Vísir - 08.10.1959, Síða 6

Vísir - 08.10.1959, Síða 6
FfSl * TÍSIJR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskriístofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kcstar kr. 25.00 í áskrift á mánuði, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Síðgæii til fyrirmyndar. Það er greinilegt, að samkomu- lagið hefir verið með alveg sérstökum hætti innan hús- næðismálastjórnarinnar, að því er snertir fulltrúa Fram- sóknarmanna og kommún- , ista þar. Mun víst alveg ó- hætt að slá því föstu, að allir „beztu kostir“ í fari manna í þessum tveim flokkum hafi fengið að njóta sín alveg ein- staklega vel innan þessarar mikilvægu stofnunar. Víst eru þær líka fróðlegar og skemmtiiegar lýsingarnar, sem þessir valinkunnu sæmdarmenn í húsnæðis- málastjórninni gefa nú hver af öðrum, þegar upp hefir komizt um enn eitt hneyksl- ið í sambandi við vinstri stjórnina. Það hneyksli er mjög eftir öðru, sem uppvíst hefir orð- ið í sambandi við vinstri stjórnina. Eitt helzta verk- efni hennar var að hleypa sem flestum stuðningsmönn- um sínum að kjötkötlum ríkisins, búa til ný embætti handa gæðingum eða reka menn frá störfum, sem þeir höfðu gegnt aðfinnslulaust eða jafnvel með prýði, til að geta hlaðið undir sína menn. Þótt vinstri stjórnin sviki öll sín loforð vel og dyggilega, sveik hún ekki það loforð, sem minnst var talað um opinberlega. Það íoforð var að koma sem flestum sinna manna á ríkisjötuna, því að það er eitur í þeirra beinum að þurfa að keppa við venju- legt fólk á frjálsum vinnu- markaði. Framsóknarhetjan í þessu máli, Hannes Pálsson frá Undir- felli, fer ekki dult með, að hann hafi stundað skoðana- njósnir. Honum kemur ekki til hugar að mótmæla því. Sennilega er það af því, að hann telur njósnir um skoð- anir manna svo sjálfsagðar. Það er mjög eðlilegt um . Framsóknarmann. Hann segist að vísu ekki hafa ver- ið að forvitnast um stjórn- málaskoðanir manna, en samt taldi hann enga menn hæfa til þessa trúnaðarstarfs nema hreinræktaða Fram- sóknarmenn. Og til þess að fara ekki mannavillt, fékk hann sjálfan erindreka Framsóknarflokksins til að velja spæjarana fyrir sig. Skyldi vera hægt að hugsa sér öllu gleggri og raunsannari mynd af siðgæði og hugsun- arhætti Framsóknai’manna en hún hefir birzt í þessu máli, hegðun Hannesar og félaga hans úr kommúnista- flokknum fyrst og síðan vörn Hannesar, þegar allt hefir komizt upp? Það er vafa- samt. Og það mega menn vita, að hvar sem Fram- sóknarmenn hafa aðstöðu til, beita þeir sams-kon- ar aðferðum. Þeir eru sífellt njósnandi, til þess að að- gæta hvort óverðugur sé í hóp þeirra, sem eiga undir högg að sækja hjá þeim. Sparifjársöfflun skólabarna hefir staðið í 5 ár. Mteilétawsöfnnu* á 5 árutn náitetji 3 ni ittjj- hróna- ÞaS eru nú 5 ár liðin frá bví er Sparifjársöfnun skólabarna tók til starfa. Umsjón þessa starfs og túlkun hefur annast að mestu frá upphafi Snorri Sigfússon fyrrv. skólastjóri. — í tilefni afmælisins ávarpaði hann skólamenn og fréttamenn í gær og gerði þeim grein fyrir starfinu. Starfið var hafið að frum- kvæði Landsbanka íslands í samráði við yfirstjórn fræðslu- málanna og kennarasamtak- anna. Mark frá upphafi var eð gæða ráðdeild með fjármuni meðal uppvaxandi æskufólks. í byrjun gaf Landsbankinn hverju barni í landinu 7—13 Hvort er betra? En vitanlega leitar ein spui'n- ing á menn í þessu sam- bandi: Eru nú kommúnistar, vinir og samstai’fsmenn Hannesar um langt skeið, hótinu betri en hann? Hafa þeir sýnt eitthvað af sér í þessu máli, er gerir almenn- ingi kleift að gefa þeim betri einkunn, þegar ætlunin er að gera upp á milli þeirra, hvað afrekin snertir á sviði siðgæðisins? Það er óhætt um það, að al- menningur mun líta svo á, að þarna eigist við þeir tveir aðilar í þessu þjóðfélagi, sem einir geta orðið aðilar að slíku máli. Til þess að menn . geti gei’zt upphafsmenn að skoðananjósnum eins og þeim, sem Hannes Pálsson hefir orðið