Vísir - 14.11.1959, Síða 5
I»augardaginn 14. nóvember 1959
VISIR
5
Tónleikar Söng- og óperu
skólans í Gamla bíó.
íslenzk skólastúika fær ótgerðar-
verðlaun amerísks stórbiaðs.
Söngskemmtun þessi var aug-1
lýst sem nemendatónleikar. Það
var mikið lítillæti, því þar
komu fram söngkraftar sem
blutgengir eru í söngleikasal og
á einkatónleikum hvarvetna.
Það liggur ekki í mínum
verkahring að skrifa um þenn-
an tónlistarviðburð tæknilega,
en það munu vaflaust verða
gert af tónlistargagnrýnendum
blaðanna. En það er ástæða til
að fagna því að skóli þessi, sem
stofnaður var fyrir þrem árum,
hefur nú þegar náð svo góðum
árangri. Við þekkjum forstöðu-
menn skólans og vitum að
þeir hafa sett markið hátt, og
kennarinn Vincenozo M. Dem-
etz hefur áður haft mikil og
góð áhrif á tónlistarlíf hér. Var
það mikið þjóðráð að hann sett-
ist að hér í Reykjavík, og veit-
ir þar með mörgum tækifæri
til söngnáms, er að öðrum kosti
ættu ekki kost á svo góðri
kennzlu.
Að nokkru leyti er mér
kunnur frgmferill þessa lista-
manns, og eins hitt að heima-
land hans Dolomitar í Suð-
Tyrol hafa fóstrað öndvegis-
listamann frá því í fyrnsku.
Gardenadalurinn er söngva-
paradís, þar sem seljastúlkur
og piltar syngja í kapp við
bergmál fjallanna. Flestir íbú-
anna spila á eitthvert hljóðfæri,
og þar heyrir maður fegurstan
kirkjusöng.
(Einn aðalatvinnuvegur
dalbúa var löngum að búa til
helgimyndir úr tré og óvenju-
góðar fiðiur og gítara)
Flestir íbúanna eru Latínar,
afkomendur Etrúzka og Illiría.
Af þeim stofni eru margir
beztu söngvarar Tyrol-búa, og
velvild sem skólinn hefur mætt,
tryggir vafalaust að framhald
verði á þjálfun slíkra söng-
krafta og nú kom fram á þess-
um tónleikum.
Þá vantar aðeins herzlumun-
inn til að íslenzk ópera verði
starfandi að staðaldri í sam-
bandi við Þjóðleikhúsið. Við
höfum dæmin fyrir okkur á
tónlistarsviðinu. Með því að fá-
mennur hópur stofnaði tónlist-
arskóla hér, þá varð sinfónisk
hljómsveit að veruleika, ungt
fólk var styrkt tii tónlistar-
náms (aðallega erlendis) og
margt þessara listamanna varð
hlutgengt á heims-mælikvarða,
starfaði og starfar nú aðallega
erlendis. Þar með erum við,
sem höldum tryggð við gamla
landið fátækari en efni standa
til.
Nú er starfandi hér skóli sem
getur þjálfað óperusöngv-
ara. Efnivið eigum við mikinn
og góðan. Söngstjórar vorir
og hljómsveitarfólk er vandan-
um vaxið. Húsakynni höfum
við, og ekki vantar leikhúsgesti.
Eða fólk til að sækja söngleiki.
— Aðeins styrka hönd til að
sameina þessa krafta og gefa
þeim tækifæri til að starfa hér
heima með viðunandi kjörum.
Að endingu: Ég vona að tón-
leikar Óperuskólans verði end-
urteknir, og að útvarpið sjái
sóma sinn í því að flytja öllum
landsmönnum þá ágætu tónlist.
Þakka öllum aðilum fyrir
þessa minnisstæðu tónleika.
Guðmundur Einarsson
frá Miðdal.
^ Hermálráðherra Frakk-
lands hefur skipað Alphon-
se-Pierre Juin marskálki, að
hætta öllum afskiftum af
stjórnmálum. Tilefnið var
að blaðið L ’ Aurore birti
grein eftir hann, þar sem
hann gagnrýnir stefnu De
Gaulle í Alsír.
Dagblaðið „New York Her-
ald Tribune" hefur að undan-
förnu efnt til ritgerðasam-
keppni víða um lönd meðal
framhaldsskólanemenda. Ný-
verið kvað dómnefnd upp sinn
úrskurð, og varð íslenzk stúlka
meðal sigurvegara, Jóna E.
Rurgess, nemandi í 4. bekk
Menntaskólans á Akureyri.
Verðlaunin frá blaðinu eru
ókeypis ferð til Bandaríkjanna
og heim aftur og dvalarkostn-
aður vestra í þrjá mánuði. Rit-
gerðarefni er ákveðið hverju
sinni, og hefur það nokkufl,
undanfarin ár verið: „Veröldin,
eins og ég vildi að hún væri“,
en að þessu sinni var efnið:
,.Að hvaða leyti eru vandamá)
æskufólks nú á tímum frá-«
brugðin þeim vandamálum, senj.
eldri kynslóðin átti við áð
giíma?“ i
Arabiska sambandslýðveld-
ið og Cambcdia hafa gerfc
með sér viðskifta- og viu-
áttusamning.
<Seeuwen & (^o.
ESTABUSHED 1N 1844
Head-office
ROTTERDAM
9, Leeuwenstraot
P.O.B. 1036
leggja þetta fram af frjálsum
vilja — og menn ■— þjóðin —
landið — fá mikið í staðinn. Ef
til vill einnig, ef allt væri undir
einum hatti ríkisbákns -— en
með núverandi fyrirkomulagi
myndu menn ráða meiru um
það og hafa ánægjuna af að
styrkja áfram stofnanir sem
verðar eru framhaldsstuðnings.
— Hvers vegna má þjóðin ann-
ars ekki verja þessum fáu millj-
ónatugum í góð happdrætti, sem
mikið gott gera? Þessi fjárútlát
spilla engum eins og tugmillj-
ónafjárútlát fyrir áfengi. —
Borgari... — 1.
- AGENTS O F REGULAR LINES * FORWARDING AGENTS * SHIPBROKERS
INSURANCE-, CHARTERING-, TRAVE LLING- AND TOURIST-AGENTS
Símnefni: Seewen, Rotterdam
Höfum sérþekkingu og langa reynslu í aS annast umskipun og farmfíutning á vörurai
til og frá íslandi, um Rotterdam og aðra hafnarbæi á meginlandinu og Bretlandi.
Sérlega lág þóknun.
tlmboðsmenn fyrir ICELAMDIC AIRLIMES LOFTLEIDIR
Símnefni: Loftleiftir, Rotterdam