Vísir - 12.02.1960, Side 3

Vísir - 12.02.1960, Side 3
Föstudaginn 12. febrúar 1960 Vf SIR I»essi mynd er frá miðri Ástralíu, og karl af Pitjantjara-ætt- bálkinum er að sýna, hvernig „ponkó-limpó“ eða beinabendingu er liagað. Þegar fórnardýrið fréttir, að á bað hafi verið „bent“, leggur það árar í bát og býst við dauða sínum. Mvndin er tekin úr bókinni „Frumstæð paradís“ eftir Jacques Villeminot. „BEIIHBEl Astralskur gtjóMlokkur 20.000 árum á eftir (ínianum. Fyrir nokkru var frá því skýrt hér í Vísi, að drengur nokkur 15 ára gamall lægi fyr-1 ir dauðanum í sjúkraliúsi í Perth í Ástralíu, vegna þess að galdrakarl hefði lagt á hann, að hann skyldi deyja. Svo virðist, sem drengurinn hafi unnið til þessarar refsing- ar með því að hnýsast í trúar- leyndarmál ættflokks síns. Það er ekki fullvíst, hvort hann var „tekinn af lífi“ með hinni djöf- ullegu „beinabendingu“, sem galdralæknar þessa frumstæða fólks viðhafa stundum eða á annan hátt. Hvernig sem það hefir skeð, var ekki unnt að finna neinar líkamlegar veilur á drengnum, en hann var þess fullviss að hann mundi deyja, og hafði legið í dauðadái í heil- an mánuð. Það vill svo til, að nýlega er út komin bók eftir Jacques Villeminot, sem nefnist „Frum- stæð paradís", þar sem lýst er nákvæmlega —- með myndum — beinabendingunni eða Pon- kolimpo, sem hinn frumstæði ættflokkur, Pitjantjara, við- hefur í Mið-Ástralíu, og drepur þaiinig stöku sinnum óvini sína úr fjarlægð og án hans vit- undar. ,,Dauðabeinið“ er 15—25 sm. langt, segir Villeminot, oddhvasst í annan enda, en á hinum enda storknaður trjá- kvoðuhnúður. Beinið er skorið úr kengúru- eða mannabeini, og er nýtt bein . búið í hvert sinn. Til þess að galdurinn megi takast, er ekki sama hver bend- ir dauðabeininu, en sá þarf helzt að hafa litlutá, sem hefir farið úr liðl. Þegar hann fer í drápsleiðang'ur, leynir hann fótsporum sínum með því að nota sérstaka skó gerða úr fjöðrum af emú-fugli og hári af dauðum mönnum. Þegar kcmið er á réttan stað, leggst moi'ðinginn á annað hnéð, bein- ir beininu í áttina til fórnar- dýrsins og syngur mergjaða galdraþulu. „Hann trúir því, að þegar hann geri þetta, sendi hann ein- hvern vökva eða banvænan fastan hlut inn í líkama fórnar- dýrsins“, segir Villeminot, sem var í þrjá mánuði hjá þessúm ættflokki. „Þegar sá síðarnefndi kemst að því, að á hann hefir í verið bent —- annaðhvort af því að hann finnur beinið nálægt i sér, eða að vinur hans segir honum frá því — fær hann um- i svifalaust mikið líkamlegt á- fall, því að hann veit fullvel um meiningu þessarar athafna- ar, og hann „veit“ að hann muni 'deyja. Eini möguleikinn fyrir |hann er að fá annan galdra- lækni til að fjarlægja banvænu iefnin úr líkamanum. Ef það heppnast ekki fær ímyndunar- aflið lausan tauminn, og lík- !aminn verður- sjúkur. Honum ?r sí-hrakandi, hann missir meðvitund, og deyr venjulega innan þriggja sólarhringa, án nokkurs líkamlegs áverka og aðeins fyrir atbsina ímyndun- araflsins. Það er greinilegt, að dauðann | ber ekki að vegna þess að bein- inu hefir verið á hann bent, heldur síðar, þegar fórnardýrið. Jveit með vissu, að beininu hefir |Verið bent — jafnvel löngu síð- Jar — og það er sú vitund, sem framkallar taumlausa ofsa- hræðslu í huga hins frumstæða imanns. Drengurinn, sem getið var, hafði unnið til þessarar refsing- ar vegna þess að hann hafði verið að hnýsast í trúarleyndar- mál ættflokks síns, sem býr í Mið-Ástralíu, en siðir og venj- ur ættflokkanna í norð-vestur Ástralíu eru mjög svipaðar, og reyndar í öllum hlutum Ástra- líu. Villeminot segir, að nokkru áður en hann ferðaðist um Areyonga, sem er í Mið-Ástra- líu, hafi fundizt lík drengst fyrir I utan skólahúsið, sem hafði ver- ið deyddur með annari aðferð, ■ sem nefna mætti „tvísnúning". | Drengurinn hafði verið í undir- búningi til manndómsáranna, j og hafði framið þann óafsakan- lega glæp að tala um „leyndar- mál“ við nokkrar af stúlkum ættflokksins. Annars staðar urðu menn að vernda konu, sem hafði ekki hlýtt giftingar- lögum ættflokks síns. Fyrsta barni hennar hafði verið fyrir- farið við fæðingu, og sömu ör- lög biðu annars barnsins. Blóðdrykkja. Þegar verið er að undirbúa dreng undir manndómsárin og Jkenna honum trúarsiði, er mik- il alvara á ferðum, enda stend- 'ur þetta yfir í átta til tíu ár. Drengurinn er umskorinn, augntönn úr efri gómi er dreg- in úr, hann verður að ganga á glóðum (ganga á blóandi kolum, án þess að