Vísir - 09.10.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 09.10.1959, Blaðsíða 1
49. ár. Föstudaginn 9. október 1959 222. tbl. 12 síður Vffit'nið brnut sér leið gegnum varnðrgarðana s nótt. Vatn braut sér leið gegnum varnargarðana á Mýrdalssandi á nýjan leik í nótt og er leiðin vfir sandinn öllum bifreiðum ófær. Eins og frá var skýrt í Vípi í gær hafa verið stórfelldar íigningar austur þar að undan- förnu og vatnsmagnið á sand- ínum aldrei verið meira en ein- mitt síðustu dagana. Búið var l"á fyrir nokkru að fylla upp í skörðin sem vatnið braut í varnargarðana í sumar og gerðu menn sér orðið voriir um að ekki kæmi til frekari trufl- i ana þar í ár. Var búizt við að draga myndi úr vatnavöxtum þegar svo langt væri liðið á naustið, jafnframt því sem vegamálastjórnin bjóst við að geta veitt vatninu áður en lang- ir tímar liðu í Blautukvislar- farveginn og undir nýju brúna sem þar Var byggð í sumar. En þessi von brást. Undan- Grívas og Makarios ræðast við. Grivas ofursti og Makarios erkibiskup héldu 1. fund sinn á eynni Rhodos í gær. Stóð hann í 5 klst. Tilkynntu þeir, að þeir hefðu útkljáð öll persónuleg misklíð- arefni, sem komið hefði til sög- unnar, af völdum þriðja aðila. — • Fíeiri ítalir til Ástra-lu. Ástralía ætlar nú að leyfa fleiri innflytjendur frá Ítalíu á næsta ári en nú. í ár flytjast 3000 ítalir til Astralíu, á næsta ári 4500. farna daga má heita að látlaus stórrigning hafi verið þar eystra cg auk þess mjög hlýtt í verði, þannig að mikil leys- ing hefur verið á jöklinum. í fyrradag skýrði vegamálastjóri Vísi frá því að vatnið á sand- inum hafi aldrei verið meir en þá. í fyrradag var nokkur upp- stytta í bili, en ný lægð á leið- inni og spáði veðurstofan bæði roki og rigningu, er skall á í gær. Ottast var þá að varnar- garðarnir á sandinum þyldi ekki vatnsþurigann og . fór vegamálastjóri austur til að kanna aðstæður. í morgun barst tilkynning frá vegamálastjóra þess efnis að vatnsþunginn hafi brotið sér leið í gegnum veginn og að hann væri algerlega ófær. Ekki var þá búið að kanna hve miklar skemmdirnar höfðu crðið. Síðustu fréttir. Laust fyrir hádegið í dag barst fregn frá vegamálastjóra um það að vatnið hafi brotið skarð vestast í varnargarðinn. Var vatnið byrjað að falla vestur í Blautakvíslarbotna og renna undir brúna, en hafði nú grafið sig í gegnum fyllinguna við brúarendann. Vegamálastjóri skýrði svo frá að vatnsflóðið á sandinum hafi verið gífurlegt. Og sem dæmi um það má benda á að vatnið í Hólmsá sem er austan við sandinn, náði þar alla leið upp á brúargólfið, sem varla eru dæmi til nema í Kötlu- hlaupum. Og hjá Skálm á miðj- um Mýdralssandi flæddi vatnið fyrir endann á brúnni og yfir veginn. Stormar tefja dýpkun rennunnar í Grindavík. Greftir vann ekki á klöppinni. Grindavík í morgun. Látlausir stormar hafa tafið tdýpkunarskipið Gretti, sem er | að dýpka og breikka innsigl- ( ingima til Grindavíkur. Undan-^ farið hefur ekki verið hægt að ^ halda áfram verkinu nema stutta stund í einu vegna ó- veðurs. Grettir er nú kominn inn fyr- ir klöppina í sundinu. Ætlunin var að komast undir klöppina og rífa hana upp með skóflun- um, en þegar til kom unnu þær ékki á henni svo dýpið verður það sama á klöppinni og áður var, eða um 11 fet á meðal stórstraumsfjöru. Mikil bót hefur verið að verki Grettis í sumar því nú er inn- siglingin orðin 40 metra breið í stað 25. Eykur það mjög á ör- yggi við innsiglingu til Grinda- víkur, því þar mátti ekkert út af bera ef ókyrrt var í sjó. Eft- ir er að breikka innsiglinguna innst. Er þar betri aðstaða fyr- ir skipið að athafna sig, þótt eitthvað sé að veðri, en ef þessi veðrahamur helzt, er það erfið- leikum bundið að koma upp- greftinum út úr höfninnL I . 