Vísir - 28.08.1959, Blaðsíða 12

Vísir - 28.08.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendiu Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Eisenliower í Iíússlandi. „Það er sama í hvaða smáþorpi er komið, alls staðar hafa hús- mæðurnar þvottavé!ar“. T.h.: ,,Náðu í steppuvagn fyrir mig. Eg er boðinn á samyrkjubúið hans Nikiia.“ 7TT KHRUSHCHfÍr 'IH amerTca ’ ~ Krúsév í Bandaríkjunum. „Náðu í hest fyrir mig. Hann Ike er búinn að bjóða mér á bú- garðinn sinn^" T.h.: „Við liöfum engar svona styttur í Rússlandi. Við höfum ekkert að gera við þær.“ Golfmeistaramót Reykjavíkur: Olafur Loftsson og Olafur Ag. Olafsson keppa um meistaratitilinn. Undanúrslit fóru fram í gær og fóru leikar þannig að Ólafur Loftsson vann Helga Jakobsson (6—4). Ólafur Ág. Ólafsson vann Ingólf Isebarn (9—8). Eru Helgi og Ingólfur hér með úr leik og er Ingólfur bú- inn að missa tækifærið til að vinna bikarinn til eignar að .sinni. Keppa þeir Ólafur Loftsson og Ólafur Ág. Ólafsson á morg- un um titilinn Golfmeistari tReykjavíkur og hefst keppnin ,kl. 2 e.h. Vallardómari verður Sigurjón Hallbjörnsson. 1. umferð í meistaraflokki Listi Framsóknar á Vestfjörðum. Frá fréttaritara Vísis. — ísafirði í morgun. Listi Framsóknarmanna í Vestfjarðarkjördæmi er þannig skipaður: Hermann Jónasson, Sigurvin Einarsson, Bjarni Guðbjörns- son, Halldór Kristjánsson Kirkjubóli, Þórður Hjaltason ‘Bolungarvk, Hafliði Ólafsson Ögri, Gunnlaugur Finnsson Hvilft, Önundarfirði, Jón Jóns- son Stóra-Fjarðarhrauni, Ól- afur Ólafsson kaupfélagsstjóri Króksfjarðamesi, Ragnar Ás- geirsson héraðslæknir fsafirði. Alls eru þrír Önfirðingar á list- aftum. lauk s.l. þriðjudag og fóru leik- ar þannig: Helgi Jakobsson vann Arnkel Guðmundsson (1—0). Ólafur Ág. Ólafsson vann Albert Guð- mundsson (4—2). Ólafur Lofts- son vann Jón Thorlacius (7—6. Ingólfur Isebarn vann Jóhann Guðmundsson (9—8). 1. flokkur: 1. umferð: Halldór Bjarnason vann Hall- dór Magnússon (6—5). Pétur Björnsson vann Geir Þórðarson (2—1). Guðlaugur Guðjónsson vann Jóhann Eyjólfsson (3—2. Úlfar Skæringsson vann Gunn- ar Þorleifsson (3—2). Undanúrslit: Halldór Bjarnason vann Guð- laug Guðjónsson (3—2). Úlf- ar Skæringsson vann Pétur Björnsson (3—2). Eru þá Halldór og Úlfar komnir í úrslit og keppa þeir einnig á morgun (36 holur). Kjötlausir dagar. Argentínar leggja nú alla á- herzlu á að auka útflimtning sinn af öllu tagi. Það er vitanlega fyrst og fremst kjötið, sem þeir reyna að flytja út í ríkara mæli, og til þess að auka útflutninginn á því hefur stjórnin bannað kjöt- neyslu tvo daga í viku hverri. : Þá á einnig að vera unnt að auka nautgripastofninn. Bréf Krústsjoffs var birt í gær. Krústsjoff, forsætisráðherra Rússlands, hefur látið birta efni bréfs hess, er hann sendi Ad- enauer kanzlara á dögunum. Segir í bréfinu, að hin bezta lausn á Þýzkalandsmálinu sé undirritun friðarsamninga. Þá segir enn fremur, að V.