Vísir - 26.01.1959, Qupperneq 3
Mánudaginn 26. janúar 1959
VlSIl
3
FRAMFARIR OG TÆIÍNI
Við Bay of Plcnty á Nýja-
Sjálandi ev mikið jarðhita-
svæði. Hafa Ný - S j álendingar
hafið har miklar framkvæmdir
og bora har fyrir jarðgufu. —
Nýlega voru sex borholur
tengdar við rafal og framleiðir
hann 6400 kw. rafmagns.
Jarðfræðingar hafa reynt að
skýra tilveru jarðhitasvæða
jog er ein þeirra sú, að þarna
hafi á sínum tíma orðið landsig.
Um leið og landið seig hafi
myndast miklar sprungur. —
Sprungurnar hafi síðan fyllst
upp, leðja og gosefni .sezt í
þær án þess þó að þétta sprung-
urnar til fulls. Þessar sprung-
ur ná allt niður í 10.000 metra
dýpi að talið er.
Vegna hins miklar þrýstings
að neðan þrýstist gufan upp í
sprungur þessar og eru víða
ekki nema 300 m. niður að
gufunni. Gufan myndast ýmist
af aðrennsli vatns þegar það
sígiir niður að hinurn heitu
jarðlögum, en einnig mun
þarna vera jarðvatn, sem lok-
ast hefur inni þegar jarðsigið
átti sér stað.
Eins og kúnnugt er hafa
ítalir hagnýtt sér jarðgufuna
um langt ára bil. Við Lardella
hófust virkjanir árið 1913, en
þar er gufan menguð ýmsum
efnum, sem gera virkjun eða
hagnýtingu gufunnar örðuga
eða kostnaðarsama. Þessu er
ekki eins til að dreifa á Nýja-
Sjálandi, þar sem gufan er til-
tölulega hrein. Hvenær áskotn-
ast okkur fé til gufuvirkjana
héi' á landi?
Rafknúnsr bífar
koma tl! sögu.
f Bandaríkjunum verSur haf-
in á næsta vori framleiðsla raf-
orkuknúinna bifreiða.
Undirbúningi undir fram-
leiðsluna er lokið. Framleiddar
verða á fyrsta stigi 10.000 smá-
bifreiðar af þessari gerð. Raf-
hlaða leggur til orkuna og má
hlaða hana með því að setja
hdna í samband við rafleiðslur
á heimilum og víðar.
Hann frystir seltuna
úr sjónum.
ísraebkur visindamaður finnur nýja aðferð
tii að vinna vatn úr sjó.
Mönnum mun bera saman um, að þessari vél sí heldur óhentug til daglegrar notkunar, cnda
er hún smíðuð í auglýsingaskyni og engu öðru. Það er þýzk ritvélavcrksmiðja, sem hefur
látið smíða hana, og er tækið 1,2 m. breidd, 1,4 m. á lengd og 40 sm. á hæð. Það'tók 10,000
vinnustundir að smíða hana og verkið kostaði alls um 35,000 mörk. —
Rannsóknir á geimnum.
Eru hinar kunnu öreindir - prótónur og nevtrónur
- ekki aigerar frumeindir?
í ísrael er verið að vinna að
miklum ræktunarframkvæmd-
um í nágrenni Dauðaliafsins.
Hér er þó við ýmsa erfiðleika
að etja og fyrst og fremst
vatnsleysið. Vatnið í Dauða-
hafinu er mjög salt eins og
kunnugt er og annað er ekki
fáanlegt þar um slóðir og land-
ið í raun og veru eyðimörk.
Árið 1947' fluttist Gyðingur
einn, Alexander Zarchin að
nafni, frá Rússlandi til Israel.
Hann hafði fengist þar við til-
raunir við ferskvatnsvinnslu úr
sjó og kynnst m. a. aðferð, sem
. Rússar notuðu allt frá árinu
1931 til að vinna ferskt vatn
úr söltu vatni. Það var Rauði
herinn, sem fékkst við þær til-
raunir í eyðimörkum Mið-
Asíu.