uppvís að, þarf sérstakt siðgæði, sem er — sem betur fer — lítt þekkt hér á landi. Á hinn þó"inn þarf líka alveg séi'stakt sið- gæði til að byrja á að stela bréfi frá samstai'fsmanni sínurn og birta það síðan eins og ekkert sé. Svo er líka fyrir að þakka, að það siðgæði, sem er skilyrði til slíkrar hegðunai’, er einnig sjaldgæft hér á landi. Það er erfitt að gera upp á milli þeirra, sem hér eru að glíma. Báðir standa afhjúp- aðir frammi fyrir þóðinni, og það er vonandi, að hún gi'æði á þessu að því leyti, að hún viti betur deili á flokkum þeirra manna, sem eru helztu aðilar málsins, eftir en áður. En læri fs- lendingar ekkert á þessu og verði þetta ekki til að bæta siðgæði í opinberu lífi hér á landi, þá er örvænt um, að siðábót megi nokkru sinni verða hér. Nú er aðeins röskur hálfur mán uður, þar til gengið verður til kosninga. Þann tíma nota 60 ára: i | Magnús Símonarson ! hreppstjóri í Grímsey. I Sextugur er í dag Magnús ^ Símonarson hreppstjóri í Grims- ey. Magnús fæddist 8. okt. 1899 að Sauðakoti á Upsaströnd og ólst upp við sjómennsku og bú- 'skap. Árið 1920 fluttist hann til .Gi’ímseyjar og hefur átt þar Jheima síðan. Árið 1922 kvænt- (ist hann Siggei’ði Bjarnadóttur frá Þönglabakka í Þorgeirsfirði j og hafa þau eignazt 7 börn. I Fimm þeirra eru enn á lífi, öll hin mannvænlegustu. Eftir að Magnús fluttist til Grímseyjar stundaði hann bæðil sjó- og landvinnu, en brátt hlóðust á hann ýmis opinber störf í eynni, því hann var bæði stai’fshæfur í bezta lagi, sam- vizkusamur og trúr. Hann varð hreppstjóri 1940 og verið það síðan. Einnig í mörg ár oddviti hi’eppsins, vitavörður frá 1947,! auk fjölmargra annarra trún-| aðarstarfa sem hann hefur ann- ast fyrir sveit sína. Hann hefur mjög látið til sín taka málefni kirkjunnar, vei’ið í sóknarnefndj í 20 ár og formaður hennar í 12 ár. Auk búskapar og sjómennsku hefur Magnús s.l. 2 ár haft I talsverða síldarsöltun í eynni á ! sumi’in eða strax og sæmileg að 'staða skapaðist þar með hafn- argerðinni. Hefur sú framtaks- semi Magnúsar átt sinn þátt í því að þar er oftast nóg að starfa fyrir íbúana. Magnús er góður drengur sem öllum þykir vænt um og bera vii’ðingu fyrir sem honum kynnast. Á. B. menn væntanlega til að vega og meta kosti og galla flokk- ^ anna. Vonandi gleyma menn ekki framlögum þeii-ra, sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni. ÞaðJ væri hættulegur misskiln- ingur, ef almenningur gerðij sér ekki grein fyrir því, að sjaldan hafa þessir tveirj flokkar brugðið upp eins sannri mynd af hvor öðrum og í þessari deilu. > ára 10 kr., er leggjast skyldu inn í sparisjóðsbók — og síðan hverju 7 ára barni í sparisjóðs- bók í þeirri innlánsstofnun, sem hver og einn velur sér. Þetta framlag skyldi vera upp- örvun til sparnaðar, hvöt til þess að gæta fengins fjár. Sparimerkjasala hefur farið fram á þessu tímabili í öllum barnaskólum kaupstaðanna og flestra kauptúna og sumra sveita, samtals s.l. vetur í 65 skólum, sem hafa samtals á 16. þús. nemendur. Á þessu ári hafa sparimei’ki verið afgreidd til umboðsmanna fyrir nál. 825 þús. Og alls á 5 árum fyrir ná- lega 5 millj. króna. Mun heild- arsöfnun vera nálægt þeirri upphæð. Samkvæmt ákvörðun Seðlabankans 1957 eiga börnin þess kost að vísitölutryggja sparifé sitt. Verður það vænt- anlega til að glæða en nsparnað arvilja barnanna. Vísitölubók geta sjö ára börn eignast á hvei’ju hausti með 10 kr. gjöf bankans. Höfuðmai’k starfseminnar er uppeldislegs eðlis. Mark allrar sparnaðarviðleitni á að vera ráðdeild með fjármuni og þann skilning þarf að glæða snemma með börnunum. Mikið er unnið í þessa átt á Noi’ðurlöndum og víðar. Þjóð- bankinn hefur frá upphafi talið, að hér væri um markvert upp- eldismál að ræða, er að bæri að vinna hér sem annarsstaðar, og því varið til starfseminnar all- miklu fé. Nánara verður vikið að þess- ari merku starfsemi hér í blað- inu síðar. Málverkasýning Jóns B. Jónssonar