Alþýðublaðið - 26.11.1965, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 26.11.1965, Qupperneq 6
DAGBÓK F’tamhald af 7. síðu. því er bezt verði séð — sé hand- rit Penkovskys á rússnesku ekki til. í greinum sínum tekur Zorza fyrir orð og orðtök í „Penkovsky- skjdlunum”, sem hann telur að sovézkur borgari eins og Penkov- sky mundi aldrei nota. Þannig mundi enginn Rússi segja „Sovét- Rússi”, segir Zorza. Það sé jafn óhugsandi og að Ameríkumaður kallaði sig „Bandaríkja-Ameríku- mann.” Nokkur svipuð dæmi er að finna i bókinni, og ástæðan er ekki mistök í þýðingu, segir Zor- za. Sá, sem þetta hafi skrifað sé fáfróður um rússnesk hugtök. — Hann nefnir nokkur dæmi, er sýni á sama hátt að bókin sé ekki I jsamin af Penkovsky sjálfum. ★ CHUIKOV OG ZHUKOV RUGLAÐ SAMAN. í bókinni segir „Penkovsky,” að margar tilraunir Rússa til að skjóta mönnuðum geimförum á loft hafi mistekizt og að áhafnir þessara geimfara hafi farizt. Zor- za bendir á, að vestrænir sérfræð- ingar hafi hvað eftir annað kveðið þennan orðróm niður, einfaldlega vegna þess, að menn á Vestur- löndum hafa getað fylgzt með geimskotum í gegnum fjarskipta- samband. Fjarskipti milli geim- farsins og jarðar hefðu leitt í Ijós hvort menn væru um borð. í greinum sínum kveðst Zorza einnig hafa fundið beinlínis rang- ar upplýsingar á nokkrum stöðum í „Penkovsky-skjölunum.” í bókinni segir m. a. að Chuikov marskálkur (sem ekki má rugla saman við Zhu kov marskálk, sem er miklu fræg- ari), fyrrverandi yfirmaður sov- ézka landhersins, hafi verið svipt- ur embætti sínu 1961 og því næst skipaður yfirmaður sovézkra al- mannavarna. Það er rétt, að Chui- kov marskálkur varð yfirmaður almannavarna á þessum tíma, en hann hélt áfram starfi yfirmanna landhersins — þannig var hann alltaf titlaður í sovézkum blöðum, sem fjalla um hermál. Chuikov marskálkur var ekki sviptur emb- ætti yfirhershöfðingja fyrr en ár- ið 1964. tæoum tveimur árum eft- ir handtöku Penkovskys. Zorza nefnir fleiri dæmi, er geta bent til þess að sá sem tók „Penkov- sky-skjölin” saman hafi ruglað saman ýmsum atburðum og dag- setningum. ★ HERMÁLAKAFLINN SAM- INN Á VESTURLÖNDUM. Victor Zorza telur, að allur kafl- inn um sovézka herfræði hljót' að Hafa verið saminn á Vesturlönd- um. í þessum kafla segir, að Pen kovsky hafi látið hinni vestrænu leyniþjónustu í té allan texta sér- staks „safns” viðhorfa sérfræð- inga til her- og varnarmála. Samt vitnar hann í langa kafla úr „safn- inu” síðu eftir síðu í dagbók sinni. Zorza spyr hvort Penkovsky hafi í rauninni þurft að skrifa upp langa kafla úr slíku safni, sem hann hafði þegar Ijósmyndað og sent til Vesturlanda. í kaflanum um sovézk hermál og víðar í bókinni varar Penkov- sky við því, að það sé eindreg- inn ásetningur Rússa að verða fvrri til í kjarnorkustríði og gera skvndiárás á Vesturl.