Vísir - 03.11.1958, Page 3
V t S I K
'Mánudaginn 3. nóvember 1958
3
£fic hefomis&gMr pess ebssíbí
reS'ÍE BS tj tí& MS fo»€fU fc
EBæSÍBS sácWvÍrlkjEEBB á
vesÉB5rl«BBBBEi 8 ítrBBin eflii’ að Lfra-°
Sogsveri er lokið.
og Svíþjóð, en kerfisbundnar
og samanhangandi vatnamæl-
ingar hafa þó farið fram hér
á landi nokkuð á annan ára-
tug. Aðkallandi er að auka þær
enn f-rá því, sem verið hefur,
einkum að því er tekur til mæl-
inga á stóránum inni á öræfum
landsins. Þar er ekki hægt að
komast að til mælinga á vetr-
um nema með miklum erfið-
leikum og tilkostnaði, og verð-
ur því að setja upp sjálfvirka
vatnshæðarmæla, sem ekki
þarf að vitja um nema á nokk-
urra mánaða fresti. 8—10 slík-
ir mæla verða settir upp í ár,
en að undirbúningi þess hefur
verið unnið síðustu tvö árin,
og hefur þurft að fara nokkrar
vetrarferðir inn á öræfin í því
skyni. Síritandi mælar verða nú
settir í Köldukvísl og Tungnaá;
í Þjórsá við Norðlingaöldu og
undir Búrfelli; í Hvítá við Hvít-
árvatn og neðan við Jökulfallið;
í Jökulsá á Fjöllum við sælu-
húsið og loks í Fossá í Þjórs-
árdal.
Kortagerð af
virkjunarsvæðum.
Annað atriði í virkjunarrann-
sóknum er að fá nægilega ná-
kvæma og ábyggilega upp-
drætti af virkjunarstöðum og
vatnasvæðum ánna. Mjög mik-
ið vantar á, að herforingja-
ráðskortið nægi í þessum efn-
um og einn aðalþáttur virkj-
unarrannsóknanna hefur því til
þessa verið í því fólginn, að
framkvæma mælingar og gera
uppdrætti. Eins og kunnugt er,
þá hefur í því skyni verið tekin
í notkun tiltölulega nýlega að-
ferð við kortagerð, nefnilega
kortagerð í sérstökum vélum
eftir ljósmyndum af svæðinu,
teknum úr lofti. Á þann hátt
hafa þegar verið gerðir upp-
drættir af stórum svæðum með-
fram Þjórsá og Hvítá, Jökulsá
á Fjöllum, Laxá og Lagarfljóti.
Þessu landmælingastarfi er þó
hvergi nærri lokið, heldur verð-
ur að reikna með umfangsmikl-
um mælingum í nokkur ár
ennþá.
Kortagerð eftir ljósmyndum
úr lofti af umhverff Urriðafoss
og af Laxárdal, S.-Þingeyjar-
sýslu, var framkvæmd af er-
| lendu kortagerðarfirma. Upp-
drættir af svæðunum við Lag-
| arfljót, Hvítá undir Bláfelli,
Þórisvatni og nágrenni og
nokkru svæði við Jökulsá á
Fjöllum, hafa verið gerðir hér
heima. Sem stendur er í teikn-
un í kortagerðarvélinni svæðið
1 allt milli Köldukvislar og Þjórs-
ár, þar á meðal h.in svonefndu
Þjórsárver. Mælingarflokkur
vann í sumar að undirbúningi
ljósmyndatöku og kortagerðar
á svæðunum við Blöndu og
Vatnsdalsá, einkum við Sand-
árhöfða og Friðmundarvötn, við
Jökulsá á Fjöllum bæði ofan
Dettifoss, milli Mývatns og Jök-
ulsár og upp við Möðrudal. Enn-
fremur hér sunnanlands á svæð-
inu milli Tungnaár og Langa-
sjós, þ. e. á Tungnaárfjöllum og
við Breiðbak.
Jarðvegsrannsóknir
veigamiklar.
Þá eru jarðvegsrannsóknir og
leit að steypuefni og öðrum
byggingarefnum einn þáttur
þessarra rannsókna og í sumar
voru gerðir út leiðangrar í
þessu skyni, bæði upp með Jök-
ulsá á Fjöllum og með Þjórsá
og Hvítá hér sunnanlands. Eru
þar að verki bæði verkfræðing-
ar þeir, sem virkjunaráætlan-
irnar gera, svo og jarðfræðing-
ar og jarðeðlisfræðingar. Er
hér um að ræða bæði almennar
jarðfræðilegar athuganir og
ýmsar sérathuganir, svo sem
athugun á því, hvers konar efni
eru íáanleg til stíflugerða, sum-
part í jarðstíflur, sem geta ver-
ið af mismunandi gerðum, og
Allt vatnsafl íslands hefur
verið áætlað yfir 38 milljarða
kílówattstunda á ári eða rúm-
lega 4 milljónir kílówatta. Um
verulegan hluta vatnsaflsins er
þó það að segja, að aðstæður
til virkjunar hans eru svo erfið-
ar, að tæplega mun verða talið
svara kostnaði að nýta hann.
