Vísir - 09.03.1959, Side 1
'tí. írg. Mánudaginn 9. marz 1959 55, tbl.
Grivas rýfur þögnina:
Biður Kýpurbua að sætta
sig við Lundúnasamninginn.
Foot iilktgnnir nóðun E&MaÆ-
ntanna.
Grivas ofursti hefur birt
ávarp til allra grískumælandi
manna á Kýpur og var flug-
mlðum með ávarpinu dreift
um eyna í gær.
Kemst hann svo að orði, að
jmeð Lundúnasamningunum
hafi ekki náðst allt, sem barist
var fyrir, en betra sé að sætta
sig við þessa samninga en horfa
upp á algert hrun á eynni. —
Hann kvaðst mundu fylgjast
sneð gengi Kýpurbúa úr fjar-
3ægð, en Grivas og fylgismenn
bans, er með honum vilja fara,
munu halda til Grikklands eftir
aokkra daga.
EOKA-menn
náðaðir.
Tilkynning Grivasar kom í
kjölfar náðartilkynningar Sir
Hugh Fott landstjóra um .náð-
un þeirra fanga, sem enn væru
í haldi, eða 78 manna. Af þeim
fá 49 að halda kyrru fyrir, á
eynni, en náðun hinna, eða 23,
er bundin því skilyrði, að þeir
fari til Grikklands, en hér er
pm rnenn að ræða, sem sekir
voru fundnir um morð á brezk-
um hermönnum og borgurum.
Ummæli flestra brezkra
blaða í morgun um náðunina,
eru á þá leið, að ekki hafi verið
önnur leið fær fyrir brezku
stjórnina, vegna friðar og fram-
tíðar. Kýpur, en að sleppa þess-
um mönnum, — hún gæti ekki
haft Kýpurbúa áfram í haldi,
er samkomulagsumleitanir eru
að hefjast, en sjálfsagt hafi
verið að setja það skilyrði, sem
sett var. — Daily Express sem
ávallt hefur vítt stefnu stjórn-
arinnar um nokkurt undanhald
á Kýpur gagnrýnir náðunina
harðlega.
Árekstur.
í Famagusta.
Til áreksturs kom í gær í
Famagusta milli brezkra her-
manna á leyfi og borgarbúa.
Setuliðið kom fljótt á kyrrð á
nýjan leik. — Brezkum her-
mönnum hefur verið bannað
að fara í leyfi til Famagusta í
bili.
Grotewohl og Krúsév
láta Ijós ssn skína.
Föiuöu háðir *
Æ-Merltn 1 tgter.
Krúsév er nú í Austur-Berlín
og fluttu þeir ræður í gær hann^
og Grotewohl forsætisráðherra.
Hinn síðarnefndi sagði, að
það hefði aldrei verið ætlun
austur-þýzku stjórnarinnar, að
einangra Berlin samgöngu- og
viðskiptalega, þegar Sovétrík-
in væru búin að skila af sér
í hendur A.-Þ., en Krúsév kvað
tilgang sinn með tillögunum um
Berlín sem fríborg og um frið-
arsamninga vera fram komnar
til þess að binda endi á köldu
styrjöldina, — mark sitt væri
friður, friður og aftur friður.
Banaslys ■ Keflavík.
Bandaríkjamaður varð tiiidsr jarðýtu.
Snemma á föstudág varð
slys á Keflavíkurflugvelli, og
beið 'þá bana ungur foringi í
flugher Bandaríkjamanna.
Ekki er að fullu upplýst um
atvik slyssins, en aðdragandi
var sá, að nokkrir bandarískir
foringjar höfðu stigið á skíði
sín, og fengu þeir síðan vöru-
bifreið til að draga sig, því að
þarna er ekki um miklar brekk-
ur að ræða, þar sem hægt sé
að ná nokkrum hraða á skíð-
unum. Vörubifreiðin ók þar
urn veginn, sem jarðýta var að
verki við að.ryðja snjó, og var
henni ekið aftur á bak, þegar
vörubifreiðin var komin fram
hjá henni og um leið og skíða-
mermirnir runnu hjá. Vissu
menn þá ekki fyrri til en að
einn þeirra rann til og féll fyrir
aftan ýtuna, sem rann þegar á
hann ofan og beið hann þegar
bana.
Hvorki bifreiðarstjóri vöru-
bifreiðarinnar né ekill jarðýt-
unnar urðu varir við slysið, og
ætlaði hinn síðarnefndi ekki að
trúa því, sem fyrir hafði komið,
er honum var sagt frá því.
Málið mun ekki að fullu
rannsakað enn, svo að nokkuð
er óljóst um, með hverjum
hætti Bandaríkjamaðurinn varð
undir jarðýtunni.
Bandaríkjamaðurinn hét
Jason C. Clark, var liðsforingi
(first lieutenant) í flughernum
bandaríska, 25 ára gamall og
ættaður frá New Hampshire-
fylki.
Byltingartilraun gerö í írak.
Setuliðið í olíuhéruðunum reis upp
gegn stjórn Kassems.
Ilaríur óvissar, er síðasit fréttfi.«rí.
SMf'1 ii
Snjórinn er allt í kring, en hit- |
inn byr inni fyrir. (Sjá viðtal
á bls. 12).
líirkjicvika
á Akureyri.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
í gær hófst á Akureyri kirkju
vika sem standa mun óslitið til
n.k. sunnudags, en það eru
prestar og sóknarnefndin á Ak-
ureyri, sem að henní standa. Er
tilgangurinn með henni að efla
safnaðarlíf og glæða kirkju-
sóltn.
