Vísir


Vísir - 22.04.1960, Qupperneq 3

Vísir - 22.04.1960, Qupperneq 3
Föstudaginn 22. apríl 1960 VtSIR Narfi — nýjasti togarinn. Á skírdag kom nýjasti togari íslendinga, Narfi, til Reykja- víkur. Narfi er stórt skip, um 1000 rúmlestir og búinn öllum nýjustu og fullkomnustu tækj- um. Skipið er byggt í Vestur- Þýzkalandi og virðist allur frá- gangur hinn bezti. Narfi, sem er eign Guðmund- ar Jörundssonar, er hinn fyrsti af fimm nýjum togurum, sem verið er að byggja fyrir ís- lendinga í Vestur-Þýzkalandi. Allt eru þetta stórir togarar, svipaðir Narfa. Eigendur hinna togaranna eru Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, Bæjarútgerð Akraness, ísbjörninn h.f., Reykjavík, og ísfell h.f., Flat- eyri. gerð þeirra aðallega áætluð með það fyrir augum, að láta þá stunda veiðar á fjarlægum miðum. Aðallega var þá veiði- svæðið við Nýfundnaland haft í huga, en þangað sóttu allir íslenzku togararnir mikinn og slcjótfenginn afla sumarið 1958. Veiðin sumarið 1958 á þessum sömu miðum reyndist talsvert tregari en árið áður, og það jafnvel svo, að mikið af þeim karfa, sem togararnir komu með í fyrrasumar, reyndist ekki hæfur til neinnar vinnslu nema í fiskimjölsverksmiðjur. Vafalaust hefir þessi sam- dráttur á aflamagni á Ný- fundnalandsmiðum stafað að miklu leyti af þeirri ofveiði, Það var svo lítið rúm í blaðinu í gær, að ekki var hægt að birta bessa mynd af eiganda og yfirmönnum á Narfa. Þeir eru, taldir frá vinstri: Guðmundur Jörundsson, útgerðarmaður, Þorsteinn Auðunsson skipstjóri, Júlíus Halldórsson, 1. vélstjóri, og Anton Guðmundsson, 1. stýrimaður. Það er einn ljós blettur á þessum síðustu togarakaupum okkar, að meiri hluti þeirra eru keyptir af einstaklingum, en bæjarútgerðirnar virðast heldur vera að fjara út og er það vel. Það er staðreynd, að við sömu aðstæður og jafnrétti við hinn opinbera rekstur, eru einstaklingar mun hæfari til að reka togara eins og allan ann- an atvinnurekstur. Narfi er fallegt skip, og lín- ur í því allar hreinar. Ósérfróð- um mönnum virtist, að skipið væri vel byggt og ætti að vera auðvelt að athafna sig um borð. Sérstaklega virðist yfirbygging öll þannig, að ekki ætti að vera eins mikil hætta á ísingu og á gömlu togurunum. Ef svo er, þá er þetta auðvitað til mikilla bóta, því eins og allir vita, þá hefir ísingarhættan verið eitt erfiðasta vandamál íslenzku togaranna og hafa margir vask- ir sjómenn týnt lífi sínu af þess- um sökum. En eru stórir togarar, eins og Narfi, heppilegir? Þegar ákveðið var að byggja Narfa og hina togarana, sem nú eru í smíðum í Þýzkalandi, var sem átti sér stað árið áður, og nú lítur ekki út fyrir, að aflinn giæðist neitt verulega á þessu sumri nema síður sé. Geysileg- ur floti togara frá Þýzkalandi og Rússlandi er á þessum mið- um auk okkar togara og mikið af þeim fiski, sem hér hefir bor- izt á land, hefir einmitt verið ungviði, svo búast má við að mikið hafi gengið á stofninn. Ef þessi mið bregðast að ein- hverju leyti, er útlitið ekki sér- lega glæsilegt fyrir stóra tog- ara á borð við Narfa. Atvinnuástand hér á landi er þannig, að ekki er við því að búast, að þessir stóru togarar fái mannafla til að stunda veið- ar í salt, enda mundu túrarnir verða mjög langir á þessum skipum, Virðist því ekki gott útlit með, að þessi skip geti stundað veiðar, sem vafalaust mundu þó verða ábatasamar fyrir alla aðila. Það, sem af er þessum vetri, |hafa togararnir stundað