Vísir - 30.10.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
LitiS hann færa yður fréttir og annaS
lestrarefni beim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-lG-GO.
Munið, að beir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-GO.
Siglufjarðarskarð rutt
Aðrir fjallvegir landsins eru enn færir, eg
er það óvenjulegt svo síðla sumars.
Siglufjarðarskarð hefur ver-
4ð lokað í nokkra daga, en verð-
ur opnað aftur til bifreiðaum-
ferðar í dag. !
Aðfaranótt sl. sunnudags
gerði talsverða snjókomu, eink-
um til fjalla, norðanlands og
komust bifreiðar þá morgun-
inn eftir ekki yfir skarðið fyrr
en búið var að ryðja mesta
^snjónum burt. Var lögð töluverð
áherzla á að opna skarðið þá
vegna kosninganna. |
Nóttina eftir hríðaði á nýjan
•leik, en skarðið var enn á ný
opnað til þess að koma kjör-
gögnum og þifreiðum í gegn á
mánudaginn. Þá var snjórinn
orðinn mikill í skarðinu og
hríðarveður uppi svo að allmikl-
'um erfiðleikum var bundið að
ryðja leiðina. Skarðið lokaðist
strax aftur og hefur verið lokað
síðan.
í gær hlánaði mikið á Norð-
urlandi og seig snjórinn í skarð-
inu svo mjög að tiitækilegt þótti
að opna það á ný. Var vinnu-
flokkur sendur þangað upp í
gær og í dag er talið að skarðið
opnist til umferðar.
Aðrir fjallvegir landsins hafa
enn ekki lokast svo heyrzt hafi
nema Axarfjarðarheiði, en lík-
ur taldar á að sn,jóinn taki upp
af henni aftur í hlýviðrinu sem
nú er.
Vestfjarðavegur hefur enn
ekki teppzt og sama má segja
um Austurlandsleiðina, að hún
er enn öllum bílum fær. Slíkt er
óvanalegt um þetta leyti árs.
Öld hins landlausa manns.
Fjársöfnun á vegum íslenzkra
kirkju í þágu flóttamanna.
Svo herma skýrslur, sagði
herra biskupinn Sigurbjörn
Einarsson, er hann ræddi við
fréttamenn í gær, að um 45
miiljónir heimilis- og Iand-
lausra manna séu í heiminum.
I*etta væri öld hins hælislausa
manns.
Biskup gerði nokkra grein
fyrir starfi því, sem kristin
kirkja vinnur til hjálpar hinum
landlausa, en nú er raunar
Flóttamannaár að frumkvæði
Sameinuðu þjóðanna, og miðað
•að því vekja menn til virkari
aðgerða en verið hefur.
Alþjóðasamtök kirkjunnar
■manna hafa reynt að hjálpa eft-
ir megni. Alkirkjuráðið hefur
á þessu ári útvegað um þúsund
manns varanlegan samastað,
: sjálfboðaliðar, m. a. ungmenni,
vinna á vegum þess, og starf-
rækir hjálparstöðvar. Neyðin
meðal Arabiskra flóttamanna
er mjög mikil — af þeim eru
um 900.000 á vonarveli. Þetta
fólk hefur ekkert til matar, fæð-
is og skýlis, nema það, sem því
er hjálpað. Alþjóðasamtök kirkj
unnar reka stærsta sjúkrahús í
Bitlu Asíu, sem rúmar um 11
þús, sjúklinga og það rekur
einar tíu heilsustöðvar í Jórdan-
iu og Sýrlandi.
Skerfur ísl. kirkju.
