Alþýðublaðið - 26.11.1965, Síða 5

Alþýðublaðið - 26.11.1965, Síða 5
STJÓRNTURN í STAD BRÚAR * BILLINN Rent crn Icecar Skrifstoíur Alþýðuflokksins verða lokaðar í nokkra daga vegna viðgerða. Skrifstofur Alþýðuflokksins. NORSKA útgerðarfyrirtækið Fred Olsen & Co. tók nýlega við nýju olíuskipi, sem smíðað var austur í Japan, en Japanir eru sem kunn ugt er afkastamiklip skipasmiðir og standa frarmarlega í þeirri grein. Þetta nýja skip heitir „Borgila" og er 258 metra langt og 95 þús. dwt tonn að stærð. Skip þetta er að mörgu leyti afar nýstárlegt samkvæmt frásögn norska Ar- beider-blaðsins. Skipið var smíðað í einni af skipasmíðastöðvum jap anska stórfyrirtækisins Mitsui í Tamano. i Yfirbygging skipsins er öll aft ur á og er hún aðeins á tveim hæðum. í stað hinnar venjulegu brúar er á skipinu stjórnturn, sem er sambyggður við skorstein inn. Öll siglingatæki og fjarstjórn artæki fyrir vél eru samankomin í einu stjórnherbergi framan til í yfirbyggingunni. Samgöngur miili mikilvægra staða í yfirbyggingunni aftur á eru taldar mun auðveldari og greið ari en tíðkast á flestum öðrum skipum. í þessu skipi er svo kölluð stjórnmiðstöð, en þar er skrifstofa skipstjóra, aðalskrifstof og loftskeytastöð. í aðalskrifstof unni eru yfirvélstjóri, 1. stýrimað ur, og loftskeytamaður sem jafn- framt er titlaður ritari. Þá er í skipinu sérstök birgða miðstöð, þar sem er vistageymsla eldhús og sameiginlegt búr fyrir matsal yfirmanna og undirmanna Þeir sem eru á vöktum hafa sér stakan matsal til afnota. Þá er um borð í þessu nýstár lega skipi svokölluð mennta- og tómsjlundamiðstöð, e)n það eru þrju herbergi, einsetustofa, tóm stundaherbergi og sérstakt fund arherbergi. Þessi herbergi eru að skUin með léttum skilveggjum sem taka má niður eftir vild. Viðgerðam’ðstöð er í skipinu og þar er velbúið verkstæði og birgðir af varahlutum bæði fyrir vél og þilfar. ÍOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÖOOÖOOOOOOOOC'OOOOOOOOOOOOOÖOOÖOOOOOOOOOOOOÖOOC Peningar og stjórnmál ÞAÐ er athyglisvert, að fjár- mál stjórnmálamanna og flolcka eru nú meira l sviðsljósi en áður fyrr. Á Alþingi er rætt um aðstöðu ráðlierra, sérstak- lega hve lengi þeir megi hafa frí frá embættum til að sitja í ráðuneytum. Þá er deilt um fjármál dagblaða, en þau eru nátengd fjárhagslegri getu flokkanna. Vonandi má af þessu draga þá ályktun, að almenningur skilji nú betur en áður sam- hengi þessara mála og vilji skyggnast sem dýpst inn í þau. Væri það í samræmi við lýðræðislegan þroska erlendis, þar sem víða þótti sjálfsagt fyrlr mörgum árum að setja lög unl fjármál frambjóðenda og flokka. Er í sumum löndum skylda að birta eftir hverjar kosningar skýrslu um, hve miklu fé hafi verið varið í kosningabaráttunni, og sum lönd hafa þar hámarksupphæð. Er hugsunin á bak við þetta sú, að auður megi ekki skapa mis- rétti í stjórnmálabaráttu, ríkir menn og rlkir flokkar eigi ekki að hafa betri aðstöðu en hinir fátækari til að koma skoðunum sínum á framfæri hjá álmenn- ingi. Hafnarfjarðarmálið spratt upp af þeim atvikum, að Guð- mundur í. Guðmundsson var ráðherra í 9—10 ár samfleytt. Þykir nú hin mesta goðgá, að hann skyldi halda opnu emb- ætti í Hafnarfirði svo lengi. Að vísu hefur Steingrímur Steinþórsson nýlega verið í ríkisstjórn á sjöunda ár sam- fleytt og haldið embætti bún- aðarmálastjóra opnu allan tím- ann, og Hermann Jónasson hélt tveimur