Vísir


Vísir - 16.09.1959, Qupperneq 11

Vísir - 16.09.1959, Qupperneq 11
Miðvikudaginn 16. september 1959 VlSIB 111 Næsta skákþing Norðurlanda verður háð á Islandi. Frammistaða ísl. skákmanna í Örebro vakti athygli. Að loknu skákþingi Norður- landa í Örebro, Svíþjóð, í s.l. mánuði, var haldinn stjórnar- fundur Norræna Skáksam- bandsins, og flutti þar forseti Skáksambands íslands, Ásgeir Þór Ásgeirsson fundinum boð S.f. um að næsta skákþing Norð urlanda verði haldið á íslandi 1961. Boðið var þegið og þing- haldið ákveðið seint í júlí það ár. Vísir hefur átt samtal við Ás- geir Þór, sem nýkominn er frá útlöndum og spurt hann frekari frétta úr skákheiminum. Hon- um segist svo frá: Á stjórnafundinum í Örebro var lögð fram tillaga sænska skáksambandsins um norræna sveitakeppni seniora og juni- ora, sem haldin skuli annað hvert ár. Þetta myndi óhjá- kvæmilega leiða til talsverðra útgjalda fyrir þátttökuþjóðirn- ar, og árgjöldin til Norræna skáksambandsins myndu verða um 2500 sænskar krónur vegna þessarar keppni. Fulltrúar Finn lands og íslands töldu nokkur vandkvæði á þátttöku sinna landa, aðallega af fjárhagsá- stæðum. Þó væru þeir ekki á móti hugmyndinni, en vildu nánari athugun. Nefnd fór til Norræna skáksambandsins, Folke Hogard, Gautaborg, Osló og Kaupmannahöfn, sem líkleg- ar borgir til að þreyta slíka keppni. Samþykkt var að halda aukastjórnarfund í jan. eða febrúar 1960, á sama tíma og sveitakeppni Finnlands, Sví- þjóðar og V.-Þýzkalands fer fram í sveitakeppni. Þar munu fulltrúar Svía leggja fram ýms- ar kostnaðartölur varðandi hugmynd þessa. Á fundinum lá frammi skjal undirritað af mörgum keppendum á mótinu um, að skákþing Norðurlanda sé háð á hverju ári. Folke Rogard lagði til, að stjórnirnar ræddu málið hver fyrir sig. Yrði horfið að þessu ráði, færi næsta skákþing Norðurlanda fram árið 1960. Rogard spurði mig, hvort ísland treysti sér til að halda þingið það ár, og taldi ég það líklegt. Eg verð að geta þess í leiðinni, að frammistaða íslendinga á mótinu í Örebro vakti mikla athygli, og í niður- lagi bréfs frá alþjóðaskáksam- bandinu, undirritað af varafor- setanum Helge Hindström, er farið lofssamlegum orðum um árangur hinna íslenzku skák- manna í Örebro. Ásgeir Þór segir að lokum, að leið missögn hafi komið fram í sumum dagblöðum hér varð- andi ráðningu aðstoðarmanns Friðriks Ólafssonar stórmeist- ara á áskorendamótið í Júgó- slavíu. Það er ekki fyrr en róð- urinn fer að þyngjast verulega á framabraut Friðriks, að hann hefur kosið sér aðstoðarmenn, og þá hefur hann eðlilega val- ið sér sjálfur. Hinsvegar hefur Friðrikssjóður séð um greiðslur til þessarra manna, en hann hefur senn starfað í fimm ár. Allt frá því er Stúdentaráð H.í. stofnaði Friðrikssjóð, hefur Skáksambandið ekki þurft að kosta eða sjá um utanfarir Frið- riks, nema hvað það hefur greitt alþjóðaskákkeppni-þátt- tökugjald hans í Wageningen, Portoroz og nú síðast í Júgóslav íu. Þá sótti Skáksambandið auð- vitað um alþjtða- og stórmeist- aranafnbætur honum til handa til Alþjóðaskáksambandsins, enda er S. f. meðlimur í því. Vafalaust mun mörgum finnast hyrnan illa hyrnt í fyrstu, en maður venst lögun hennar fljótlega. KóiFÁgeníseruð hyrnumjólk. Miklar framfarir í mjólkursölu. Svo sem getiS var í Vísi á mánudaginn, mun byrjað á því í dag að selja nýmjólk og rjóma í pappaumbúðum. Er liér fvrst og fremst um til- j raun að ræða, og hefur Mjólk-1 hver lítri. Mjólk og rjómi í ursamsalan fengíð leigðar þrjár I 1/4 tlr. stærðum verður á sama sænskar vélar til að fullgera verði og áður, en desilíti’i af umbúðirnar og fylla þær. Um-1 rjóma kostar 4 kr. Öll