Vísir - 12.02.1960, Page 10

Vísir - 12.02.1960, Page 10
10 VÍSIR Föstudaginn 12. febrúar 1900 láta undan þegar í stað, undireins og þau sæju þig.“ Hann horfði fast og biðjandi í augu henni, en hún sneri sér frá og sleit sig aí honum. Hann greip um úlnliðinn á henni og sagði innilega: „Þú verður að trúa mér — eg elska þig, Sherlie.“ „Það er ekki langt síðan þú sagðir það sama við Melissu,“ sagði hún og reynöi að hamla á móti hjartslættinum. „Mér er engin þörf á þesskonar vináttu, Rudy.“ „Þú segir þetta af því að þú hefur aldrei hugsað þér mig sem elskhuga þinn. Þú ert svo falleg, elskan mín, að þú getur ekki láð mér þó að eg vilji kyssa þig og eiga þig.“ Líklega var honum alvara, hugsaði hún með sér, en hann var orðin svo leiður á tilbreytingaleysinu í bankanum, að hann sá að hún gæti orðið úrræði til að sannfæra föður hans um að hann væri staðráðinn í að verða góða barnið í framtíðinni — já, kannske yildi hann giftast til þess að komast hjá að vinna í þrjú ár fyrir sultarkaup. „Það stoðar ekki, Rudy,“ sagði hún og greikkaði sporið. „Þú elskar mig ekki í einlægni og eg ekki þig heldur. Eg kann vel við þig og kunningja þína, en þetta hjal um ást spillir öllu.“ „Þú ert köld eins og klaki,“ sagði hann hryssingslega, „og stað- ráðin í að eg skuli ekki halda að þú sért að seilast eftir ríkum ráðahug. Annars vildi eg óska að þú hefðir hug á því, eins og allt er í haginn búið — ekki af því að eg telji sjálfan mig neitt képpikefli, en eg þarf á stúlku eins og þér að halda. Eg bar alls ekki sömu tilfinningar til Melissu — hún var ofurblíð á yfirborð- inu, en eg mundi aldrei hafa elskað hana ef hún hefði ekki verið svona eftirlát sjálf. Og faðir minn mundi aldrei hafa tekið í mál að eignast Melissu van Gelder fyrir tengdadóttur." „Æ, viltu nú ekki hætta þessu!“ Þannig hafði samtalinu lokið og nú höfðu þau ekki sést í marga daga. En svo buðu sameiginlegir kunningjar þeirra þeim í gleðskap og allt jafnaðist og varð eins og áður. Rudy taldi sig hafa nægan tíma til að undirbúa sumarleyfið Og heimsókn sína í föðurgarð. En honum skjátlaðist í því að hann heíði tímann fyrir sér. Einn föstudag skaut rosknum prúðum manni upp í Santa Lucia. Hann hafði ekki pantaö herbergi fyrirfram, en var auð • Sjáanlega vanur því að dýrasta íbúð gistihússins stæði uppbúin hana sér. Það var út aí þessu, sem Sherlie kynntist Louis Cartelle, föður Rudys. „Viljið þér gera svo vel ao senda símskeyti fyrir mig og hrein- rita nokkur bréf, sem eg skrifaði á skipinu. Ef þér komist ekki fram úr einhverju ætla eg að biðja yður að hringja til mín á herbergið mitt.“ Sherlie hafði þegar hugboð um hvað það var við Rudy, sem hafði valdið þessum manni vonbrigðum, er hafði yfirgefið ætt- jörð sína til að skapa sér framtíð á Indlandseyjum. Hann hafði gifst dóttur plantekrueiganda og sest að á Sumatra. En Rudy átti engan annan grundvöll en Austurlönd, hann hafði fengið skóla- menntun sína í Singapore og dvalið með námsmönnum af ýmsu tagi, frá enn ríkari heimilum en Dudys. Og það var ekkert undar- legt að Cartelle reiddist því að Rudy stofnaði skuldir. „Tvo-þrjá mánuði.“ „Eigið þér marga kunningja meðal unga fólksins í Panleng?“ „Eg þekki son yðar,“ sagði hún. „Já, einmitt — hann veit ekki ennþá að eg er kominn liingað, en eg ætla að láta hann borða með mér í kvöld. Eg vil ekki síma til hans í bankann, en ætla að senda honum nokkrar línur.“ Sherlie var sest við ao vélrita bréfin hans þegar hringt var í símann og hún heyrði æsta rödd Rucys: „Sherlie,. eg var rétt í þessu að frétta að hann pabbi væri í gistihúsinu! Iíann vill aö eg borði með sér miðdegisverð, en það get eg ekki. Ef hann kemst að þessu með Melissu útskúfar hann mér um aldur og æfi. Eg er í öngum mínum og veit ekki mitt rjúkandi ráð.“ „Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af Melissu,“ svaraði hún róandi, „hún gerir sér von um að giftast Paul Stewart.“ „Ógnar bjáni ertu! Goðið í Mullabeh giftist aldrei Melissu.“ Hjartað hoppaði í brjóstinu á henni. „Stewart giffcist aldrei, hann er hlédrægari og þóttafyllri en svo. En það eru þessi bréf — eg verð að fá þau.“ „En hún Melissa leggur ekki rnikið upp úr þeim....