Vísir - 28.08.1959, Side 6
VlSIK
Föstudaginn 28. ágúst 1959
▼I SIR
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: (11660 (fimm línur)
Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði,
kr. 2.00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Framsókn á bsiiisbuxum.
Það er nú fullyrt af þeim
mönnum, sem ættu til að
þekkja, að talsverðar líkur
sé fyrir samstarfi Fram-
sóknarflokksins og Þjóð-
varnarflokksins í kosning-
unum í október. Frá þessu
hefir að visu ekki verið
skýrt opinberlega, en þó
hníga mörg rök að því, að
foringjar flokkann'a sé að at-
, huga jarðveginn og allar að-
stæður. Það er lika viður-
kennt af foringjum Fram-
sóknarflokksins, að hann
hljóti að tapa miklu at-
kvæðamagni, og nauðsynlegt
sé þess vegna að reyna að
safna nýju liði, sem getur
komið í stað þess, sem hjálp-
aði Framókn vegna kjör-
dæmamálsins, en ætlar ekki
að veita aðstoð oftar.
Það er vissulega ekki neinn ó-
vígur her, sem gengi undir
fána Framsóknarfokksins,
þótt það yrði úr, að Þjóð-
varnarflokkurinn veitti hon-
um stuðning. í rauninni má
• segja, að Þjóðvarnarflokk-
urinn sé að dauða kominn,
því að hann treysti sér ekki
1 til að bjóða fram nema á
einum stað utan Reykjavík-
ur í sumar, og svo var at-
kvæðamagn hans auk þess
svo lítið hér í Reykjavík, að
ekki nægir til að koma
manni að, þótt fleiri þing-
menn verði kjörnir. Má því
segja, að báðir sjái marg-
vislegan hag að samstarfi, og
er þetta að nokkru leyti í
‘ samræmi við hið fornkveðna,
að lítið dregur vesælan.
Framsóknarflokkurinn gengur
þess ekki dulinn, að hann
tapar miklu atkvæðamagni
í næstu kosningum. Hann
beitti sérstæðum og á marg-
an hátt ófyrirleitnum áróð-
ursaðferðum í kosningunum
í júní, en þær báru aðeins
takmarkaðan árangur —
flokkurinn fékk ekki nægt
fylgi kjósqnda eða á Alþingi
til að stöðva kjördæma-
breytinguna, eins og hann
hafði gert sér vonir um.
Hann gat heldur ekki fengið
neinn stuðning á þingi til að
eyðileggja málið, en hann
hafði gert sér talsverðar
vonir um það, eins og allir
vita. Vígstaða hans verður
því allt önnur við þessar
kosningar en hinar síðustu.
Ogerningur er að gera sér
grein fyrir því, hversu mörg
þúsund atkvæði Framsókn-
arflokkurinn fékk frá öðrum
flokkum vegna áróðurs síns
og höfðunar til tilfinninga í
sambandi við kjördæmamál-
ið. Flokkurinn fékk fleiri at-
kvæði en nokkru sinni,og for
ingjarnir vita, að hann mun
tapa stórlega, þegar gengið
verður að kjörborðinu í
októbermánuði. Það er mik-
ilvægt, að þetta fyrirsjáan-
lega tap verði unnið upp
með einhverjum atkvæðum
annars staðar frá, og þótt
þjóðvarnaratkvæðin geti
aldrei orðið mörg, eru þau
þó betri en ekkert — og það
er vissulega sama, hvaðan
gott kemur.
