Vísir - 23.06.1959, Blaðsíða 12

Vísir - 23.06.1959, Blaðsíða 12
Kkkcrt blað er ódýrara í áskrift en Víair. LátiS fann færa yður fréttir »g wonað iMtrarefni heim — án fyrirhafnax af ySar hálfu. Simi 1-16-68. irísiR Þriðjudaginn 23. júní 1959 Munið, að þeir, sem gerasi áskrifendar Vísis eftir 10. hver* mánaðar, íá blaXið íkeypis til mánaðamóta. suiil 1-16-60. **p&ó er Minnisblað um loforð og „efndir“ vinstri stjórnarinnar. LOFORÐ. í kosningastefnuskrá Hræðslubandalagsins sagði svo: „Ef ekki verður ^ripiS fast í taumana, skapast aígert öngþveiti í efnahags- og fjármálalífi þjóðarinnar. Þess vegna ber nú brýna nauðsyn til þess, að tekin sé upp NÝ STEFNA í efna- hagsmálum þjóðarinnar.<( „EFNDIR'' Nokkrum vikum eftir að framangreind yfirlýsing var .gefin tóku vinstri flokkarnir við völdum. í hálft þriðja ár sátu þeir í ríkisstjórn, ,án þess að örlaði á þeirri lausn efna- hagsmálanna, sem þeir höfðu lofað og þaðan af síður, að tekin væri upp ný stefna. Vinstri stjórnin skapaði „algert öngþveiti í efnahags- og fjármálalífi hjóðarinnar'' en hljóp síðan frá vandanum óleystum. N.k. sunnudag mun þjóðin við kjörborðið fella dóm sinn um verk vinstri stjórnarinnaf, Kjörorðið er: Aldrei aftur vinstri stjórn Holræsi Kaplaskjólsmýrar. lagt í sjó fram. Þrwimíf þt*ss er 120 cnt. NýlokiS er að leggja aðalhol- ræsi úr Kaplaskjósmýri. Vatnssvæði Kaplaskjólsræs- is er um 40 ha. að flatarmáli. Takmörk vatnssvæðisins er Grandavegur að austan, Hofs- vallagata að sunnan, Nesvegur og framhald Ægisíðu að vestan. Lega ræsisins er í miðri mýr- inni skammt austan við íþrótta svæði K.R. og nær frá Kapla- skjólsvegi og út í stórstraums- fjöruborð. Lengd þess er um 550 m. Ræsið er gert úr járn- bentum pípum, sem steyptar eru í Pípugerð Reykjavíkur- bæjar. Þvermál pípnanna er 120 cm. og hvíla þær á 10—15 cm. þykkri undirstöðuplötu. Byrjunarframkvæmdir við holræsagerð þessa hófust í s.l. mánuði. Var þá grafið í gegn- um sjávarkambinn, steyptar undirstöður fram í stórstraums- fjöruborð og lagður hluti af út- rás ræsisins. Um s.I. helgi var lokið við að leggja pípurnar fram í stór- Fuiigauppþot vestun hnfs. Fregnir hafa borist um i'angauppþot í fangelsinu í Springfield, USA. Fangarnir hafa náð einni úlmu fangelsins á sitt vald. straumsfjöruborð og steypt hlífðarkápa utan um pípurnar til varnar gegn sjávargangi. Aætlanir og uppdrættir af ræsinu voru gerðar af Stefáni Olafssyni, verkfr. í samráði við Inga U. Magnússon, deildar- verkfræðing holræsadeildar bæjarverkfræðings, sem einnig hefur haft umsjón með fram- kvæmd verksins ásamt Ragnari Ingimarssyni, verkfr. er hefur annast mælingar og daglegt eftirlit ásamt Guðlaugi Stefáns syni yfirverkstjóra. Áætlaður kostnaður við aðal- ræsið frá sjó og að Kaplaskjóls- vegi er um 2.5 millj. króna. Óðum styttist tíminn til kosninga. Eru því að verða síðustu forvöð að senda áskorunarseðlana. Fjáröflunarnefnd Sjálfstæðisflokksins Morgunblaðshúsinu. Tugír fórust í flóðum í Hongkong. Feikna úrkomur voru í Hong Kong nýlendunni um miðbik mánaðarins og drukknuðu 36 manns í flóðum. Hinn 14. þ. m. fórust 23, en í þriggja daga stormi og úrhelli fórust samtals 36. — Allir þeir, sem fórust, voru kínverskir flóttamenn, en skúrum þeim, sem þeir bjuggu í, sópaði’ burtu með flóðunum. Auk þeirra, sem kunnugt er um að farist hafa, er margra saknað, og tugir manna hlutu meiðsli. Ævilangt fangelsi fyrir nauðgun. í Tallahasse, Florida-fylki, Bandaríkjunum, hafa fjórir, ungir hvítir menn, verið dæmd- ir í ævilangt fangelsi. Þeir voru sekir fundnir um ^ að hafa nauðgað blökkustúlku. Stúlkan var háskólanemi. Kviðdómurinn mælti með lin- kinnd, en