Vísir - 25.05.1959, Blaðsíða 12

Vísir - 25.05.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. LatlS hann færa yður fréttir eg annað tesuraretnl heim — án fyrirhaínar aí yðar hálfu. Rími 1-16-60. VISIR Mánudaginn 25. maí 1959 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá hlaSið ákeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fjögur umferðarslys í gær. Tveir ungir drengir meiddust altmikið og telpa hlaut stæman heilahristing. „Paradísar- missir“ Eisenhower segir Bandartkja- menn syrgja Duiies. I lior hans fer fram með fyllsta í gær urðu fjögur umferðar- slys í Reykjavík ög nágrenni, og í a. m. k. tveimur þeirra um mikil meiðsl að ræða. A fjórða tímanum í gær lenti sex ára drengur, Jónatan Ás- björn Líndal að nafni, fyrir leigubifreið á veginum í lægð- inni fyrir neðan Grafarholt. Drengurinn kastaðist í götuna og hlaut mikinn skurð á höfði auk þess sem hann meiddist á fæti. Hann var fluttur í slysa- varðstofuna. Um klukkustund seinna varð umferðarslys á Kaplaskjólsvegi. Þar hljóp ungur drengur, Gunn ar Jóhannsson til heimilis að Skálholti við Sauðagerði, út á götuna móts við Meistaravelli. í sömu andrá bar að leigubif- reið og skipti það engum togum að drengurinn varð fyrir bif- reiðinni og lentiundir henni. Þar lá hann þegar bílstjórinn kom út. Drengurinn var lær- brotinn og talsvert skaddaður á höfði. Hann var fyrst fluttur í slysavarðstofuna en síðan í sjúkrahús. Síðdegis í gær eða gærkveldi urðu tvö önnur umferðarslys í bænum. Rétt fyrir klukkan 8 í gærkveldi varð hjólríðandi drengur, níu ára gamall, fyrir bifreið á mótum Sundlaugaveg ar og Gullteigs. Hann var flutt- ur í slysavarðstofuna, en meiðsli hans ekki talin alvarleg. Hann meiddist eitthvað á fæti. í gærkveldi stakkst átta ára telpa af reiðhjóli á Hólmgarði móts við hús nr. 14, skrámaðist í andliti og fékk slæman heila- hristing. Hún var að athugun lokinni í slysavarðstofunni flutt í Landspítalann. Á föstudagskvöldið slasaðist Innbrot í fyrrinóti. í fyrrinótt var brotizt inn í söluturninn í Veltusundi, en innbrot hafa gerzt þar alltíð. Þar inni hafði mikið verið rótað og sýnilega ýtarleg leit gerð að verðmætum. Peninga fann þjófurinn enga, en hins vegar stal hann um 30 pakka- lengjum af vindlingum, miklu af nylonsokkum og allmörgum Vindlakveikjurum. Aiþjóðaknattspyrna: Mexikó sigraði England 2:1. Enska knattspyrnuliðið, sem er í Vesturálfu, hefur ekki far- ið þangað neina sigurför. í gær beið það ósigur fyrir mexikanska liðinu, er sigraði með 2:1. — Áður hafði liðið tapað fyrir Brazilíu og Perú. Næst verður keppt í Los Angeles. maður illa, sem var ásamt öðr- um mönnum að fella niður múr- pípu að Vatnsstíg 3 hér í bæ. Maður þessi, Valdimar Vigfús- son Laufásvegi 20, hlaut opið beinbrot á fæti, auk fieiri á- verka og var fluttur í Landspít- alann. Á laugardaginn féll 2ja ára telpa út um opinn glugga bif- reiðar, sem var á ferð eftir Ei- riksgötunni. Sem betur fór meiddist barnið lítið, enda bif- reiðin á hægri ferð. Hins vegar er þessi atburður ábending til ökumanna, sem flytja ung börn að hafa ekki glugga farartækj- anna opna. Mönnum finnst gaman, þegar hnífur þeirra kemst í feitt að einhverju Ieyti. Kött um þykir einnig garnan, þegar þeir hafa tækifæri til að veiða mýs eða rottur. Þess vegna þótti ketti einum — vafalaust — gaman um daginn, þegar hann komst inn í músadeild Oakridge- kjarnorkustöðvarinnar í Tennessee • Bandaríkjunum. Þar eru nefnilega geymdar að jafnaði um 150.000 mýs til alls konar tilrauna. Kött- urinn var handsamaður, þeg- ar hann hafði gætt sér á 8 músum. Þessi mynd af hvalveiðiflotanum var tekin nú um helgina, er skipin voru nýkomin úr slipp, og liggja hlið við hlið hér í höfninni. Hvalveiðiskipin eru tekin árlega í slipp til skoðunar, eftirlits, viðgerðar og málunar, fyrir hverja vertíð. Islandsmótið í bridge hófst í gær. Vormót ÍR fór fram í gær. íslandsmótið í bridge var sett kl. 2 í gær af formanni Bridgesambandsins, Ólafi Þor- steinssyni. Tólf sveitir eru þátt- takendur, þar af aðeins 2 utan af landi, sveit Mikaels Jóns- sonar frá Akureyri, og sveit Óla Kristinssonar frá Húsavík. Hin ar sveitirnar eru úr Reykjavík. Spilaðar verða 7 umferðir og keppt eftir Monradkerfi. Þ. a. 1. koma allar efstu sveitirnar sam- an, sem ekki hafa spilað áður. Fyrsta umferð fór sem hér segir: Sveit Sófusar Guðmundsson- ar vann sv. Eggrúnar Arnórs- dóttur með 71:55. Sv. Hjalta El- íassonar vann sv. Vigdísar Guð- jónsdóttur með 77:35. Sveit Stefáns Þ. Guðjohnsen vann sv. Nikaels Jónssonar, 43:25. Sv. Ásbjarnar Jónssonar vann sv. Svavars Jóhannssonar, 49:32. Sveit Sigurhjartar Pétursson- ar vann sv. Ragnars Þorsteins- sonar, 55:38. Sveit Halls Símon arsonar (núverandi íslands- meistarar) vann sveit Óla Kristinssonar, 49:41. Önnur umferð var tefld í gær kveldi, og fóru leikar á þessa leið: Sv. Hjalta vann sv. Sófus- ar, 61:46. Sv. Stefáns vann sv. Ásbjarnar, 50:37. Sv. Sigurhj. vann sv. Halls, 58:36. Sv. Mika- els vann sv. Svavars, 57:43. Sv. Óla vann sv. Ragnars, 69:37 og sv. Vigdísar og Eggrúnar gerðu jafntefli með 52:49. Mótið heldur áfram öll kvöld kl. 20 í Tjarnarkaffi, og verður 3. umferð í kvöld. Albaniuheimsókn Krúsévs hafin. Albaniuhcimsókn Krúsévs hófst í morgun. Hún stendur í 12 daga. — Ekkert hefur enn verið látið uppi um hvers vegna þessi heimsókn á sér stað nú. Kínverskir kommúnistar héldu upp á hvítasunnudag með því að skjóta 400 sprengikúlum á Matsu- eyjar. lieiðri n.k. John Foster Dulles fyrrver- andi utanríkisráðherra Banda- ríkjanna andaðist í svefni á Walter Reid-sjúkrahúsinu í Washington undir morgun í fyrrinótt og fékk því hægt andlát. Hann var 71 árs að aldri Eisenhower forseti hefur fyr- irskipað, að útför hans skuli gerð á ríkisins kostnað og minningu hans sýnd fyllsta hernaðarleg virðing. Lík hans á að liggja á viðhafnarbörum í sólarhring og standa hermenn þar vörð, en að lokinni minning arathöfn í Washington-dóm- kirkju verður lík hans jarðsett í Arlington-kirkjugarði, þar sem er hinnsti hvílustaður þeirra, sem látið hafa lífið í þjónustu við ættjörðina. Utanríkisráðherrafundi Fjór- veldanna í Genf verður frestað á morgun, til þess að utanríkisráðherrar Vesturveld- anna, Christian A. Herter, Sel- wyn Lloyd og Couve de Mur- ville, geti farið til Washington og verið viðstaddir útförina. — Eisenhower tilkynnti sjálfur Herter andlátsfregnina og þeg- ar á eftir var Bandaríkjafáninn með sorgarslæðum dreginn að hún í Genf. — Utanríkisráð- herrafundinum var frestað með fullu samþykki Gromyko, sem lét í Ijós samúð sína í tilefni af andlátinu. Utanríkisráðherra- fundurinn hefst að nýju mið- vikudag næstkomandi. Bandaríkin syrgja mikilmenni. Einsenhow Bandaríkjaforseti og frú hans fóru í gær í sam- úðarheimsókn í tilefni af and- látinu, en áður hafði hann lýst John Foster Dulles sem mikil- menni, er öll Bandaríkjaþjóðin syrgði. — Samúðarskeyti hafa borizt að í stríðum straumum úr löllum löndum heims og einnig þeir, sem harðast gagn- rýndu hann, keppast nú við að lofa hann fyrir ýmsa mikla kosti í fari hans. Höfuðleiðtogi í 6 ár. Hann var einn af helztu leið- miðvikisclag. togum vestrænu þjóðanna í 6 ár og sá, sem framar öðrum markaði stefnuna. Hann tók við embætti 10 janúar 1953 og átti Dewey fyrrverandi ríkisstjóri í New York, forsetaefni republik- ana, sem féll fyrir Truman mikinn hlut að því, að hann var valinn í embættið. Dulles var lögfræðingur, las alþjóða- lög við Sorbonne-háskólann og tók próf í lögum við Washing- ton-háskóla. Dulles vann mikið að því að treysta samheldni Bandamanna gegn kommúnismanum. Hann ferðaðist meira en nokkur leið- togi annar, kom í flest þjóð- lönd og kynntist fjölda leið- toga. Fáir birair unnir. Yfir 100 veiðinienn lögðu upp frá Timmins ■ Ontaric, Kanada, fyrir nokkru — á hjarndýraveiðar. Borgarstjórinn ■' Timmins skipulagði veiðiferðina, eftir að fregn hafði verið birt um, að loðhúfur lífvarðar Elísa- betar drottningar — en þær eru gerðar úr bjarndýrsfeld- um — væru mölétnar! En ekki eru „allar ferðir til fjár“ eða frama — því að í leiðangrinum mikla voru aðeins felld 3 dýr. Þjónusta við kommún- isma er meginmark. Nýlokið er í Moskvu Þriðja rithöfundaþinginu. Lauk því með ályktun um hvernig rit- höfundar gætu hezt þjónað kommúnismammi. Birt hefur verið ræða, sem Krúsév flutti á þingi þessu, en þar komst hann m. a. að orði á þá leið, að létta bæri undir með þeim rithöfundum, sem horfið hefðu frá villu síns vegar. Meginmark er sem fyrr: Þjónusta við kommúnismann. Tólfta hvalveiðive rtíð m hafin. 130-140 manns hafa atvinnu við þær. Hvalveiðivertíðin er hafin. Fóru hvalveiðibátarnir út í gærkvöldi. Hvalveiðarnar verða reknar með sama hætti og undan- gengin ár. Hvalveiðibátarnir eru samtals fimm, og fjórir að veiðum, en einn er jafnan til vara og liggur inni í Hvalfirði. Veiðarnar standa langt fram í september. Það er 12. hvalveiðivertíðin, 'sem nú er hafin. — Þær hafa yfirleitt gengið vel. f fyrra veiddust óvanalega margir hvalir eða 508. Veiddust þá 135 búrhveli og hækkaði það mjög taöluna. — Fæstir hvalir á vertíð veiddust 265. 130—140 manns hafa at- vinnu við hvalveiðarnar og eru þá áhafnir hvalveiðiskipanna með taldar. w . U' r V' ,\0:! .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.