Vísir - 06.04.1960, Side 1
12
síður
12
síður
*0. árg.
Miðvikudagiim 6. apríl 1960
81. tbl.
Ljóstæknivika stendur yfir hér í Reykjavík um þessar mundir,
eins og Vísir hefur sagt frá að undanförnu. Tilgangurinn með
henni er að vekja allan almenning til umhugsunar um, hversu
nauðsynleg góð og rétt lýsing er. Myndin sýnir smekklega og
athyglisverða sýningu í glugga Málarans við Bankastræti. :—
(Ljósm. P. Ó. Þ.)
Strontium jókst um 40
% í mjólk í Bretlandi.
Eftirtektarverð rannsókn
brezkra vísindaananna.
Á síðasta ári jókst strontium-magn í mjólk í Bret-
landi til muna vegna tilrauna þeirra, sem gerðar voru
með vetnissprengjur árið 1958.
Það eru vísindamenn brezku
stjórnarinnar, sem komizt
hafa að þessari niðurstöðu eftir
langar og nákvæmar rannsókn-
ir. Voru tekin sýnishorn á hálfs
mánaðar fresti úr tveim af
hverjum fimm mjólkurflösk-
um, sem sendar voru frá mjólk-
ursamlögum landsins á margra
mánaða tímabili.
Fyrst og fremst var leitað
að strontium, og kom í Ijós,
að í september—október
1958 — eftir vetnissprengju-
tilraunir Sovétríkjanna —
jókst strontiummagn í mjólk
um 40 af hundraði.
Sérfræðingarnir segja, að ef
ekki verði um frekari tilraunir
að ræða, muni strontiummagn-
ið fara ört minnkandi, svo að
það verði brátt komið niður fyr
ir hættumarkið, sem sett var
af læk'narannsóknaráði Bret-
lands 1956.
Þótt sérfræðingarnir viður-
kenni, að hér sé um alvörumál
að ræða, og ástandið geti versn
að til muna, ef tilraunir verða
hafnar á ný, segja þeir, að lík-
aminn losi sig við þrjáfjórðu
hluta alls strontiums, sem í
hann er komið, og sé því hætt-
an ekki eins mikil og magnið í
loftinu virðist gefa til kynna.
Færabátar í Eyjum
hafa lítið aflað.
Vestm.eyjum í morgun.
Færabátar hafa farið illa út
úr vertíðinni það sem af er.
Hæsti færabáturinn hefur ekki
áflað meira en 50 Iestir, en flest-
ir aðrir hafa langtum minna.
Fiskur hefur tekið sæmilega
á færi þá sjaldan að bátarnir
hafa getað verið úti vegna veð-
úrfarsins. Og austanáttin
Málamiðlunartaliö í Genf vekur
Islandsnefndarinnar.
i
ií>r()/i hávœrari. srtn
hvrijfts téi sstáiíssssiáistsassr.
Sennilega engin atkvæðagreiðsla
fyrr en í næstu viku.
Einkaskeyti til Vísis. — Genf í morgun.
Það kom íslenzku sendinefndinni á óvart, þegar fulltrúi
fyrir Ghana í Afríku stakk skyndilega upp á því að farin skyldi
málamiðlunarleið, og komst einn nefndarmanna svo að orði við
mig, að „það hefði verið'nefndinni mikil vonbrigði."
hefur verið óvenju stöðug, svo
segja má, að ekki hafi gefið á
sjó fyrir færabáta dag eftir dag.
f dag er leiðindaveður, sunn-
an suðaustan, ‘en flestir eru á
sjó. Þeir hafa verið að fá reit-
ings afla í netin, en ekki er
hægt að tala um uppgripaafla
hjá neinum þessa dagana.
Annars er því ekki að leyna,
að þeir verða sífellt háværari,
sem hvetja til málamiðunar um
tiíiögur, og þrír af fjórum
íæðumönnum í gær fóru fram
á, að sett yrðu einhver tak-
mörk fyrir sögulegum réttind-
um. Til dæmis sagði fulltrúi
Ceylons, Sir Claude Corea, í
ræðu sinni:
„Það er ekki ógerningur að
samræma réttindi strandríkja
og fiskveiðiþjóða með tvíhliða
samningum." — Síðan hvatti
Corea Kanada til að breyta til-
lögu sinni til að viðurkenna
tvíhliða samninga.
Robert Quentin-Baxter, full-
trúi Nýja Sjálands, komst svo
að orði, að „málamiðlun væri
nauðsynleg.“ Hann sagði enn-
fremur, að „ef við getum orðið
ásáttir um að ákveða árafjöld-
anna, getum við leyft okkur að
íhaldsmenn
óánægðir.
Amory, brezki fjármálaráð-
herrann, lagði fjárlgafrumvarp-
ið fýrir þingið í gær
Það vakti mikla athygli, að
undir ræðunni gætti helzt á-
nægju hjá stjórnarandstöðunni,
en óánægju í röðum íhalds-
manna og .12 sátu hjá við at-
kvæðagreiðslu.