12 síður Myndin er frá Japan, í bæ þar sem margir lét i lííið af völdum fellibylsins, og þarf hér engin orð til frekari skýringar. Ihaldsfiokkurinn sigraði í hrezku þingkosningunum. Fær yfir 100 atkvæða meirihluta á Þingi. Fylgisaukning Frjálslynda flokksins vekur sérstaka athygli. /haldsflokkurinn brezki vann mikinn sigur í þingkosning- unum, sem fram fóru þar í landi í gær. Er talið víst, að hann fái yfir 100 atkvæði meirihluta á þingi, og er það viðurkennt af leiðtogum Verkalýðsflokksins. Sérkenni á kosningunom er einnig, Frjálslyndi flokkurinn hefur aukið mjög verulega fylgi sitt, en Verkamannaflokkurinn vann óvíða verulega á, nema í Lancashire og á Skotlandi eða í bæjum og borgum, þar sem atvinnuástand er slæmt. Flokkarnir höfðu fengið þing- sæti sem hér segir kl. 4 í nótt en þá var talningu frestað, og hófst hún aftur kl. 9: íhaldsfl. og samherjar 205 Verkamannaflokkurinn 180 Frjálslyndi flokkurinn 3 Kommúnistaflokkurinn 0 Þannig var kunnugt um úr- slit í 388 kjördæmum, en ókunn ugt um úrslit í 242. í dag verður talið í sveitakjördæmunum, en það er sem kunnugt er í bæjun-( um. sem Verkamannaflokkur- inn á sitt höfuðfylgi. í nótt var íhaldsflokkurinn og samherjan hans búnir að vinna 17 þingsæti af Verka- mannaflokknum. Líklegt er, að kosningaþátt- taka reynist rúml. 78%. Er það heldur meira en í þingkosning- unum 1955, en metkjörsókn var í þingkosningum á Bretlandi 1950, 84%. Morgan Philips, einn af helztu leiðtogum Verkamannaflokks- ins, viðurkenndi ósigur flokks- ins í nótt, og að íhaldsflokkur- inn kynni að fá að minnsta kosti 106 atkvæða meirihluta á þingi. Hugh Gaitskell, leiðtogi flokskins, viðurkenndi ósigur- inn í nótt, með þeim ummæl- um, að úrslitin hefðu valdið miklum vonbrigðum, en þetta væri dómur þjóðarinnar, sem hann yrði að sætta sig við. Harold Macmillan kom í að- alskrifstofur flokksins nokkru eftir miðnætti s.l. og var ákaft fagnað. Hann lýsti gleði sinni yfir sigrinum, kvað flokkinn mundu starfa áfram fyrir sam- komulagi um frið og hafa sömu samstarfsmenn áfram. Hrakfarir kommúnista. Kommúnistaflokkurinn * beið hinar mestu hrakfarir í þeim kjördæmum, sem úrslit eru kunn í. Hann hafði þar 15 fram bjóðendur og misstu þeir allir tryggingarfé sitt. Framh. á 7. síðu-. Óvenjumörg skip í höfninni. Mikið hefur verið um skipa- komur til Reykjavíkur að und- anförnu. I gærkvöldi lágu 12 stór verzlunarskip í höfninni og er það sjaldgæft að svo mörg skip séu þar samankomin í einu. Auk þess lágu í höfn fjöldi fiskiskipa, togarar, hvalveiði- skipin fjögur og allur bátaflot- inn, sem á hér heimahöfn. Sögðu hafnsögumenn að það væri ekki oft að jafnmörg skip væru inni í einu. Hótað að drepa for- sætisráðh. S.-Ástraiíu. Lundúnablöðin birta fregn um, að hótað hafi verið að drepa forsætisráðherra S.- Ástralíu. Þegar kunnugt varð, að líflátsdóminum yfir blökku- manninum Stuart (sbr. fregn í Vísi í vikunni) hafði verið breytt í ævilangt fangelsi, hringdi maður nokkur til for- sætisráðlierrans í Suður-Afríku sir Thomas Playford og hótaði að drepa hann. Neðanjarðarbraut í smíðum í Osló fyrir 350 millj. kr. Göngin orðin 3500 metra löng. Frá fréttaritara Vísis Oslo í gær. Nú er lokið við að sprengja 3500 metra löng jarðgöng und- ir Oslo fyrir neðanjarðarbraut- ina sem er stærsta fyrirtæki sem borgin hefur ráðist í og kosta fullgerð um 350 milljónir norskra króna. í jarðgögunum verða stórar neðanjarðarstöðvar en færi- ur. Talið að geysimikil sam- göngubót verði af þessum jarð- göngum. Borgin er nú dreifð um stórt svæði og er allerfið til umferðar, en þegar neðan- jarðarbrautirnar koma til sög- unnar geta menn ferðast á nokkrum mínútum úr yztu hverfunum í miðborgina. Gert er ráð fyrir að þessum fyrsta áfanga að neðanjarðarbrautum stiffar flvtia fólkið unn oe nið í Oslo verði lokið 1964

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.