Vísir - 08.10.1959, Page 3

Vísir - 08.10.1959, Page 3
3 Fimmtudaginn 8. október 1959 VÍSIB Þeir skiptust stöðugt á um að mennta mig. Einn daginn mæddi það mest á Stuart Boone. Hann ók mér út í pípu- verksmiðjuna sína og kynnti mig fyrir forstjóra hennar, sem er tengdafaðir hans. Þeir kalla fyrirtækið „Henkle & Com- pany“. Það er þeirra fjöl- skyldufyrirtæki og gefur þeim ' góðan arð. „We cover the water front“ er auglýsingaslagorð þeirra og eg býst við að það standi undir sér. Vatnsveitu- kerfin frá Henkle vökva akra Kansassléttunnar og grasvelli skemmtigarðanna þar. Boone er hógvær maður í fasi og trúhneigður. Honum þótti það Ijóður á ferðaáætlun minni að eg skyldi flesta sunnudaga ^urfa að vera á ferð í stað þess að sitja um kyrrt og ganga til guðsþjónustu í kirkju. Hann er methodisti og sóknarnefndar- formaður safnaðarins, enda leiddi hann mig í kirkju sína, sem er nýtt hús og afar vandað og tekur 900 manns í sæti; áfast kirkjunni er félagsheim- ili safnaðarins með skólastof- um, fundarsölum, veitingastofu og fleiri ágætum vistarverum. Söfnuðurinn hefir sjálfur reist kirkjuna og félagsheimilið án nokkurs stuðnings bæjarfélags eða ríkis, og er að vonum bæði glaður og stoltur af verki sínu. Eg hitti prestinn sem snöggv- ast að máli í skrifstofu kirkj- unnar, en nú átti hann að fara að jarða látið. sóknarbarn, svo okkar viðræða gat ekki orðið löng. Mér fannst hann afar geð- felldur maður, enda gersam- lega laus við þess konar „em- bættissvip“ sem sumum guðs- mönnum er gjarnt til að setja upp andspænis fólki. Þar á eftir fylgdi Boone mér á fund skólastjóra gagnfræða- skólans í borginni. Hann var doktor. í heimspeki og sálar- fræði, rösklegur mafiur og raddsterkur, og sýndi mér stórlega vandaða skólabygg- ingu sína og fullkomin kennslutæki, en nemendur voru nú allir komnir í sumarfrí og kennaraliðið á brott, utan yfir- kennarinn, sem gekk með okk- ur um húsið og rökræddi með okkur skólamálin. Viðhorf þeirra og vandamál voru öll hin sömu og starfbræðra þeirra á íslandi. Að minnsta kosti fann eg lítinn sem engan mun þar á. Og enn vík eg að vini mínum, Stuart Boone, sem eg held að sé betri maður en fólk er flest. Hann var í 1. her Bandaríkj- anna í stríðinu og löngum í eldlínunni. Innrásarmaður á margri strönd bar þessi vinur guðs og manna vopn á bróður sinn erlendan. í Ardennafjöll- um mætti hann hinu mikla á- hlaupi Þjóðverja undir lok stríðsins. Af herdeild Bonnes komust undan einir ellefu menn og var hann sjálfur einn af þeim, hinir voru teknir til fanga eða felldir. Eg spurði Boone hvernig hann hefði farið að því að sleppa. „Bara með því að brúka heil- ann dálítið“, svaraðd hann og brosti, og svo teiknaði hann á blað vígvöllinn og útskýrði fyrir mér herbragðið sem bjargaði honum. En hann var allt of yfirlætislaus maður til að hæla sér af einu eða öðru, eg togaði þetta út úr honum með lempni og mörgum spurn- ingum. Það er einskonar erfisdrykkja hins frjálsa lífs, sem hann hefir lifað til þessa, en hlýtur nú að afsala sér. Nú var röðin komin að Robert Rea Long. j Scott kom á tilsettum tíma og