Vísir - 30.11.1959, Síða 1
41. ár.
Mánudaginn 30. nóvember 1959
261. tbl.
12
síður
Tvo björgunarbáta hefir
rekið á Langan. og í Þistilf.
Þeir eru ómerktir og verða fluttir
suður til rannsókna.
Merkur fyririestur í Háskólanum:
Batnandi efnahagur V.-Evrópu á
aö tákna aukna neyzlu á góðfiski.
Tvo stóra björgunarbáta rak
á land fyrir helgina, annan á
ILæknisstaðafjörur á Langa-
nesi, hinn hjá Sævarlandi í
Þistilfirði.
Vísir átti í morgun tal við
Jóhann Skaptason, sýslumann á
Húsavík, og sagði hann, að á
laugardag hefði borizt tilkynn-
ing um það frá hreppstjóranum
í Sauðaneshreppi, að björgun-
arbátur hefði fundizt rekinn á
-fjöruna hjá Læknisstöðum, sem
er eyðibýli á Langanesi. Fóru
nokkrir menn á staðinn í fylgd
'með lækni. Var hér um að
ræða gúmmíbát útblásinn, en
ekkert fannst í honum, og eng-
in auðkenni voru á honum. Þá
rak annan björgunarbát á fjör-
j una hjá Sævarlandi í Þistil-
; firði, og er sama um hann, að
hann er á engan hátt auð-
| kenndur. Þetta eru stórir bát-
ai, 4—5 metra á kant.
| Landhelgisgæzlunni var til-
kynnt um fundi þessa, og mun
hún láta sækja bátana báða og
flytja þá til Reykjavíkur til
frekari rannsókna.
Við IslencSingar verðum að
hincfra aukna neyzEu.
Frá fvrirlestri Mr. Kcnc Scrgení
í Ilúskólaitiim í gær.
liagkvæm skipti fyrir okk-
ur Islendinga að ræða.
Hvað við kemur markaðs-
möguleikum á fiski i Evrópu,
með tilliti til þeirrar tekju-
aukningar sem orðið hefur hjá
öllum almenningi í V-Evrópu,
kvaðst fyrirlesárinn vilja geta
þess, að frá sínu sjónarmiði
væri um tvennt að ræða í því
Aukaþingi brezkra krata lokið.
Engin mikilvæg ákvörðun tekin, -
hikandi forusta.
Aukaþingi Brezka verkalýðs-1
flokksins lauk í gærkvöldi. Það
var haldið í Blackpool. Aðal-
ræðuna fluttu Gaitskell og
Bevan.
Gaitskell lagði áherzlu á, að
alger þjóðnýting væri ekki höf-
uðmark, endurskoða þyrfti
stofnskrá flokksins, og vinna
að því að ná hinum ungu á
band flokksins o. s. frv.
Bevan flutti lokaræðuna og
var hinn herskáasti. Hann
leiddi athygli að einingunni í
flokknum, — 12 og hálf millj.
kjósendur hafa stutt flokkinn,
„og því í helvítinu eru menn
þá að boða uppgjafarstefnu".
Hann kvað stefnuna ríkiseign
og þjóðnýtingu. Eins og Gaits-
kell vildi hann leggja kapp á,
að vinna hina ungu til fylgis
við flokkinn.
Niðurstaða blaðanna í Lond-
on í morgun: Engin ákveðin
forusta. í rauninni engin mikil-
væg ákvörðun tekin. Gaitskell
neitað um „tækifæri til sárs-
aukafullar skurðaðgerðir til
upprætingar meina“ og þar
fram eftir götunum.
I gær flutti einn helzti sérfræðingur í Evrópu um efnahags-
mál, Mr. Rene Sergent, sem einnig er aðalforstjóri Efnahags-
samvinnustofnunar Evrópu, fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla ís-
lands. Fjallaði hann einkum um markaðsbandalög þau sem nú ' máli. Annars vegar fólk sem
hafa risið upp innan Evrópulandanna, og þau áhrif sem stofnun 1 vegna aukinna tekna getur nú
þeirra kynni að hafa á utanríkisverzlun íslendinga, einkum þá horfið frá því að neyta lélegs,
hlið sem að Vestur-Evrópu snýr. ’ 5dýrs fiskSj sem það hefur
og þá eðlilega einnig innflutn- alizt upp við’ og snúið sér fð
ingur frá sömu löndum. ineyzlu betri fæðu’ Sllkur mark‘
m íj. „ o , * * aður færi minnkandi.
Taldi Mr. Sergent, að með
tilliti til beirra efnahagslegu
uppbyggingar, sem hefur
átt sér stað og á sér enn stað
í Evrópu, sé hér ekki um
Mr. Sergent hóf máls, með
því að geta þess, að enn væru
óyfirstígnir ýmsir örðugleikar
á leiðinni til stofnunar heildar-
markaðs Evrópulandanna allra.
