Vísir - 21.01.1960, Page 4
f
Fimmtudaginn 2.1. janúar 1960
t . • VÍSIR
'rlsm
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði,
kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hættan mesta sem yfir vofir.
Eins og kunnugt er leggja
kommúnistaríkin — eða a.
, m. k. sum — mikla áherzlu
j á að auka fiskiskipaflota
j sinn. Ætlunin er að sjálf-
' sögðu að auka fiskveiðarnar,
I og endanlegt markmið mun
vera, að þessar þjóðdr veiði
! sjálfar allan þann fisk á út-
höfunum, sem þær hafa þörf
1 fyrir. Kappsamastir að þessu
leyti munu Rússar vera, en
Pólverjííideggja einnig mikla
, áherzlu á auknar fiskiskipa-
smíðar og veiðar. Má það
meðal annars marka af því,
að þeir hafa sérstök skóla-
skip fyrir þá menn, sem vilja
leggja fyrir sig störf á fiski-
skipum, svo að þeir geti lært
þau sem bezt.
Kommúnistar hér á landi hafa
jafnan bent á það, að við
ættum að geta selt allar
okkar fiskafurðir til jái’n-
tjaldslandanna. Heldur er
; óvíst, að svo megi verða um
alla framtíð, ef þessum ríkj-
um tekst að verða sjálfum sér
nóg á þessu sviði, eins og
stefnt er að af kappi miklu.
En þegar þar að kemur munu
kommúnistar hér á landi
vafalaust afsaka lokun mark-
aðanna með því, að við höf-
um ekki viljaðl líta við þeim.
Það var viðkvæðið árum
saman, þegar kommúnista-
ríkin höfðu engan áhuga
fyrir viðskiptum við fsiend-
inga, þótt þeir sé fúsir til að
kaupa talsvert nú.
En það er ekki aðalhættan, að
þessir aðilar hætti að kaupa
afurðir okkar, því að vænt-
anlega verður þróunin sú í
heiminum, að heldur rýmk-
ist um viðskiptin, svo að
fleiri aðilar kaupi meira af
okkur í framtíðinni. Hættan
er allt önnur og enn geig-
vænlegri. Hún er sú, að hin-
ir miklu flotar fiskiskipa frá
kommúnistaríkjunum — og
að sjálfsögðu fleiri ríkjum —
eyði með öllu ýmsum fisk-
stofnum, svo að það litla
sem eftir verður, geti aldrei
náð sér á strik að neinu ráði,
af því að alltaf verður veið-
um haldið áfram, þótt þær
kunni a§ dragast saman að
mjög miklu leyti.
Engar þjóðir munu auka fisk-
veiðar sínar eins mikið til-
tölulega og ýmsar Austur-
Evrópuþjóðir. Aukin þátt-
taka þeirra í fiskveiðum á
Atlantshafi eykur hættuna á
því að stofnarnir eyðist, og
þær hafa sennilega minni á-
huga fyrir að varðveita þá,
af því að þær eiga ekki líf
sitt undir því — eins og til
dæmis við og einnig Norð-
menn að miklu leyti — að
hægt verði að stunda arð-
samai' fiskveiðar. Það er ó-
sennilegt, að þær hafi eins
mikinn áhuga fyrir aukinni
friðun fiskimiða og til dæm-
is við íslendingar.
i hér er um alþjóðlegt vanda-
mál að ræða, því að þótt
mönnum takist að finna ný
fiskimið annars staðar en á
Norður-Atlantshafi, verður
það aldrei bætt að fullu ef
fiskimiðin í því verða eyði-
lögð með gegndarlausri
veiði. Þegar komið verður
saman til fundar í Genf eftir
tæpa tvo mánuði til að ræða
réttarreglur á hafinu, þyrftu
íslendingar að vekja athygli
á þessari mjög svo raunveru-
legu hættu. Þótt áhrifa
brezkra útvegsmanna gæti
víða, eins og við vitum, ættu
þeir varla að geta slegið
menn þvílíkri blindu, að
þeir geri sér ekki grein fyrir
ördeyðunni, sem verða kann.