Long var með honum í bílnum, eg sá, að þeir höfðu báðir skipt um föt, það var eins og þeir hefðu búið sig út á engjar og ætluðu að liggja frá. Þeir keyptu í búð stóran haug af hráu nautakjöti og bjórdós- ir svo margar, að mér virtist að seint mundi þrjóta drykkur- inn þó ósleitilega væri teygað- ur. Þar eftir óku þeir í skúr einn í borgarjaðri og drógu út ,þaðan hraðbát á hjólasleða, Guftmundur Daníeisson: Frá tilraunastöðinni í Garðaborg. Trén til vinstri á myndinni hafa verið vökvuð, en trén til hægri ekki. — (Sjá fyrri grein). skiptanna. Vindur var allhvass ' fara í. En hvort sem það var nú fínu klæða eða ekki sundfimi af útsuðri og fluttu bátarnir vegna *minna kerlingar á ölduhryggjum, svo þeir treystu sá undir gervallan kjöl þeirra með köflum. Þeir gerðu mig GESTUR í Seinni hluti. Heim kominn á Warren hótel náði Jesse Scot í mig og spurði mig hvort eg vildi heldur sitja bæjarstjórnarfund upp í ráð- húsi í kvöld eða taka þátt í einskonar brúðkaupsveizlu úti í sveit, þar sem yrði drúkkinn bjór og etin stelk og Önnur á- móta skemmtan framin. Eg svaraði og sagðist mest hissa á að hann skyldi yfirleitt leggja fyrir mig slíka spurningu, en hann veltist um af hlátri og sagðist sækja mig klukkan sex. Allt í einu setti hann upp al- vörusvip og tók að virða mig fyrir sér. „Heyrðu, Guðmundur,“ sagði hann, „áttu ekki einhver gömul og vond föt að fara í, þetta verður sko engin venju- leg brúðkaupsveizla í rauðum pluss-sófa. Við förum út að vatninu McKenney og það get- ur skeð að það slettist á þig dropi úr því.“ „Nei, eg á ekki verri föt en þetta.. Þið setjið mig bara í hreinsun á eftir, ef þið skítið mig út,“ sagði eg, og með það fór Jesse Scott. Sá er siður í Garðaborg, að þegar einhver hyggst ganga í hjónaband þá halda vinir hans honum veizlu á afviknum stað. tengdu sleðann við bílinn og þröngvuðu mér þó fyrst í óku enn, þessu sinni í húshorn björgunarvesti, hversu mjög nokkurt afskekkt, en þar voru sem ég mótmaelti og hélt fram J þá fyrir tíu eða tólf menn víga. ' sundleikni niinni, hefði til legir, þeirra á meðal yfirlög- dæmis synt 1 Rio Grande og regluþjónn Garðaborgar, mist- hvorki skeytt um landamæra- er Geisler, að vísu ekki í em-. lögreglu, slöngur né krókódíla. ■ ■ 'minni, þá létu þeir mig sitja kyrran að eldi og söng, en tóku þess í stað hinn verðandi brúð- guma, Robert Rea Long, og vörpuðu honum í vatnið, kjöl- drógu hann. Þeir tóku og yfir- lögregluþjón Garðaborgar, Mister M. Geisler, og vörpuðu honum í vatnið McKenney, tvisvar eða þrisvar, svo enginn þráður var þurr á hans mikla líkama þegar hann birtist í eldskininu litlu fyrir miðnætti og rak upp sitt indíánaheróp. Guð blessi Mister Geisler. Við ókum heim á næturþeli og vorum allir heima fyrir óttu, ölmóðir nokkuð en eigi sárir, og manntjón ekkért í þessu hófí, sem gert var til Iheiðurs Róberti Long úti í villta vestrinu. Síðasta daginn sem ég dvaldi (í Garðaborg, laugardaginn 6. júní, og Róbert Long ekinn til (Wichita í faðm sinnar fögru brúðar, þá auðnaðist mér fyr- ir milligöngu Stuarts Boone að (hitta að máli sagnfræðinginn