Gegn þessu verður Framsókn-
arflokkurinn svo að tryggja
það, að þjóðvarnarmaður
verði einhvers staðar kjör-
inn á þing. Hann ætti vissu-
lega að geta það, því að hann
verður vitanlega ekki þurrk.
aður út, enda þótt mikið
muni saxast á limina. Má þá
segja, að þjóðvarnarmenn
væru komnir heim, því að
flestir voru þeir uppaldir í
Framsóknarflokknum, þótt
þeim þætti loftið slæmt í
þeim herbúðum og forðuðu
sér. En þá væru þeir líka
farnir að starfa í þágu þess
flokks, sem þeir hafa talið
aðal„hermangs“flokkinn að
undanförnu og gerði þeim
þann greiða fyrir kosningarn
ar 1956 að stela frá þeim
einu hugsjóninni, sem Þjóð-
varnarflokkurinn hefir
nokkru sinni haft. En það er
ósennilegt, að Framsókn
framkvæmi hana — til þess
græða of margir Framsókn-
armenn of mikið á „her-
maginu“.
gangan.
Skömmu fyrir kosningarnar
1956 hófu nokkrir menn út-
gáfu blaðs, sem þeir kölluðu
Útsýn. Var fyrir ferðaskrif-
stofa með því nafni og þótti
heiti blaðsins því réttnefni,
því að aðstandendur þess
Voru allir förumenn , á
stjórnmálasviðinu, fiakkar-
ar og landshornamenn.
Það var málfundafélag jafnað-
armanna, sem stóð fyrst að
blaði þessu, en það barðist
fyrst og fremst í þágu kom-
múnista. Fyrsta ganga
blaðsins varð þó ekki löng,
því að eftir kosningar var
ekki þörf á blekkingum um
skeið og blaðið var lagt til
hiiðar. Þegar leið að kosn-
ingum í vor, var blaðið end-
urreist, en nú var sú breyt-
„ísland á ærinn auð í ám
og vötnum“.
Frægur fiskifræðiprófessor hafði hér
viðdvöl á hnattferð.
Ræktun vatnafisks á íslandi
á mikla framtíð. Það er þegar
auðséð, að íslendingar eiga mik-
inn auð í vötnum og veiðiám,
og með vísindalegum aðferðum
mætti margfalda þessa auðlegð.
Þetta er skoðun amerísks vís-
indamanns, dr. Lauren R. Don-
aldsons, prófessors í vatnafiski-
fræði við ríkisháskóla Wash-
ingtonsríkis í Seattle, sem hef-
ur haft hér viðdvöl á leið sinni
til Japans, en mun koma við í
ýmsum löndum öðrum til að
kynnast gangi þessarra mála
utan heimalandsins. Dr. Don-
aldsson er frægur kennari í
fræðigrein sinni og veitir auk
þess forstöðu rannsóknastöð
háskóla síns í geislavirkniáhrif-
um á líffærastarfsemi. Og fiski-
fræðideildin við háskólann í
Seattle er ein hin bezta í heimi.
Þar hefur einn íslendingur
stundað nám í vatnafiskifræði,
Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri. Við skólann' hefur um
áratugaskeið verið rekin eldis-
stöð fyrir lax og silung. Teg-
undir þessarra fiska eru þar
miklu fleiri en við þekkjum til
hér á landi, og þeir sem að því
starfa, en þar er dr. Donaldsson
fremstur í flokki, hafa gert sér !
mikið far um að kynbæta1
vatnafisk. Og nú hin síðustu ár 1
hafa kjarnorkutilraunir stór-
veldanna bætt við því verk-
efni, að rannsaka svo sem föng
eru á, hver áhrif. geislavirkni j
hefur á fisk bæði í sjó og fersku i
vatni.
i
Japanir standa einna fremst ,
allra þjóða á sviði fiskirann- j
sókna, og hefur dr. Donaldsson !
haft samstarf við þá áður. Hann j
hélt héðan áleiðis til Japans í
gær.
Þelr eru a5 nálgast
178 milljónir.
Bandaríkjamenn verða orðn-
ir 178 milljónir, áður en sept-
ember verður liðinn.
Hagstofa Bandarikjanna til-
kynnti, að með venjulegri fólks
fjölgun muni þjóðin komast
upp í 180 milljónir á næsta ári,
en 178 milljónir ættu að vera
fullar fyrir 1. október.