hefði hann ekki gert ; það hefði dómarinn orðið að dæma þessa menn til lífláts. Hvítur maður hefur aldrei verið dæmdur til lífláts fyrir ofannefndan glæp í Florida- fylki, en allmargir blökkumenn fyrir að nauðga hvítum konum. Síldin - Framh. af 1. síðu. Síldarleitarskipið Johan Hjört kom í gær af leitarsvæð- inu við Jan Mayen. Varð ekki vart við síld fyrr en komið var hitaskiptin um 30 til 40 sjómíl- ur út af Raufarhöfn. Þar voru lögð net og fengust 9 sildar. Engin síld er sem sagt á austur- svæðinu enn. Auk þeirra skipa, sem talin voru upp í Vísi í gær komu eft- irtalin skip með síld til Siglu- fjarðar í fyrrinótt og í gær: Stefnir 284 mál, Magnús Mar- teinsson 150, Friðbert Guð- mundsson 212, Hringur 275, Gunnvör 200, Huginn 400, Hafn arey 346, Steinunn gamla 325 og Jón Jónsson 12. ---1,--- McElroy vongóður um samkomulag. McElroy landvarnaráðherra Bandaríkjanna kveðst vera vongóður um samkomulag í deilu Bandaríkjanna og Frakka. Deilan er um kjarnorku- vopnageymslu Nato í Frakk- landi og bækistöðvar sprengju- flugvéla, sem geta flutt kjarn- orkuvopn. Setja Frakkar það skilyrði fyrir að leyfa bæki- stöðvar fyrír slíkar flugvélar og birgðastöðvar, að þeir fái að- göngu að kjarnorkuleyndar- málum bandamanna sinna. Líklegt er, að umræddar flugvélar verði til skiptis í nokkrum öðrum Natolöndum, þar til deilan leysist. Vinna við útrás Kanlaskiólsræsis. (Ljósm. R. Ingimarsson). Þokur og stormar töfðu flugvélar. Fátítt í bjartasta mánuói ársins. Hassviðrið, sem gengið hefir yfir landið að undanförnu, hef- ir liaft miklar tafir á flugsam- göngum innanlands í för með sér. Allt fram yfir 17. júní varð að fresta .. flugferðum og fella niður svo til á hverjum degi og suma daga féllu ferðir alveg niður t. d. til Vestmanna- ey-ja og til staða á Vestfjörðum. Þa hömluðu þokur og dimm- viðri einnig flugi til Norður- laiids um tíma. • ’ Éftir 18.' júní hefir hinsvegar breytzt til batiiaðar og hafa flugsamgöngur innanlands síð- an farið fram samkvæmt áætl- uú. ... —-• Viscount-flugvélarnar eru nú í vaxandi mæli nötaðar til inn- anlandsflugs. Svo og Skymast- erflugvél Flugfélags íslands, Sólfáxi. Flugvélar Flugfélags íslands hafa það sem af er þessu ári farið fleiri leiguflugferðir til Grænlands en nokkurntíma áð- ur á sama tíma. Mest hefir verið flogið til Kulusuk, Syðri-Straumfjarðar og Thule, en einnig til Meist- aravíkur og Narssarssuaq. Áætlunarflug félagsins milli landa hefir þrátt fyrir erfiða veðráttu gengið mjög vel og hafa tafir verið fátíðar. Eins og skýrt var frá í frétt- um nýlega, áformar Flugfélag íslands að opna nýja áætlunar- flugleið í haust fáist til þess nauðsynleg leyfi. Þessi nýja áætlunarleið er frá Reykjavík til Palma á eynni Mallorca, sem eins og kunnugt er, er ein Spánareyja og er mjög annáluð fyrir fegurð og gott loftslag. Frægt gistihús í Noregi brunnih. A.m.k. 7 biðu bana, en 20 er saknað. Eitt frægasta gistihús heims ætlað skemmtiferða- mönnum brann í nótt til kaldra kola á 1—2 klukku- stundum. Þetta var gistihúsið í Stalheim f. norðan Bergen, byggt af timbri. Fyrstu fregnir herma, að 7 menn hafi beðið bana, en lun 20 sé saknað. I gistihúsinu voru um 150 skemmtiferðamenn, margir bandarískir. Margir hentu sér út um glugga og björguðust fáklæddir. Um 300.000 skemmtiferða- menn komu til Norður-Ir- lands s.l. ár og er hagnaður- inn af komu þeirra talinn vera 11—12 millj. stpd. Enn einn áreksturinn varð á Hafnarfjarðarvegi í fyrradag, og var þá þessi mynd tekin. Mun fólksbifreiðin hafa ætlað að skjótast fram hjá vörubifreiðinni nærri gatnamótum, að því er menn sögðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.