Hann minnti á, að nú væru
hinar 18 Evrópuþjóðir raun-
verulega skiptar í þrjár heildir,
6-landá markaðsbandalagið, 7-
landa bandalagið auk þeirra 5
landa sem standa utan þeirra. |
Þá vék fyrirlesarinn að því,
hve mjög viðskipti okkar við
útlönd hefðu breytt um farveg.
Fyrir styrjöldina hefðum við
ált um 80 af hundraði utanrík-
isviðskipta okkar við Vestur-
Evrópulöndin. Svo hefði enn
verið 1949, en nú væri svo
komið, að um 40 af hundraði
viðskipta okkar færu fram á
grundvelli vöruskipta við lönd
utan V-Evrópu. Við það hefði
^ala okkar á vörum til þeirra
aregizt saman að sama skapi,
Sovétkafbátar sjást
við austursfrönd ISi.<
Innan tíðar munu Sovétríkin ráða
yfir kafbátum til eldflaugasendinga.
æ oftar
Ameríku.
Það verður nú æ tíðara, að
vart verði við sovét-kafbáta
undan austurströnd Bandaríkj-
anna og Kanada.
Þessar upplýsingar hefur
Jerauld Wright, yfirmaður flota
Atlantshafsbandalagsins gefið í
eambandi við þingmannafund
VISIR
kemur ekki út á morgun,
- þriðjudag, I. desember, «nda
er allt lokað, veralanir og
< skrifstofwr allar, frá kádegi.
bandalagsins, sem fyrir
skemmstu var haldinn vestan
hafs, eins og getið hefur verið
í fréttum.
Þar við bætist, sagði flotafor-
inginn, að Sovétríkin mundu
nú vera að smíða kafbáta, sem
eiga að geta skotið eldflaugum,
og er gert ráð fyrir, að fjöldi
slíkra kafbáta verði tekinn í
notkun á þessu ári eða jafnvel
eftir aðeins sex mánuði.
í þessu sambandi vekur
það einnig eftirtekt að Iand-
varnaráðherra Kanada, —
George Pearkes, — hefur
farið fram á, að fleiri varð-
skip verði sett til að hafa
gwtur á ferðesM sovétkaf-
báta, er séu á vakki rétt ut-
an landhelgi í æ ríkari mæli.
Það er fyrst og fremst í
austurhéruðum Bandaríkjanna
og Kanada, sem iðnaður þeirra
landa er staðsettur, og er þá
áhugi Sovétríkjanna skiljan-
legur.
Churchill
85 ára.
Sir Winston Churchill er 85
ára í dag.
Mikill fjöldi skeýta hafði
borist þegar i morgun frá ýms-
um löndum héim. Blöðin minn-
ast hans i tarlega í morgún í
tilefni þessa merkis afmælfs.
Mr. Sorgent, aðalforstjóri Efna-
■bagsstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (OEEC) kom til Reykja-
víkur s.I. Iaugardag, og sést hér
stíga út úr. flugvélinni.. Mr. |
Sergent hélt fyrirlestur í Há-
skólanum í gær, eins og sagt er
frá á öðrum stað í blaðinu. -i
Hins vegar gæti fólk veitt
sér ferskan fisk, eða fisk sem
bragðast því sem næst fersk
ur. Þar ættum við greinilega
leik á borði, því að liin hrað-
frystu íslenzku fiskflök væru
viðurkennd gæðavara.
Sala fiskflaka krefðist hins
vegar fullkomins dreifingar-
kerfis, en það væri ekki fyrir
hendi alls staðar, enn sem kom
ið væri. Auk þess þyrfti að
taka tillit til þess, að dreifing-
arkerfi fyrir hraðfrystar vörur
yrði tæplega byggt upp af
dreifingarþörf fyrir fisk einan
saman, heldur verði að taka þar
með aðrar vörur, s. s. ávexti o.
fl.
Mr. Sergent vék sérstaklega að
afstöðu íslands til markaðs-
bandalaganna tveggja. Hvað
við kemur 6-landa band'alaginu,
þá benti hann á þá staðreynd,
að þau lönd, sem innan þess
standa, hafa nú gagnvart öðrum
löndum tolla, sem nema 15 af
hundraði, af þeim fiski sem
helzt kæmi til greina sem út-
flutningur af okkar hálfu.
Hvað sumum þessarar landa
viðkemur, væri hér um að ræða
tollalækkun, öðrum hækkun.
Þannig var t. d. tollur, sem nam
Frh. á 11. síðu.
Krúsév reiddist
Grotewohl.
Fregnir frá Austur-Berlín
herma, að Krúsév hafi fyrir
nokkru sett ofan í við Grote-
wohl.
Hafði Grotewohl orðið það á;
að lýsa yfir stuðningi við fram--
komu •Kína-kommúnista gagn-
vart Indíandi. Krúsév viíl sætt-
ir í deiiu Kína og Indiands og
er sagður hafa skipað Grothe-
wohl að hafa - engki' afskipti -af
þeim málum, í fám orðum sagt.v
að halda sér saman. -- <- - ■•<•«