Alþýðublaðið - 08.12.1965, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 08.12.1965, Blaðsíða 7
ÍSLENZKAR LAUSAVÍSUR hafa verið þjóðinni blessunarleg daigrastytting langan aldur, og svo mun enn, ef bærilega er kvcðið sem stundum hendir. Eigi að síður þola fáar þeirra að prentast á bækur, og veldur það ýmsum furðu. Slíkt er þó næsta skiljanlegt. Oftast missa þær marks, ef tilefni er ekki jafnframt komið á framfæri, en það telst naumast minni vandi en yrkja vísurnar. Þess vegna er ólíkt hæpnara að safna stökum til útgáfu en kvæðum eða sög- um, er mynda sjálfstæða heild. Reynist jafnan erfitt að gera smátt stórt, þó að hitt sé fljót- unnið — að gera stórt smátt. Lausavísan verður eins og ljós kveikt á eldspýtu úti í íslenzku veðri, nema skáldið lyfti henni í æðra veldi en bregða snöggri birtu á stund og stað. Þá lifir hún lengi og berst víða. Annað er íhugunarefni í þessu sambandi. íslenzkir hagyrðingar raða löngum brotum, þegar þeir kasta fram lausavísum. Má gott heita, ef tvær ljóðlínur falla sam- an, venjulega eru þær sín úr hverri áttinni. Maður les iðulega f jölmargar stökur án þess að rek- ast á eina, sem tengi upphaf og endi. Sést á þessu, hver íþrótt vísnagerðin er. Meistarar hennar geta fáir talizt, þó að sitthvað annað komi til, rímleikni, orð- gnótt og sæmileg hugkvæmni. Þess vegha sætir undrum að kýnnast stökum vestur-íslenzka skáldsins Kristjáns N. Jónsson- ar, sem nefndist Káinn. Ber þar tvennt til. Káinn er „géysir gamanyrða,” éihs og Guttormur J. Guttormsson komst að orði, allra hagyrðinga skeinmtileg- astur, og leikur sér auk þess að því að skipa orðunum til sam- býlis. Ég held meira að segja, að punktar séu of margir í „Vísnabók Káins,” nýju útgáf- unni af kviðlingum hans, en lnin er tilefni greinarkornsins. Það Káinn (Kristján N. Júlíus) verður þó sjaldan sagt um ís- lenzkan skáldskap í bundnu méli. Stökur Káins hafa tvisvar áð- ur verið prentaðar á bók, „Kvið- lingar” 1920 og „Kviðlingar og kvæði” 1945. Annaðist Richard Beck síðari útgáfuna og safnaði til hennar öllum vísum, sem Ká- in urðu eignaðar. Hins vegar tókst svo illa til, að prófarka- lestur af bókinni fór í handa- skolum. Nýja útgáfan bætir úr þeim galla, þar kennast varla þvílík glöp nema tvær prentvill- j ur, þnnur meinlaus, hin hvim-! leið, þar eð hún er jafnframt kynvilla. Raunar hafa verið felld- ar niður nokkrar vísur úr fyrri útgáfunni, en það kemur engan veginn að sök. Hér finnst allt, sem Káinn orti bezt. Tiltínslan er fremur of en van. Þó undrast maður, hvað Káinn lét eftir .sig margar snjallar stökur: Scrkenni Káins er kímnin. Hann orti þannig um Saura- Gísla Þenna úrskurð þjóð má heyra, þótt hann sé sláandi; þú sérð blindur margfalt meira en margur sjáandi. Þetta er hnyttin lýsing. á mannfagnaði: Margur þaðan fullur fór, freyddi á skálum malt og bjór; brenriivín þar brast ei neinn, því báðir seldu, Dóri og Sveinn. Kvenfólk var með kaffisull, karlmenn fluttu ræðubull, þar var söngur, þar var dans; þar var ég og séra Hans. Snilldarlega er gletzt við lækni í þessari stöku: Um Sig hljótt þótt hafi stundum, hugar rótt með þel, léttasótt í ljúfum sprundum læknar fljótt og vel. Eða kímnin í eftirfarandi tveimur vísum: Þetta er frama og frægðar öld! Eund á nú að halda í kvöld. Hér kemur þjóð með káta lund að kjósa