opnuó a5 Freyjugötu 41. Málverkasýningu opnar Jón B. Jónsson í kvöld í Sýningar- salnum Freyjugötu 41 og sýnir þar 19 olíumyndir. Myndirnar eru allar það, sem flestir kalla abstrakt, en er víst sanni nær að kalla „konkret“ og nánar tiltekið geometrískar myndir, einkum þær nýjustu, en myndirnar eru málaðar síð- ustu tvö árin, eða síðan Jón sýndi síðast í Sýningarsalnum við Hverfisgötu. Annars hefur Jón tekið þátt í mörgum sam- sýningum undanfarin ár og myndir hans verið til sýnis í Málaraglugganum við Banka- stræti og Morgunblaðsgluggan- um við Aðalstræti. Jón var einn af stofnendum Myndlistarskól- ans í Reykjavík. Sýningin verður opin boðs- gestum kl. 20.30—23 í kvöld, en almenningi á morgun, og verður hún opin til 18. þ. m., virka daga kl. 17—22, en sunnu daga kl. 14—22. - m —— Frá Damaskus, Sýrlandi, berast fregnir um kröfu- göngur, sem menn fóru í til þess að mótmæla því, að 13 menn voru teknir af lífi í Irak fyrir þátttöku í Mosul- byltingunni. Fimmtudaginn 8. október 1959 111 " 1 •! jl .1 I I II II I I . I 'JI-' M Frá formanni Reykjavíkur- deildar BFÖ hefur Bergmáli bor- izt eftii’farandi bréf: Vegakort og umferðarmál. Nýlega sendi Reykjavikurdeild Bindindisfélags ökumanna bréf til vegamálastjóra, þar sem ósk- að er eftir því að gefin verði út vegakort af akvegakerfi landsins, | og að kortin komi framvegis út á fimm ára fresti, með breyting- um og ástandi akvega með tilliti til bilaumferðar. Kortin þurfa að vera í ekki minni mælikvarða en I 1:500 þús. og á fjórum kortblöð- | um. Alla tækni og prentvinnu er hagkvæmast og ódýrast að gera í landinu sjálfu, en hér eru full- komnustu tæki sem völ er á til stórvirkrar kortagerðar úr lofti og verð sambærilegt við erlend kortafyi’irtæki. Erlendis sjá t.d. olíu- eða hjólbarðafyi’irtæki sér hag í að gefa út vegakort með merktum tank og viðgerðarstöðv- um. Fyrir ókunnuga hafa það ver- ið bein vandræði að komast leið- ar sinnar um landið vegna skorts á fullnægjandi og ái’eiðanlegum vegakortum og þaif að ráða bót á þessu hið fyrsta. j Einnig var sent bréf frá B.F.Ö. til umferðaryfir-valdanna, þar sem lagt er til að gula biðljósið ! á götuljósunum sé látið loga ca. 10 sekúndum lengur, svo fólk . hafi tima til að komast yfir göt- una en grænt Ijós fyrir ak- ! andi og gangandi kviknar jafn snemma eins og er. I Sennilega mætti taka fyrir svo til allan drykkjuakstur í Rvík á stuttum tíma, með því að lögregl- an vakti dansstaði og vínveitinga- hús í nokki’ar vikur af og til og athugi ástand þeirra sem þaðan aka. | Stefnuljósanotkun. 1 8 mánuði befur Reykjavíkur- deild B.F.Ö. haldið uppi skipu- legum áróðri fyrir stefnuljósa- notkun og að lögreglan taki upp ákveðnari stefnu í umferðar- málum gegn slysum, m. a. með því að taka upp staðsektir j í ákveðinn tíma á ári, sept. , okt., J og nóvember, þegar skammdegið og illviðrin eru að síga að og slysfjöldinn nær hámarki eins og hin vikulegu stórslys sýna. Stað- sektir eru leiðinlegar en hafa þann kost að þær bitna á þeim sem eiga þær skilið. Staðsektir eru eina leiðin til að hemja og útkljá smá umfei’ðai’brot og til að ná til einstakra bílstjóra sem engum sönsum vilja taka.en verð- andi umferðarmenning er sam- vinna og löghlýðni akandi cg gangandi manna. i Bindindisfélag öökumanna er alþjóðlegur bilklúbbur og félag áhugamanna um umferðarmál og vinnur að bættri og öruggari umfei’ð á öllum sviðum. Viggó Oddsson. Austurbæjarbíó sýndi í gæi’kvöldi í fyrsta sinn kvikmyndina „Sing, baby, sing“, en það er þýzk söngva- og dansmynd með Caterina Valente, Peter Ai- exander og Rudolf Platte í aðalhlutverkum. Kvkimynd- in er einhver albezta mynd af þessu tagi, sem hér hefir nokkurn tíma verið sýnd„ vel gerð og leikin, fjörleg og fyndin, frá upphafi til enda, alltaf líf og fjör. söngur, gleði og gaman. Húsfyllir var og var auðfundið, að mvndin féll mönnum stórveJ í geð. —1.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.