mjólk, búðastærðirnar verða fyrst um sinn fyrir heilan lítra, 1/4 og 1/10 úr iítra. Fyrst um sinn verði'' 'eins takmarkað magn af 1/. umbúðum, og fer það eftir aíitastagétu vélarinnar, en öll m.iólk og rjómi, sem áður var í i'i'iaflöskum, mun hér eft- ir aðeihs fást í pappaumbúðum. Þær flöskur verða keyptar aft- ur, og teknar úr umferð. Sú ný- breytni verður og, að rjómi raast i desilitrá umbúðum. Myndir Jakobs V. Hafsteins. Það er langt síðan að eg hefi lagt á hilluna að skrifa um ís- [ lenzkar listir. Þar hefi eg tiðum séð mér hæfari menn grípa til pennans, en stundum líka sorglega óhæfa, svo ekki sé meira sagt. Eg angraðist yfir því á sínum tíma, að skrifa ekki um listaverk Magnúsar sál. prófessors, eða Bjarna Guð- mundssonar í Höfn í Horna- firði, um hans ágætu lista- verkasýningu hér í hitteðfyrra, þar sem allt virðist vera heil- steypt og meitlað af sannri snilld. Bjarni var hér nýliði á sýningarsviðinu, þótt hann hefði málað í tugi ára. Lista- verk slíkra manna lifa og þeir með þeim. Og enn kemur einn nýliðinn fram á listaverkasviðinu ís- lenzka — sem betur fer. Það vissu allir, að Jakob Hafstein var þjóðkunnur söngv ari (M.A.-kvartettinn) og einnig nánustu kunningjar að hann er prýðilega skáldmælt- ur, en það vissu fáir, að hann væri snilldar listmálari. En nú hefir hann sjálfur sýnt það al- þjóð með sýningunni í listmál- araglugga Mbl. — Eg gæti talið þar upp af handahófi ým- is ágæt 1 istaverk, svo sem: Skessuhorn, Úr Andakíl, Kinn- arfjöll, Hrafnabjörg, Mýrdals- jökul, Víðidal á Hólsfjöllum, Herdísarvík, Grábrók, Skarðs- heiði, Baulu og Vestmannaeyj- ar, Þarna er hvert listaverkið öðru fegurra, blæbrigðaríkara og sviphreinna „í himinblám- ans fagurtærri lind“. Þarna sést Vegna þess hve þessar um- hvergi bjánalegt abstrakt- búðir eru dýrar — enda er að- norna leiðarljós. Hér er hreint eins hægt að nota þær einu til verks gengið af sönnum ís- sinni — hækkar mjólkurlítrinn lenzkum listmálara. í þessum umbúðum um 20 aura 1 ,,, Stulka sagði við mig um daginn þarna við sýningar- gluggann, að sér þætti of bjart yfir þessum myndum. Það er ekkert undarlegt, sagði ég. Það er svo bjart yfir höfundinum sjálfum. Jakob Hafstein er ekki neitt skuggans barn. Við kvöddumst með brosi. | Þessi sýning Jakobs Hafsteins er sannarlega vottur þess, að hér sé ekkj allt af göflum geng- ið. Eg sé ekki betur en óhætt sé að fullyrða, að hann hafi haslað sér fagran völl á sviði sem pakkað verður inn á þenn- an hátt, verður „hómógeniser- uð“, þ. e. a. s. komið ér í veg fyrir að rjómi setjist til, svo sem stundum hefur viljað bregða við. Jafnframt því að þessar um- búðir verða settar á markaðinn, verður opnuð mjólkurbúð við MiklubraUt, og verður þar ein- ungis á boðstólum þessi gerð , . . ... , . _ v. . , . ' , , i islenzkra kstamanna. !. umbúða, og fer afgreiðsla par-j öu teaim í k^wrbúftórförnU. | i Jxi- s* Vesturförin — Framh. af 1. síðu. arinar á ýmsum sviðum, og taldi mikilvægt að leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna ræddust við og ekkert ætti að vera því til hindrunar, aðþjóðir beggja landanna lifðu í góðri sambúð. Ekið til Blair House. Það varð fréttamönnum sér- stakt frásagnarefni, að frú Krúsév var óförðuð og dætur hennar, og segja þeir fram- J komu þeirra hafa verið látlausa i og alúðlega. Krúsév skýldi sér stundum fyrir septembersólinni i með Homburghatti sínum, og ' stóð berhöfðaður annað veifið meðan Eisenhower flutti ræðu sína. Ekið var til Blair House, gegnt Hvíta húsinu, en í Blair House búa jafnan opinberir gestir. Mannfjöldinn var svo þéttur, er dró að áfangastað, að Eisenhower varð að skipa fyrir að