“ „Ekki ennþá — en þegar henni skilst að henni verður ekki ágengt með Stewart. Það er ljótt að segja það, en eg held að — þegar hún uppgötvar að hann faðir minn er talsvert efnaður, gæti hún gert mér mikla bölvun með þessum bréfum.“ „Þetta er ranglátt — hún rnundi aldrei láta sér detta slíkt í hug.“ „Að minnsta kosti rnundi hún kannske heimta að giftast mér, en þaö vil eg ekki. Pabba mundi ekki falla við hana — hún er allt of lík mér. Sherlie —“ sagði hann í bænarróm, „geturðu ekki komist yfir þessi bréf fyrir mig?“ „Eg kem aldrei inn í herbergi Melissu — eg get spurt hana — meira get eg ekki gert.“ „En flýttu þér þá að gera það — áður en hún kemst að því að pabbi er hérna. Sherlie, eg á allt undir þér núna.“ Sherlie hafði lítið haft af Melissu að segja síðan hún fór að starfa í gistinúsinu — en hver veit nema hún væri í herberginu sína núna, að hugsa um hvaða kjól hún ætti að fara í fyrir mið- degisverðinn. Sherlie lauk við skriftirnar og sendi bréfin upp til Cartelles og drap á dyr hjá Melissu. Melissa lá á rúminu í bláum nærkjól og dökka hárið féll eins og foss niður á herðarnar, og var að lesa skáldsögu — dreymandi girnd skein úr dimmum augunum. Ef Paul sæi hana núna, mundi hann kyssa hana, hugsaði Sherlie með sér. Mellissa bærði varla á sér. „Ertu aö leita að einhverju?“ sagði hún stutt í spuna. Sherlie reyndi að brosa eðlilega. „Þú manst að eg spurði þig einu sinni um bréfin, sem Rudy Cartelle sendi þér?“ „Já, eg man það — er hann að suða um þau ennþá? spurði hún og grundsemd skein úr augunum á henni. „Já, hann er það —■“ Sherlie datt allt i einu í hug að bezta ráðið til að ná i bréfin væri það að skjalla hana. „Þú veist að Rudy varð. særður er þú yfirgafst hann. Eg held hann sé hrædd- ur um að þú hlægir aö þessum gömlu bréfum, og þess vegna vilji hann eyðileggja þau.“ „Eg særði hann svo djúpt að hann fór undir eins að draga sig eftir þér,“ sagði Melissa. „Þú ert hrædd um að eg sýni þau ein- hverjum, svo að það vitnist að þú ert ekki annað en varaskeifa hjá Rudy.“ Sherlie varð svo reið að hann langaði til að grýta einhverju í hausinn á Melissu, en hún stillti sig og tókst að segja hægt og rólega: „Ætlarður að láta mig fá þessi bréf?“ „Nei!“ KVÖLOV0KUNNI I" 5" I =!- = = = = ■ S|líÍIB!lW Ungur eiginmaður kom h-eim j úr skrifstofunni og konan hans heilsaði honum alveg rugluð. ,,Ó, Jón, eg hefi haft svo erf- iðan dag í dag,“ kveinaði hún. 1 „Hvað kom fyrir?“ ,,Hann Jonni fékk fyrstu tönnina sína í dag. Svo datt hann á rúmgafilnn sinn og. hún brotnaði — og svo .... “ „Já, já . .. .“ „Þá sagði hann fyrsta blóts- yrðið sitt.“ k Nýr iæknir var kominn í ná- grennið og frú ein hafði .sent honum miðdegisverðarheimboð. Sem svar fékk frúin alveg ó- læsilegt bréf. „Eg verð að vita hvort hann tekur boðinu eða hafnar því,“ sagði frúin við bónda sinn. ,,Ef eg væri í þínum sporum myndi eg fara með bréfið til lyf- salans,“ sagði bóndi hennar. „Lyfsalar geta ætíð lesið bréf frá læknum, hversu illa sem ! þau eru skrifuð.“ Lyfsaiinn leit á bréfið, fór með það bak við búð sína í lyfjageymsluna og kom aftur með flösku, eftir nokkrar mín- útur. ,,Gerið þér svo vel frú. Þetta kostar 2 krónur.“ Konan og bóndinn fóru bæði til sálkönnuðar. „Við höfum verið gift í meir en 20 ár ,en upp á síðkastið hegðar hún sér svo undarlega.“ „Að hverju leyti?“ spurði læknirinn. „Hún hefir geitur í dagstof- unni og það er svo hræðileg lyktaf þeim.“ „Hvers vegna opnið þér þá ekki dyr og glugga’“ spurði sál- könnuðurinn. „Hvað þá? Og láta allar dúf- urnar fljúga burt?“ tAOGAveu io - R. Burroughs A LIZAiCP'-MAN WHO V.'AS PATKOLLING THE PER.IF’KEKy OP HIS VILLAGE, SUP'P’ENLY TUK.NEP AS HE NOTEI7 A STKANSE CXCUKKENCE— TARZAK 3194 TMS gAKE GKOUNÍ7 PAKTE!7 ANI7 EXFOSEt? A HANC' WiEL!7iNG A T.NIPE 1 Hærfatnaðu; karlmanna •g drengja fyririiggjand) / LH.MULLER arcjam gullfiskagarn, marella, golfgarn, fidella, grillon Eðlumaðurinn vörð umhverfis sem hélt | allt í einu skrýtna sjón. Jörð- þorpið sá | opnaðist og upp úr henni kom maður og á meðan hann hljóp til að kalla á fleiri verði brutust þeir Tarzan upp úr leðjunni.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.