Alþýðublaðið - 08.12.1965, Page 1
Miðvikudagur 8 desember 1965 — 45. árg. — 279. tbl. — VERÐ 5 Klt
Bankar landsins færöu íslenzka
rikinu Skarðsbók að gjöf í gær
Reykjavík — KB
SKARÐSBÓK kemur til íslands. Þegar hún var
seld á uppboði í Lundúnum fyrir skemmstu, voru það
bankar landsins í sameiningu, sem áttu hæsta boðið
og hrepptu hnossið. Þeir hafa nú afhent ríkinu hand-
ritið að gjöf og verður það fengið Handritastofnuninni
til varðveizlu.
Se'ðlabanki islands kvaddi fréttamenn á fund síðdegis í gœr.
A þeim fundi las dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri upp svo-
hljóðandi bréf, sem bankjinn hefur ritað menntamálaráðherra:
í Hr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra, Reykjavík.
í Hæstvirtur menntamálaráðherra.
Eins og yður er kunugt, fór
i hinn 30. nóvember sl. fram upp-
boð á miðaldahandritum hjá
Sotheby & Co. ■ í London. Meðal
í kjörgripa á uppboði þessu var
íslenzka liandritið, Skarðsbók,
glæsileg 14. aldar skinnbók, sem
á eru skráðar postulasögur.
Um það hefur verið rætt hér
á landi að xindanförnu, að sjálf-
sagt væri að íslendingar gerðu
tilraun til að eignast þetta verð-
Framhald á 15. síð'u.
Menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason og dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri skoða ljósprentað*
utgáfu Skarðsbókar á fundinum í gær, þegar bankarnir afhentu ríkinu Skarðsbók að gjöf. (Mynd: J. V;J
i
l
i
/
l
** . :
Á myndinni er ein síða úr Skarðsbók. Hún
er skrifuð með svörtu bleki á kálfsskinn
og fagurlega lýst. Að minnsta kosti tveir
skrifarar hafa unniff að verkinu og ef til
vill þrír. Rithönd þess manns sem skrifaði
fyiTÍ hluta Skarðsbókar hefur einnig fund
ist í öðum handritum. Telja má víst að
hann hafi veriff inunkur jí Helgafellsi-
klaustri. Á bls. 3 er ítarleg grein um sögu
og uppruna Skarðsbókar.
Ómetanleg til fjár
DR. JAKOB
BENEDIKTSSON
sagði í stuttu við
tali við Alþýðublað
ið: — Þetta er mér
ákaflega mikið
gl'eðieftij,. Bæði
mér og öðrum
blæddi það í aug
um, að bókin lenti
ef til vill í hönd
um útlendinga. Hér
er um að ræða stór
merkilegt handrit
og eitt af þeim fall
egustu sem til eru
frá 14. öld. Þar að auki er handritið
vel varðveitt. Þá er það ekki síður
merkilegt frá textasjónarmiði og enn
fremur er það eitt aðalhandritið að post
ulasögunum. Texti þess er svo áreiðan
legur, að uppskrift Árna Magnússonar
var notuð til grundvallar, þegar þær
voru gefnar út.
Ánaégjulegast finnst mér að íslend
ingar skuli ekki hafa látið þetta ein
staka tækifæri ganga sér úr greipum.
Verðið skiptir að mínu áliti engu máli
því bókin er ómetanleg til fjár.
Mjög mikill fengur
DR. HALLDÓR
HALLDÓRSSON
sagði í viðtali við
Alþýðublaðið: -
Ég hef ekkert
nema gott um það
að: segja, að Skarðs
bójc skuli hafa ver
ið keypt til íslands
Þetta er mjög mik
ill fengur fyrir okk
ur og mér finnst
ákaflega rausnrf'
legt af bönkunum
að hafa haft for
göngu um kaupin. Við i stjórn Handrita
stofnunarinnar höfðum að vísu mikinn
áhuga á að kaupa bókina, en til þess
skorti okkur fé. En sem sagt: Það er
vissulega ánægjulegt að bókin skuli
vera komin til síns heima.
— Það er mikill fengur fyrir íslenzk
vísindi að fá gömul handrit til lands
ins og vitanlega er það fagnaðarefni að
íslenzkir fræðimenn fái tækifæri til að
rannsaka jafnmikinn kjörgrip. Ótrúlegt
er annað en vinir okkar í Danmörku
í handritamálinu muni samfagna okk
ur með að handritið kemur til íslands.
Sanngjarnt verð )
— Tvímælalaust
var verð Skarðsbók
ar mjög sanngjarnt
sagði brezki forn-
bókasalinn Tor
grim Hannas, er
Alþýðublaðið
ræddi við hann sím
leiðis í gær. Ann
ars verður að gæta
þess, hélt hann á-
fram að dýrgripir
á borð við Skarðs
bók verða varla til
fjár metnir. Hún
er eina íslenzka liandritið, sem var
í einkaeign. Öll önnur íslenzk hand-
rit eru í eigum safna, hér og þar og
má þvi fullyrða að atburður á borð
við þann, er bókin var boðin upp,
eigi ekki eftir að ske aftur, því víst
er, að ekkert safn mun farga sínum
handritum.
Alþýðublaðið spurði Hannas hvort
hann hefði þekkt Bandaríkjamann-
inn, sem lengst bauff á móti honxun
í bókina.?
— Já, svaraði Hannas, hann heit
ir Krauss og er sérfræðingur í fom
Framhald ð 14. sfffu.