íslenzk kirkja, sagði biskup-
inn, hefur lagt sinn skerf til
þessarar starfsemi. Fyrir for-
.göngu fyrrverandi biskups var
aflað nokkurs fjár. Biskupinn
hefur fyrir nokkru skrifað prest
um landsins varðandi almenna
fjársöfnun, sem fram á að fara,
til hjálpar flóttafólkinu. Geta
menn látið fé af hendi rakna, er
þeir sækja kirkju n. k. sunnu-
dag. Öllum sem aflögufærir eru
'er í rauninni skylt, að láta eitt-
hvað af hendi rakna til hjálpar
nauðstöddum með bræðrum
sínum. Biskupsskrifstofan mun
einnig veita gjöfum móttöku
sem hingað til,
Það hefur komið fram, að
æskilegf væri, til þæginda fyrir
ýmsa, sem vildu styðja þessa
hjálparviðleitni, að blöðin
veittu fé móttöku. — Vísir vill
fúslega fyrir sitt leyti taka við
og koma áleiðis slíkum gjöfum.
Kfofningi afstýrt
á Ítalíu.
Segni forsætisráðlierra Ítalíu
fékk stuðning meiri liluta flokks
síns, Kristilegra demókrata, á
landsfundi í Flórenz á Ítalíu.
Fanfani, leiðtogi hinna rót-
tækari manna í flokknum, varð
að lúta í lægra haldi. — Times
í London segir, að á landsfund-
inum hafi klofningi flokksins
verið afstýrt, en engin raun-
veruleg eining náðst.
Föstudaginn 30. október 1959
Umferðarslys
á Snorrabraut
Umferðárslys varð á Snorra-
braut í gær móts við húsið nr.
73.
Þar var 6 ára telpa, Sigríður
Guðlaugsdóttir Snorrabraut 15.
fyrir bíl og meiddist eitthvað á
höfði, en talið þó að slysið hafi
ekki verið alvarlegs eðlis. Hún
var flutt í slysavarðstofuna.
Ekið á hús.
| í gær, um hádegisleytið var
bifreið ekið á hús á Hverfis-
götu. Orsakir til þess voru þær,
að bifreiðastjórinn varð þess
allt í einu var að hemlarnir
voru óvirkir og til þess að valda
(ekki slysi eða árekstri í um-
ferðinni tók bílstjórinn þann
þann kost að beygja upp á gang
stéttina og lenti á húsinu.
Bíll finnst.
í gær skýrði Vísir frá því að
bíl hafi verið stolið af Ránar-
götu í fyrrinótt. Bíllinn fannst
í námunda við Hafnarfjörð í
gær. Skemmda er ekki getið.
Tizkuvörubúó
opnuð í dag.
Ný snyrtivöruverzlun verður
opnuð í Reykjavík í dag, Tízku-
vörubúðin á Laugavegi 35.
Verzlunin hefur á boðstólum
allar tegundir af snyrtivörum,
sem fáanlegar eru á íslenzkum
markaði. En að auki er þarna
fáanlegt eitt hið feykilegasta úr-
val af kvensokkum, sem frétta-
menn hafa augum litið, en þeim
var í gær boðið að skoða hina
nýju verzlun. Búðin er mjög
snyrtilega innréttuð, en eig-
endur hennar og verzlunar-
sf|]órar eru Fríða Jónsdóttir og
Valdís Kristjánsdóttir.
Þees skal að lokum getið, að
fréttamenn uppgötvuðu það í
gær, að snyrtivörubúðir eru
ekki aðeins fyrir kvenfólk, held-
ur geta karlar þar fengið ýmis-
legt, sem þá vanhagar oft um,
svo sem „Old Spice“ og fleiri
slíka hiuti.
Konungurinn s
Laos látinn.
Hinn aldraði konungur í Laos
er látinn.
Hann var 74 ára og hafði leg-
ið rúmfastur nokkur ár. Ríkis-
arfinn, sonur hans, fór með kon
ungsvaldið í seinni tíð.
Hinn látni konungur hafði
verið miklu lengur við völd en
nokkur núlifandi konungur, eða
í 55 ár.
Þegar kpmmúnistar áttu á sl.
ári aðeins fáeina kílómetra ó-
farna til höfuðborgarinnar, en
höll hans er skammt frá, neit-
aði hann að flýja.