-Þjcð- verjar verði að gera sér ljóst, að þótt herstyrkur þeirra sé mik- ill, þá muni styrjöld einungis hafa í för með séi' tortímingu fyrir þjcðina. Þess gætir í bréfinu. að Krústsjoff finnst Adenauer leggja meira upp úr að afla sér nýtizku vopna, svo sem á eldflauga, en að vinna að sam- einingu Þýzkalands. Nýr bátur Steingrímur trölli. ísafirði í morgun. Drangsnes í Steingrímsfirði fœr bráðlega einn af hinum austur-þýzku togbátum. Heitir báturinn „Steingrímur trölli“, eftir landnámsmanni Stein- grímsfjarðar. Báturinn er um 70 rúmlestir og búinn öllum nýtízku tækj- um. Skipstjóri er Guðmundur Halldórsson frá Drangsnesi. Frá Drangsnesi hafa verið gerðir út stórir þilfarsbátar, en útgerð- in hefur gengið erfiðlega undan- farin ár. Hafnarframkvæmdir í Hólma- vík eru nú í fullum gangi. Verð- ur stálþil rekið niður framan við uppfyllingu, sem nú er ver- ið að gera. Hólmavíkurkirkja er í smíð- um. Ekki verður kirkjubygg- ingunni lokið í sumar, verið er að setja járn á þakið, og mun ekki verða gert meira í vetur. Einnig er verið að reisa félagsheimili á Hólmavík. Verk- ið hefur gtöðvazt í bráð. Tíðarfar í norðanverðri Strandasýslu hefur verið erfitt. Sjö ferðaskrifstofiímenn frá Sviss í heimsókn. Fara m. a. til Akureyrar, Mývatns, Þingvalia Gullfoss og Geysis. Hingað til lands komu í gær sjö svissneskir ferðaskrifstoíu- menn frá stærstu ferðaskrif- stofunum í Sviss svo og frá svissneska flugfélaginu Swissa- ir. Hópur þessi keraur hingað í boði Flugfélags íslands og nýt- ur ennfremur fyrirgreiðslu Ferðaskrifstofu ríkisins á með- an hér er staldrað. Mennirnir eru frá ferðaskrifstofunum Kuoni, American Express, Vac- on-Lits-Cooks, Hótel Plan Tour- ist Office, Danzas og Muller & Co, en ferðaskrifstofur þessar eru staðsettar í þrem stærstu borgum Svisslands, Zurich, Basel og Genf. í morgun fóru ferðaskrifstofu mennirnir til Þingvalla og snæddu þar hádegisverð. Um kl. hálf fimm í dag var ætlunin að þeir ræddu við fulltrúa ferða mála, veitingamenn og ■ gisti- húsaeigendur í Reykjavík í kjallara Þjóðleikhússins. Þar verður þeim ennfremur sýnd íslenzk landkynningarkvik- mynd. í fyrramálið fer hópurinn | flugleiðis til Akureyrar og j væntanlega þaðan í bíl áfrara j til Mývatns, en koma síðan með kvöldferðinni til Rvíkúr. Á sunnudaginn verður farið með þá austur að Gullfossi og Geysi en á mánudaginn halda þeir heimleiðis aftur. Áætlunin brást. Kínverska stjórnin hefur til- kynnt, að ekki muni lengur verða kept að því markmiði í framleiðslumálum þjóðarinnar, sem kunngerð hafi verið snemma á bessu ári. Ein aðalástæðan er sögð sú, að einn aðalgrundvöllurinn, sem upphaflega var byggt á, það er landbúnaðar fram- leiðslan ársins í fyrra, hafi reynzt um 50 af hundraði minni en í fyrstu var ætlað. Vegna þessi hafi fleiri verið komið til iðrtaðarstarfa en rétt hefði verið, þar á meðal bænd- um. Mun nú flesta þeirra verða komið til starfa í landbúnaðin- um á ný. Framleiðslunminnkunin mun einkum stangast á við áætlanir