Svipað kemur fram í blöðum
í morgun
. Amory lagði á það áherzlu, að
hættulegt gæti verið að leggja
út í mikla skattalækkun, rétt
væri og' nauðsynleg't að trevsta
það sem áunnist hefði
Á svörtum lista
hjá Aröbum.
Nú liefir verið bannað að sýna
i írak myndir, sem Danny Kaye,
Elizabeth Taylor og Jerry
Lewis leika í.
Ástæðan er sú, að Danny hef-
ir veitt aðstoð við fjáröflun
handa Israel, Elisabeth gefið
100,000 dollara til hennar og
Jerry tekið þátt í áróðursmynd
fyrir Israel.
vera .örlátir við ákvörðun þessa
tímabils.“
Fulltrúi Israels, Gideon Raf-
eal, sagði: „Ef við samþykkjum
stækkun fiskveiðilögsögunnar,
er það sanngjarnt að gert sé
ráð fyrir breytingatímabil til
aðlögunar nýjum aðstæðum.“
Nú eru allar horfur á því,
að atkvæðagreiðslur hefjist
ekki fyrri en í næstu viku,
þar sem Josea Correa frá
Ecuador, sem er í forsæti,
vill gefa mönnum nægt tóm
til viðræðna bak við tjöldin.
Er búizt við að fulltrúar
haldi enn ræður í fjóra daga og
eru nær engar líkur fyrir því,
að ráðstefnunni ‘ Ijúki fyrir
páska. Bandaríkjamenn gera
ráð fyrir, að hún standi jafnvel
til 28. apríl.
Þegar atkvæðagreiðslur hefj-
ast, verður byrjað á breyting-
artillögu Filippseyinga um að
,-,söguleg hafsvæði“ skulu und-
anþegin öllum fjórum tillögum.
Síðan verða tillögur bornar upp
í þessari röð:. Tillaga Sovét-
ríkjanna, Mexíkó, Kanada og
Bandaríkjanna, og síðan aðrar,
sem fram kunna að korna.
15024 I. til
Keflavíkur.
Frá fréttaritara Vísis.
Keflavík I morgun.
Afli Keflavíkurbáta frá ára-
mótum til loka marzmánaðar
var 15.024 Iestir í 2135 róðrmn.
Er það 3074 lestum meira en
komið hafði á land á sama tíma
í fyrra. Þess ber að geta, að
róðrar voru 1700 í fyrra.
Aflahæstu bátarnir eru: Ask-
ur 645,8 lestir, Ólafur Magn-
ússon 573,8, Bjarmi 531,5, Jón
Finnsson 521,8, Guðmundur
Þórðarson 518,5, Bára 504,7,
Svanur 470, og Kópur 450,8.
Það skeði í Mexikó þann 5.
marz s.I. að strætisvagn ók
á benzíntank með þeim af-
leiðingum að tankurinn
sprakk og kveikti í vagnin-
um. Tveir fullorðnir og 8
börn fórust.
3 T U N 0 I N ■ Á L G X 3 T
Skammbyssa í
um og skot í bílsium.
Þær upplýsingar, sem Vísir
gat í gær gefið um liótunarbréf
til lögreglustjóra frá einum lög-
regluþjóni í Rvík, hafa nú ver-
ið staðfestar opinberlega af
rannsóknardomaranum í mal-
inu, Guðm. Ingva Sigurðssyni.
Kærurnar hófust með því að
Magnús Guðmundsson lögreglu-
þjónn nr. 64 kærði Magnús Sig-
urðsson varðstjóra fyrir dóms-
málaráðuneytinu vegna of-
sókna, er hann taldi sig hafa
orðið fyrir af hans hendi. Dóms-
málaráðuneytið sendi lögreglu-
stjóra kæruna til umsagnar,
eins og venja mun vera, en
hann svaraði m. a. með því .að
kæra Magnús Guðmundsson
fyrir tvennt: í fyrsta lagi fyrir
ýmsar ærumeiðandi og villandi
blaðagreinar, sem hann ihefði
ritað og fengið birtar undir dul-
nefni, og í öðru lagi fyrir að
senda sér hótunarbréf um líflát.
Dómsmálaráðuneytið fyrir-
skipaði þegar rannsókn í mál-
inu, og var Magnús þá þegar
tekinn til geymslu í fangahús-
inu. Við leit á honum fannst lít-
il skammbyssa í vasa hans og
Framh. á 7. síðu.
10,000 rnissa hús
í eldsvoða.
Eldsvoði mikill varð í Burma
um helgina, er smáborg brann
að hálfu leyti til grunna.
Var þetta borgin Yandoon,
'sem er um 100 km. fyrir norðan
ÍRangoon, en þar búa um 20,000
(manns. Ekkert manntjón varð
í eldinum, sem gerði um 2,5
ímillj. punda tjón. ;