ákveðlnn í iþví að halda áfram æfingum — á sjúkrahúsinu. — Tveimur dögum eftir upp- skurðinn varð uppi fótur oig fit á sjúkrahúsinu,- Ég hafði látið fæira mér sandpoka sem vóg 8 kíló og leizt hjúkrunarkomm- um ekkert á æfingar mínar, en til þess voru pokarnir fengnir. Fékks't að lokum samþykkt lækn anna, og eftir það æfði ég næstu 3 vikur 1—2 tíma,á dag, aðal- lega 'inaigavöðva svo og fætur og mjaðmir. Að æfingum loknum var ég á floti í svita og kenndi imjög til í fætinum. ★ BEZTUR 1966? — 1. marz var ég svo útskrif aður og ihóf æfingar tveimur dög um síðar af fullum krafti. í lok maí stökk élg svo 222. Þegar Ni stekkur, einbeitir hann sér lengi, en þegar hann hleypur til er eins og voldug: náttúruöfl knýi hann áfram og upp! Hvert stökk fekur hann al varlega og reynir að ná eins mikilli fnllkomnun og honum er unnt, og æfingar tekur hann sem um keppni væri að ræða. Nýlega hætti Ni enn metið og stökk 225, og árið 1966 verður i hann áreiðanlega heimsins bezti hástökkvari í fjarveru Brumels, og met sitt mun hann enn bæta. Um það ættu þeir, sem lesið hafa þessa grein að geta verið sammála. CASSIUS MARCELLUS GLAY _ Hann er óhugnanlega sterkur og snjall hnefaleikari, sagði Patte*t> son að leikslokum. Heimsmeistarinn heitir Cassius! ihRni-TArBm Eftirfarandi Evrópumet hafa ný- lega fengið, staðfestingu: 1 ensk míla: Jazi, Frakklandi 3:55,5 5000 m.: Jazy, Frakklandi 13.27„6 1 ensk míla: Jazy, Frakklandi 13,04,8 lOOOOm: Reolants, Belgíu 28,10,6 4x100 m. boðhlaup: Sovét-Rúss- land 39,2 Sleggja: Klim, Sovét-Rússland 71,02 m. Rússneska meistaramótinu í knattspyrnu lauk sl. laugardag. Rússlandsmeistarar urðu Torpedo frá Moskvu, hlutu 51 stig í 32 leikjum. í öðru sæti varð Dynamo Kiev með 50 stig. Rússland hefur tilkynnt þátt- töku i Evrópubikarkeppninni næsta ár, og verður Torpedo því fulltrúi þeirra. Cassius Marcellus Clay varði tit- il sinn sem heimsmeistari í þunga- vigt í Las Vegas afffararnótt þriðju dags, er hann sigraði Floyd Patt- erson í einvígi, sem lauk eftir tólf lotur. Sigur Clays var aldrei í hættu, og vann hann allar loturnar, nema þá fyrstu og er því enn ókrýndur konungur hnefaleikanna og ekki horfur á, að hann verði sviptur þeirri tign að sinni. Keppendunum var misjafnlega tekið er þeir gengu til leiks. Patt erson var innilega fagnað, en Clay hlaut hólfgerðar ,,KR móttökur," baul og háðsglósur. Eins og fyr getur hafðj Clay yfirburði, ef frá er skilin fyrsta lota, gaf sér meira að segja tíma til að tjá dómurunum hve högg Pattersons væru máttlaus og ekki þess verð að afla honum stiga í sjöttu lotu sendi hann Pajt- erson í gólfið og í tólftu lotu var leikurinn stöðvaður vegna þess, hve Patterson var illa útleikinn. Clay beitti mjög vinstri handar ,,hooki“ eins og það heitir á ensku máli og gat Patterson ekki varizt árásum hans, enda tóku sig upp gömul bakmeiðsli, sem liann hefur átt við að stríða í nokkur ár. Patterson kveður nú að öllditt likindum. hnefaleikana, þótt ckjri verði það með sama hætti og hann hefði óskað, en „kjafthákurinn“ Cassius Clay situr áfram í hásáet- inu, enda liefur hann sannað það ótvírætt, að til þess hefur han» unnið, þótt menn séu ekki á eitt sáttir um hirðsiði hans hátignar. Floyd: „Ég gat Jbað ekki Clay: „Hver er næstur? Patterson var niffurbrot inn eftir leikinn og sagði m. a. viff blaffamenn. — Mér þykir þetta mjög leitt. Ég hafffi vonast tíl aff geta sýnt landsmönnum mín um, aff ég gæti barist vel en ég gat þaff ekki, því miffur. Ég ætla ekki aff reyna aff af saka mig á neinn hátt, eða lítillækka Clay. Hann er ó- hugnanlega sterkur og snjall hnefaleikari, og meff meir: reynslu verffur hann einn a: þeim „stóru". Um framtíff sína viIdi Patl erson ekkert ræffa áð Svo; Framhald á 14. síðu ALLTAF Á UPPLEIÐ ALÞÝÐUBLAÐID - 24. nóv. 1965 £|(

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.