Vísir - 30.10.1959, Qupperneq 3
Miðvikudagirin 28/ október 1950
V í S MT
3
Norðmenn kvarta sáran
yfir skilningsleysi Breta.
Þeir þrefa um freftfisk, flök og fríverzhm.
Frá fréttaritara Vísis.
Osló í gær.
Xorðmenn virðast nú Ioksins
farnir að átta sig á því að Bret-
ar geta verið einkennilega
skilningslausir þegar um er að
ræða hagsmunamál þar sem al-
mennur skilningur á málefninu
er þeim óhagstæður.
íslendingar kannast mætavel
við þessa Bretabrellu, sem er
einna líkust því er gamall mað-
u.r bregður fyrir sig heyrnar-
leysi og segir, ,.Ha. hvað seg-
irðu“ og íer svo sínu fram.
Norðmenn og Bretar hafa
verið að þrefa undanfarið um
það hvort hraðfryst fiskflök
eigi að falla undir ákvæði frí-
verzlúnarinnar eins og iðnaðar-
varningur. Norðmenn telja að
hraðfryst fiskiflök, pökkuð og
| frágengin eins og hver önnur
Lðnaðarvara eigi að njóta sömu
] réttinda og önnur svipuð' \rara
svo sem niðursuðuvörur og því
um líkt.
,.Eg er alveg hissa að Bretar
skuli ekki skilja þetta sjónar-
mið;“ ér haft eftir framkvæmda
stjóra Norsk Frossenfisk. Emi
Petersen, í blaðinu Norges
Handels og Sjöfartstidende. —
„Mér finnst það liggja í aug-
um uppi að það sé í rauninni
hagsmunamál fyrir Bretana
sjá^fa að frosinn fiskur verði
tollfrjáls á fríverzlunarsvæð-
i'iu. Það má gera ráð fyrir að
fríverzlunarsvæðin verði ekki
tvö um alla framtíð. — Ætla
verður að , hinir innri sex“
og „ytri sjö“ verði bræddir sam-
vn í eitt og þá er ekkert vafa-
mál að Bretum kæmi það veJ
að hafa tollfrjálsan fiskimark-
vð hjá „innri sex,“ segir Pet-
ersen.
En Norsk Frossenfisk A.S.
hefur enn ekki orðið að ósk
sinni og það eru ekki líkur fyr-
ir því í bráð, því enn situr Bret-
inn við sama keip og á senni-
lega eftir að gera það lengi, ef
hailn er líkur sjálfum sér.
ÓDÝR - ÞÆGILEG - LÉTT ÓDÝR - ÞÆGILEG - LÉTT
- ÓDÝR - ÞÆGILEG - LÉTT - ÓDÍR - ÞÆGILEG - LÉTT - ÓDÝR - ÞÆGILEG - LÉTT
íslenzk framleiðsla.
Heildsölubirgðir í
Kaupmenn — kaupfélög
Cha-Cha peysan fyrirliggjandi.
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Grettisg'Jtu 3. — Símar 10485 — 1C070.
ÓOÝR - ÞÆGILEG - LÉTT - ÓDÝR - ÞÆGILEG - IÉTT - ÓÐÝR
ÞÆGILEG - LÉTT - ÓDÝR - ÞÆGILEG - LÉTT--ÓDÝR - ÞÆGILEG - LÉTT