Vísir - 15.10.1959, Blaðsíða 3
Fimmtudaginn 15. október 1959
VÍSI?
Við-lifurn á tímum eldflauga
og hraða, en þrátt fyrir sífelt
styttri vinnutíma hefur enginn
tíma til að „lifa“vegna hins sí-
felda kapphlaups við samtíðina.
Barnið er varla orðið talandi,
þegar það er drifið í skóla, og
hver sem ætlar sér að komast
eitthvað „lengra" í lífinu, þarf
að stunda nám fram til þrítugs
eða lengur. Allir hlutir eru að
verða sérhæfir, en séu þeir það
ekki í eðli sínu, skipuleggja
stéttarfélögin þá, svo að við ligg
xu’, að sömu mennirnir, sem
skurðina,er við höfum ávalt
fyrir augunumí götunum, hafi
-ekki ,.rétt“ til að moka ofan í
þá aftur. Þetta er kariske viss
þáttur í tækni nútímans, og án
fækni getur ekkert þjóðfélag
þiróazt.
Aðlögunarhæfi lífsins er
rnikil, en þrátt fyrir það er
áríðandi, að nám og uppeldi
barnanna takist vel frá byrjun,
því það getur ráðið úrslitum
um hamingju þeirra og framtíð
jþjóðarinnar. Skóla- ,,apparatið“
kostar mikið, en hve stór „pró-
senta“ það er af þjóðartekjun-
um, er mér ekki kunnugt, enda
ræður þar miklu um, „hvaða“
reikningsaðferð er notuð, en
hvað um það, á miklu ríður, að
það notist sem bezt. Ég geri ráð
fyrir, að kennarastéttin okkar
íslendinga standi stéttarbræðr-
um sínum erlendis fyllilega á
sporði, sérstaklega þó, ef mið-
að er við fólksf jölda. Ég er ekki
heldur að halda því fram, að
kjör þeirra séu of góð, en mér
er ekki grunlaust, að mörgum
„púlsmanninum" sem verður að
vinna allt árið, utan síns stutta
sumarfris, verði oft hugsað til
þeirra, er fá minnst þriggja
vikna frí um jólin og tíu til tólf
daga frí um páskana, einmitt á
þeim tíma, sem allir aðrir hafa
mest að gera. Auk þessa fá þeir
einn aukfrídag í mánuði, að
ótöldu nær fjögurra mánaða
.sumarfríi hjá flestum. Þá má
ekki gleyma, að þeir munu öðru
hverju eiga rétt á árs fríi á full-
um launum, sérstaklega þá til
dvalar erlendis.
En deilt upp í árslaunin,
mundu þeir ekki bera líkt því
eins mikið úr býtum og vegg-
fóðrarar, sem leika sér að því,
aðþví er sagnir herma, að
„vinna“ fyrir 1200. á dag,
að minnsta kosti við að leggja
gólfflísar. Það er nú reyndar
akkorð og þess vegna afla þeir
duglegu miklu meira en hinir
lélegu. Kennarar eru líka mjög
misjafnir að „gæðum“, en jafn-
aðarmennskan innan þeirrar
stéttar er svo mikil, að skuss-
arnir „græða“ jafn mikið og af-
burðamennirnir, nema að hinir
síðarnefndu njóta ánægjunnar
af starfi sínu og þakklæti stöku
foreldra fvrir góða leiðsögn
barninu til handa.
Yfirleitt mun kennarastarfið
vera vanþakklátt og erfitt við
unglingana að fást, enda hefur
árangurinn af kenningum upp-
eldisfræðmganna greinilega
komið í ljós hin síðari ár, að
ekki mætti aga -börnin, heldur
láta þau sem frjálsust. Það er
rétt, að börn eru dýrmætari en
húsgögn og bækur, en annað
mál er, hvort rétt sé að láta
þau umgangast slíka hluti að
algjörri vild, eins og kenningin
var. Ef svo vildi samt til, að á
heimilunum væru til bækur, er
sérstök ástæða væri til að
vernda, var ekki annað en að
hafa bókahillurnar „upp við
loft“ svo að þau næðu ekki til
þeirra. Hver maður með „comm
on sense“ getur ímyndað sér,
hvílíkt virðingarleysi slíkt upp^
eldi leiðir af sér. Því miðui'
urðu ýmsir' foreldrar til að láta
blekkjast af þessum falskenn-'
ingum „fræðimannanna", ásamt (
því að skaðlegt væri að láta
börnin njóta nokkurrar móður-
umhyggju. Það skildi bara láta J
þau orga „þegandi og hljóð-.
hann í prósentum, getur hann
verið nauðsynlegur.
