Alþýðublaðið - 23.12.1965, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 23.12.1965, Blaðsíða 11
Pólverjar sigruðu Frakka í handbolta A myndinni eru nokkrir af leikmönnum Kentucky. Kentucky sigraði Urval KKl 75:59 ÍSLENDINGAR SÝNDU GÓÐAN LEIK Á KÖFLUM Háskólaliðið frá Kentucky sigr- aði úrvalslið körfuknattleikssam- bands íslands í íþróttahöllinni í gærkvöldi með 75 stigum gegn 59. Staðan í hléi var 35:24. Yfirburð- ir Bandaríkjamanna voru mun meiri en úrslitin gefa til kynna, en Campell — beztur á köflum sýndu landarnir þó góð tilþrif. Það voru ekki liðnar margar sek- úndur af leiknum þegar hinn há- vaxni Campell hafði skorað tví- vegis og hann var sá af Kentucky mönnunum, sem vakti mesta athygli í gærkvöldi. Lengi vel munaði aðeins 4 til 6 stigum, en í lok hálfleiksins, sem var leikinn rólega breikkaði bilið töluvert og staðan var þá 35:24 eins og fyrr segir. Heldur meira líf færðist í leik- inn eftir hlé og um tíma var mun- urinn orðinn 20 stig, en landarnir sóttu sig í lokin og þá munaði 16 stigum. LIÐIN: Það var mjög áberandi hvað Bandaríkjamenn voru mýkri í öllum hreyfingum, svo að ekki sé talað um öryggi í skotum, bæði af löngu færi og stuttu. Beztur í liði Kentucky var Campell, en Theard og Batiste voru einnig góð- ir. Reyndar sýndu allir bandarísku leikmennirnir góðan leik miðað við það sem við erum vaniir. Þorsteinn Hallgrímsson var bezt ur í liði íslands og þó hefur hann oft verið betri. Kolbeinn, Birgir og Agnar Friðriksson sýndu einn- ig góð tilþrif. í heild verður að | segja, að íslenzka liðið hafi slopp- ið vel frá leiknum, þar sem hér er um mjög gott lið að ræða. Ým- islegt þarf þó að lagfæra fyrir Ieik inn við Pólverja eftir óramótin, en þeir eru mjög sterkir. Áhorf- endur voru um 800, sem er met á körfuknattleik. Dómarinn Guðmundur Þor- steinsson og Guðjón Magnússon stóðu sig ágætlega. Eins og kunnugt er leika Pólverj ar í riðli með íslandi í undan- keppni heimsmeistarakeppninnar í handknattleik karla. Af þeim orsökum fvlgjumst við vel með Pólska landsliðinu og leikjum þess. Um síðustu helgi sigruðu Pól- verjar Frakka í handknattleik í Varsjá með 26 mörkum gegn 23. Pólska liðið sýndi mun betri leik heldur en á móti Dönum á dög- unum, segir fréttaritari BT í Var- sjá. Samt var ýmislegt í leik liðs- ins sem handknattleikssérfræðing- ar Pólverja eru ekki ánægðir með. Pólverjar eru sérstaklega ánægð ir með sókn liðsins, þegar miðað er við leikinn við Dani. Það var mikið skotið á mark og vel. Sér- hver veikleiki í vörn andstæðing- anna var notfærður fljótt. Alls var 54 sinnum skotið á mark og útkoman, 26 mörk, er allgóð. Hinar neikvæðu hliðar pólska liðsins voru: Eftir 15 mín. leik var staðan 9:4 fyrir Pólland og Pólverjar höfðu yfirburði á öllum sviðum leiksins. En vörn liðsins var í molum annað veifið og Frans mennirnir notfærðu sér það og tókst oft að jafna metin. Heildar Frjálsíþróttadeild ÍR efnir til hins árlega jólamóts 29. desember kl. 6. Keppt verður í hástökki með atrennu, langstökki, þrístökki og langstökki án atrennu. Keppnin fer fram í ÍR-húsinu. frammistaðan er þess vegna ekkl nógu góð. Það er út af fyrir sig gott, að sókn liðsins hefur batnað en það er fullmikið á kostnað varnarinnar. Slíkt er að sjálfsögðu ekki nógu gott, finnst Pólverjura. iwm Danir og Norðmenn léku tvo landsleiki í handknattleiek karla um síðustu helgi. Við höfum skýrt frá úrslitum siðari leiksins, Danir sigruðu með 19:9. F-yrri leikurinn var jafnari, en honum lauk einnig með sigri Dana, 18:17. Sovétríkin sigruðu Alsír í knatt- spyrnu nýlega, 1 mark gegn engu. Leikur fór fram í Alsír. Liverpool hefur nú tekið foryst- v.na í I. deild í Englandi; er með 32 stig eftir 14 leiki. Burnley er næst með 30 stig eftir 13 leiki, en Manchester Utd. er í þriðja sætti með 28 stig eftir 11 leiki. Huddersfield er efst í II. deild með 32 stig eftir 13 leiki, Manc- hester City er næst með 29 stig eftir 11 leiki og Coventry í þriðja sæti með 27 stig eftir 10 leiki. Fram varð' Reykjavíkurmeistari í handknattleik karla 1965. Á myndinni sjást meistararnir og hiisn glæsilegi verðlauna gri pur. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. des. 1965 1%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.