ísfisk- iveiðar hér við land og lagt afla j sinn á land annaðhvort hér ^heima til vinnslu í frystihúsun- !um eða siglt með hann til Eng- | lands og Þýzkalands. Afli hefir |verið tregur nema upp á síð- jkastið, og hefir reynslan verið sú, að aðeins lítill hluti aflans . hefir verið hæfur til frystingar, en meginhlutinn hefir orðið að verkast í skreið. | Yfirleitt hefir það þótt góður afli, ef togararnir hafa komið inn með 150 tonn af fiski eftir tveggja vikna útivist. Þegar þessir stóru togarar fara að veiða með sömu afköstum, má ekki búast við, að þeir fylli sig á skemmri tíma en einum mán- uði til 6 vikum. Þetta þýðir að aðeins einn fjórði eða jafnvel ekki nema einn sjötti af aflan- um úr hverjum túr er hæfur til 'vinnslu í frystihúsum, en í |mesta lagi þriðjungur til helm- ingur aflans er hæfur til skreið- arverkunar. í stuttu máli má setja dæmið upp þannig, að helmingur afla þess, sem þessir togarar koma með, verði ekki hæfur til neins nema í fiskimjöl. Ómögulegt er að géra sér grein fyrir, hve mikil gjaldeyr- isverðmæti fara þannig forgörð- um, en hitt dylst engum, að það er fráleitt fyrir þjóð sem okkur Islendinga að ætla sér að stunda fiskveiðar í stórum stíl og geta ekki hagnýtt aflann til neins nema í skepnufóður. Það virðist því full ástæða til að athuga, hvort ekki er út á mjög svo hálan ís með bygg- ingu þessara stóru togara og hvort ekki er hagkvæmara, ef hyggja þarf stór skip til fisk- veiða, að byggja verksmiðju- skip, eins og Bretar, Þjóðverj- ar og Rússar eru farnir að gera. Verksmiðjuskip eru fær um að skapa eins mikil verðmæti úr afla sínum og frekast er kostur, en þessii' togarar, sem við erum að byggja núna, við- ast hafa litla möguleika til þess. Okkur ber því, íslendingum, að athuga okkar gang í þessum málum. Að vestan í marz: Gæftir frábærar, afii góð- ur á Vestfjörðum. koan ewngin vewul&fj $ÍGÍBnhítsguBttj€t. ísaf. 16. apríl 1960J Vélbáturinn Guðmundur á Sveinseyri er nú aflahæstur í |Vestfjörðum. Hann aflaði 316 lestir í 26 sjóferðum í marz. I Frá Patreksfirði. Þaðan gengu þrír vélbátar, allir með þorska- net. Andri (nýr bátur) fékk 191 lest í 9 veiðiferðum. Sæ- borg 136 lestir í 6 sjóferðum. Sigurfari 128 lestir í 6 sjóferð- um í net og um 50 lestir í 6 sjó- ferðum með línu. | Handfæraveiðar trillubáta byrjuðu síðast í marz. Góður afli þegar reynt var. Togararnir Gylfi og Ólafur Jóhannesson voru báðir á veið- jum. Seldu aflann í Bretlandi. ! Frá Tálknafirði ganga tveir stórir vélbátar. Guðmundur á Sveinseyri aflaði 316 lestir í 26 sjóferðum. Hann er nú afla- .liæsti bátur á Vestfjörðum, eftir að Sæborg .frá Patreksfirði for- fallaðist. Tálknfirðingur aflaði 288 lestir í 25 sjóferðum. Frá Bíldudal ganga þrír stór- ir vélbátar. Jörundur Bjarna- son aflaði 199.6 lestir í 23 sjó- ferðum. Reynir aflaði 164.5 lestir í 23 sjóferðum, og Geysir j 138.7 lestir í 22 sjóferðum. Togskipið Pétur Thorsteinsson landaði 70 lestum í Bíldudal í marz. Frá Þingeyri ganga tveir stór- ir vélbátar. Flosi aflaði 209 lest- ir, allt á línu. Þorbjörn aflaði 177 lestir, 156 á línu og 21 lest í net. Frá Flateyri. Vélb. Ásbjörn aflaði 145 lestir í 15 sjóferíum. jTafðist frá veiðum vikutíma vegna áreksturs. Vélbáturinn Hallvarður frá Suðui'eyri lagði afla sinn í hraðfrystihúsið á Flateyiá og aflaði 145.4 lestir ' í 20 sjóferðum. br M.ORO lesta skipa- stóll i smíóum 1. jan. Stærst er skip, sem Eimskipafélag íslands á í smíðum. Samkvœmt