stöðum opnum á sama hátt samtals tólf ár. Framsókn- ármenn hneyksluðust ekki á þessum mönnum, en þeir eiga nú varla íil nógu Ijót orð um Guðmund í. Hvað um það. Þetta niál snýst að einu leyti um aðstöðu manna til að verða ráðherrar. Ef þeir mega ekki fá frí frá öðrum störfum, kemur af sjálfu sér, að eingöngu auð- menn og atvinnupólitikusar geta orðið ráðherrar. Ef til vill verður þetla svo i framtíðinni, því færa má sterk rök að því, að tæplega helmingur allra álþingismanna sé nú þeg'ar orð- inn „atvinnumenn”. Þeir lifa á meira eða minna pólitískum störfum, þ. e. þingmennsku, cr- indrekstri fyrir flokka, póli- tískri blaðamennsku, ráðherra- störfum, verkalýðsforustu eða öðru slíku. VandamáI dagblaðanna er al- varlegt fjárhagsatriði. Öll ís- lenzku d'agblöðin berjast í bökkum, nema eitt. Það er þungur kross fyrir stjórnmúla- foringja að útvega fé til að halda þessum blöðum úti og það tekst ekki nema með þoí að annað flokksstarf, sem kost- ar fé, situr meira eða minna á hakanum. í þessu felst ekki aðeius nýtt misrétti, þar sem ráðamenn fjármagnsins liafa óeðlilega mikil völd i þjóðfé- laginu, heldur er raunverulegt sjálfstæði flokksleiðtoganna í hættu. Af þessum sökum er mjög eðlilegt, að hið opinbera greiði fyrir dagblaðaútgáfu flokkanna., og nauðsynlegt lýð- ræðislegri skoðanamyndun að það sé gert. Það er gott, að ahnenningur fái sem mestar upplýsingar um þessi mál og geri sér grein fyrir, hvernig íslenzk stjórn- mál í rauninni ganga fyrir slg, og hvaða vandamál flokkar og flokksforingjar eiga við að stríða. Það mun styrkja lýð- ræði í landinu, ef þjóðin gerir raunhæfar aðgerðir varðandi fjárhag stjórnmálabáráttunn- ar. Sjálfvirkni er þarna um borð mjög mikil og frá sérstöku stjórn herbergi í vélarrúmi er liægt að fylgjast með öllu þar niðri. Þetta herbergi er hljóðeinangrað og loft ræsting á þar að vera sérstaklega fullkomin, en allt er þarna miðaft við að liægt sé að komast af með ehin mann á vakt í vélan-úmi. Sérstök mælitæki fylgjast með 100 mismunandi atriðum í samband*- við vélarnar, sem þarna eru sam ankomnar, og 'allar upplýsingar em ritaðar n;ður með sjálfvirkurpj tækjum. í aðalsti/jmklefa skipsins er umhorfs svinað og í stjórnklefa stójwrar farlbegabotu. Úr einum stól er bar hægt að ná til allra stjórntækia skipsins og þaðan er vélinn' stiórnað. , Allt er að siálfsögðu miðað við að rekstrarútgiöld skiosins verðt sem mínnst. og er útgerðarfélag ið nú að leita hófanna um að fá að fækka í áhöfn sk;psins. en eí- bað revnist ekki unnt, að hafa þá færri menn á vöktum en venja er til. en setia fleiri til að vinna að marmn’siegu viðhald’, en samn inpar s‘anda nú ”fir um bað ntuj* ;ði. Tnii« er nnoeilegt að um borð séu 38 menn. OOOOOOOOOOOOOOOC z>oooooooooooooooooooo<x><x>oooooooo oooooooooooooooooooooooooooooooo ALÞYÐUBLAÐIÐ vantar blaðburðarfólk í nokkur liverfi í Reykjavík. Þar á meðal eru þrjú stór íbúðar hverfi. Blaðið beinir því hér til foreldra stálpaðra barna, að þeir hlaupi nú undir bagga með blaðihu og léyfi börnum sínuni að' bera það út. Umrædd hverfi eru þessi: ERÆÐRABORCAR- STÍGUR LAUFÁSVEGUR LINDARGATA Auk þess vantar blaðburð arfólk ’á Seltjarn'áfnéSi svo og í miðbæinn, Laugaveg og ^ Hverfisgötu. >000000000000000 Lesið ÁiþýðubiaðiS ÁskrifíasímÍRn er 14900. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. nóv. 1965 $

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.