Ögurkirkja 100 ára á sunnudag.
Var stærsta sveitakirkja islenzk á sinni tíð.
Borizt hefur blaðinu greinar-
stúfur frá kvikmyndahúsgesti.
Hann er óánægður, og fara línur
hans hér á eftir:
Eg er einn af þeim, sem verð
að dvelja meira innan bæjar en
utan að sumri til, og eyði því
gjarnan kvöldstund i kvikmyna-
húsi. En það fer bráðum að líða
að þvi að ég hætti að stunda
þessa „skemmtun", sem annars
verður að teljast ein bezta og
uppbyggilegasta, sem hér er völ
á, þegar rétt er haldið á spil-
unum.
Því er nefilega svo komið, að
góðar myndir sjást hér oi’ðið svo
sjaldan, að til algerra undantekn-
inga verður að teljast.
Hryllingsmyndafargan.
1 sumar hafa vaðið hér uppi fá-
ránlega hryllingsmyndir, gerðar
af mönnum, sem hvorki hafa
fyrr né síðar sézt nefndir í sam-
bandi við myndir ætlaðar til sýn-
inga siðmenntuðu fólki. Leikar-
arnir eru venjulega eitthvað fólk
sem aldrei hefur sézt á tjaldi
fyrr. Efnið er allt á sömu leið.
Ófreskja, annað hvort í líki mann
veru, risapöddu eða einhverrar
annarrar endaleysu eltir æpandi
ljóshærðar stúlkur um móa og
mela.
Hver myndin af annarri á
þessu tagi hefur riðið húsum hér
í höfuðborginni í sumar, og
reyndar meira eða minna í heilt
ár. Slíkar myndir eru gerðar til
að fá hárin rísa á börnum á ferm
ingaraaldrit sem reyndar eiga þó
ekki að fá aðgang), en að slíkt sé
hægt að bjóða fullorðnu fólki, er
af og frá.
Frá fréttaritara Vísis.
ísafirði í gærmorgun.
Næstkomandi sunnudag verð
ur minnzt hundrað ára afmælis
Ögurkirkju, sem reist var árið
1859 af hjónunum Þuríði Þið-
riksdóttur og Hafliða Halldórs-
syni.
Einar Jónsson stórbóndi í
Ögri hafði fengið nokkurn
kirkjuvið og ætlaði að byggja
nýja kirkju, en hann andaðist
1856, áður en kirkjubyggingin
var hafin. Skipti á búi Einars
stóðu í nærri þrjú ár, og því
seinkaði kirkjubyggingunni.
Ögurkirkja er úr timbri, vel
stæðileg enn, enda fengið góða
umhirðu. Hún mun hafa verið
einna stærst sveitakirkja ís-
lenzk, er hún var reist. Áður
var torfkirkja í Ögri.
Séra Jón Auðuns dómprófast-
ur prédikar í Ögurkirkju næsta
sunnudag, en Kristján Jónsson
á Garðsstöðum rekur sögu
kirkjunnar. Félag Djúpmanna í
Reykjavík gengst fyrir hópferð
ing á orðin, að það voru ekki
lengur „jafnaðarmenn“, sem
stjórnuðu því. Kommúnistar
voru búnir að koma sér fyrir
í stjórn þess, en hlutverk
þess var eftir sem áður að
blekkja þá, sem vildu frekar
telja sig jafnaðarmenn en
kommúnista.
Eftir 28. júní dó blaðið öðru
sinni, en nú var tilkynnt í
gær, að það hæfi göngu sína
í þriðja sinn eftir helgina.
Kommúnistar stjórna þar
eftir sem áður og einn úr
þeirra hópi er ritstjórinn.
Hlutverkið verður vist eftir
sem óður að telja „jafnaðar-
mönnum" trú um, að kom-
múnistar sé alls ekki komm.
únistar.
að Ögri. Margir ísfirðingar
munu einnig heimsækpa Ögur-
kirkju þann dag. — Arn.