Aðferð Zarchins hefur það
FSýpr tvöfslt hraóar
en híjóðið.
Tilkynnt hefur verið, að
hrezk fhigvél -— P-1 frá English
Electric •— hafi flogið tvöfalt
hraðar en hljóðið.
Fór flugvélin tvívegis eftir
100 mílna markaðri braut og
náði að jafnaði 1280 m. hraða
en það er um 2050 km. Þess er
getið, að þetta hafi verið í
miklu frosti, og mundi flugvél-
in geta náð um 2250 km. hraða
í heitu lofti.
fram yfir aðrar aðferðdr, að
,hún krefst minni orku. Það er
kunnugt, að hægt er að að-
skilja salt úr sjóvatni með því
að frysta sjóvatnið, því eins og
kunnugt er, er lítið salt eða
ekkert í ís. Jíinsvegar krist-
allast saltið utan á ísnum og
er erfitt að aðskilja saltkrist-
allana frá ísnum. Að frysta
vatn og bræða ísinn aftur
krefst þó mikilla orku.
Zarchin hefir ekki látið mik-
ið uppi um aðferð sína, en svo
mikið er vitað, að hann frystir
sjó, bræðir ísinn og notar hring
rás kuldans þannig að hið lága
hitastig, sem vatnið er fryst
við er einnig notað til að bræða
ísinn.
Þá hefur hann einnig fundið
ráð til að aðskilja saltkristall-
ana frá ísnum, svo að ekkert
I
salt verður eftir í vatninu.
Samkvæmt upplýsingum
Zarchins þarf hann aðeins 3
kílóvött til þess að vinna ferskt
vatn úr rúmmetra sjávar, en
við eldri aðferðir þurfti 25
kw. til þess að vinna sama
vatnsmagn.
ísralska stjórnin hefur nú
samþykkt fjárveitingu til
Zarchins svo að hann geti haf-
ist handa um vatnsvinnsluna í
stórum stíl.
Þegar þessar framkvæmdir
eru komnir í gagnið munu þær
þjóna tvennskonar tilgangi,sem
sé, að vinna vatn til ræktunar-
framkvæmda og efnivörur úr
saltinu, svo sem þróm o. fl.
Það hefur nú verið svo
j mikið skrifað uin geimför og
j eldflaugar, að rannsóknir, sem
gerðar eru með loftbelgjum,
og eru sízt ómerkilegri, hafa
horfið í skugga hinna stóru
fyrirsagna blaðanna um eld-
flaugaskot.
Rannsóknir með loftbelgjum
eru auðvitað miklu ódýrara
fyrirtæki en eldflaugaútgerð,
en árangur þeirra er samt
furðumikill.
Amerískir vísindamenn bíða
nú eftir góðu tækifæri til að,
senda upp lóftbelg er taka skal
mvndir af Marz, sem er nálægt
jörðu um þessar mundir. Belg-
urinn getur komist í 25 km.
hæð. í honum verður 16 þuml.
kíkir og viðbyggð ljósmynda-
vél.
Þegar ljósmyndir af plánet-
unum eru teknar af jörðu niðri
verða myndirnar ekki vel skýr-
ar vegna truflana í gufuhvolf-
jinu. Hinsvegar munu nást
miklu betri og skýrari myndir
í 25 km. hæð og gera menn sér
vonir um góðan árangur af
•myndum, sem teknar verða af
Marz úr belg þessum.
Næsta sumar verður gerð til-
raun með geysistóran loftbelg,
sem verður 400 fet í þvermál
og á að geta komist í 37 km.
hæð. Neðan í honum á að
hanga álumíníum-kúla og
mikil ljósmyndavél. Gert er
ráð fyrir að belgurinn geti
haldist á lofti í 48 klst. Þegar
hann fer að hrapa munu flug-
vélar fylgja honum eftir og
bjarga kúlunni.