‘J'l&'tí/'] kj/í'£pB,
W.kunÆ-miMtmdwmniu,w*í 'u
Hermann er helzta vonin.
Þjóðviljinn er alltaf við og við
að skamma Framsóknar-,
flokkinn, en það er þó aðeins
til að sýnast. Svo eindregin
hefir samvinnan verið hjá
kommúnistum og Framsókn,
að áróður flokksblaðanna
hefir verið sem krifaður af
sama manni, og verður þó að
1 segja það eins og það er, að
! Tíminri hefir stundum verið
kristnari en páfinn, hann
hefir jafnvel verið enn skel-
' eggari í baráttunni en kom-
múnistar.
Hinsvegar hafa kommúnistar
sérstaklega forðast að nefna
r einn mann í hóp Framsókn-
'l armanna. Þeir hafa sneitt
hjá því að hella úr skálum
reiði sinnar yfir Hermanni
Jónassyni, og' skyldi enginn
' maður undrast yfir því. Her-
mann er einlægasti vinur,
sem kommúnistar eiga utan
skipulegra raða sinna, og
hann hefir sýnt svo mikinn
bróðurhug, að þeir rauðu eru
sannfærðir um, að hann sé
reiðubúinn til samvinnu aft-
ur, hvenær sem tækifæri
býðst.
Það er hætt við því, að bæði
Hermann og kommúnistar
verði að bíða eitthvað eftir
því að hittast í ráðherrastól-
unuro. en þangað til geta
þetr að sjálfsögðu ‘j! iðkáð
Davíð frá Fagraskógi 65 ára
— sæmdur guílverðiaunum.
..d*iillua liliðið'' koiniA ú 1 á sænsku.
Dómnefnd heiðursverðlauna-
sjóðs Daða Hjörvar ákvað á
fundi í gær, að veita Davíð Stef
ánssyni frá Fagraskógi hin
fyrstu og sérstöku heiðursverð-
laun sjóðsins úr gulli á 65 ára
afmæli skáldsins, sem er í dag.
í dómnefndinni eiga sæti:
Helgi Hjörvar, formaður, til-
nefndur af útvarpsráði. Dr.
phil. Guðni Jónsson prófessor,
tilnefndur af heimspekideild
Háskólans. Lárus Pálsson leik-
ari, tilnefndur af leikurum
Þjóðleikhússins. Þóroddur Guð
mundsson skáld, tilnefndur af
rithöfundum og dr. phil. Broddi
Jóhannesson, kosinn af dóm-
nefndinni eftir sérstökum
skipulagsskrárinnar.
★
Bókaútgáfan HelgafelJ heiðr-
ar Davíð skáld frá Fagraskógi
á 65 ára afmæli hans í dag með
því að gefa leikrit hans „Gullna
Námsstyrkir vid banda-
ríska háskóla.
íslenzkir stúdentar eiga enn
kost á námstyrkjum við banda-
ríska hásltóla.
Það er sem fyrr íslenzk-ame-
ríska félagið, sem ásamt Insti-
tute of International Educat-
ion útvegar erlendum stúdent-
um, er hyggja á háskólanám
vestra, styrki. Þeir eru ætlað-
ir stúdentum, er ekki hafa lok-
ið háskólaprófi, en vilja leita
sér nokkurrar framhaldsmennt-
unar erlendis. Þeim, er ljúka
stúdentsprófi í vor, er heimilt
að sækja um styrki þessa, en
hámarksaldur umsækjenda er
22 ár.
Frekari upplýsingar uc styrk-
ina verða veittir í skrifstofu
Íslenzk-ameríska félagsins,
Hafnarstræti 19, sem verður op-
in næstu daga kl. 17,30—
18,30. Umsóknareyðublöð liggja
þar frammi, og þurfa þau að
berast skrifstofunni eigi síðar
en 31. janúar.
