Vísir - 25.05.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 25.05.1959, Blaðsíða 1
q 12 sður k\ I V i ?* 12 ss5ur it. ir. Mánudaginn 25. maí 1959 114. tbl. Þrír menn fórust í gær í flugslysi á Snæfellsnesi. Sjúkraflugvél férst, er hún var að flytja sjúkling að norðan. Lúkin varu flutt tii Reykjavíkur í tnorgun. Það hörmulega slys varð í gærkvöldi að Iííil ílug- vél, af Cessna-gerð, sem notuð hefur verið til sjúkra- flutninga, fórst fyrir sunnan svokallaða Sátu, sem er suður af Skógarströnd á Snæfellsnesi, um það bil inni á miðjum fjallagarðinum. I flugvéíinni voru þrír menn, flugmaðurinn Hilmar Daníelsson, Rauðalæk 63, og öldruð hjón frá Heiði í Slétiuhlíð, Jón Gunnarsson og Björg Sveinsdóttir. Hafði flugvélin verið fengin norður til að sækja Björgu og flytja í sjúkrahús hér syðra, og í fyrstu var ekki vitað hér, að Jón maður hennar væri með. Hilmar Daníelsson flugmaður. Nánari atvik eru á þessa leið: Sjúkraflugvélar Björns Pálsson Þrjátíu ár frá stofnun Sjálfstæðisflokksins. Hann var stofnaður 25. maí 1929 með samruna íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins. I dag, 25. maí, eru liðin hrjátíu ár frá stofnun Sjálfstæðisflokksins. Þenna dag fyrir 30 árum gáfu þingmenn íhaldsílokksins og Frjálslynda flokksins út yfiríýsingu um, að fíokkar. þeirra sameinuðust undir einu merki og hét hinn nýi flokkur Sjálfstæðisflokkur. Leikur ekki á tveim tungum, að þótt margir og merkir atburðir hafi gerzt í sljórnmálasögu íslendinga siðustu áratugina, verður stofnun Sjálfstæðisflokksins ævinlega talin tií hinna merkustu og happadrýgstu. Við stofnunina var flokknum mörkuð stefna í aðalatriðum á þessa leið, eins og fram kemur í yfirlýsingu stofnendanna: „Aðalstefnumál flokksins eru þessi: 1. Að vinna að því og undir- búa það, að ísland taki að fullu og öllu sín mál í sínar hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og 25 ára samn- ingstímabil sambandslag- anna er á enda. 2. Að vinna £ innanlandsmál- um að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og at- vinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“ Undir yfirlýsinguna um stofn un flokksins rita eftirfarandi menn, allir þjóðkunnir skör- ungar: Björn Kristjánsson, Ejnar Jónsson, Halldór Steinsson, Há kon J. Kristófersson, Ingibjörg Bjarnason, Jakob Möller, Jó* hann Þ. Jósefsson, Jóhannes Jó- hannesson, Jón A. Jónsson, Jón Ólafsson, Jón Sigurðsson, Jón Þorláksson, Jónas Kristjánsson, Magnús Guðmundsson, Magnús Jónsson, Ólafur Thors, Pétur Ottesen og Sigurður Eggerz. Ólafur Thors, sem verið hef ur formaður flokksins í fullan aldarfjórðung, eða frá því að Jón Þorláksson lagði niður for- mennsku, hefur gefið út ávarp til Sjálfstæðismanna, sem birt er í Morgunblaðinu í gær, og segir þar meðal annars svo: „Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forustu um eða léð fylgi öllum helztu framfaramálum þjóðarinnar á þessu mesta framfaratímabili í sögu henn- ar. Gildir þetta jafnt um and- leg sem veraldleg efni og hefði þó afkoma þjóðarinnar, menning hennar og meðferð ýmissa mikilvægra mála orðið önnur og farsælli ef Sjálfstæð- isflokkurinn hefði haft fullt bolmagn til að framkvæma hug sjónir sínar. Nefni ég hér til al- Fxh. á 2. síðu. ar lögðu báðar af stað héðan um sama leyti í gærdag. Það var kl. 19,56, að Björn Pálsson lagði af stað til að sækja sjúk- ling til Vopnafjarðar. Á sama tíma lagði Hilmar Daníelsson af stað í hinni vélinni áleiðis til Skagafjarðar. Hilmar hefur verið flugmaður hjá Birni und- anfarið og var áformað, að hann tæki við þessari vél til að- stoðar honum. Lagt af stað suður. Hilmar lenti að Mannskaða- hóli í Skagafirði heilu og höldnu, og tók þar lamaða konu, Björgu Sveinsdóttur, og eiginmann hennai’, Jón Gunn- arsson, en þau bjuggu að Heiði í Sléttuhlíð. Þaðan var síðan lagt af stað áleiðis til Reykja- víkur kl. 21,46. Voru þá farnir að myndast þokuslæðingar á leiðinni, en rofaði til öðru hverju. Þegar flugturninn í Reykja Áburðarflug- vélin stór- skemmist. Áburðarflugvélinni nýju hlekktist alvarlega á í gær við flugtak austur >' Gunn- arsholti. Vísir hefur ekki fengið nánari fregnir af óhappi þessu, en víst er að ekki hefur orðið slys á mönnum. Sennilegt mun tal- ið að vélin sé allt að því ónýt, eða a. m. k. mjög mik- ið skemmd. Verður nánar sagt frá þessu síðar. vík var farið að lengja eftir fréttum af vélinni, var strax hafin eftirgrennslan, en um kl. 23,30 hófst leitin fyrir al- vöru. Allar Iandssímastöðv- ar á leiðinni, sem náðist til, voru ræstar út, og haft sam- band við alla bæi. Björn Pálsson var á leið með sjúklinginn frá Vopnafirði og svipaðist um eftir því sem hægt var á leiðinni. Hann sneri síðan við og fór til Akureyrar, þar sem hann lenti með sjúkling sinn, en fór síðan í leitarflug. Leitað á stóru svæði. Má segja, að skipuleg leit hafi verið gerð á öllu svæðinu frá Reykjavík, vestur á firði og allt til Akureyrar, því mögu- leiki var talinn á, að Hilmar Frh. á 11. síðu. Óvenju sólríkur apríl. I»« var marz Iilýrri. Aprílmánuður var kaldari í ár en marz, en hinsvegar var meira sólskin í apríl en venju- lega, talsvert fyrir ofan meðal- lag. Kuldi í apríl var þó ekki óvenjulega mikill, heldur hitt, að marz var venju fremur hlýr, 1 gráðu hlýrri en apríl. Mestur hiti .í april var 10,5 gr. og var það 22. apríl, en minnstur 7. apríl ~ 7,5 gr. , ,. i Úrkoma var aðeins yfir ofan meðallag, 55 mm., en er í með- almánuði 49. Mest rigndi á ein- um sólarhringi nóttina milli 4. og 5., 12,1 mm. Úrkomudagar voru 12 í mánuðinum. Sólskin var 188 klukkustund- ir í apríl, og er það nokkuð meira en venjulega, þar: sem meðalsólskinstundafjöldi er 135 í apríl. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.