Þegar til þess kemur að nýta
vatnsafl landsins í stórum stíl,
verður ekki um að ræða nema
stórar virkjanir. Því stærri sem
hver einstök vatnsaflsvikjun er,
því ódýrara er að tiltölu aflið
úr henni. Ef teknir eru líkleg-
ustu virkjunarstaðirnir hér á
landi, þeir sem eru 500 milljón-
ir kílówattstunda á ári, eða um
70000 kílówött og þar yfir, er
samanlögð orka þeirra talin
nokkru innan við 20 milljarða
kílówattstunda á ári, en aflið
kringum 2 milljónir kílówatta.
Smærri virkjanir skipta ekki
miklu máli í þessu sambandi,
og má því segja, að sem stend-
ur sé búizt við, að um það bil
helmingurinn af öllu vatnsafli
landsins verði í framtíðinni tal-
inn nýtanlegur.
í Þjórsá mest orka.
Hið nýtilega vatnsafl lands-
ins er aðallega í stóránum
þremur: Þjórsá, Jökulsá á Fjöll-
um og Hvítá í Árnessýslu, og
er næstum helmingur þess í
Þjórsá. Með Þjórsá teljast þá
þverár hennar Kaldakvísl og
Tungnaá.
Á vegum raforkumálastjórn-
arinnar fara fram umfangs-
miklar rannsóknir á virkjunar-
skilyrðum í þessum ám og
nokkrum öðrum, svo sem
Blöndu og Vatnsdalsá, Laxá úr
Mývatni og Fossá í Þjórsárdal.
Nánari rannsóknir á ám eins og
Jökulsá á Dal og Skaftá, Norð-
lingafljóíi o. fl., bíða hins veg-
ar síðari tíma. Það er nokkuð
langt síðan þessar rannsóknir
hófust, en þær verða umfangs-
meiri með hverju ári og er nú
varið til þeirra á þriðju milljón
króna á ári.
Margra áraíuga
vatnsmæiingar..
Undirstöðuatriði virkjunar-
rannsóknanna eru að sjálfsögðu
mælingar á rennsli ánna. Það
er kunnugt, að vatnsrennsli er
mjög misjafnt frá einni árstíð
til annarrar og frá ári til árs
og þarf því margra ára vatns-
mælingar, eða jafnvel öllu held-
ur áratuga mælingar, áður en
rennslishættir faí 1 vatnsins eru
svo þekktir, sem helzt' verður
á kosið, áður en en lagt er út
í virkjun. Hér á íslandi eru
vatnamælingar því miður
miklu yngri heldur en í öðrum
löndum, svo sem t. d. í Noregi i Flugmynd af austurhluta Langasjós. Austan við Langasjó sér í skriðjökulsrönd úr Vatnajökli
Sigurjón Rist vatnamælingamaður að dýptarmælingum vatna.
sumpart í steinsteypustíflur. Á
Þjórsársvæðinu við efri hluta
Þjórsár hefur enn ekki fundizt
neitt steypuefni, annað en blá-
grýtisbergið, þar sem það kem-
ur upp á yfirborðið. Þá er og
enn óvíst hvort finnanleg eru
efni í jarðstíflur, er gera þær
nægilega þéttar. Á efri hluta
Þjórsársvæðisins er mikið um
móberg, vikur og hraun, og er
þetta allt misjafnlega eða illa
vatnshelt, og er það eitt af
vandamálunum í sambandi við
virkjunarfyrirætlanirnar að
tryggja það, að stífluundirstöð-
ur og vatnsuppistöður verði ör-
uggt gegn leka.
Stórvirkjanir
í Þjórsá og Hvítá.
Helztu virkjunarstaðir, sem
nú eru haíðir fyrir augum í
stóránum, eru tveir í Jökulsá
á Fjöllum, nefnilega annar við
Dettifoss, en hinn neðar, kennd-
ur við Réttaríoss, en í Þjórsá’
fyrst og fremst virkjun úr Þór-
isvatni, og er þá haft í huga
að veita öllum ánum, Köldu-
kvísl, Þjórsá og Tungnaá, í
Þórisvatn, og yrði það þá vænt-
anlega stærsta virkjun hér á-
landi, og síðan nokkru neðar
önnur virkjuri, sem ýmist hefur
verið kennd við Sultartanga eða
Búrfell og yrði lítið eitt minni'
en Þórisvatnsvirkjun. Eamtímis
eru þó í athugun sérvi 'kjanir
í Tungnaá, svo sem við Hraun-
éyjafoss.,Neðst í-Þjórsá er Urr-
iðafossvirkjun, en á milli henn-
ar og Sultartanga 2 eða 3 smá-
virkjanir, sem þó kur.na að
verða sameinaðar í eina virkj-
un, er til framkvæmda kemur
síðar meir. í Hvítá er talað um
að virkja í einu lagi fallið úr
Hvítárvatni niður fyrir Bláfell
og næst þar fyrir neðan kæmi
Gullfossvirkjun, sem yrði
stærsta virkjunin í Hvítá, en
auk þeirra koma til greina
nokkrar smærri virkjanir neð-
ar, svo sem t. d. Hestvatnsvirkj-
un og Selfossvirkjun.
Undirúningur vatnsaflsvirkj-
ana tekur einatt langan tíma.
Jafnvel eftir að búið er að á-
kveða hvar skuli virkja, þarf
margra ára athuganir og undir-
búning á virkjunarstaðnum, áð-
lir en framkvæmd verksins get-
ur hafizt. Sjálf framkvæmd
virkjunarinnar tekur síðan, sem
kunnugt er, nokkur ár. Sam-
Frh. á 9. s. .
Jakob Gíslason raforkumáiastjórí: