Vísir - 25.05.1959, Síða 3
Mánudaginn 25. febhiar 1959
VÍSIR
Halló!
Já, halló!
Er þetta hjá Jónasi Jónssyni?
Já, Jónasi frá Grjótheimi. Ég
þekkist bezt undir því nafni.
Það mun rétt vera. Má ég
koma heim til þín Jónas, og
rabba við þig smá-stund?
Vertu velkominn.
Mér er sagt, að þú sért flutt-
ur af Frakkastígnum. Hvar ...?
Já.
Af Frakkastíg 13 er fluttur,
' fánýtan varnagla slœ.
Álízt þó áfanginn stuttur,
til óðalsins vestur í bœ.
Og hvar áttu þá heima núna,
Jónas?
Einn tuttugu og átta
sextíu og sex,
símanum ég halda mun,
ef dýrtíð ekki vex.
í undirheimakjallara,
og erum bara tvö,
eigum heima á Bárugötu
þrjátíu og sjö.
Já, Bárugötu 37?
Það er normal blóðhiti, vinur.
Þú manst það.
—★—
Þú ert orðinn þó nokkuð full-
orðinn, Jónas?
Ja, gizkaðu nú á. Hvað held-
urðu að ég sé gamall?
Þú ert líklega 65—67 ára.
Ég verð 78 ára núna í júní.
Mér þykir þú halda þér al-
deilis vel. Hvar ertu annars
fæddur?
„Bálkastöðum-Ytri alinn
eftir sveita-reglugjörð.
Miðfirðingur mun ég talinn,
Þótt minn sé bær við Hfúta-
fjörð.“
Ytri-Bálkastöðum?
Já, Ytri-Bálkastaðir eru í
vestanverðu Heggstaðanesi í
Húnavatnssýslu.
Hvenær fluttist þú til Reykja-
víkur?
Bíðum nú við. Ég fór á bún-
aðarskólann á Hvanneyri 19
ára gamall. Var þar í tvö ár.
Síðan ráðsmaður í Norðtungu
í eitt ár, fór svo suður 1901 og >(Hlakka til að hleypa á sprett,
réðst á skútu. Fór á Stýrimanna því honum mun um ganginn
Ekki komið að
Rœhhað nV) Jíónas
í ímrjjú&hviai #.
Módel 26, já. Nú, svo hefur
þú fengið þér annan bíl síðar?
Já. Næst kom ,,Þytur“ og svo
„Léttir“. Um hann kvað ég:
skólann, og útskrifaðist þar i
létt,
1905. Var lengst af á sjónum. ’ Qg engum þykja undrafrétt,
Annars hefur margt á dagana þótt ótal met hann geti sett;
drifið. Ég hef verið veitinga-: Hann er líka sannkallaður
húseigandi, kaupmaður, og svo! Chevrolet.“
bílstjói’i í fjöldamörg ár.
Þú hefur víðá komið við,; Þá hefur þú nú verið vel sett-
þykir mér. Og alltaf skapið ur með nýjan bíl?
samt jafn gott?
„Unnið hef sem húðarklár,
hvergi hlotið frama,
þótt í v'öngum gerist grár,
geðslagið er sama.“
O-já. Svona til að byrja með.
Alltaf vill þó eitthvað koma
fyrir, þótt ekki sé alvarlegt.
„Mikið undur á ég bágt,
aldrei minnsti friður.
„Glussinn11 ennþá dettur dátt
í dropatali niður.“
En svo er það líka það, að
Hvar varstu annars bílstjóri, i
Jónas?
Ég var á Vörubílastöðinni \
Þrótti. Já, átti lengst af gaml-: .
an bíl, sem ég kallaði „Grána“. ”Þeir> sem blla!lðgerð Vmna’
Sæmileg kerra? S virðast marglr °ðrU smna’
trassa verkið meira og minna,
„Býsna er góður bíllinn minn, markvisst að því státa,
betri’ én flestir halda, að svíki þeir og svindli’ á ýrnsan
en hann fær eins og eigandinn j máta;
umbúðanna að gjalda.“ eyðileggi orðstír hinna,
! sem öðruvísi haga sér,
; en þetta’ er algengt, því er ver;
! góða’ og illa á að kynna,
' allir makleg gjöld að finna,
mörgum slysum mundi linna,
jmætti viðgerð treysta,
,enginn skyldi ógæfunnar
freista;
„Ef fartækin fjölga og skána, leynda galla’ að lokum finna,
Hann var nefnilega ekkert
sérlega fallegur, greyið.
Gamalt módel?
Módel? Einu sinni vantaði
mig vél í bílinn. Þá auglýsti ég
með smá-vísu, eins og ég oftast
^erði.
framtak hjá þjóðinni vex,
en mig vantar mótor í „Grána“
módelið tuttugu og sex.“
leita’ og ganga’ í kröfsin hinna,
það hef ég reynt og því vil
spinna
þuluna sanna og skýra,
reynslu fengið reyndar langt of
dýra.“
Nú, það er alveg sama, hvar
ég kem. Alltaf fæ ég kvæði í
hausinn.
„Hendingarnar hafa fært
harla mörgum gaman;
gjarnast hef ég getað hrært
gremju og spaugi saman.“
Hvaðan kemur annars þetta
Grjótheima-nafn?
Það er síðan ég fékk lóðar-
skika hjá bænum. Laugarás-
blett 5. Einn hektari af urð
; og grjóti. Átti að gera það að
túni á átta árum. Þetta var
1926.
Mikið grjót?
„Meiri urð hef aldrei spurt,
eitt má hafa í sögnum:
af þeim bletti ekið burt
| ellefu þúsund vögnurn."
Ég sé að þig vantar einn
fingur á vinstri hönd. Hvernig
misstir þú hann?
Það var á síldveiðum 1913.
Ég fór með fingurinn í spilið.
Það var mesta mildi, að ég
skyldi ekki missa alla höndina.
Já, segðu mér einhverja
sögu af sjónum. Þú hlýtur að
kunna mikið af slíku.
Ja, það var nú svo til dæmis
með þessa ferð, þegar ég missti
j puttann. Það var alveg eins og
ég fyndi það á mér, að eitt-
; hvað mundi koma fyrir mig í
‘ ferðinni. Og þegar ég gekk nið-
kofunum
ur bryggjuna,. kom mér þessi
vísa í hug:
„Lundur stundar böli ver,
beiskan undir svíða,
lundin undir lömuð er,
leyndum bundin kvíða.“
Og svona hefur það ætíð ver-
ið, alla mína æfi meðan ég man
eftir mér, að mér kom fátt á
óvart.
Segðu mér meira um það.
Ég var lengst af með Guð-
mundi Jónssyni hjá Kveldúlfi.
Einu sinni fórum við út um
miðja vertíð. Þá fannst mér
undrum sæta hvað ég fékk að
sofa lengi, því það var okkar
dýrðardraumur, og eina hvíld.
Svo er ég loks kallaður upp, og
sagt að tvívegis sé búið að hífa
trollið. Guðmundur sagði þá sí-
sona: „Æ, — ég gat ómögulega
verið að láta kalla í þig. Mig
langaði líka til að vita hvernig
lægi í þér, þegar þú værir bú-
inn að sofa vel, á meðan við
hífum tvívegis án þess að fá í
soðið. Þú hefur fyrr getspakur
verið, og nú ætla ég að’leita hjá
þér hverju þú spáir.
„Ég hef vaknað vel, en seint
varla er því að leyna.
Gjöra stöku get ég reynt,
gjarnan fleiri en eina.“
Ja, þá held ég sé nokkurn
veginn uppi á þér typpið,“ seg-
ir hann, „en hverju spáir þú
nú, Jónas?“
„Ef að veðrið verður stillt,
vel- má þannig haga,
að við „Skalla“ fáum fyllt,
fjóra næstu daga.“
En það hafði aldrei komið
fyrir. Þá þótti góður túr að fylla
á 7—8 vikum, en við vorum
búnir að fylla eins og hægt var
— á fjórum dögum, og fullt
dekk.
Það hefur bara alveg skipt
um eftir þessa vísu?
Já. Það var alveg eins og ég
fengi tilvísun.
Einu sinni var ég á Skúla
fógeta. Fiskiríið gekk illa, og
ég fór niður að sofa. Þetta var
á páskum 1913. Áður en ég sofn-
aði, bað ég bæn:
„Burt frá mér sérhver illur andi
alla leið beint til Helvítis,
heilagir englar hjá mér standi,
hamli því mér grandi slys;
leiddu mig, Guð, um land og sjó,
láttu mig alltaf hafa nóg.“
„Gefðu, við fiskum vel í vetur,
vernda frá slysum sérhvern
mann;
fylltu pokann með fiski betur,
færðu’ oss hann alltaf þrískipt-
an;
láttu’ ekki upsa í því sjást
og alla poka heila nást.“
„Þá gengi fljótt að fylla’ hann
Skúla,
á fimmta degi við kæmum inn,
sumir gengu með gleiðan túla,
glaðir að líta hlutinn sinn;
Halldóri veitist verðugt lof,
varla mundi það samt um of.“
— en við komum á fimmta
degi, og það var alveg einsdæmi.
Eftir það álitu þeir, að ég gæti
sagt fyrir um óorðna hluti.
Hefurðu ekki átt neitt við
kraftavísur?
O-nei, ekki hef ég gert það.
Lét samt einhverju sinni fjúka
smá-hótunarvísu í verzlun, þeg-
ar ég fékk ekki það sem ég
vildi.
„Ykkar tæmist auraskrínur,
allur lífs- og sálarfriður;
fái ég ekki appelsínur,
ykkur skal ég kveða niður.“
I
— og appelsínurnar fékk ég.
Áttu ekki einhverjar krafta*
vísur um Bretann?
Kraftavísur eru það víst ekki,
en ég skal lofa þér að heyra.
„Ólög fjandinn eflir flest,
öll hans fræði kenna.
Þeir, sem honum þjóna bezt,
þrotlaust stikna og brenna.“
„Þjónum sínum þjarmar að,
þarflaust góðs að vona.
Hvernig stendur á því að
andskotinn er svona?‘‘
„Arðrán Breta æðsta sport,
ekkert bæta má þá.
Þó er alveg óvíst hvort
andskotinn vill sjá þá.“
„Bretar löngum breyttu flátt,
bæði í verki og orðum.
, Lengst þeir gátu leikið grátt
lítilmagnann forðum.“
„Gæran hvergi gagnar meir,
! giftu og heiðri týna.
En í hvers skjóli eru þeir
úlfstrýnið að sýna?“
„íslendingar örðugt brýnt
ýmsum leikið skjöldum.
Fúlmennskunnar frumhlaup
sýnt
fyrir opnum tjöldum.“
„Bretar hafa einblínt á,
öran gróða að taka,
en andskotinn mun af þeim flá
æruna til baka.“
„Eftir Breta ágangsrán
auðjöfranna þvingu,
verður talin víðtæk smán
að vera Englendingur.“
„Óréttmætt í engu telst,
ákvæðum að breyta.
Og Englendingar ættu helzt
andskotar að heita.“
Mér þykir þú aldeilis taka
upp í þig. Ekki ertu alltaf svona
höstugur í orðum, er ég hrædd*
ur um.
Nei, ég get verið kurteis líka.
Einu sinni hringdi ég í vitlaust
númer í símann, og þegar stúlku
anginn svaraði mér hálfgerðum
skæting, varð mér að orði:
„Ef ég stœli annars mat,
ei mér stœði’ á sama,
en nú hef ég villzt í vitlaust gat.
Verið þér sœlar, dama.“
G. K.
Prír sækja um pró-
fessorssmbætti.
Umsóknarfrestur um prófes-
sorsembættið í guðfræðideild
háskólans rann út 15. þ. m.
Um embættið hafa sótt: Síra
Jakob Jónsson, sóknarprestur í
Hallgrímssókn í Reykjavík,
síra Jóhann Hannesson, sókn-
arprestur á Þingvöllum, og síra
Þorgrímsu Sigurðsson, sóknar-
prestur að Staðastað. (Frétt frá ,
menntamálaráðuneytinu).