önd með kjarnorkuvopnum. Með þessu er gefin röng mynd af stefnu Rú«sa í hermálum, seg- ir Zorza. Föfundur „Penkovsky- sk.ialanna” lætur talsmann þess- arar kenninvar, Gastilovitch hers- höfðineja. sýna fram á, að Rússar séu búnir undir (eða undirbúi?) skyndiárás á Vesturlönd. En ekki er minnzt á hað. að jafngóðir sov- ézkir hermálasérfræðingar lögð- ust eindregíð gegn kenningu Gas- tilovitrh f bessu sama efni. — í þessu tilviki hikar Zorza ekki við að kalla kaflann fölsun. Victor Zorza harmar mjög það, sem hann kallar rangtúlkun á safninu á skoðunum sovézkra lier- málasérfræði'nga. Birting þessa safns mundi stuðla mjög að aukn- um skilningi Vesturlandabúa á sovézkri herfræði. Nú hljóti menn að óttast að safnið verði aldrei hirt í heild. Brezki séríræðingurinn telur, að „Penkovsky-skjölin” séu svar CIA i við ítrekuðum tilraunum Rússa til að kasta rýrð á CIA. — En í sálfræðilegum hernaði af þessu tagi liafa leyniþjónust- urnar í vestrænu lýðræðisríkjun- um við það alvarlega óhagræði að stríða, að í tilraun sinni til að skaða andstæðinginn vefða þær að villa þeim sýn, sem þær vernda. Og það er hlutverk hinna frjálsu blaða að afhjúpa slíkar blekking- ar, segir Zorza. @ Westinghouse(§) Westinghouse@ 8 vandlátir -f | velja sg. Westinghouse ^ IWESTINGHOUSE heimilistæki fást hjá okkur RafbúS S. í. S. við Hallarmúla. WMMMMMtWIMMMMMMMVMMMMMMMMMMMMMMW NÝKOMNAR HEKLAÐAR KVENPEYSUR FALLEGIR LITIR Bergnes sf. BÁRUGÖTU 15. — Sími 21270 TILKYNNING frá lögreglu og slökkviliði um áramótahrennur ' Þeir, sem hafa í (hyglgju að lialda áramóta-brenn- ur, verða að sækja um leyfi til þess hjá lögreglunni, svo sem, áður hefur tíðkazt. Umsækjendur skulu snúa sér til . lögreglimnar með þessar beiðnir í síma 1-4819 og verður beiðnum þar svarað allt lil 30. desember n.lk. Umsækjendur skulu lýsa staðnum og skýra frá hvar Ihann er og hvort þar hafi verið haldin brenna. Einn- ig skulu þeir tilnefna einhvem ábyrigan mann iyrir ibrennunni. Tilnefndir hafa verið af lögreglunnar ihendi Stefán Jóhannsson, aðalvarðstjóri, og frá slökkvRiðinu Leó Sveinsson, brunavörður, til að meta, hvort hægt sé að halda brennur á hinum umbeðnu svæðum og líta eftir bálköstilnaim. Hafa þeir úrskurðarvald í því nefni. Lögreglan beinir þeirri beiðni til foreldra bai’na og umsjónarmaninia blálkastanna, að ekki verði kveikt í þeim fyrr en á igamlárskvöld og á þeim tíma, sem lög- reglan leyfir. Varað er við, að ibörn, án eftirlits fuillorðinna, fari með eldfim efni við foáfkestina. Slökkviliðið vill foeina athygli almennings að 152. gr. brunasamþykktar fyrir Reykjavík varðandi sölu skotelda, að þeir kaupmdnn, sem fá leyfi til að selja skotelda, flugelda og skrautelda, hafi þá í öruggri geymslu í verzlunum sínurn. Komi eldur upp í bálkesti, mun slökkviliðið ekki veita aðstoð til að slökkva í þeim, nema um eldhættu frá þeim sé að ræða. KÓPAVOGUR Böm eða unglingar óskast til að bera Al- þýðublaðið til kaupenda í Kópavogi. Upplýsingar hjá útsölumanni í síma 40319. Jólaalmanök fyrir börnin - Bókabúö Máls og menningar, Laugavegi 18 * OOOOOOOOOOOOOOOOOOOCXX'OOOOOOOOOOOOÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÖOOOOOOOOOOOOOOOOO £ 26. nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.