nefnd og halda fund. Utan fundar enginn má annars skoðun fallast á. Ef að þarf að hengja hund, halda verður um það fund. Tilefni þessarar vísu er naum- ast vafa bundið: Hægt er að láta líða betur Lauga pósti og mér; en eitt er víst, að okkur gétur ekki liðið ver. Káinn gat þó einnig túlkað al- vöru. Honum mæltist svo að lok- inni sýningu á „Fjalla-Eyvindi” vestra: Órór sveimar andi minn upp til reginfjalla; takið þið mig í útlegð inn, Eyvindur og Halla. Þetta orti hann til barns: Hreina ást og hjartans yl hef ég ekki að bjóða, en allt, Sem skást er í mér til, áttu, barnið góða. er hjá okkur Fljófasta hreinsunirt „kílóhreinsim" Góð bifreiðastæði. Efnalaijgin UND,.. Skúlagöíu 51. Hreinsum 4 kíló af fatnaði á 14 míii' útum fyrir kr. 120,00 — Algjörlega lyktarlaus hreinsun. Einnig hreinsum við og görigum frá öllum fatnaði eins og áður. Og þessa kveðju lét Káinn fylgja Guðmundi Finnbogasyni heim til íslands: Biðja skal þig síðsta sinn: Svani og bláum fjöllum, hóli, bala, hálsi og kinn heilsaðu frá mér öllum. Eigi að síður var kímnin og á- deilan löngum sá bogastrengur, sem Káinn skaut af ljóðörvum sínum. Þær voru þó samferða- mönnum hans furðulega hættu- lausar eins og skapferli og lund- erni íslendinga er háttað. Káinn stundaði íþrótt sína með þeim hætti að skopast að sjálfum sér, en sú háttvísi er sjaldgæf um íslenzka hagyrðinga. Henni er að þakka margt það, sem hann orti snjallast og eftirminnilegast. Hér er vissulcga af nógu að taka. Káinn orti til dæmis þannig um hlutskipti sitt í lífinu: Ef einhver sér mig ekki vera að moka, þetta orða þannig hlýt: X>á er orðið hart um skít. Þessi tilmæli hans þarfnast ekki skýringar: Og ef þú hefur eitthvað vott, að endingu þess ég bið að hjálpa mér um heilan pott ! og hafa það bæði sterkt og gott —■ því líf mitt liggur við. Hvor sleppur betur við ámæli j þessa skemmtilega samanburðar, * presturinri cða hagyrðingurinn? | 1 i' Ivristinri prestur, hvar sem fer, í er K. N. meiri; hann er beztur sjálfum sér —. i og svo eru fleiri. Iv. N. prestur enginn er — og engum meiri; hann er verstur sjálfum sér — j og svo eru fleiri. Káinn skrifaði eftirfarandi á „Kviðlinga” til einhvers kunri- ingja: ' Ég gjörðist skáld og orti lystug i l.ióð og lausavísur sendi minni þjóð, þá báð hún mig að búa út lítið kver og bauðst svo til að kaupa það af mér. En bæði skömm og skaða af því ; ég hlaut, mig skorti vit að leysa slíka þraut; en skamma stund á skðmminni ég lafði, svo skaðinn var það eina, sem ég hafði. . I Bjartan maídag í vor launiííð- ist ég inn í Pembínasveit i Norður-Dakota ög spurðist til vegar að Eyfordkirkju án þess að líta við kartöflubændunurn þar um slóðir, en þeir muift* einir íslendinga á síðari árati/g- um hafi auðgazt af landbúnafei svo, að vert sé frásagnar. Þá hafði brugðið til góðviðris eftir langan og harðan vetur, sóí skein í heiði, gras spratt í hlý|u logni, landslag bar svip af FIó- anum, en minnti hvergi á átthaga Káins í Eyjafirði. Þarna var gyöf hans við kirkjuna, er hann lýsti einhvern tíma þannig: Dökkbrýn kirkjan drúpir hér; dauða sveipuð trafi. , Hún er eins og eyðisker úti í reginhafi. Og satt’ var orðið. Bylgjandi akur sléttunnar var yfir að Xita Framhald á 10. síðu. ALÞÝÐUBLAÐjÐ — 8. des. 1965 J ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.