Eg veit um einn skólamann,
sem er afkastamikill blaðaút-
gefandi og rithöfundur. Eg veit,
að hann vinnur þjóð sinni vel
og er í á-liti fyrir ritstörf sín,
bæði innan lands og utan, enda
hef ég lesið í hans eigin blaði,
að hann „hefði áhuga fyrir öllu
milli himins og jarðar.“ Blað
hans flytur margar góðar grein-
ar og fréttir úr hans heimahér-
aði, og þar sem ritstjórinn er,
Hugleiðingar
um
uppeldismál
o»
prósentreikning
laust“, þar til hinn víindalegi
ákveðni tími væri kominn til
að sinna þeim. Sem betur fer
mun tími þessarar kenningar
að mestu liðinn, og svo er kom-
ið, að „fræðimennirnir“ eru
farnir að skilja, hvaða glap-(
ræði hér var verið að fremja.
Eins og fyrr er getið hafa
kennarar frekar rúman tíma frá ^
kennarastörfum. Tími þessi er
að sjálfsögðu notaður á ýmsan
hátt. Sumir eru sívinnandi sér
og heimilum sínum til tekna,
og með tilliti til þess, að vinnu-
stundir fólksins séu þau verð-
mæti, er þjóðfélagið byggir af-
komu sína á, eru þeir betri þjóð-
félagsþegnar. Aðrir vinna og
leika sér á milli eða hafa
það náðugt“, en nokkrir gera
hreint ekki neitt. Þeir eru verst-
ir, því það er áreiðanlegt, að
okkar þjóðfélag hefur ekki efni
á, að þegnarnir vinni aðeins
rúmlega hálft árið. En hvað um
það, við lifum í frjálsu þjóð-
félagi, þar sem einstaklingarn-
ir eiga að vera nokkuð sjálfráð-
ir gerða sinna innan þeirra tak-
marka að gera öðrum ekki
mein. Hafi þeir svo góðar tekj-
ur af kennslunni, að þeir þurfi
ekki að grípa til hendi allt sum-
arið, þá þeir um það. Spursmál-
ið er aðeins, ér þeim þá ekki
borgað of mikið, eða hafa allir
þjóðfélagsþegnarnir möguleika
eða ,,rétt“ á slíku fríi?
Engin regla er til án undan-
tekningar. Það eru til skóla-
menn, sem vinna enga erfiðis-
vinnu í frítímum sínum en
vinna þó. Þeir sinna ýmsum
andlegum viðfangsefnum. pnda
er það þeim s.jálfum og þióðar-
heildinni ekki síður nauðsvn-
legt, því að iífið er ekki tómt
brauðstrit, þó í „praksis“ verði
hin andlega vinna oft að sölu-
vöru ekki síður en það, sem við
„business“-mennirnir erum að
plata inn á fólkið. En það er nú
sama samt, .að þó það sé bisness
og þó að hægt væri að reikna
eins og fyrr segir, skólamaður
og lætur sér fátt mannlegt óvið-
komandi, lætur að líkum, að
hann fer stundum inn á prós-
entreikning í fréttaflutningi
sínum. En þar sem reikningsað-
ferð hans stangast verulega á
við það, sem ég á að venjast úr
viðskiptalífinu og mundi tals-
vert raska þeirri tímalengd,
sem Sputnik eða Lunik þyrfti
til að fara til tunglins, þarf að
fást full niðurstaða á því, hvort
minn eða hans prósentreikning-
ur er réttur.
Eg er ekki svo vel að mér í
þeirri stærðfræði, sem beitt er
við útreikninga himingeimsins,
og fer því ekki meira út í þá
sálma, en þar sem verulegur
hluti þjóðfélagsþegnanna er far-
inn að tileinka sér brask, ,eins
og Tíminn heldur fram, skiptir
verulegu, að rétt sé reiknað. A
miðjum túnaslætti var í um-
ræddu blaði sagt frá útsvörum
í einum heimahreppnum, en
' þau höfðu hækkað úr kr. 593
þúsund í 801 þús. frá í fyrra,
eða eins og sagt var blaðinu, um
„26%“! Ég efast ekki um, að
1 það er á vissan hátt nærgætn-
islegt að segja svona frá þess-
■ um „dráps-klyfjum“, en þó býst
| ég ekki við, að það sjónarmið
hafi ráðið. Mérfinnst að þetta
1 séu 37%. Nú í lok sláttar var
sagt frá útsvörum í öðrum
' hreppi. Þau voru í fyrra kr. 682
I þús. en eru nú 866 þús., hækk-
| un „21%“. Það fer á sama veg,
mér reiknast hækkunin 27%.