Slíkar kirkjuvikur mega
heita nýjung hér á landi þegar
undan er skilin kirkjuvika, sem
haldin var á Selfossi í fyrra og
eins konar kirkjuvika, sem
efnt var til í sókn Hallgríms-
kirkju í Reykjavík.
Kiirkjuvikunni verður þann-
ig háttað að erindi verða flutt
jafnt af leikmönnum sem kenni-
mönnum og þ. á m. af ná-
grannaprestum. Kórarnir á Ak-
ureyri annast söng og einsöngv-
arar syngja með þeim.
Dagurinn í gær, sem var
fyrsti dagur vikunnar var sér-
staklega helgaðUr æsku lands-
ins, svo sem gert var í öðrum
kirkjum landsins í gær.
Þjóðarafkvæðl
Setuliðið í Mosul-héruðun-
unum í írak hefir risið upp
?egn stjórn Kassems.
Hefir það útvarpað tilkynn-
ngu með áskorun til hers og
>jóðar um að steypa henni af
tóli, þar sem hún hafi .svikið
;rundvallaratriði byltingarinn-
ir. Það er'yfirmaður setuliðs-
ns, ofursti að tign, sem er for-
ngi uppreistarmanna.
Fregnir af byltingartilraun
Dessaii bárust fyrst í gærkvöldi
ír útvarpi uppreistarmanna,
sem höfðu náð útvarpsstöð á
sitt vald og ýmsum mikilvæg-
um stöðvum í norðurhluta
landinu. Fékkst brátt staðfest-
ing á því, sem um var að vera,
því að byrjað var að útvarpa
frá Bagdað hvatningum til hers
og þjóðar, að sameinast gegn
uppreistarmönnum, og heitið
var 10.000 sterlingspundum
fyrir ofurstann dauðan eða lif-
andi.
Uppreistarmenn birtu og
áskorun í útvarpi til stjórnar
frakska olíufélagisns um að
hætta að greiða stjórn Kassems
olíupeninga.
Klukkan hálfsex í morgun,
eftir íslenzkum tíma var til-
kynnt í útvarpinu í Bagdad, að
„mótblásturinn“ gegn ríkis-
stjórninni hefði verið bældur
niður, en uppreistarmenn voru
enn að útvarpa aðeins hálfri
klukkustundu áður. Horfur
voru því enn taldar óvissar í
rnorgun, þrátt fyrir þessa sein-
ustu tilkynningu stjórnar Kass
ems.
Síðari fregnir:
Aðalforsprakki uppreistar-
manna er Abdul Wahab Shaww
-af ofursti og var hann einn
þeirra, sem tók þátt í júlí-
uppreistinni.
Fregnir eru enn ósamhljóða
mjög. Stjórn Kassems segir í
útvarpi sínu, að flugvél hafi
flogið yfir stöðvar uppreistar-
manna og hótað loftárásum
flughersins, ef þeir gæfust ekki
upp, og tilkynnt var í sama út-
varpi, að foringjar í Mosul-
héraði hollir stjórninni hefðu
drepið Shaww-af, en tveimur
stundum síðar var hann enn
bráðlifandi eftir fregnum upp-
reistarmanna, sem sögðu að
Kassem hefði flugvél reiðu-
búna til að flýja land, og segj-
ast hafa öll norður-héruðin á
sínu valdi.
Stjórnin segir allt með kyrr-
um kjörum annarsstaðar f
landinu en norður frá.
Komi5 í veg fyrir elds-
vo5a í iiistræti.
Hátl bjargað í Reykjavíkur-
höfn.
Framtíð norðurhéraða Kongo
verður ákveðin í þjóðaratkvæði.
Stjórn Kongolýðveldisins (áð
ur Franska Kongo), sem er inn-
an vébanda Frakkaveldis, hef-
ur ákveðið, að norðurhéruð
landsins ákveði sjálf framtíð
sína í þjóðaratkvæði. Það var
í þessuni héruðum, sem óeirðir
urðu fyrir nokkru, og um 100
menn voru drepnir.
Filippusi prinsi var tekið
með kostum og kynjum við
komu til Hongkong í morg-
un.
Slökkviliðið í Keykjavík kom í
veg- fyrir stórbruna í gær að
Miðstræti 7, en þar hafði kvikn-
að í risherbergi í stóru, gömlu
timburhúsi, sem er tvær hæðir
með risi.
Lítill drengur, sem var á gangi
út á götu fyrir utan húsið um
hádegisléytið í gær, sá reyk
leggja út um glugga á risher-
berginu. Knúði hann dyra og
sagði að kviknað myndi vera í.
Slökkviliðinu var þegar í stað
gertaðvart og logaði glatt í her-
berginu þegar það kom á vett-
vang. Með miklu snarræði og
dugnaði tókst því að koma í veg
fyrir að eldurinn næði frekari
útbreiðslu, eða kæmist í önnur
herbergi. Urðu slökkviliðsmenn
að rífa niður þiljur til þess að
komast fyrir upptök eldsins og
gekk það vel og fljótt fyrir sig.
Skemmdir urðu ekki nema á
þessu eina herbergi og lítilshátt-
ar vatnsskemmdir á stofu á hæð-
inni næstu fyrir neðan.
Álitið er að ikviknunin hafi
orðið út frá rafmagnsofni, sem
gömul kona, er býr í berberginu,
hafi kveikt á nokkru áður, en
siðan vikið sér eitthvað frá.
Aðrar kvaðningar.
Á laugardaginn var slökkvilið-
Frh. á 11. s.
Heffrusu á
Fjórir fjallgöngumenn hafa
fundizt frosnir í hel í Ölpunum.
Þeirra hafði verið saknað og
leitað. Fundust þeir hátt í fjöll-
um á mörkum Austurríkis og'
Ítalíu.
Þeir voru af mismunandi
þjóðernum.