brenna, vera | einmana bundinn í eyðimörku heila nótt og loks drekka blóð úr æð vinar. Undirbúningnum lýkur með því að hann er látinn haldast við langt frá þorpinu í tvö ár, og á þeim tíma má hann ekki kvenmann líta. ; Þegar þessum undirbúningi |lýkur, er álitið að maðurinn geti, ef hann óskar, framkvæmt galdra, eða í það minnsta fram-| jkvæmt ýmislegt það, sem okk-| ur finnst yfirnáttúrlegt. Eins 'og allir þeir, sem hafa kynnzt^ þessum frumstæðu þjóðflokk- íum, er Villeminot ekki í nein- um vafa um það, að hugsana- flutningur er raunveruleiki, svo !og ýmislegt annað, sem venju- | legum mönnum er ekki gefið. ! Hann heldur því fram, að 1 menningin hafi búið menn þess-. jari gáfu, sem þessar frumstæðu þjóðir varðveita enn. Pitjantjara þjóðflokkurinn getur lesið úr hörðum, þurrum jarðveginum hvar aðrir menn eða jafnvel dýr, hafa farið, hvert þeir hafa farið og hvers vegna. Þegar engin spor eru sjáanleg, staðnæmast þeir, þefa út í loftið, hugsa málið, og leggja síðan af stað í þá átt, sem síðar reynist ávallt rátt. Oftlega hafa þessir menn látið hvíta menn vita um skógareld, I sem geisað hefir langt í burtu, um slys eða önnur óhöpp. Einu sinni sá höfundur bókarinnar þessa menn skyndilega hefja sorgarsöng, vegna þess að fé- lagar þeirra höfðu lent í bar- daga í 200 kílómetra fjarlægð. Síðar kom það í Ijós, að bar- daginn hafði raunverulega áít sér stað á tilgreindum slóðum og á þessum tíma. Nýít húsnæði handa íögreglunni á Akureyrí. Jsfislramt gsri rá5 fyrtr aiekiniil íör;gfeZiis, Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Sanikvæmt upplýsingum frá bæjarfógeta og yfirlögreglu- þjóninum á Akureyri er mikilla úrbóta þörf varðandi aðbúiíað lögreglu staðarins og í undir- búningi er nú að fá nýtt hús- næði fyrir lögregluna. Lögreglustöð Akureyrar er orðin 20 ára gömul og fyrir löngu of lítil orðin og úrelt. Þetta er lítill steinkumbaldi með varðstofu, einu litlu her- bergi og þrem fangaklefum. Það segir sig sjálft að þessi fangageymsla er gjörsamlega ófullnægjandi, ekki sízt um helgar, og fyrir bragðið verður oft að aka dauðadrukknum mönnum heim til þeirra þótt þeir eigi, sjálfs sín og annarra vegna, hvergi annars staðar að vera en undir lás og slá. Auk þessa er allur aðbúnaður lög- reglunnar í þessum húsakynn- um fyrir neðan það sem sæmi- legt má teljast. Nú hefur komið fram tillaga um að lögreglan fái húsnæði fyrir starfsemi sína og þ. á m. fyrir 7—8 fangaklefa í væntan- legri byggingu slökkvistöðvar bæjarins. Er þetta mál nú í at- hugun og er gert ráð fyrir að kostnaðurinn af þessu nemi sem svarar 1 millj. kr. Miðað við íbúatölu Akureyr- arkaupstaðar ættu að vera þar 17 manna lögreglulið, en er sem stendur aðeins skipað 10 mönn- um. Er brýn þörf aukningar lögregluliðsins, einkum með hliðsjón af því að Akureyri er j umferðarmiðstöð Norðurlands [ og að þar hefur bílum fjölgað úr 800 í 1300 á síðasta áratug'n- j um, en það sem meira er þó ’ umvert ao bifreiðaumferð að ! og frá bænum hefur tvöfaldast J á þremur síðustu árunum. En það er fjölda margt fleira sem til greina kemur varðandi störf og annir lögreglunnar held ! ur en umferðin ein. Það eru [ hvers konar hjálpar- og leið- beiningastörf gagnvart almenn- ingi, auk lögreglu á götum úti og á skemmtistöðum bæjarins. Hefur nú verið gert ráð fyrir kostnaði við aukna löggæzlu bæjarins, er svara myndi til launa eins lögregluþjóns á fjár- hagsáætlun Akurevrarbæjar fyrir árð 1960, en jafnframt verður leitazt við að fá laun annars lögregluþjóns greidd úr ríkissjóði, þannig að viðbót lög- reglunnar verði tveir menn, Þess má að lokum geta að frá því var skýrt fyrir nokkrum dögum í blöðum og útvarpi að lögregluskýrslur, sem bæjarfó- getaembættinu voru sendar á s.I. ári voru samtals 103 að tölu. Fyrir átta árum var tilsvar- andi tala lögregluskýrslna 194 og gefa þessar tölur nokkra hugmynd um hið aukna starf lögreglunnar þótt engum lög- regluþjóni hafi verið bætt við á þessu árabili. SmáaugSýsingar Visis eru áhrifasnestar. Þau eru orðin fá eftir, síóru seglskipin, svanir úthafanna, eins og bau voru einu sinni nefnd. Fyr- ir tveim árum fórst Pamir í fár- viðri, eins og menn muna, og nú hefur systur skip þess, Passat, sem náð hcfur virðulegum aldri, 50 árxim, fengið hvíldina. Það var fyrir skemmstu dregið frá Ham- borg til Trave- múnde, bar sem það verður fram- vegis dvalar- heimili aldraðra sjómanna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.