Við Reykvíkingar erum því
ekki óvanir, að útsvörin okkar
séu reiknuð út eftir alls konar
aðferðum, sérstaklega þó þegar
fer að líða að kosningum, en ef
ofangreind aðferð er almennt
notuð í barna- og unglingaskól-
um, veit ég ekki hversu haldgóð
hún verður, þegar út í lífið
kemur. Það mundi þó skipta
okkur, sem fáumst við verzlun,
nokkuð miklu máli, ef við mætt
um viðhafa þessa reikingsað-
ferð við álagningu vörunnar, og
þá mætti segja mér, að kaupfé- ^
lögin hér í Reykjavík og ná-
grannakauptúnunum, sem ekki
geta grætt á að afsetja fram-
leiðluvörur bændanna, þyrftu
ekki að stynja undir halla-
rekstrinum. En það hefði verið
glæsilegt fyrir Alþýðublaðið í
gær að nota þessa aðferð, í
frásögninni af lækkuninni á
lyfjum. Þá hefði magnyl, sem
| margir borða verulega af, lækk
að um 137%, en hálstöflur um
245%. Það skiptir sennilega
ekki miklu máli, því minna
mun af þeim étið. Gera mætti
þó ráð fyrir, að þetta hefði ein-
hver áhrif á vísitöluna. Þessar
upplýsingar blaðsins um verð-
lækkunina vekja reyndar upp
þá spurningu, hvort „hinir op-
inberu aðilar“, sem eftir þessu 1
eiga að líta og í vaxandi mæli
seilast eftir því að verða okkur
vernd og forsjá, hafi' staðið í
J stöðu sinni, og hverjir það eru 1
þá, sem virkilega hafa „misst
J glæpinn". Af trúarlegum ástæð-
um gagnvart rekstri kaupfé-
laga, skiptir okkur nokkru máli,!
hvort þau kaupfélög, sem reka
•lyfjabúðir, hafi einnig tekið
þátt í þessum leik, og ef svo er,
hvort „pillu“-viðskiptin við ut-
anfélagsmenn hafi skilað þeim
gróða, að hann væri útsvars-
skyldur. Það mun þó skipta
minna máli fyrir þá, sem vita,
að „samvinna skapar sann-
virði.“
! „Tíminn“ segir í dag, að það
eigi að svíkja bændur um
3,18% af „skýlausum rétti“
þeirra til hækkunar landbúnað-
arafurða. Eg vil láta fara fram
athugun á því, hvort þetta sé
ekki hægt án þess að hækka út-
söluverðið. Því ekki að setja
verðlagsákvæði um, hve mörg
prósent það má kosta að afsetja
landbúnaðarafurðir, eins og
innfluttar vörur og iðnaðarvör-
ur? Ef „samvinnunni" er ekki
trúandi til að leggja sanngjarn-
lega á erlendu vöruna og þær
iðnaðarvörur, er hún framleið-
ir, er henni þá nokkuð frekar
trúandi til að verðleggja land-
búnaðarvörur eða taka „hæfi-
lega“ þóknun fyrir að afsetja
þær? Það er kannske í lagi
vegna þess, hve samkeppnin er
þar er lítil við „auðvaldið"! En
er ekki einmitt þarna að finna
skýringuna á hinni „góðu“ af-
komu kaupfélaganna úii á
landi, eða geta þau kanske
notað „hina prósentuaðferðina“
við landbúnaðarvörurnar?
Reykjavík, 20. sept. 1959.
Verzlunarmaður.
Húsmæðrafelagið byrjar
vetrarstarfsemi.
Vetrarstarfið er þegar hafið
hjó Húsmæðrafélagi Reykjavík-
ur.
Sýnikennsla í matreiðslu hef-
ur verið haldin og var mjög vel
tekið hjá konum. Þá eru og
byrjuð saumanámskeið og mun
þeim haldið áfram í vetur. Bast
nárriskeið hefst í kvöld, eins og
auglýst hefur verið.
Á fimmtudagskvöld verður
haldinn fundur, og þá mun frk.
Steinunn Ingimundardóttir
ráðunautur K. í. halda erindi
um rétta vinnustöðu kvenna við
heimilisverk. Myndir verða
sýndar, en á eftir verður sýnd
hraðfrysting matvæla.
Allar konur eru að sjálfsögðu
velkomnar, og er þeim á það
bent að nota þetta tækifæri til
að kynna sér aðferðir við betri
vinnunýtingu. Þessi fundur
verður á fimmtudagskvöld kl.
8.30 í Borgartúni 7. Þá skal
minna á það að bastnámskeiðið
hefst í kvöld.
Flestir kannast víst við söguna um Þumalínu litlu, og þessi mynd minnir vafalau.síjá hana, þótt
það sé drengur, sem standi á blómablöðunum. Myndin er tekin úr grasgarði|jjm í KhöfnT