skýrslu skipaeft- irlits ríkisins voru samtals 57 skip í smíðum fyrir* íslendinga um s.l. áramót. Nokkur þessara skipa eru síð- an komin heim, en gera má ráð fyrir, að eigi færri en 40 sé enn I í smíðum. Skip þau, sem um ! var að ræða, voi-u samt. 13.598 rúmlestir að stærð, og var hið I stærsta þeirra, flutningaskip, ^ sem verið er að smíða í Ála- borg í Danmörku fyrir Eim- skipafélag íslands, þeiri'a stærst eða um 2500 rúmlestii'. Þá koma fimm togarar, sem eru samtals 4850 rúmlestir, en j ’ 'einn þeirra er þegar kominn heim, Narfi, sem er 850 lestir, en hinir fjórir eru jafnstórir, 1000 lestir hver. Alls ei'u skipin smíðuð í sex löndum, og smíða Noi'ðmenn flest eða alls 23, og eru þau af stærðinni 100 til 208 lestir. — Minnsta skipið er 70 lestir. Fulltrúar finxm Asíuþjóða — Indónesa, Japana, Filipps- eyinga, Thailendinga og Indverja — sitja ráðstefnu um takmörkun barneigna til að giröa fyrir of öra fólks- fjölgun þar eystra. Frá Suðureyri í Súgandafirði. Þaðan ganga 8 stórir vélbátar. Fi-iðbert Guðmundsson aflaði 208 lestir í 26 sjófei'ðum. Freyja (nýrx-i) 190 lestir í 26 sjóferð- um. Hávarður 176 lestir í 24 sjóferðum. Freyja (eldri) 172 lestir í 24 sjófei'ðum. Frá Bolungarvík. Þaðan ganga fjórir stórir vélbátar. Þoi-lákur aflaði 231.8 lestir í 22 sjófei'ðum. Allt á línu. Einar Hálfdáns stundaði net og línu. Veiddi í net 152 lestir og 82 lestir á línu. Samtals 234 lestir. Hugrún aflaði 202.3 lestir í 26 sjóferðum. Nokkrir smærri vélbátar í Bolungarvík voru að veiðum í marzmánuði, þar af þrír hand- færabátar. Aflahæstur var Sæ- björn (Elías Ketilsson) með 12.3 lestir. Sjöfn aflaði 11.9 lest- ir í 20 skipti og Dímorj 7.3 kgr. | Togskipið Guðmundur Pét- urs fór tvær veiðiferðir og afl- aði 173 lestir. Frá Hnífsdal. Þaðan ganga þrir stórir vélbátar. Páll Páls- son aflaði 157.6 lestir (á línu og í net). Mímir 152 lestir (á línu og í net). Allur aflinn veg- - inn slægðui’. Frá Isafirði. Þaðan ganga 9 stórir vélbátar. Gunnhildur afl- aði samtals 215 lestir (161 lest- ,ir á línu og í 13 sjófei’ðum; hitt í net). Hi'önn 212 iestir í 25. sjóferðum. Guðbjöi'g 211 lestix’, þar af 127 lestir á línu. Straumnes 186 lestir i 26 sjó- ferðum. Vikingur II 184 lestir í 26 sjóferðum. Gylfi 176 lestir í 25 sjóferðum. Gunnvör 152 letir (84.7 lestir á línu í 11 sjó- ferðum og 67.3 lestir í net). Ás- úlfur 155 lestir í 23 sjóferðum. Sæbjörn 137 lestir í 22 sjóferð- um. Togarinn ísborg fór tvær veiðiferðir í marz. Afli 190 lest- ir. Togarinn Sólborg byrjaði veiðar 20. mai’z og aflaði 72 lestir í 8 daga veiðiför. Frá Súðavík. Þaðan ganga þrír vélbátar. Hringur (leigu- bátar) aflaði 184 lestir í 27 sjóferðum. Ti'austi 181 lest í 27 sjóefi'ðum. Sæfari 131.5 lestir í 24 sjóferðum. Aflinn veginn slægður. Frá Steingrímsfirði gengu þrír vélbátar. Sjósókn stopul. Afli sæmilegur. Togskipið Steingrímur trölli var slitrótt að veiðum. Landaði alls 80 lestum í heimahöfn. Talsvert af afla Vestfjarða- bátanna síðari hluta marzmán- aðar er steinbítur. Mismunur á skiptingu aflans milli þorsks og steinbíts fer mikið eftir veiði- stöðvum. Enn hefir engin vei'u- leg steinbítsganga komið. Það eru góð'gæftirnar. sem gefið hafa mestan aflafenginn. Rækjuaflinn var góður í marz, einkum í Arnarfirði. Nú síðustu dagana hefir vei'ið treg- ur afii í ísafj arðardjúpi, enda styttist nú óðum í rækjuver- tíðinni. Arn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.