jRalph T. Kersey og Ijóðskáldið Edward E. Bill, sem báðir eru búsettir í Garðaborg, rosknir að árum. Sagnfræðingurinn gaf Kornlilaða samvinnubænda í Garðaborg. Stærsta kornhlaða heims, sem tekur við lcorninu beint frá bændum, milliliðalaust. Sundlaugin mikla í Garðaborg. Stærsta útisundlaug í heimi. bættisskrúða. Þarna upphófst nú hinn líflegasti inngangur að hátíð vorri í óbyggðum, mjöður og vín á hvers manns borðum, eða öllu heldur í hvers manns hönd, því vér fórum að engum borðsiðum, en rákumst um húsið með inndíánaherópum, söngvísum og öðrum háværum glym. ! Þar til The Chief of po- lice sagði að mál væri að róa á fjarlægari mið. Hlupu menn þá í farartæki sín og stýrðu í vestur um merkur og akra og léttu ekki þeirri ferð fyrr en þrjátíu mílur voru að baki og við okkur hló vatnið McKen- ( ney ráuðglóandi undir sólar*! lagið. Nú fékk einn og sérhver okkar nokkuð að starfa. Sumir gerðu viðarkolaeld á járnafli( og hófu að steikja vísundakjöt á teinum, aðrir settu hraðbáta ofan til vatnsins, gengu um1 borð og byrjuðu æsilegar kapp-t siglingar í hálfbirtu ljósa- „Þú gerir eins og við segjum að háseta sínum um skeið og þér,“ þrumaði Jesse Scott og rak uppp indíánaheróp svo geigvænlegt að hrollur fór um mig, en krákur og svölur flugu felmtri slegnar úr nálægum trjákrónum og leituðu sér ör- uggara náttbóls. Eftir hálfa stund settu þeir mig aftur á land og runnu þá margir á steikarilminn frá jaðri skógar- ins. Eftir tröllslegt steikarátið og sambærilega bjórdrykkju settust þeir spaklátari um- hverfis viðarbál sem tendrað hafði verið og upphófu sönglist dægilega um fagrar konur, tunglsljós og „The old Kent- ucky Home“ liðinnar æsku „far away“, en aðrir samlöguð- ust villta vestrinu og tóku að varpa hver öðrum í vatnið McKenney. Fékk ég þá fyrst réttan skilning á, hví þeir höfðu spurt mig fyrr á dægri hvort ég ætti ekki vond föt til að mér bók sína um Vísunda Jón- |as (Buffalo Jones), skemmti- (lega ritaða ævisögu eins af mestu mönnum Kansas- jríkis, fæddur 1844, dáinn 1919. ,Bill gaf mér ljóðabók sína, , Vingjarnlega drekann (The friendly Dragon), sem inni- heldur barnaljóð. Báðir höfðu þeir mikinn áhuga fyrir stjórn- málum og trúarbrögðum og leiddu dálítið saman hesta 1 sína, gömlu snillingarnir. Bill var íhaldssamur, en Kersey róttækur, og þó einkum og sér- ílagi eftir að Bill, sem var tímabundinn, hafði kvatt og skilið okkur eina eftir í stof- unni. I „Þeir eru vanir að kalla mig kommúnista og skipa mér að ! fara til Rússlands,“ sagði hann og glotti við tönn. „En ég er enginn kommúnisti þó mér finnist ýmislegt rista grunnt í uppeldisaðferðum okkar og menningu og ég leyfi mér stundum að láta það í ljós. Mér finnst til dæmis full mikið at trúa á þrjá guði, föður, son og heilagan anda — og djöfulinn þann fjórða. Ég held það sé bara einn mikill guð til, og ekki endilega nauðsynlegt að vita mikið um hann, hitt skipt- ir meira máli, að leita hans. Æ, mér leiðist öll þessi smá- guða- og hjáguðadýrkun fólks, og þessi hrokafulla heimska, Framh. á bls. 9.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.