stjórnarinnar-hvað snerti gtál, kol og baðmull. Flestir Eyjabatar hættir síldveiðum. Frá fréttaritara Vísis. Vestm.eyjum í morgun. Flestir Vestmannaeyjabátar, sem verið hafa á síldveiðum i sumar eru komnir heim, en samt eru nokkrir ennþá að veið- tun fyrir Austurlandi. Fremur dauft er yfir öllu at- hafnalífi í Eyjum sem stendur. Sjómenn eru sem óðast að þurrka síldarnætur sínar og koma þeim í geymslu. Síðustu dagana hefur verið sæmilegur þurrkur í Eyjum og viðrað vel til að þurrka næturnar. Humarveiðarftar eru sem óð- ast að dragast saman, Tólf bát- ar eru þegar hættir veiðum, en alls hafa eitthvað milli 20 og 30 Vestmannaeyjabátar stundað þessar veiðar í sumar. Sumir bátanna eru farnir á ýsuveiðar með net. Tvær ferðlr F.í. á ntorgun. Ferðafélag íslands efnir til tveggja ferða á morgun, og eru enn nokkur sœti laus í þœr báðar. Önnur ferðin er í Þórsmörk, en hin norður á Kjalveg, það er til Hvítárness, Hveravalla og í Kerlingarfjöll, og verður lagt af stað í báðar fetrðirnar kl. 2 e. h. á morgun, en komið aftur á sunnudagskvöld. Um Þórsmörk skal þess sér- staklega getið, að hvað úr hverju tékur skógurinn á sig! haustliti, og þá klæðist Mörkin j sínu fegursta skrúði. Þár eri því aldrei fegurra en þegarj byrjar að hausta að. j Stífia brast — níu Sétu líflð. Stærsta stífla á Indlandi, við' Bhakra, um 260 km. frá N,- Dehli varð fyrir skakkaföllum nú fyrir síðustu helgi, er vegg- ur í göngum brast og níu menn drukknuðu. Stíflan hefur verið í smíðum undanfarið af indverskum verkamönnum og verkfræðing- um, undir aðalstjórn banda- rísks sérfræðings. Um 300 manns voru að vinna, er vegg- urinn brast. Ekki mun þó fleiri haaf sakað alvarlega, en að ofan er greint. Ætlunin er að stíflan verði 740 feta há og kosti fullgerð 130 milijónir sterlingspunda. Þeg- ar hefur stíflan náð 540 feta hæð. Nehru, forsætisráðherra, hafa verið send gögn um skemmdirnar, og sendi hann einn af ráðherrum sínum til að rannsaka með hverjum hætti slysið hefði orðið. USA sendir fé og vopn til Laos. Bandaríkjastjórn hefur nú sent stjórn Laos svar sitt við beiðni henar um vopna- og fjárhagsaðstoð vegna ófriðarins í landinu. Hafa Bandaríkjamenn fallizt á að senda nokkurt fé og létt vopn, og annan útbúnað, en taka fram að ekki verði nein þungavopn né hermenn, enda myndi slíkt brjóta í bága við samning þann er gerður var í Genf 1954. Ástandið í Laos er svipað og í gær, en stjórnarherinn mun hafa náð aftur á sitt vald smá- borg, um 18 mílur fyrir norðan Vientiane. Þá hafa verið sagðar nokkrar skærur í grennd við Luang Prabang. Hvergi fleiri morð. Morð eru tiltölulega hvergi fleiri en í Thailandi, segir í skýrslum frá Sþ. Á síðasta ári voru hvorki meira né minna en 2000 morð framin þar í landi. Er lögreglan of fáliðuð til að koma í veg fyr- ir hryðjuverkin, þar sem stjórn, arvöldin þora ekki að efla hana -— óttast að hún kunni að verðæ ofjarl sinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.