Berklayfirlæknir og yfirdýra
læknir hafa gefið sameiginlega
skýrslu um berklarannsóknir
á Hólum i Hjaltadal, bæði á
heimilisfólki og nautgripum
þar á staðnum.
Fyrir um ári síðan kom upp
grunur um það, að nautgripir
að Hólum væru berklaveikir.
Var þá gerð berklaprófun á öll-
um nautgripum skólabúsins, og
komu þá í ljós ógreinileg ein-
kenni berklaveiki í 12 gripum
af 66. Voru þrir þeirra felldir
og innýfli send til rannsóknar
gð tilraunastöðinni að Keldum,
frjálsar ástir, og munu víst
; áreiðanlega gera það: hW
hliðið“ út á sænsku. Nefnist
leikritið „Den gyllene porten“,
og hefur Anna Z. Osterman
gert þýðinguna.
Það er ekki ofmælt, að Davíð
sé ástsælasta núlifandi ljóð-
skáld íslands, hið eina, sem
gefið hefur verið nafnið þjóð-
skáld. Víst hefur enginn ljóða-
bók komið oftar út, auk ljóð-
mæla Jónasar Hallgrímssonar,
en „Svartar fjaðrir“, fyrsta
bók Davíðs, en hún kom fyrst
út fyrir rúmum fjörutíu árum,
árið 1919. Eru ótalin íslenzk
ungskáld er hneppzt hafa í
álög eftir að sú bók kom út,
og gerist slíkt jafnvel enn
þann dag í dag, enda þótt at-
ómöldin sé gengin í garð einnig
úti hér. Eina sögu hefir Davíð
ritað, „Sólon íslandus, og 4
leikrit hefur hann samið. Þau
eru „Munkarnir á Möðruvöll-
um“, „Vopn guðanna", „Landið
gleymda" og „Gullna hliðið“.
—: Eitt hinna allra vin-
sælustu kvæða Davíðs, var ort
mörgum árum áður út af sömu
sögu, „Sálin hans Jóns míns“.
Leikritið „Gullna hliðið“ hefur
verið leikið oftar en flest leik-
rif önnur, og íslenzkur leik-
flokkur hefur ferðast um Norð-
urlönd og flutt leikritið við
firna miklar vinsældir, einkum
í Noregi og Finnlandi.
Helgafell hefur áður gefið út
kvæði Davíðs í norskri þýðingu
eftir Ivar Orgland, nefnist sú
bók ,,Eg sigler i haust“.
Macmillan ávarpar
svarta.
Harold Macmillan liefur á-
varpað sameinað þing í Nigeriu.
Hann ræddi hin mikilvægu
timamót, sem nú væru, í sögu
landsins, er ákvörðun mundi
verða tekin um það á þingi, að
Nigeria yrði sjálfstætt sam-
veldisland, og fylgdust Bretar
af áhuga með því máli og góð-
um huga.
á Rannsóknarstofu Háskólans
og á dönsku dýralæknistofnun-
ina í Kaupmannahöfn. Hef-
ur rannsókn reynzt mjög örðug
og er ekki enn að fullu lokið.
Hrein einkenni nautaberkla
hafa ekki fundizt, enda hafa
þeir aldrei fundizt hér á landi.
Virðist sýklar þessir vera á ýms
an hátt afbrigðilegir og erfitt
að flokka þá.
Hefur berklaprófunum á Hól-
um verið haldið áfram síðán,
og alls vei'ið lógað 57 gripum í
því skyni. Aðeins fjórir hafa
sýnt sjúkdómseinkenni, sem
líkjast mjög berklabólgu, en
tæpur helmingur ósýktur. Virð-
ist mega ætla að tekizt hafi að
ná fyrir smitun þessa,,.en eftir-
Rakstrai'vélin
í snjónum.