„Ég er orðinn of gamall til
þess að skelfast,“ sagði hann.
Það er mjög annríkt í aðgöngumiðasölu Þjóðleikhússins um
þessar mundir. Vegna geysilegrar eftirspurna efitr miðum á
U.S.A. ballettinn eru likúr til þess að aukasýning verði n.k.
þriðjudag kl. 4.
Myndin er af biðröðinni fyrir utan Þjóðleikhúsið s.l. mið-
vikudag. -
Lítið um atvinnu í frysti-
húsum í haust.
Togaraafli tregur og engin síldveiði.
Að Ólafsvík og Vestfjörðum
undanteknum hefur yfirleitt
verið lítið að starfa £ frystihús-
mri á öðrum stöðum á landinu.
Rækjuveiðin á Vestfjörðum
hefur haldið atviununni uppi
að miklu leyti í haust eins og
endranær, en auk þess hefur
Herfangs leitað
í Dóná.
Lögreglan • Vínarborg
hefur fengið fréttir um það,
að ýmis ungversk krúnu-
djásn, gull og fleiri gersem-
ar muni vera í fjórum stál-
kössum á botni Dónár nærri
landamærum Tékkóslóvakíu.
Xazistar ætluðu að koma
þessu undan í lok stríðsins,
en tékkneskir skæruliðar
sökktu hraðbátnum, sem
þeir notuðu til flutuinganna.
Nú verða kafarar látnir
athuga málið.
Afli Akureyr-
artogara.
Frá jréttaritara Vísis. —
Akureyri í gœr.
Sléttbakur kom fyrir viku til
Akureyrar með 112 lestir, mest
þorsk, sem hanrt hafði veitt á
heimamiðum. Aflinn fór i hrað-
frystingu. Togarinn er nú á
veiðum fyrir erlendan markað
og siglir vœntanlega seint í
næstu viku.
Kaldbakur kom í morgun eft-
ir 13 daga útivist á heimamið-
um með 200 lestir af þorski,
senvfer til hraðfr.vstingar.
Hinir Akureyrartogarnir,
Harðbakur og Svalbakur, eru
báðir á veiðum á heimamiðum.
talsvert borizt af bolfiski á
land. i
j í hinum stærri verstöðvum
hér sunnanlands, Vestmanna-
^eyjum, Keflavík, Reykjavík,
Hafnarfirði og Akranesi hefur
^verið óvenjulítið atvinna við
, verkun sjávarafla. Aðstæðan er
1 aðallega sú að nú sigla margir
togarar með aflann til útlanda
og svo hitt að engin síldveiði
hefur enn verið sunnanlands,
en undanfarin ár hafa hundruð
kvenna og unglinga unnið við
söltun síldar og í frystihúsum.
Nokkurrar ónægju hefur gætt
vegna þess að togararnir hafa
^ verið látnir sigla með afla sinn
; og hélt Verkakvennafélagið
jHlíf í Hafnarfirði fund til að
mótmæla þeim ráðstöfunum.
Náttúrubamfarir
í Mexico.
Yfir 1000 manns hafa
farizt.
Yfir 1000 manns munu
hafa farizt af völdum hvirfil-
byls og flóða í Mexico. Hvirf
ilvindurinn fór þar yfir s.I.
þriðjudag.
Þótt hætt sé að rigna og
flóð séu rénandi munu marg-
ir dagar líða þar til að fullu
verður kunnugt um tjónið
af völdum þessara náttúru-
hamfara.
Mest manntjón varð í
þorpi, þar sem jarðhrun varð
um 800 mönnum að bana.
Sporðdrekar og önnur eitur-
kvikindi, sem truflast liöfðu
í bækistöðvum sínum £ nátt-
úruhamförunum, réðust á þá
sem eftir lifðu.
★ Undangenginn mánuð befur
allmikið af fölskum pTirds-
seðlum verið umferð á Tng-;
landi.