hægja ferðina. Þeir sátu í aftursæti opin- berrar bifreiðar. í gærkvöldi fór Eisenhower með Krúsév í flugferð yfir Washington og grennd og um kvöldið var opinber veizla haldin í Hvíta húsinu til heið- urs. Töluðu þeir þar báðir, for- setinn og Krúsév. Viðræður um heimsmálin. Forsetinn og Krúsév ræddust einnig við um heimsvandamál- in í vinsemd og af hreinskilni. Stóð sá fundur í nærri 2 kiukkustundir og var drepið á flest þeirra, að sögn frétta- manna. Eftir sumum þeirra var haft, að nú væri beðið með nokkurri óþreyju eftir því að í ljós kæmi, hvort sami þagnar-, alvöru- og forvitnisblærinn yrði á öllu meðan heimsókn Krúsév stendur eða menn færu að láta tilfinningar sínar i Ijós, glöðum og léttum huga, eins og tíðast á sér stað, er slíkar heimsóknir eiga sér stað. Aldrei borist á banaspjót. í ræðu þeirri, sem Krúsév flutti í veizlunni í Hvíta húsinu, sagði hann, að þjóðir Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna hefðu aldrei borist á bana- spjót, og aldrei myndi svo mikil deila rísa þeirra milli, að óleysanieg reyndist. Krúsév flytur ræðu á alls- herjarþinginu í New York á föstudag, og gerir þar grein fyrir afstöðu Sovétríkjanna til þeirra höfuðmála, sem rædd verða við hina almennu um- ræðu á allsherjarþinginu. Kom óvænt — Það kom mjög óvænt, er Rússar hættu í gær, að trufla útvarpssendingar Bandaríkja- manna til Austur-Evrópu, — og var það í fyrsta skipti í 10 ár, sem þeir gátu útvarpáð þangað truflunarlaust. Ákvörð- unin um að hætta truflunum er að sjálfsögðu tengd heim- sókn Krúsévs. Ilöfuðefni blaoa. Koma Krúsévs er að sjálf- sögðu höfuðefni heimsblaða og kemur mjög fram í fyrirsögn- um blaðanna í morgun hve þögull mannfjöldin var, sem var viðstaddur komuna. í einu brezka blaðinu, Newcastle 1 Journal, kemur fram sú skoð- un, sem víðar, að það sé vel, að allt fór kyrrlátlega fram, þvi að enginn ávinningur væri að því á nokkurn hátt, ef andúð væri látin í ljós eða fjandskap- ur. — Jón Engilberts — Frh. af bls. 12: meraterne hafa haldið til þessa, en þar er Jón Engilberts einn íslendinga meðlimur og hefur verið það frá því á öðru starfs- ári félagsins. Þetta verður yf« irlitssýning þar sem hverjum meðlim félagsins er gefið all- gott veggrými til að sýna úr- val þess helzta og bezta, sem l'.ann hefur gert á þessum 25 ár- um. Jón Engiiberts sýnir þar samtals 13 málverk og þ. á m. myndina ísland, sem mun vera langstærsta mynd sem nokkru sinni hefur verið sýnd á vegum þessa félagsskapar. Að öðru leyti sýnir hann ýmsar mynáir, sem hann telur í röð sinna beztu, allt frá því á árinu 1935 og til dagsins í dag. Meðal þeirra eru tvær myndir úr eigu Listasafns ríkisins og enn frem- ur frumdrög að mynd, sem upp- haflega var ætlað að kæmi í skemmtihúsið Lido í Reykjavík og átti að verða enn stærri en táknmynd hans „fsland“. Sýning Kammeraterne í haust verður vafalaust mikill listvið- burður í Khöfn því meðal með- lima félagsins eru ýmsir kunn- ir listmálarar og myndhöggv- arar Danmerkur. Sýningunni lýkur um mánaðamótin nóvem ber og desember og að því búnu og þegar listaverk Jóns koma aftur heim til íslands verður ,,ísland“ sett upp í fundarsal bæjarstjórnar Reykjavíkur við Skúlatún. Þess má að lokum geta í sam- bandi við afmælis- og yfirlits- sýningu Kammeraterne í haust, að gefin verður út listaverká- bók með úrvali af listaverkum þeirra og greinum um hvern einn. M. a. verður þar grein um Jón Engilberts og list hans á- samt myndum af verkum hans. Nylon Innkaupapokar mjög hentugir fyrir nýju mjókurumbúðirnar fyrirliggjandi. Lárus Ingimarsson Heildverzhin Sími 16205.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.