Nokkrir lesenda Visis hafa lát-
ið í .ljós þá skoðun, að það hafi
verið ágæt hugmynd, að birta
myndina af rakstravélinni í snjón.
um, — því að það væri líklegi'a
en langt lesmál til að vekja menn
til umhugsunar um hirðuleysl
það og sóun, sem það lýsir, að
skilja vélar eftir úti á túnum eða
annarsstaðar, að sumarnotkun
lokinni, ryðga þar og eyðileggj-
ast, í stað þess, að taka þær
sundur og smyrja og geyma í
húsi yfir veturinn. Það er vafa-
laust rétt, sem stundum heyrist,
að margir hafi ekki hús undir
vélar sínar, en með þvi að taka
þær sundur myndu þó flestir
eða allir geta geymt þær í húsi,
og þar með tryggt að þær end-
ist í fjölda mörg 'ár, í stað þess
að verða að kaupa nýjar fyrr en
varir vegna' illrar meðfei’ðar
Eins og bent var á í lesmálinu
uridir myndinni, myndi sparast
við þetta mikill gjaldeyi’ir þjóð
inni — og éigandanum augljós-
lega mikill sparnaður að.
Til fyrirmyndái’.
En svo er hins að geta, að
þótt viða sjóist vélar úti um
hvippinn og hvappinn, sem hii’ðu-
lausir menn skilja eftir til
geymslu vetrarlangt undir beru
lofti, hafa menn nú víða á bæj-
um úti um sveitir komið sér
upp verkfærageymslum nægi-
lega stórum til að geta. geymt
þar dráttarvél, sem grípa þarf
til allan ársins hring, en hey-
vinnuvélar . sundurteknar og
smurðar, og einnig hafa menn
þar verkfæraskáp og vinnuborð
og þetta er það, sem koma skal
á hverjum bæ. Fyrr þótti það
myndai’bragur að hafa smiðju á
bænum — nú eru það verkfæra-
og vinnuskýli, sem komið er upp
æ víðar. Vonandi hverfur það
fljótlega, sem myndin hér í blað-
inu minnti á. að enn á sér stað.
Bílageymslur
vantar.
Það má lika minna á það í
framhaldi af því, sem sagt hef-
ur verið, að hundrað eða þúsund-
ir manna vei’ða, af illri nauðsyn,
að geyma bíla sína allan ársins
hring undir beru lofti. Það er
líka ill meðferð á dýrum tækj-
um og gjaldeyriseyðsla. í hópi
bileigenda, sem ekki hafá bíl-
skúr, eru vafalaust ýmsii’, sem
gjarnan vildu koma bifreið
sinni í geymslu a.m.k. þeir sem
aðallega nota bila sifia til utan-
bæjarkeyrslu, en vilja eiga bíl
til þess að geta gripið til hans
við og við, en r.ota hann ekki
að staðaldi’i, a.m.k. ekki vetrai’-
mánuðina. Væri ekki vit að koma
i upp stórum bílageymslum í
þessu skyni? — 1.
liti verður haldið áfram í ör-
yggisskyni.
Þá var á árinu gert berkla-
próf á um 20 þúsund nautgrip-
um á svæðinu frá Borgarfirði
óg austur í Mýrdal. Er þá nær
lokið að prófa alla nautgripi í
þeim sveitum, sem að jafnaði
senda mjólk til Rvíkur. Svör-
uðu 38 gi’ipir jákvætt og voru
felldir. Þó fannst ekki berkla-
veiki í neinum þeirra, nema
vottur af fuglabei-klum í ein-
um. Hafa þessar rannsóknir
staðfest þá skoðun að berklar í
nautpeningi hér á landi séu á-
kaflega sjaldgæfir, og að nauta-
berklar hafa enn eigi fundizt,
svo öruggt sé<; - • ,
lautaberklar hafa aldrei
fundizt á íslandi.
20 þús. nautgripir berkiaprófaðir.