Biskups-
vígsla.
N. k. sunnudag, 30. ágúst, fer
fram biskupsvígsla í kirkj-
unni á Hólum í Hjaltadal. Bisk-
upinn yfir íslandi, herra Sigur-
björn Einarsson, vígir séra Sig-
urð Stefánsson, prófast á Möðru
völlum í Hörgárdal, sem hefur
verið kjörinn vígslubiskup
Hólabiskupsdæmis hins forna.
Athöfnin hefst kl. 14 með
skrúðgöngu presta til kirkjunn-
ar. Er ætlast til, að allir við-
staddir prestar verði hempu-
klæddir og taki þátt í skrúð-
göngunni.
Altarisþjónustu að upphafi
messunnar annast prestur stað-
arins sr. Björn Björnsson, og
sr. Stefán Snævarr á Völlurn í
Svarfaðardal. Sr. Benjamín
Kristjánsson, Laugalandi, lýs-
ir vígslu. Vígsluvottar verða:
Sr. Páll Þorleifsson, prófastur,
Skinnastað, sr. Friðrik A. Frið-
riksson, prófastur, Húsavik, sr.
Þorsteinn Gíslason, prófastur,
Steinnesi, og sr. Lárus Arnórs-
son, Miklabæ.
Að lokinni vígsluathöfninni
mun hinn nývígði vígslubiskup
prédika. Þá fer fram altaris-
ganga, og munu prestur staðar-
ins og dr. Bjarni Jónsson, vígslu
biskup, þjóna að henni.
Kirkjukór Akureyrarkirkju
annast sönginn undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar.
' Kirkjumálaráðherra, Friðjón
Skarphéðinsson, mun bjóða til
kvöldverðar að Hólum um
kvöldið.
Beti’i myndh- yti’a?
Það sem einkum er vekjandi
athygli á í þessu sambandi er, að
undanfarið hefur verið talið, að
kvikmyndir, þá einkum amerísk-
ar, hafi heldur íarið batnandi
miðað við það sem verið hefur
undanfarin ár. Er þar fyrir að
þakka samkeppni sjónvarpsins.
Eitt kvikmyndahús hefur þó
algerlega skipað sér i sérflokk
undanfarin ár, og er það raun-
verulega hið eina sem ber
nokkra virðingu fyrir því fólki,
sem telur sig eitthvað hafa að
sækja í kvikmyndahús. Það er
Bæjarbíó í Hafnarfirði. Hver á-
stæðan er, skal ekki fullyrt um,
en þar eru bersýnilega að verki
menn sem vilja bjóða upp á eitt-
hvað annan en 3. flokks rusl, sem
þjónar ekki öðrum tilgangi en að
eyðileggja smekk manna fyrir
leiklist.
Hvað með slíkt í leikliúsi?
Hvað myndi fólk segja, ef leik-
hús borgarinnar færu að sýna
einhver matarlímsskrimslalæti í
likingu við það sem væntanlegt
er nú á tjald eins af kvikmynda-
húsum borgarinnar? Það myndi
ekki nokkur maður sýna sig og
allir myndu fullast heilagri vand-
lætingu.
Því er helzt borið við, að
kvikmyndahúsin verði að sæta
afarkostum af hálfu kvikmynda-
framleiðenda, þá sérstaklega
bandarískra. Ein góð mynd, og-
með henni varði að taka á leigu
4—5 lélegar. Ef svo er, þá er hér
í algert óefni komið, og svo að
full ástæða er fyrir húsin að taka
til endurskoðunar samninga sína
við hin ágætu kvikmyndaver.
En eins og áður er vikið að, þá
hefur farið orð af batnandi kvik-
myndum vestan hafs undanfarið.
Og víst er það, að fylgist maður
með kvikmyndagagm-ýni ýmisa
tímarita, sem hér fást, þá er þar
annað kastið getið lofsamlega
um nýjar myndir. En það má