í kúlunni verða markskonar
tæki, svo sem til að rannsaka
geimgeisla og geimryk.
Geimgeislafrumeindir hafa
löngun vakið athygli vísinda-
manna. Þessir geislar koma
einhversstaðar að utan úr geim-
inum og búa yfir óhemjuafli,
mörgum sinnum rneira afli en
nokkur sú frumeind, sem á
jörðunni finnst. — í kúlunni
verða einskonar plötur, sem
geimgeislarnir munu fara í
gegnumogaf áverkunum munu
vísindanienn geta lesið þær
rúnir er ættu að gefa ofurlitla
hugmynd um dularheim þess-
ara agna.
Úr atómfræðunum er það
vitað, að þegar tvær frumeind-
ir, sem fara með litlum hraða,
rekast á, flytst öll orka ann-
arar frumeindarinnar yfir í
hina. Þetta á sér ekki stað í
sama mæli þegar eindir rekast
á með miklum hraða. Þá flytst
aðeins um 10% orkunnar á
milli: Ein skýringin, sem menn j
hafa reynt að gefa á þessu, er
jsú, að eindir, sem ferðast með
miklum hraða fletjist út því
meir, sem hraðinn verður meiri. |
Þegar hraðinn fer að nálgast
hraða Ijóssins eru agnirnarj
orðnar allt að því disklaga. Ef,
tvær disklaga agnir rekast á
með ofsahraða þjóta þær hvor
í gegnum aðra svo snöggt, að
orkan nær ekki að fiytjast á
milli nema að litlu leyti. Til-1
raunirnar með belginn ættu að
geta staðfest eða hrakið þessa
skýringu.
Þá er vonast til að hið s'W)-
kallaða úthverfa efni (anti
matter) finnist í náttúrunni, en
tekizt hefir að búa það -til
á rannsóknarstofum. Hingað til
hefur það ekki fundist í sjálfri
náttúrunni. Hið úthverfa efni
verður þegar í stað að engu ef
það hittir venjulegt, 'jarðneskt
efni. En úthverft efni, sem
kæmi utan úr geinmum, gæti
farið í gsgnum ytri lög gufu-
hvolfsins án þess að eyðast,
þar sem þar er lítil mótstaða
og ekki mjög mikil hætta á
árekstrum. Ef úthverft efni
lendir á plötunni, sem áður er
nefnd, ætti að verða mikill
árekstur.
Ef úthverft efni fyrirfinnst í
geimnum, hlýtur þar einnig að
vera úthverft aðdráttarafl. Út-
hverfar prótónur ættu að stíga
upp í loftið í staðinn fyrir að
falia til jarðar. Tilraunirnar
með belginn ættu að færa
okkur vitneskju um þetta. —
Jafnvel mun það koma í Ijós,
að frumeindirnar (nevtrónur
og prótónur, m. m.) séu ekki
hinar algjöru frumeindir. Ef til
vill er hvor þessara svokölluðu
frumeinda samansett á marg-
brotnari hátt en okkur hefur
nokkru sinni dreymt um.
Nýr og befri silkiormur
— í Sovét,
Moskvuútvarpið segir, að
sovétvísindamenn hafi „fundið
upp“ nýja tegundi af silki-
ormi.
Og þetta er énginn smáorm-
ur, því að hann vex miklu fyrr
en fyrri tegundir, sem þekkzt
hafa, en auk þess myndar hann
stærri og hvítari lirfur og gef-
ur mönnum meira silki. Ætl-
unin er að nota orma þessa til
silkiframleiðslu í Transkáka-
sus.
Starfsmenn Kodak-verk-
smiðjanna í Bandaríkjunum
eru nú um 37.080 talsins.
Raforkuframleiðsla Grikk-
lands er orðin um milljarð-
ur kílóvattstunda, 20%
meiri en fyrir einu ári.
Um þessar mundir leita 20
olíufélög — flest banda-
rísk — að olíu á 230 stöð-?
um í Tyrklandi.